Þjóðviljinn - 30.12.1986, Page 2
FRÉTTIR
—SPURNINGINi
Spurt við höfnina:
Álítur þú að átökin verði
hörð ef til verkfalls kem-
ur hjá sjómönnum?
Skúli Guðmundsson, sjómað-
ur:
Ég veit það ekki. Umræðan um
þetta hefur verið lítil og mér sýn-
ist enginn sérstakur baráttuhugur
í mönnum.
Kristján Sigurðsson, sjómaður:
Ég held ekki. Mér hefur virst
það að í gegnum tíðina hafi skort
samstöðu hjá sjómönnum. T.d.
finnst mér að togararnir sem
verða úti þegar verkfallið skellur
á ættu að keyra í höfn og sýna
samstöðu.
Grétar Helgason, sjómaður:
Ég veit það ekki. Én ef til ver-
kfalls kemur þá er ég sannfærður
um að það verði langt.
Einar Ingi Ágústsson, útgerð-
armaður:
Komi til verkfalls þá reikna ég
með því að það verði langt.
Ingimundur Elísson, sjó-
maður:
Ég hef á tilfinningunni að
átökin verði mjög hörð. Það ríkir
mikil óánægja hjá sjómönnum
' með kjör sín.
Sveinn K. Sveinsson forstjóri Völundar tekur við viðurkenningaskjali Trésmiðjafélagsins úr höndum Þorbjörns Guðmundssonar varaformanns félagsins.
Á H1 „ >, Mynd-KGA.
/1 i i s~\ ( f «
Viðurkenning til Völundar
Trésmiðafélag Reykjavíkur veitir viðurkenningufyrirgóða vinnuaðstöðu.
Grétar Porsteinsson: Öðrumfyrirtœkjum tilögrunar og hvatningar
Trésmiðafélag Reykjavíkur af-
henti í gær forráðamönnum
Trésmiðjunnar Völundar í Skeif-
unni, viðurkenningu fyrir góðan
aðbúnað starfsmanna á vinnu-
stað. Þetta er annað árið í röð
sem Trésmiðafélagið afhendir
viðurkenningar fyrir aðbúnað á
vinnustöðum félagsmanna sinna.
í máli Grétars Þorsteinssonar
formanns félagins við afhendingu
viðurkenningarinnar í gær kom
fram að mjög víða er pottur brot-
inn í aðbúnaðarmálum í tréiðnaði
og þetta framtak félagsins því
bæði ögrun og hvatning til fyrir-
tækja í greininni að bæta aðbún-
að á vinnustöðum.
Völundur hf. hlaut viðurkenn-
inguna í ár fyrir snyrtilega að-
stöðu fyrir starfsmenn, rúmgóða
og vistlega kaffistofu, góða loft-
ræstingu í vinnusal, góða bún-
ingsaðstöðu og einnig þykir um-
gengni starfsmanna til fyrirmynd-
ar. -lg.
Verðlaunasjóður Ásu
Heiðursverð-
laun til dr.
Guðmundar
Dr. Guðmundur Pálmason
jarðeðlisfræðingur hlaut í gær
heiðursverðlaun úr verðlauna-
sjóði Ásu Guðmundsdóttur
Wright. Guðmundur hlaut verð-
launin fyrir jarðhitarannsóknir
sínar og kannanir á eðli jarðs-
korpunnar.
Afmœli
Brunabót
70 ára
Brunabótafélag íslands, sem
stofnað var með lögum nr. 59/
1915, hóf starfsemi sína 1. janúar
1917 og heldur því upp á 70 ára
starfsafmæli um næstu áramót.
Föstudaginn 2. janúar 1987
verða skrifstofur félagsins opnar
1 með venjulegum hætti frá kl. 9.30
til 4, en mánudaginn 5. janúar
verður opið hús, þ.e. tekið á móti
gestum með kaffi og kökum á
öllum skrifstofum félagsins til að
minnast þessara tímamóta.
París
Tarkovskí er látinn
Lést úr krabbameini 54 ára að aldri. Truflaði mjög hinn hefðbundna
Hinn ágæti rússneski kvik-
myndalcikstjóri Andrei Tark-
ovskí lést í gær í París, 54 ára
að aldri. Hann hafði átt við
krabbamein að stríða, og
stóðu vonir vina hans til þess
að hann fengi fullan bata, en
þær vonir hafa ekki ræst.
Andrei Tarkovskí vakti
strax með fyrstu kvikmynd
sinni, Bernska ívans, sem lýsir
ungum dreng sem tekur á
sínar mjóu herðar virka þátt-
töku í heimsstyrjöld, mikla og
verðskuldaða athygli. Á eftir
henni kom sú mynd sem ef til
vill hefur borið nafn Tarkov-
skís víðast - Andrei Rúbljóf,
(1966), sem fjallar um lista-
mann og vald - og er þá dæmi
tekið af þekktasta helgi-
myndamálara Rússa, Rú-
bljóf. í þeirri mynd og þeim
kvikmyndum sem á eftir
komu hefur Tarkovskí truflað
mjög hinn hefðbundna kvik-
myndastfl, hvort sem hann
kvikmyndastíl
Andrei Tarkovskí.
réði ríkjum í austri eða vestri,
og gefið svigrúm erfiðu og
kröfuhörðu formi,
kvikmyndaljóðinu, sem
reynir að bregða persónulegri
birtu yfir margan eilífðar-
vanda mennskrar tilveru.
Árið 1984 gerði Tarkovskí
kvikmyndina Nostalgía á ítal-
íu og hafði þá fengið nóg af
árekstrum við sín yfirvöld.
Eftir það var hann fyrir vest-
an, barðist með aðstoð
margra góðra manna fyrir
sameiningu fjölskyldu sinnar
og gerði í Svíþjóð síðustu
kvikmynd sína, Fórnin - um
mann sem er reiðubúinn að
fórna öllu því, sem honum er
dýrmætast, ef það mætti verða
til þess að forða mannkyni frá
hinu mesta slysi.
Aðdáendur Tarkovskís hér
á íslandi efndu í fyrra til hátíð-
ar þar sem allar helstu myndir
hans voru sýndar. Andrei
Tarkovskí kom sjálfur til hát-
íðar og vakti, bæði sem hlý-
legur persónuleiki og hug-
myndaríkur málsvari þess sem
erfitt sýnist í listum, einlega
aðdáun allra þeirra sem af
honum höfðu nokkur kynni.
ÁB
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 30. desember 1986