Þjóðviljinn - 10.01.1987, Side 14

Þjóðviljinn - 10.01.1987, Side 14
Unnur Björn Sigurjón Þuríður Austurland Byggðamálin í brennidepli Alþýðubandalagið á Austurlandi efnir á næstunni til opinna funda þar sem byggðamálin verða í brennipunkti. Þar flytja ávörp fulltrúar af framboðslista flokksins í komandi alþingiskosningum m.a.: Unnur Sólrún Bragadóttir, Björn Grétar Sveinsson, Sigurjón Bjarnason og Þuríður Backman. Alþing- ismennirnir Helgi Seljan og Hjörleifur Guttormsson sitja fyrir svörum. Fund- irnir verða sem hér segir: Breiðdalsvik, laugardaginn 10. janúar kl. 13.30 i Staðarborg. Stöðvarfirði, laugardaginn 10. janúar kl. 17.00 í Samkomuhúsinu. Fáskrúðsfirði, sunnudaginn 11. janúar kl. 14.00 í Skrúð. Eskífirðf, sunnudaginn 11. janúar kl. 20.30 í Valhöll. Neskaupstað, miðvikudaginn 14. janúar kl. 20.30 í Egilsbúð. Seyðisfirði, fimmtudaginn 15. janúar kl. 20.30 í Herðubreið. Fundir verða síðar ákveðnir á Reyðarfirði og Borgarfirði. Fundirnir eru öllum opinir. Alþýðubandalagið. Alþýðubandalagið Hafnarfirði Bæjarmálaráð - Fjárhagsáætlun Bæjarmálaráð ABH er boðað til fundar í Skálanum Strandgötu 41, laugardaginn 10janúar kl. 10.00. Dagskrá: 1) Umræður um fjárhagsáætlun fyrir Hafnarfjarðarkaupstað 1987. Magnús Jón Arnason bæjarfulltrúi stýrir umræðum. 2) Önnur mál. Allir nefndarmenn og varamenn þeirra hvattir til að mæta vel og stundvís- le9a- __________________ Stjórn bæjarmálaráðs Alþýðubandalagið Reykjaneskjördæmi Kjördæmisráðsfundur Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins í Reykjaneskjördæmi boðar til fund- ar í Þinghóli, Kópavogi, mánudaginn 12. janúar kl. 20.30. Dagskrá: 1) Tillaga kjörnefndar að framboðslista fyrir komandi alþingis- kosningar. 2) Kosningastarfið. 3) Önnur mál. . . Allir kjördæmisráðsfulltrúar hvattir til að mæta. stjornin. AB Norðurlandskjördæmi eystra Aukakjördæmisþing Aukakjördæmisþing Alþýðubandalagsins í Norðurlandskjördæmi eystra verð- ur haldið sunnudaginn 11. janúar i Lárusarhúsi á Akureyri og hefst kl. 10 árdegis. Á dagskrá: 1) Ákveðinn framboðslisti til Alþingiskosninga. 2) Kosninga- undirbúningur, a) Málefnaáherslur, b) Útgáfa, c) Annað. 3) Stjórnmálaumræða eftir því sem tími leyfir. - Stjórn kjördæmisráðs. Alþýðubandlagið Kópavogi Morgunkaffi ABK Laugardaginn 10. janúar milli.kl. 10-12 veröa Unnur S. Björnsdóttir for- maður ABK og fulltrúi í tómstundaráði og Elsa S. Þorkelsdóttir fulltrúi í félagsmálaráði á skrifstofu félagins í Þinghóli, Hamraborg 11. Heitt á könnunni. Félagar eru hvattir til að líta inn. Stjórnin Alþýðubandalagið Akureyri Bæjarmálaráð Fundur mánudaginn 12. janúar kl. 20.30 í Lárusarhúsi. Daqskrá: Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar. Stjórnin SAMVINNU TRYGGINGAR ÁRMÚLA3 SIMI (91) 681411 Starf sendimanns Óskum eftir að ráða í starf sendimanns tíma- bundið. Góð framkoma ásamt lipurð og árverkni nauðsynleg. Viðkomandi verður að hafa bifreið til umráða. Upplýsingar og umsóknareyðublöð hjá Starfs- mannahaldi, Ármúla 3, sími 681411. SAMVINNUTRYGGINGAR g.t. Námsvist í Sovétríkjunum Svoésk stjórnvöld munu væntanlega veita einum íslendingi skóla- vist og styrk til háskólanáms í Sovétríkjunum háskólaárið 1987-88. Umsóknum skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 6. febrúar n.k. og fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmælum. - Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 6. janúar 1987. __________MINNING ______ Elberg Guðmundsson Fæddur 10.12. 1901 - Dáinn 1.1. 1987 Kveðja frá börnum. Á nýjársdagskvöld lést faðir okkar, Elberg Guðmundsson, á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi, eftir skamma legu. Hann var fæddur að Búðum í Eyrarsveit þann 10.12.1901. For- eldrar hans voru Kristín Jakobs- dóttir og Guðmundur Athaníus- son. Þegar pabbi var lí/2 árs fórst faðir hans á bát á leiðinni milli Stykkishólms og Grundar- fjarðar. Eftir það, fram til 11 ára aldurs, ólst pabbi upp hjá afa sín- um og ömmu að Kvíabryggju en fluttist þá að Skerðingsstöðum til móður sinnar og seinni manns hennar, Þorvaldar Þórðarsonar. Á unga aldri var pabbi þátttak- andi í hinum almennu sveitastörf- um, en strax að lokinni fermingu hóf hann störf til sjós og varð sjó- mennska að mestu hans ævistarf, fyrst á skakskútum og línuveiður- um og síðar á bátum frá Grundar- firði. Frá Kvíabryggju gerði hann út sinn eigin bát um nokkurra ára skeið. Pabbi var kappsfullur og duglegur sjómaður og ætíð far- sæll í störfum og vinsæll félagi. Eftir að sjómennsku lauk vann hann alla almenna verkamanna- vinnu og entist starfsþrek hans lengi. Hann vann fullan vinnudag í fiskvinnslu fram undir 80 ára aldur. Árið 1925 hófu pabbi og mamma, Ásgerður Guðmunds- dóttir, búskap að Kvíabryggju og bjuggu þar fram til ársins 1942. A Kvíabryggju var þéttbýliskjarni sem hafði myndast á nokkrum áratugum. Þaðan var róið til fisk- jar og jafnframt verið með lítinn búskap. Á árunum í kringum 1940 var farinn að myndast annar þéttbýliskjarni í Eyrarsveit, þ.e. í Grundarfirði. Þar voru hafnar- skilyrði frá náttúrunnar hendi betri og þar sem sjávarútvegur er stundaður, ræðst þéttbýlismynd- un að sjálfsögðu af að hafnarað- staða sé góð. Eins og að framan greinir fluttu þau pabbi og mamma til Grundarfjarðar 1942. Árið 1945 fluttu þau svo í húsið að Grundargötu 23, sem pabbi og elstu systkinin höfðu að mestu reist. Pabbi og mamma hafa búið þar síðan. Þau eignuðust 10 börn, tvö þeirra létust í æsku og elsti bróðir okkar, Guðmundur Hinrik, lést 1983. Að koma upp stórum barna- hóp á þessum árum hefur verið erfítt fyrir verkamenn. Lífsbar- áttan var hörð, en þó svo hafí verið urðum við ekki vör við það í framkomu pabba. Hann sá alltaf björtu hliðarnar á hlutunum og bætti allt sitt umhverfi með sínu góða skapi og blíðu framkomu. Það var mannbætandi að um- gangast hann. Ríkur þáttur í fari pabba var lífsgleðin. Á vinnustöðum var hann vinsæll meðal félaga. í faðmi fjölskyldunnar leið pabba best og eftir því sem hópurinn varð stærri var hann ánægðari og hrókur alls fagnaðar. Pabbi naut samvista við fjöl- skyldu sína fram í andlátið. Hann var fluttur á sjúkrahús í Stykkis- hólmi um miðjan dag hinn 1. jan- úar s.l. og lést að kvöldi þess sama dags. Hann er stór hópur- inn sem kveður pabba í dag, af- komendurnir eru margir ■ Mamma kveður ástkæran eiginmann, við hin góðan föður, tengdaföður, afa og langafa og þökkum við öll fyrir að hafa mátt lifa með góðum gæfumanni. alþýdu blaöið Blaðbera vantar í Vesturbæ, Eskihlíð og Kópavog. Tímiim Blaðburður er Hafðu samband við okkur

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.