Þjóðviljinn - 22.01.1987, Síða 16
Aðalsími
681333.
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
Fimmtudagur 22. janúar 1987 16. tölublað 52. örgangur
Hafskipsmálið
Vill Hallvarð burt
Ragnar Kjartansson sendir bréftil dómsmálaráðherra
og ríkissaksóknara: Hallvarður vanhœfur og undir-
menn hans einnig
Ef ríkissaksóknari hlýðir ekki
þessari ósk okkar og fríar
stofnun sína af vanhæfni, þá tel ég
víst að við munum óska eftir því
að málsmeðferðin verði ógilduð
þegar málið verður þingfest fyrir
sakadómi,“ segir Ragnar Kjart-
ansson fyrrv. stjórnarformaður
Hafskips í samtali við Þjóðviljann
í gær.
Ragnar og lögfræðingur hans.
Jón Magnússon, sendu í gær
Hallvarði Einvarðssyni ríkissak-
sóknara og Jóni Helgasyni
dómsmálaráðherra bréf þar sem
þess er krafist að Hallvarður víki
úr sæti saksóknara í Hafskipsmál-
inu vegna vanhæfni.
-Við tíundum í þessu bréfi á
ítarlegan hátt rök okkar fyrir
þessari eðlilegu kröfu.
Hallvarður stjórnaði og mótaði
rannsókn málsins á vegum
Rannsóknarlögreglunnar á sín-
um tíma og það er því mjög óeðli-
legt að hann fjalli jafnframt um
málið sem ríkissaksóknari. Einn-
ig teljum við óeðlilegt að vararík-
issaksóknari taki þetta mál að sér
því hann er undirmaður
Hallvarðs og förum því fram á að
skipaður verði utanaðkomandi
aðili til að fjalla um málið, sagði
Ragnar.
Hallvarður Einvarðsson hefur
lýst því yfir að til tíðinda dragi í
Hafskipsmálinu á næstu vikum.
Heimildir úr dómskerfinu herma
að þar sé einmitt þessa dagana
verið að leita að aðila utan ríkis-
saksóknaraembættisins til að
taka yfir Hafskipsmálið.
-Jg-
Fóstruuppsagnir
Gnpa til
aðgerða
Foreldrar barna á dagvistarstofn-
unum borgarinnar óttast nú mjög
að til þess komi að fóstrur í
Reykjavík gangi út 1. maí og hafa
ákveðið að gripa til aðgerða til
þess að knýja borgaryfirvöid til
viðræðna við fóstrur.
Fóstrur sögðu störfum sínum
lausum frá og með 1. nóvember.
Borgarráð framlengdi uppsagn-
arfrestinn hins vegar um 3 mán-
uði.
2. febrúar hyggjast foreldrar
ganga með börnum sínum frá
Hlemmi að Höfða og afhenda
fulltrúa borgaryfirvalda þar
undirskriftir, þar sem þess er
krafist að viðræður við fóstrur
verði hafnar þegar í stað. ,gg
I
Útför
Græn-
höfðaeyja-
mennimir
jarðsettir
I gær fór fram í kapellu Foss-
vogskirkju útför þriggja skip-
verja af flutningaskipinu Synetu
sem fórst við Skrúð í mynni Fá-
skrúðsfjarðar um nýliðin jól.
Skipverjarnir þrír voru allir frá
Grænhöfðaeyjum og höfðu þar-
lend stjórnvöld óskað eftir því að
þeir yrðu jarðsettir hér.
Alls fórust 12 menn með Syn-
etu en fimm lík hafa enn ekki
fundist. Útförin í Fossvogskap-
ellu í gær fór fram samkvæmt ka-
þólskum sið en kaþólska er ríkis-
trú á Grænhöfðaeyjum. Það var
séra Hjalti Þorkelsson sem jarð-
söng, en viðstaddir athöfnina
voru ma: nunnur frá Landakoti
og fulltrúar Slysavarnarfélagsins
sem sendu krans til minningar um
áhöfnina á Synetu.
Frá útför sjómannanna frá Grænhöfðaeyjum I Fossvogskapellu í gær. Mynd-Sig.
Flugslys
Einn maður fórst
Maður fórst er flugvél frá Flugfélaginu Ernir hrapaði ísjó við Arnarnes.
Var í aðflugi ersíðast heyrðist til hans. Brakfannstfyrstskömmu
fyrir kl. 23.00. Líkiðfannst um miðnættið ínótt
Menntamálaráðherra
Fundaði
með fræðslu-
stjórum
Allir starfandi fræðslustjórar á
landinu voru boðaðir á fund
Sverris Hermannssonar mennta-
málaráðherra í gærmorgun.
Áslaug Brynjólfsdóttir
fræðslustjóri Reykjavíkur og
Helgi Jónasson fræðslustjóri
Reykjaness vildu hvorugt tjá sig
um efni fundarins í samtali við
Þjóðviljann.
Helgi Jónasson sagði að hér
hefði verið um starfsmannafund
að ræða og hann væri ekki vanur
að ræða við fjölmiðla um hvað
færi fram á slíkum fundum.
-vd
Einn maður fórst er TF-ÖRN,
vél í eigu Flugfélagsins Ernir,
fórst skammt norður af Arnar-
nesi við Isafjarðardjúp í gær-
kvöldi. Víðtæk leit að vélinni stóð
yfir frá kl. 20.00 í gærkvöldi þar
til lík mannsins fannst um 3 sjó-
mflur norður af Arnarnesi um
miðnættið.
Flugvélin var á leið frá Akur-
eyri til ísafjarðar og var væntan-
leg til ísafjarðar um kl. 20.00.
Flugmaðurinn hafði samband við
flugturn þar sem hann var í að-
flugi inn eftir Skutulsfirði, en
eftirkl. 19.56 heyrðist ekki frekar
í honum.
Varðskipið Óðinn heyrði í
neyðarsendi rétt fyrir kl. 20.00 og
hélt þá þegar þangað sem talið er
að flugvélin hafi verið þegar síð-
ast heyrðist til hennar.
Flugvél Flugmálastjórnar, Ori-
on vél frá hernum og þyrla frá
Landhelgisgæslunni fóru vestur
til leitar og auk þess tóku fiski-
bátar þar vestra þátt í leitinm.
Veðurskilyrði til leitar voru
fremur óhagstæð á þessum slóð-
um í gærkvöldi, suðaustan tveir,
snjókoma og aðeins um einnar
sjómílu skyggni.
Brak úr vélinni fannst fyrst kl.
22.45 og rúmri klukkustund síðar
fannst annar vængur vélarinnar.
Lík mannsins fannst svo um
miðnættið eins og áður segir.
Varðskipið Óðinn flutti líkið til
ísafjarðar í nótt. -gg
Sveitarfélög
Vilja fleiri
ferðamenn
Nokkur sveitarfélög vítt og breitt
um landið stofnuðu ferðaskrif-
stofuna Ferðabær hf. síðast lið-
inn laugardag.
Sveitarfélögin sem standa að
Ferðabæ eru Ólafsvík, Siglu-
fjörður, Rif, Hellissandur,
Grundarfjörður, Bfldudalur,
Flateyri, Skagaströnd og Hólma-
vík.
Tilgangurinn með stofnun
hlutafélagsins er sá að sögn að-
standenda að laða ferðamenn í
ríkari mæli til þessara staða, en
Ferðabær mun jafnframt sinna
venjubundinni ferðaþjónustu
bæði innanlands og utan.
-gg