Þjóðviljinn - 10.01.1987, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 10.01.1987, Qupperneq 3
FRETTIR Erlendir námsmenn Búum við sultarkjör „Víða svo komið að námsmenn verða að sætta sig við húsnœðiog aðbúnað sem alls ekki væri talinn mannsœmandi hérheima“ Kvennalisti Kristín út eftir 2ár Kristín Halldórsdóttir þing- maður Kvennalistans á Reykjanesi hefur lýst því yfir að nái hún kosningu í þingkosning- unum í vor, mun hún eftirláta 2. manni á lista flokksins þingsætið þegar 2 ár eru liðin af kjörtíma- bilinu. Framboðslisti Kvennalistans í Reykjaneskjördæmi hefur verið ákveðinn og skipar Anna Ólafs- dóttir Björnsdóttir sagnfræðing- ur úr Bessastaðahreppi 2. sætið en Kristín Halldórsdóttir er áfram í 1. sæti. í þriðja sæti er Sigrún Jónsdóttir þjóðfélags- fræðingur Kópavogi, Kristín Sig- urðardóttir sölukona, Mosfells- hreppi í 4. sæti og Þórunn Frið- riksdóttir kennari úr Keflavík í 5. sæti. Fornleifafrœði Rit um Kópavogs- þingstað Sagtfrá uppgreftri á þingstaðnum í Kópavogi Komin er út bókin Rannsókn á Kópavogsþingstað, sem hefur að geyma greinargerð Guðrúnar Sveinbjarnardóttur, fornleifa- fræðings, um uppgröft og rann- sóknir á minjum, sem upp komu á þingstaðnum í Kópavogi. í inngangi segir Guðrún m.a.: „Rannsókn ætlaðs þingstaðar í Kópavogi, sem fram fór á árun- um 1973-1976, er fyrsta skipulega rannsóknin sem gerð hefur verið á þingstað hér á landi. Nú stendur Fjóðminjasafn íslands fyrir upp- greftri á leifum þingstaðar í Þing- nesi við Elliðavatn. Það þing mun vera eldra en Kópavogsþingið og ætti því að þeim rannsóknum loknum að hafa fengist betri mynd af því, hvernig íslenskir þingstaðir litu út og jafnframt möguleiki á að bera saman mis- munandi tímaskeið þeirra. Þingstaðurinn í Kópavogi er einn af þekktari þingstöðum landsins, og þá aðallega fyrir Kópavogseiðana svonefndu, sem þar voru unnir árið 1662. Tals- verðar rústaleifar voru sjáanlegar á staðnum fyrir uppgröft, en að auki minna dysjar umhverfis staðinn á aftökur þær, sem þar áttu sér stað. Hjónadysjar eru enn allmikil þúst rétt austan við Hafnarfjarðarveginn. Vega- vinnumenn rákust á dysina árið 1938, og fundu hauskúpu með miklu hári og aðra beinagrind hauslausa... Systkinaleiði munu nú vera undir Fífuhvammsvegin- um... Rannsókn sú, sem hér birtist skýrsla um, var gerð fyrir Kópa- vogsbæ á þeim stað, þar sem talið er, að þingið hafi verið haldið.“ Kopavogsbær kostaði uppgröft- inn. Bókin fæst í Bókasafni Kópa- vogs, Bókabúðinni Vedu í Hamraborg, hjá Sögufélaginu og í Bókaverslun Sigfúsar Eymunds- sonar og Máli og menningu. Bók- in er með myndum, uppdráttum og úrdrætti á ensku. Útgefandi er Kópavogsbær. Mcnntamálaráðherra skar framfærslu námsmanna nið- ur um 15% í byrjun árs og stjórn lánasjóðsins leyfir sér svo að hæl- ast yfir greiðsluafgangi sem feng- inn er með því að svelta náms- menn. Víða er nú svo komið er- lendis að námsmenn verða að sætta sig við húsnæði og aðbúnað sem alls ekki væri talinn mannsæmandi hér heima. Við viljum benda á það að lánin eru nú langt fyrir neðan lægstu launataxta verkalýðsfélaganna. 5 starfsmcnn Granda hf. fengu í gær afhent próf- skírteini í Félagsstofnun stúdenta að loknum tíu bóklegum nám- skeiðum í Háskóla Islands og tveimur verklegum námskeiðum á vinnustað. Vinningsfjárhæð í Lottóinu þær sex vikur sem það hefur starfað nemur samtals um 22 milljónum króna og vinningshaf- ar eru orðnir tæplega 42 þúsund, sem þýðir að sjötti hver Islend- ingur hefur hlotið vinning, að meðaltali. 40% af innkomu fer í vinninga þannig að heildarveltan er þegar komin yfir 50 miljónir. Á fyrstu sex vikunum hafa tæp- lega 11 milljónir króna farið í 1. Við skorum á menntamálaráð- herra að fara að lögunum frá 1982 og tryggja námsmönnum 100% framfærslu í samræmi við þau, segir m.a. í ályktun jóla- fundar SÍNE um frumvarpsdrög Sverris Hermannssonar að nýj- um lánasjóðslögum. SINE lýsir í ályktuninni yfir algerri andstöðu við meginhug- myndir frumvarpsins en segist geta fallist á þær breytingar sem samstarfsnefnd námsmanna hef- ur lagt til að gerðar verði til að Þetta er í fyrsta sinn sem fisk- vinnslufólk sækir fræðslu með þessum hætti í Háskóla íslands. Þátttakendur í námskeiðunum fá starfsheitið sérþjálfaður fisk- vinnslumaður og því fylgir 1300 króna kauphækkun á mánuði. vinning. 13 manns hafa verið með fimm tölur réttar það sem af er og hafa því að meðaltali hlotið um 846 þúsund krónur hver. Sá heppnasti til þessa hlaut sem kunnugt er 3,2 milljónir króna í annarri leikviku. Sölustaðir Lottós 5/32 eru nú komnir vel yfir eitt hundrað um mest allt land og stöðugt er unnið að því að fjölga sölukössum. Sala fer fram alla daga vikunnar nema sunnudaga. Fram að þessu hefur hækka greiðsluhlutfall námslána. Að öðru leyti vilja SÍNE félagar lögin frá 1982 óbreytt. Þrátt fyrir glaðbeittar yfirlýs- ingar ráðamanna um áframhald- andi hagþróun byggða á eflingu vísinda og hátækni er ljóst að al- gjört stefnuleysi og ringulreð rík- ir í málefnum æðri menntunar á íslandi. Fjárskortur Háskóla ís- lands er eitt gott dæmi um þetta og námsmönnum erlendis finnst aðstöðuleysi þar stinga í augun ef Þessi námskeið eru seinni áfangi í fræðslustarfis sem hófst þegar fiskvinnslufólk gerði fast- ráðningarsamning við Granda hf. en fyrri áfangi hófst þá og hefur staðið nær óslitið það sem af er vetri. - vd sala verið minnst fyrsta söludag hverrar viku, en farið stighækk- andi með hverjum degi og náð hámarki á laugardögum, þegar dregið er í beinni útsendingu í Sjónvarpinu. Mest hefur salan á einum degi orðið laugardaginn 3. janúar, þegar hún nam tæplega 8,2 milljónum króna. Verslunin Ösp í Hafnarfirði hefur verið söluhæsti umboðs- maðurinn í öllum leikvikum fram til þessa. borið er saman við erlenda há- skóla. Fyrirhugaðar breytingar á lánasjóðnum munu ekki gera annað enn að auka enn fremur þann vanda sem við er að etja. Háskóli íslands er þegar yfirfull- ur og getur ekki tekið við náms- mönnum sem hugsanlega hrökkl- uðust úr námi erlendis og slíkt mundi auka þá einangrun sem fs- land býr óhjákvæmilega við í málefnum vísinda og mennta, segir að lokum í ályktun SÍNE fundarins. Ungt fólk Friðarhátíð í Stokkhólmi Stefntað þvíað hópur fari frá íslandi. Fundaðá sunnudag Friðarhátíð Norðurlandanna verður haldin í Stokkhólmi í sum- ar og er í undirbúningi að hópur ungs fólks héðan fjölmenni á hát- íðina með sérstaka dagskrá. Undirbúningsfundur vegna friðarhátíðarinnar verður hald- inn á sunnudaginn kl. 16.00 í húsakynnum Iðnnemasambands- ins að Skólavörðustíg 19 og eru allir áhugasamir hvattir til að mæta. Síðan kjarnorkusprengjunni var varpað á Hiróshima hafa ver- ið sprengdar meira en 1580 kjarn- orkusprengjur á jörðinni. Þessar tilraunasprengingar eru undir- búningur undir kjarnorkustyrj- öld og þær verður að stöðva ef afvopnun á að verða eitthvað annað en orðið tómt, segir í frétt- atilkynningu frá undirbúnings- hópi. Þá er ráðgert að ungt fólk hvaðanæva úr heiminum fjöl- menni til Nevada í Bandaríkjun- um í sumar til að mótmæla til- raunasprengingunum sem þar fara fram. Kvenréttindafélagið Afmælis- sýning á myndverkum kvenna Kvenréttindafélagið heldur upp á 80 ára afmæli sitt í lok þessa mánaðar og mun minnast þess með margvíslegum hætti. M.a. verður haldin myndlistarsýning á verkum eftir konur í nýjum sam- komusal félagsins í kjallara Kvennaheimilisins á Hallveigar- stöðum. Sýningin verður opnuð 23. janúar og mun standa fram í febrúar. Ætlunin er að meginviðfangs- efni myndverkanna snerti konur á einhvern hátt og eru þær konur sem áhuga hafa á að senda verk á sýninguna beðnar að skila inn verkum að Hallveigastöðum í síðasta lagi n.k. mánudag frá kl. 17-19. Laugardagur 10. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Aðalheiður Fransdóttir tekur hér við prófskírteini sínu úr hendi Svavars Svavarssonar. Mynd Sig. Fiskvinnslufólk Prófskírteini afhent Fiskvinnslufólk í Granda lauk námskeiðum ígœr og tók við skírteinum. Fær 1300 króna kauphœkkun Lottó Heildarveltan yfir 50 milljónir Landsmenn haldnir Lottóœði. Miðar seldust fyrir rúmar 8 miljónir sl. laugardag

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.