Þjóðviljinn - 30.12.1986, Page 1
Þriðjudagur 30. desember 1986 295. tölublað 51. árgangur
Vegagerð
Vomm leiddir á villigötur
Hagvirki krefst 24 milljóna í bœtur vegna vegagerðar á Laxárdalsheiði.
■Jóhann Bergþórsson: Verkið var allt annað ensagði í útboðsgögnum.
Jón Birgir Jónsson: Hefði verið hœgt að vinna verkið eftir kostnaðaráœtlun
Við vorum hreinlega lciddir á
villigötur. Það verður reynt
að komast að samkomulagi um
kröfur okkar, en takist það ekki
förum við með málið fyrir gerð-
ardóm Verkfræðingafélags Is-
lands, sagði Jóhann G. Bergþórs-
son framkvæmdastjóri verktaka-
fyrirtækisins Hagvirkis í samtali
við Þjóðviljann í gær.
Hagvirki hefur krafist bóta að
upphæð rúmlega 24 milljónir
króna frá vegagerðinni, vegna
vegaframkvæmda á Laxárdals-
heiði, sem fyrirtækið tók að sér á
síðasta ári. Vegagerðin hefur
aldrei áður verið krafin svo hárra
bóta vegna útboðs. Tilboð Hag-
virkis í verkið nam um 4,8
milljónum króna, eða 45,3% af
kostnaðaráætlun 'vegagerðarinn-
ar, sem hljóðaði alls upp á 10,79
milljónir.
Greiðslur til fyrirtækisins
námu hins vegar aðeins 4,4
milljónum eftir að dagsektir
höfðu verið dregnar frá um-
sömdu verði, en kostnaður Hag-
virkis vegna verksins var að sögn
Jóhanns alls um 22 milljónir
króna. Hann segir þetta stafa af
því að verkið hafi reynst allt ann-
að en kom fram í útboðsgögnum,
bæði dýrara og tafsamara, vega-
gerðin hafi leitt fyrirtækið á villi-
götur eins og hann orðaði það.
A þessu ári kom svo fram bóta-
krafa upp á rúmlega 24 milljónir
króna og varakrafa upp á rúm-
lega 21 milljón. Vegagerðin fékk
verkfræðistofuna Mat s.f. til þess
að meta verkið og lagði hún til að
aðalkröfu Hagvirkis yrði hafnað,
en fyrirtækinu yrðu greiddar 1173
þúsund krónur. Sjálf tók stofan
meira en hálfa milljón fyrir sinn
snúð.
Jón Birgir Jónsson yfirverk-
fræðingur vegagerðarinnar sagði
í samtali við Þjóðviljann í gær að
líklega yrði komið á sáttafundum
milli aðila í upphafi næsta mánað-
ar. „Við erum þeirrar skoðunar
að hiklaust hefði mátt vinna þetta
verk eftir kostnaðaráætlun okk-
ar, en við leggjum engan dóm á
hvers vegna kostnaður Hagvirkis
varð svo mikill,“ sagði Jón.
-gg
B o rgarsp ítalinn
Neyðarástand
í sjónmáli
Uppsagnir meinatækna ganga ígildi um
áramótin. Ekki útlitfyrir að samningar
náistfyrirþann tíma
Það var átak fyrir okkur að
taka þessa ákvörðun en kröfur
okkar hafa ekki einu sinni þótt
viðræðugrundvöllur fyrir sam-
komulagi þannig að við eigum
ekki annarra kosta völ, sögðu
Valborg Þorleifsdóttir og Herdís
Einarsdóttir meinatæknar á
Borgarspítalanum, en um ára-
mótin ganga í gildi uppsagnir um
40 meinatækna þar.
Meinatæknar Borgarspítalans
sögðu upp sl. sumar og áttu upp-
sagnir þeirra að taka gildi 1. októ-
ber sl. Borgarráð framlengdi
uppsagnarfrest þeirra um 3 mán-
uði og rennurhann út nú. „Þaðer
hart að eftir þessa þrjá mánuði
hefur ekkert verið að gert í okkar
málum. Það er ekki fyrr en á allra
síðustu dögum að eitthvað hefur
verið rætt við okkur“ sögðu Val-
borg og Herdís.
Meinatæknum Borgarspítal-
ans hefur verið boðin sama
launahækkun og meinatæknar
ríkisspítalanna hafa fengið, en
það er hækkun um 2 launaflokka,
gegn því skilyrði að uppsagnir
yrðu dregnar til baka. Meina-
tæknar Borgarspítalans hafa ekki
vjljað fallast á þetta tilboð, en
kröfur þeirra hljóða upp á 45%
áhættuálag til viðbótar við
launaflokkahækkun og 16 daga
vetrarfrí. Meinatæknar hafa hins
vegar boðist til þess að fresta
framkvæmd uppsagna um 2 mán-
uði, eða þar til framtíð Borgar-
spítalans skýrist, gegn sjálfkrafa
launaflokkahækkun á tímabilinu,
en því hefur verið hafnað af borg-
arráði og endanlega af borgar-
stjóra á þorláksmessu en hann
kveður slíka aðgerð ólöglega.
Meinatæknafélag íslands hefur
sent frá sér tilkynningu þar sem
fullum stuðningi félagsins er
heitið við meinatækna Borgar-
spítalans og því heitið að aðrir
meinatæknar muni ekki vinna
störf þeirra ef til vinnustöðvunar
komi. „Við ætlum okkur heldur
ekki að vinna almenn
rannsóknarstörf sem heyra undir
Borgarsjúkrahúsið og send eru á
önnur sjúkrahús" sagði Helga
Ólafsdóttir formaður félagsins í
samtali við Þjóðviljann.
„Náist ekki samningar við
meinatækna fyrir áramótin þá
blasir við okkur gífurlegt vanda-
mál“ sagði Magnús Skúlason að-
stoðarframkvæmdarstjóri Borg-
arspítalans. „Ég reikna með að
við verðum að hætta að taka inn
nýja sjúklinga og jafnvel flytja
einhverja þá sem fyrir eru á aðra
spítala. Þá er líklegt að við
neyðumst til þess að loka slysa-
móttökunni, sem er mjög slæmt
því þetta er stærsta og
fullkomnasta slysamóttaka
landssins".
________________________-K.ÓI.
„Ákvörðunin um uppsögn varekki á-
takalaus" sögðu þær Herdís Einars-
dóttir og Valborg Þorleifsdóttir meina-
tæknará Borgarspítalanum. Mynd:
KGA
Fríðarfundur
Leiðtogafimdur í Stokkhólmi
Ferskum hugmyndum Reykjavíkurfundarinsfagnað ínýársávarpi þjóðarleiðtoganna sex
Leiðtogafundurinn í Reykjavík
sýndi að hægt er að ná árangri
ef stjórnmáialegur vilji og víðsýni
er fyrir hendi, segir meðal annars
í nýársyfirlýsingu þjóðarleiðtog-
anna sex sem undanfarin ár hafa
beitt sér fyrir nýju frumkvæði í
átt til friðar og afvopnunar.
Leiðtogarnir fagna því að
„ferskar hugmyndir" úr tillögun-
um frá Reykjavík eru enn „á við-
ræðuborðinu" og hvetja forystu-
menn Bandaríkjanna og Sovétr-
íkjanna til að taka aftur upp
þráðinn á árinu 1987. í yfirlýsing-
unni, sem dreift var samtímis í
sex höfuðborgum, er hörmuð sú
ákvörðun Sovétmanna að hefja
aftur tilraunasprengingar þegar
fyrsta bandaríska tilraunabomb-
an á árinu springur, stórveldin
hvött til að koma sér saman um
tilraunahlé og boðin aðstoð við
eftirlit.
Yfirlýsing þjóðarleiðtoganna
sex, forystumanna Grikklands,
Argentínu, Svíþjóðar, Tanzaníu,
Mexíkó og Indlands var undirbú-
in á fundi skipulagsnefndar
leiðtogafrumkvæðisins í New
York um miðjan desember, og
sagði Ólafur Ragnar Grímsson,
sp.m sótti hann fund. að bar hefðu
einnig verið lögð drög að fundi
leiðtoganna í Stokkhólmi á miðju
næsta ári. Ólafur sagði að
leiðtogarnir sex væru staðráðnir í
að efla samvinnu sína, sérstak-
lega eftir Reykjavíkurfundinn
þar sem litlar líkur væru á að for-
ystumenn risaveldanna ákveði að
hittast án þess þeir séu knúðir til.
Sjá síðu 8