Þjóðviljinn - 10.01.1987, Síða 2

Þjóðviljinn - 10.01.1987, Síða 2
—SPURNINGIN— Hvernig hefur þér líkað á námskeiðinu í Háskólan- um? Starfsfólk Granda hf. spurt Guðrún Siguröardóttir Mjög vel. Viö sem vinnum við þetta daglega erum aö læra upp á nýtt. Núna tekur maöur miklu betur eftir öllu í vinnunni, gæðum og slíku. Maður hugsar meira um það en áður að þetta eru mat- væli. Elína Hallgrímsdóttir Mjög vel. Ég hef örugglega haft gagn af þessu. Þó ég hafi unnið í frystihúsi í 15 ár þá er alltaf hægt að læra eitthvað nýtt. Gyða Thorberg Alveg frábærlega vel. Ég hef lært mjög mikið hér. Eitt það mikilvægasta sem við lærðum um var öryggi á vinnustað og vinnuvistfræði, það er að segja um vinnustellingar. Hrafnhildur Haraldsdóttir Mjög vel, ég hef haft mikið gagn af öllum námskeiðunum tíu. Eg tek fleiri svona námskeið ef mér gefst kostur á, þetta er starf sem mér líkar vel við. Kristín Alda Guðmundsdóttir Mér líkaði mjög vel. Flestallt var mjög fróðlegt og við lærðum margt: hvað verður um fiskinn, um öryggi á vinnustað, um gerla og fleira. FRÉTTIR Björgunarsstörf Vantar stjómstöð Gunnar Bergsteinsson: Eigum að gerast aðilar að alþjóða- samkomulagi um björgunarstörfá hafi úti Islensk stjórnvöld ættu að taka ákvörðun um það að gerast að- ilar að samkomulagi Alþjóða sigl- ingamálastofnunarinnar um björgunarstörf á hafi úti, sagði Gunnar Bergsteinsson forstjóri Landhelgisgæslunnar í samtali við Þjóðviljann þegar hann var spurður að því hvaða stefnu hann teldi að ætti að taka í björgun- armálum íslendinga. „fslendingar eru þegar aðilar að Alþjóða siglingamálastofnun- inni en hafa ekki gerst aðilar enn að þessu samkomulagi sem tók gildi 1979. í því er kveðið á um að hver þjóð sjái um björgunarað- gerðir á ákveðnu hafsvæði og hafi til stjórnunar þeim aðgerðum sérstakar stjórnstöðvar. Slík stöð er ekki til hér á landi og það getur valdið því að þegar margir aðilar vinna saman þá er ekki ljóst hver er ábyrgur fyrir aðgerðum, né hver á að sjá um að hafa samband og samstarf við björgunarstjórnstöðvar erlend- is.“ Gunnar sagðist telja að of dýrt væri fyrir íslenska ríkið að koma sér upp sams konar tækjabúnaði og til dæmis herinn hefur yfir að ráða, svo sem þyrlum sem geta tekið eldsneyti á flugi. Þessi elds- neytisvél hersins var ekki stödd á landinu þegar Suðurlandsslysið varð um jólin og þess vegna var ekki hægt að senda þyrlu þaðan á slysstað. „Varnarliðið er hér fyrst og fremst vegna sinna manna og þó þeir séu alltaf boðnir og búnir til að aðstoða okkur þá megum við ekki stóla eingöngu á þá,“ sagði Gunnar. „En við eigum enn langt í land með að sjá um allar aðgerð- ir á hafi úti sjálfir, því fjármagn er takmarkað.“ -vd. Eldri borgarar Félags- starf í Sigtúni Dagný Björgvinsdóttir, Kolbeinn Bjarnason og Guðni Franzson á æfingu í Safnaðarheimili Kristskirkju. Tónlist Þrir ungir í Kristskirkju Fyrstu tónleikar ársins á sunnudag Fyrstu tónleikar Tónlistarfé- lags Kristskirkju á nýbyrjuðu ári verða í Safnaðarheimilinu Há- vallagötu 16 nk. sunnudag kl. 17. Þar munu koma fram þrír ungir tónlistarmenn, Kolbeinn Bjarna- son flautuleikari, Dagný Björg- vinsdóttir píanóleikari og Guðni Franzson klarinettleikari. Þau flytja verk frá 18., 19. og 20. öld, eftir C.F.E.Bach, Schu- mann, Sjostakóvíts, Hindemith, Fukushima og Martino. Tvö síð- asttöldu tónskáldin eru lítið sem ekkert þekkt hér á landi, en þeir eru frá Japan og Bandaríkjunum og teljast í fremstu röð tónlistar- manna í þeim heimshlutum. Er flutningur verka þeirra liður í þeim áformum félagsins að frum- flytja sem mest af erlendum og innlendum tónverkum. Á þessum tónleikum verður flautuleikur Kolbeins Bjarna- sonar í fyrirrúmi. Hann leikur í öllum verkunum, sem reyndar eru öll með flautuna í forgrunni, og eitt þeirra, Quodlibets (1980) eftir Donald Martino er meðal fegurstu og um leið erfiðustu ein- leiksflautuverka sem samin hafa verið á okkar tímum. Dagný Björgvinsdóttir leikur á píanó í hinum verkunum, en Guðni Franzson leikur á klarinettu í 4 völsum eftir Sjostakovíts. Tónlistarfélag Kristskirkju mun gangast fyrir öðrum tón- leikum í febrúar, þar sem þau Simon Kuran, Sigurður I. Snorrason og Anna Guðný Guð- mundsdóttir munu flytja verk eftir Beethoven, Leif Þórarins- son og tékknesk nútímaskáld, og síðan eru m.a. áformaðir tón- leikar með íslenskum nútíma- verkum í apríl. Félag eldri borgara í Reykjavík heldur opið hús í Sigtúni við Suð- urlandsbraut á laugardag kl. 14, og verður opið fram eftir kvöldi. Nú stendur yfir innritun í starfs- hópa félagsins, og eru nú að fara í gang hópar í bridge, féiagsvist, dansi, leiklist og söng. Ægir Ól- afsson starfsmaður félagsins sagði í samtali við blaðið að hægt ,væri að bæta við nýjum hópum eftir áhuga og þátttöku, og eru allir Reykvíkingar, 60 ára og eldri velkomnir. Á laugardaginn verða einnig umræður um möguleika félags- manna á að fá afslátt í verslunum, og þá verður stiginn dans eftir kl. 17 við harmóníkuundirleik Hjálmars Helgasonar. Þá verður einnig boðið upp á kaffiveitingar og kvöldverð á kaffiteríunni. Ægir Ólafsson sagði að félagar í Félagi eldri borgara væru nú 4500, og hefði félagið gengist fyrir opnu húsi í Sigtúni alla virka daga síðastliðna 2 mánuði við góðar undirtektir. Markmið fé- lagsins er að auka og treysta fé- lagsleg tengsl eldri borgara og standa vörð um hagsmuni þeirra. ólg. Reykjavík Skákþing Skákþing Reykjavíkur 1987 hefst á sunnudag, 11. janúar, »og verður tefit í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur að Grens- ásvegi 46. í aðalkeppninni, sem hefst á sunnudaginn kl. 14, munu kepp- endur tefla saman í einum flokki 11 umferðir eftir Monradkerfi. Keppni í flokki 14 ára og yngri á skákþingi Reykjavíkur hefst laugardag, 17. janúar kl. 14. Lokaskráning í aðalkeppnina er á laugardag, 10. janúar kl. 14— 18, og er öllum heimil þátttaka. 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. janúar 1987

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.