Þjóðviljinn - 14.12.1986, Page 19
Bossinn
Að poppstjörnurveltimiljónum
kemur engum á óvart og hafa
ýmsar þjóðsögur spunnist um
það. Poppheimurinnerheimur
stórra uppgripa ef vel vegnar en
brautin til velgengni oft þyrnum
stráð og mörg vítin að varast, t.d.
undirförla umboðsmenn.
Þegar talið berst að ríkustu
poppstjörnunum eru þeir Paul
McCartney og Michael Jackson
oftast nefndir. Einn er þó sá mað-
ur sem halar inn mun fleiri
milljónir en þeir. Það er sjálfur
Boss rokksins, Bruce Springste-
en.
í síðasta mánuði sendi Bruce
frá sér kassa með fimm hljóm-
plötum. Eru það hljómleikaupp-
tökur hljóðritaðar á árunum
1975-85. Alls eru lögin 40 á plöt-
unum og stöðug keyrsla hjá Boss-
inum og E Street Bandinu. Þó
hljómleikaupptökur þessar kosti
hátt á þriðja þúsund krónur út úr
búð á meðan venjulegar plötur
kosta um 800 krónur, hafa þær
runnið út einsog heitar lummur í
Bandaríkjunum og víðar.
Strax og plöturnar komu í
verslanir þutu þær í fyrsta sæti
sölulista og hafa setið þar sfðan.
Slíkt hefur ekki gerst síðan Stevie
Wonder gaf út plötuna Songs in
the key of Life, fyrir um það bil
áratug. Kemur það að vísu ekki á
óvart að Bossinn selji hljóm-
leikaupptökur grimmt því þó
hann sé góður í upptökusal er
hann þó ekki nema svipur hjá
sjón þar miðað við á hljóm-
leikum. Hljómleikar með Bruce
Springsteen og E Street Band eru
engu lagi líkir.
Aður en platan kom út höfðu
verslanir pantað eina og hálfa
miljón eintaka af plötum og kas-
ettum. Nú hefur komið pöntun
um nærri tvær miljónir eintaka í
viðbót og er þó sjálfur jólahasar-
inn eftir. Er því spáð að platan
muni seljast í um 15 miljónum
eintaka. Talað er um að Bossinn
fái um 5-6 dollara fyrir hverja
selda plötu og má því ætla að
hann hafi um 80 miljónir dollara
upp úr krafsinu, eða rúm þrjá
miljarða íslenskra króna.
Auk þess fær vinurinn stef-
gjöld í hvert skipti sem tónlist
eftir hann er leikin í útvarpi og
sjónvarpi og þar er ekki sjaldgæft
að rám rödd hans heyrist í ljós-
vakafjölmiðlunum. Hann er í
hópi þeirra lagasmiða sem oftast
eru fluttir í útvarpi með mönnum
á borð við Irving Berlin, Cole
Porter og George Gershwin.
Ofan á þetta bætast svo tekjur
af fyrri plötum, en þær hafa selst
mjögvel. Áður en Live plöturnar
komu hafði Bruce Springsteen
selt um 38 miljónir af plötum.
Söluhæst var platan Born in the
USA, sem seldist í 18 miljónum.
Bruce þénar einnig bærilega á
hljómleikum en í kjölfar Born in
The USA fór hann með hljóm-
sveitina í fimmtán mánaða
hljómleikaferð um víða veröld.
Héldu þeir 156 hljómleika og
sóttu þá um 5 miljón hljóm-
leikagestir. Alls seldust miðar
fyrir 90 miljón dollara og af því
fékk Springsteen um 50 miljónir,
eða um tvo milljarða króna.
Þá er ótalið ýmislegt smádót
sem selt var vegna tónleikanna,
plaköt, bolir og hnappar. I
Bandaríkjunum seldust slíkir
minjagripir fyrir 25 miljónir doll-
ara og af því fékk Springsteen 8
miljónir ( 320 miljónir ísl.).
En hvað ætli vörubflsstjóra-
sonurinn frá Freehold, geri við
alla þessa peninga? Bruce
Springsteen hefur ætíð látið ýms-
ar hjálpastofnanir og hópa sem
hafa átt undir högg að sækja,
njóta hluta af tekjunum. Ein og
hálf miljón dollara (60 miljónir
ísl.) af tekjunum frá síðustu
hljómleikaferð, varði hann í
slflct, m.a. í húsnæði fyrir heim-
ilislausa, atvinnulausra í stál-
iðnaði og til matarbanka. Tals-
maður uppgjafahermanna frá
Víetnam hefur sagt að sennilega
væru samtök þeirra ekki til í dag
ef Springsteen hefði ekki stutt þá
fjárhagslega í gegnum árin. Ný-
lega sendi Springsteen matar-
banka í New Yersey ótilgreinda
upphæð til að kaupa kalkúna og
afhenda þá fátækum nú yfir há-
tíðina.
Þrátt fyrir þessa gjafmildi eru
þetta þó óverulegar upphæðir
miðað við það sem hann þénar.
Hann á íbúð á Manhattan í New
York. aðra í New Jersey og ein-
býlishús í Los Angeles. En ólíkt
flestum öðrum stórstjörnum er
hann ekki með einkaþotur og
snekkjur.
Þegar allar helstu stórstjörnur
rokkheimsins komu saman i Los
Angeles til að hljóðrita lagið We
are the World, en ágóði þess rann
til hjálpar hungruðum í Afríku,
streymdu þær að á einkaþotum
og límonsínum með lífverði og
fylgdarlið. Springsteen kom hins-
vegar einn akandi á bflaleigubfl,
sem hann hafði tekið á leigu á
flugvellinum.
-Sáf/Time
Allir vinningar
dregnir
út
ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 19