Þjóðviljinn - 10.01.1987, Síða 6

Þjóðviljinn - 10.01.1987, Síða 6
ÍÞRÓTTIR Knattspyrna Magnús í Ármann Magnús Bergs, fyrrum lands- liðsmaður, hefur verið ráðinn þjálfari Ármenninga fyrir næsta keppnistímabil. Ármann féll í 4. deild sl. sumar en fær tækifæri til að halda sæti sínu í 3. deild vegna fjölgunar liða þar með aukaleik við Leikni Reykjavík í mars. Magnús lék með Val en síðan var hann atvinnumaður hjá Dort- mund og Braunschweig í Vestur- Þýskalandi, Tongeren í Belgíu og Racing Santander á Spáni. Hann hætti að leika knattspyrnu fyrir tveimur árum og hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann leikur með Ármannsliðinu. -VS Stjörnuhlaupið Fyrsta hlaup ársins á vegum Víða- vangshlaupanefndar FRÍ fer fram í dag. Það er Stjörnuhlaup FH sem hefst kl. 14 við Lækjarskóla í Hafnar- firði. Karlar 35 ára og eldri og 19-34 ára hlaupa 8 km, konur, drengir, telpur og piltar 3 km. Frjálsíþrótta- deild FH hefur umsjón með hlaupinu, sími 52403. Badminton noregi ísland og Noregur leika í dag landsleik ■ badminton í Kristians- and og verður hann sýndur beint í norska sjónvarpinu. íslenska lið- inu var sérstaklega boðið í þenn- an leik í tilefni opnunar nýrrar badmintonhallar í Kristiansand. íslenska liðið er skipað fjórum leikmönnum úr TBR sem eru Broddi Kristjánsson, Árni Pór Hallgrímsson, Þórdís Edwald og Elísabet Þórðardóttir. Þau taka jafnframt þátt í alþjóðlegu móti, CB-cupen, sem hófst í gærkvöldi og lýkur á morgun, sunnudag. Guimundur Guðmundsson birtist skyndilega inni á miðri línu Pólverjanna og skorar eitt fimm marka sinna í seinni hálfleik. Hilmar Sigurgíslason fylgist með ásamt Bogdan Wenta, hinum stórkostlega leikmanni Gdansk. Mynd: E.ÓI. Víkingur-Gdansk Súrt en samt sætt Frábœrframmistaða í50 mínútur gegn einu bestafélagsliði heims. Víkingar í undanúrslit með sigri annað kvöld Jafntefli hjá Víkingum við Wy- brzeze Gdansk. Betri úrslit en flestir áttu von á gegn einu bestu félagsliði heims - reyndar stór- kostleg úrslit þegar á allt er litið. En menn geta lika leyft sér að Kvennahandbolti Góður sigur FH FH vann sanngjarnan sigur á Val, 19-17, í 1. deild kvenna í Hafnarfirði í gærkvöldi. Staðan í hálfleik var 8-9, Val í hag, en FH tók síðan yfirhöndina í seinni hálfleik, breytti stöðunni í 14-10 og eftir það var varla spurning um hvort liðið bæri sigur úr být- um. FH-liðið var jafnt og liðs- heildin góð en hjá Val stóð Arn- heiður Hreggviðsdóttir mark- vörður sig vel og varði á mikil- vægum augnablikum og Soffía Hreinsdóttir lék vel þann stutta tíma sem hún fékk að spreyta sig. Mörk FH: Kristín 5, Sigurborg 4, Rut 4(3v), Hildur 3, Arndís 2, María 1. Mörk Vals: Katrín 5, Guðný 3, Soffía 3, Guðrún 3, Erna 1, Ásta 1, Harpa 1. -MHM Laugardalshöll 9. janúar Víkingur (11) 25 Gdansk (11)25 3-2, 3-4, 5-4, 5-6, 7-6, 8-7, 9-8, 10- 9,11-10,11-11 -14-11,16-13,19-15, 20-16,22-17,23-18, 23-21,24-21,24- 25, 25-25. Mörk Víkings: Karl Þráinsson 6(2v), Bjarki Sigurðsson 5, Guðmund- ur Guðmundsson 5, Árni Friðleifsson 4, Siggeir Magnússon 3, Hilmar Sigur- gíslason 2. Mörk Gdansk: Wenta 7, Waszkiewicz 4, Plehoc 3, Malo- uszkiewicz 3, Zawadzki 3(1 v), Cubocz 2, Stodolny 2, Grzenkowicz 1. Dómarar: Sjong og Ludvigssen (Noregi) - þokkalegir. Maftur leiksins: Guðmundur Guð- mundsson, Víkingi. vera svekktir, eftir frábærar 20 mínútur í seinni hálfleik þar sem Víkingar náðu fimm marka for- ystu hrökk allt í baklás hjá þeim og í lokin var það mark hins unga Bjarka Sigurðssonar sem tryggði Víkingum jafntefli, 25-25, þegar 9 sekúndur voru eftir. Og Krist- ján Sigmundsson sem varði ótrú- legt langskot frá Bogdan Wenta á síðustu sekúndunni. „Reynsluleysið fór með okkur í lokin. f stað þess að hanga á boltan- um í sókninni og láta dæma á okkur töf var skotið í vörnina hjá Pólverjun- um, þeir náðu hraðaupphlaupum og skoruðu. En þetta var stórkostlegur leikur í sókn og vörn hjá okkur, við þurfum að leika eins á sunnudags- kvöldið og fá troðfulla höll af áhorf- endum - þá getur allt gerst,“ sagði Guðmundur Guðmundsson fyrirliði Innanhússknattspyrna Metþátttaka í kaiiaflokki Sjötíu lið ífjórum deildum. Áfram 17 í kvennaflokki Eins og fram kom í blaðinu í gær hefur verið dregið í riðla fyrir ís- landsmótið í innanhússknattspyrnu. Við birtum riðlana í 1. deild í gær en hér koma hinar deildirnar. 2. deild A-riðilI: Leiftur, ÍBK, Stjarnan, Þrótt- ur N. B-riðilI: Ármann, KA, Austri E., Ein- herji. C-riðill: Reynir S., Valur Rf., Breiða- blik, ÍBV. D-riðill: Neisti, Skallagrímur, UMFN, Víðir. 3. deild A-riðiII: Árvakur, Völsungur, Léttir, Víkverji. B-riðill: Bolungarvík, Hrafnkell, Skotfélag Reykjavíkur, Höttur. C-riðill: Reynir Á., Víkingur Ó., Leiknir F., Grindavík. D-riðiIl: Vorboðinn, ÍBÍ, Sindri, Leiknir R. 4. deild A-riðill: Afturelding, Grundarfjörður, Trausti, Stefnir, B.Í., Æskan. B-riðfll: Stokkseyri, Hveragerði, Geisl- inn, Hafnir, Efling, Magni. C-riðill: Svarfdælir, Þórsmörk, Ösp, Höfrungur, HSS. D-riðill: Umf. Fram, Augnablik, Reynir He., Árroðinn, Hvöt. Kvennaflokkur A-riðiIl: Breiðablik, KR, Hveragerði, Grindavík. B-riðill: Valur, Þór A., Stjarnan, Grundarfjörður. C-riðill: ÍA, ÍBK, Afturelding, ÍBÍ. D-riðill: KA, Fram, FH, KS, Skalla- grímur. Um næstu helgi, 17.-18. janú- ar, verður leikið í 2. og 3. deild karla og í C- og D-riðlum 4. deildar. Helgina 23.-25. janúar verður síðan leikið í 1. deild, A- og B-riðlum 4. deildar og í kvennaflokki. Þátttökulið í karlaflokki í ár eru 70, fleiri en nokkru sinni fyrr, en í fyrra voru þau 68. Efstu lið í hverjum riðli fara uppí næstu deild fyrir ofan en neðsta liðið fellur. í 1. deild karla og í kvennaflokki fer efsta lið í hverjum riðli í úrslitakeppni um íslandsmeistaratitilinn. Reglum í innanhússknatt- spyrnu hefur verið breytt á þann veg að byrjað er við mark þegar mark hefur verið skorað, ekki á miðju eins og áður. -VS Víkinga í samtali við Þjóðviljann eftir leikinn. „Tíu síðustu mínúturnar voru hreinn skandall hjá okkur. Þreytan og reynsluleysið orsökuðu alltof mörg mistök. Við komum þeim á óvart og náðum 3-5 marka forystu en þetta eru leikmenn sem láta ekki trufla sig lengi. Þeir kunna allt. í seinni leiknum reynir á úthald og reynslu - þeir eru mikið reyndari og líkamssterkari en við leggjum allt í að bæta okkar leik og standa okkur,“ sagði Árni Indriðason, þjálfari Vík- inga og lykilmaður í vörn þeirra. Vfkingsliðið hefur sennilega ekki leikið betur í vetur, ef lokakaflinn er undanskilinn. Kristján Sigmundsson varði 11 skot í fyrri hálfleik og kom ótvírætt í veg fyrir að Gdansk næði góðri forystu. Hann var lengi í gang í seinni hálfleik en varði vel á mikil- vægum augnablikum. Guðmundur Guðmundsson háði mikið einvígi við hornamanninn Plechoc. Þeir nánast þurrkuðu hvor annan út í fyrri hálf- leik en í þeim síðari átti hinn pólski ekkert svar við stórleik Guðmundar sem skoraði úr ótrúlegustu færum og reif Víkinga uppí fimm marka for- ystu. Bjarki Sigurðsson hefur burði til að verða besti hornamaður sem fram hefur komið hér á landi, geysilegt efni sem skoraði af krafti og yfirvegun. Karl Þráinsson og Árni Friðleifsson gerðu góða hluti en voru mistækir, sérstaklega Karl í lokin, og reynslu- leysið háir Árna. Siggeir Magnússon skoraði glæsimörk í fyrri hálfleik, Hilmar Sigurgíslason stóð fyrir sínu og í vörninni voru Árni Indriðason og Einar Jóhannesson ómetanlegir. Vík- ingsliðið kom í heild mjög á óvart, sérstaklega í sóknarleiknum sem var mun betri en við var að búast. En það lét koma sér gersamlega úr jafnvægi í lokin þegar Pólverjarnir tóku mann úr umferð. Gdansk er geysisterkt lið með Bog- dan Wenta sem besta mann, snilling sem er geysilega fjölhæfur og skorar hvar sem er. Waszkiewicz hafði sig lengi lítið í frammi en þegar á reyndi var hann óhemju mikilvægur. Víking- ar standa frammi fyrir gífurlega erf- iðu verkefni annað kvöld kl. 20.15 en frammistaða þeirra í gærkvöldi var slík að allt annað en troðfull Laugar- dalshöll kemur varla til greina. -VS 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.