Þjóðviljinn - 10.01.1987, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 10.01.1987, Blaðsíða 12
DÆGURMAL Lækna- stofa Hef opnaö læknastofu í Læknastöðinni Álf- heimum 74, sími 686311. Sigurður Thorlacius Sérgrein: Heila- og taugasjúkdómar. NYJUNG! VIÐGERÐARÞJÓNUSTA Á RAFTÆKJUM Er bilað raftæki á heimilinu t.d. brauðrist, hraðsuðuketill, kaffivél, vöfflujárn, straujárn, rakvél, ryksuga, lampi eða eitthvert ámóta tæki? Ef svo er komdu með það í viðgerðarbílinn og reyndu þjónustuna Viðgerðarbíll verður staðsettur vfð eftlrtaldar verslanlr samkvæmt tímatöflu ÞRIÐJUDAGAR: Grímabœr, Efstalandi26 kl. 1030 til 1230 Verslunin Ásgeir, TindaseHS kl. 16°°til 1800 MIÐVIKUDAGAR: Verslunln Árbæjarkjör, Rofabæ 9 kl. 1030 til 1230 Kaupgarður, Englhjalla 8 kl. 16°°til 1800 FIMMTUDAGAR: Verslunln Kjöt og fiskur, Seljabraut 54 kl. 1030 til 1230 Hólagarður, Lóuhóium 2-6 kl. 16°°til 1800 FÖSTUDAGAR: Verslunln Breiðholtskjör, Arnarbakka 4-6 kl. 1030 til 1230 Fellagarðar, Eddufelll 7 kl. 16°°til 1900 RAFTÆKJAVIDGERDIR SÆVARS SÆMUNDSSONAR VERKSTÆDI - VIOGERDARBÍLL ÁLFTAHÓLUM 4 - SlMI 72604 MARKAÐURINN Grensásvegi 50 auglýsir: HLJOMTÆKI Kassettutæki frá kr. 7.000.'; Magnarar frá kr. 7.000.- Hátalarar frá kr. 2.500.- Ferðatæki frá kr. 4.000.- Litasjónvörp frá kr. 8.000.- Hljómtækjaskápar Bíltæki Tölvur og fleira SKÍÐAVÖRUR Okkur vantar nú þegar í sölu skíðavörur af flestum stærðum og gerðum. MARKAÐURINN Grensásvegi 50 Sími 83350. Fjórir gamlir í hettunni Árið 1986 vilja margir nefna ár gamla popparans vegna þess hve margar „gamlar“ poppstjörnur sendu þá frá sér plötur sem féllu vel i kramið hjá plötukaupendum. Mesta velgengni og vinsældir þess- ara gamlingja, sem nánar til tekið eru af Bítla- og hippakyn- slóð - beggja megin við fertugt - hefur Paul Simon hlotið fyrir plötu sína Graceland, sem er líka alveg einstök að gæðum og frumleik. Við skulum rétt kíkja á plötur fleiri kappa af þessari miklu músikkynslóð, sem út komu 1986. Bob Dylan sendi frá sér bæði gamalt efni og nýtt: 5 platna kassa með áður óútgefnu efni eða aðrar útgáfur af gömlum lögum; ómissandi eign fyrir alla Dylan-aðdáendur, og fylgja athugasemdir við hvert lag. Seinna á árinu kom breið- skífan Knocked out loaded, reglu- lega góð Dylan-plata - Dylan- rokk með gospelívafi og bak- raddabandið er yndislegt. Dylan er ekki einráður í músiksmíðinni, heldur leggja honum lið: rithöf- undurinn Sam Shepard í Bronswille Girl, 11 mínútna langri frásögn sem spunnin er út frá endurminningum um kvik- mynd með Gregory Peck; Tom Petty í Got my mind made up þar sem Tom og Mike Campbell leika verulega skemmtilega á gít- ar; og Carole Bayer Sager semur með Dylan Under your spell, en sú ágæta kona hefur samið marg- an góðan textann um dagana, eins og t.d. That’s what friends are for, sem Dionne Warwick, Gladys Knigth, Stevie Wonder og Elton John sungu á plötu til styrktar baráttunni gegn eyðni. Pað má kannski líka geta þess að Carole er nú gift lagasmiðnum Burt Bacharac sem samdi „vina- lagið“, en Dionne Warwick var einmitt fræg fyrir það á 7. ára- tugnum að syngja lög Bacharacs og þáverandi félaga hans Hals David. En þetta var nú langur útúrdúr frá honum Bob Dylan - en það er líka nóg að bæta við um hann, að þessi plata hans Knock- ed out loaded er reglulega góð og auk nefndra laga má ekki gleyma They killed him eftir Kris Kristof- ferson, þar sem taldir eru upp nokkrir mannkynsfrelsarar sem maðurinn sjálfur hefur drepið. Lou Reed er einn þeirra sem Bob Dylan flytur þakkir á löngum lista á nýj u plötunni sinni... og það er þannig með Lou Reed að rokkið á hon- um meira að þakka en flestir gera sér grein fyrir. Hann var einn af meðlimum Velvet Underground sem skemmti í listaverkstæði Andys Warhol á 7. áratugnum og hefur alla tíð síðan þá verið trúr einföldu, hráu rokki með góðum textum úr daglega lífinu, sem oft hefur verið í hrjúfari kantinum hjá Lou. Hann hefur alla tíð haft áhrif á aðra rokkara, allt frá Da- vid Bowie til pönkara og ný- bylgjumanna fyrr og nú. Þekkt- asta lagið hans er líklega Walk on the wild side og ekki er líklegt að nokkurt lag á nýjustu plötunni hans Mistrial slái það út. Eigi að síður er þar flest áheyrilegt og er mikil tilbreyting á öld hljóðgerfl- anna að heyra þá svo sparlega notaða þegar svo ber undir (trommur og bassi af og til hljóð- gerfð) með gítar, bassa og trommum. Textarnir eru þjóðfél- agsádeilur, engar messur. Erfitt að nefna bestu lögin, en sérstak- ast er þegar Lou fer hálfur í föt rapparans í The Original Wrapp- er. Van Morrison er einn af þessum tónlistar- mönnum sem kollegarnir dá og á sér fast fylgi meðal plötu- kaupenda. En ekkert útlit er fyrir að þessi rauðhærði íri verði aftur frægur meðal almennings alls, eins og þegar hljómsveit hans Them flutti á Bítlatímum Here comes the night og Gloria, sem Doors og Patti Smith tóku seinna til meðferðar. En sem betur fer á Van Morrison nógu marga aðdá- endur til að halda áfram að gefa út sínar fallegu afurðir. Sú síðasta heitir No Guru, No Method, No Teacher og flýtur öll sömul eins og tær bergvatnsá inn um eyru manns og út í taugakerfið. Og reyndar ekki bara eins og ein á, heldur fljóta náttúruöflin og möguleiki á innri og ytri friði með straumnum. Petta er seiðandi dá- leiðsla... maður hlustar ekki á eitt lag, heldur öll í einu. Steve Winwood var kosinn andlit ársins í breska poppblaðinu Rave ef ég man rétt þegar hann var ungur drengur innan við tvítugt á 7. áratugnum í The Spencer Davis Group. Pað- an lá leið hans í Traffic og Blind Faith, og hann varð enn dáðari meðal poppáhangenda. En Steve Winwood var aldrei hrifinn af poppstjörnuhlutverkinu og gafst hálfpartinn upp á bransanum eftir hamaganginn í kringum súp- ergrúppuna Blind Faith (Winwo- od, Eric Clapton, Ginger Baker og Rick Grech) sem aðeins náði að gera eina breiðskífu. Síðan þá hefur hann haft heldur hægt um sig, spilað inn á plötur með öðr- um og gefið út einar 4 sólóplötur. Sú síðasta, Back in the hig lifc, hlaut ágætar viðtökur í Banda- ríkjunum, þar sem Steve virðist vinsælli en heima hjá sér í Bretó. Og mér er kannski líkt farið og Bretanum að hafa líkað betur við minn mann með Spencer Davis og Traffic - en Steve er alltaf jafn góður tónlistarmaður og söngv- ari. Og þótt blús og hippaáhrif hafi vikið fyrir smáfönk- og disk- óáhrifum er þetta fín plata. A. 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. janúar 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.