Þjóðviljinn - 19.02.1987, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 19.02.1987, Blaðsíða 15
Nýjar leiðir aðbættu þjóðfélagi Nútíminn kallar á nýjar leiðir. Gamlar aðferðir duga ekki lengurtil að leysa mörg af þeim brýnu vandamálum sem við okkur blasa. Það verður að leita nýrra leiðatil að leysa húsnæðismál þeirra sem versteru staddir, nýrra leiðatil að bæta félagslega þjónustu og ekki síst nýrra leiða við uppbyggingu atvinnulífsins. Guðni A. Jóhannesson, verk- fræðingur, skipar sjötta sæti á lista Alþýðubandalagsins í Reykjavík. Hann hefur góða þekkingu á því hvernig er að eiga við kerfið og hversu óviðbúið það er öllum nýjum hugmyndum, en Guðni átti stóran þátt í stofnun Búseta og hefur starfað fyrir þau samtök. RÓn>EKUR UNGLINGUR Guðni fór snemma að hafa af- skipti af stjórnmálum. „Ég starf- aði með Fylkingunni á menntaskólaárunum í lok sjö- unda áratugarins. Á þessum árum var mikil ólga f heiminum og tók hún á sig ýmsar myndir hér heima. Ég minnist þess t.d. að ég tók þátt í mótmælum við Banda- ríska sendiráðið um jólin 1966, þá aðeins 15 ára að aldri. Þetta var þegar mótmælin gegn Víet- namstríðinu voru að hefjast. Ég var samtíða mörgum rót- tækum ungmennum í Mennta- skólanum í Reykjavík og stofn- uðum við með okkur félags- skapinn Bylting. Það sem haldið hefur nafni þess félagsskapar á lofti í gegnum árin er að reglulega berst blaðið Gramma frá Kúbu á skrifstofu rektors. Viðtakandi er Bylting hf. Leið mín úr MR lá svo í Há- skóla íslands en þar gerði ég stuttan stans áður en ég fór til Lundar í Svíþjóð. Þar var ég svo í 9 ára útlegð. Það má segja að öll þessi ár hafi ég fylgt Alþýðu- bandalaginu að málum. Þó ég hafi ekki verið félagi í flokknum vann ég mikið kosningastarf fyrir Alþýðubandalagið í Lundi ásamt Gísla Gunnarssyni, sagnfræð- ingi. 1982 kom ég úr útlegðinni og gekk í flokkinn ári seinna.“ BÚSETI Nú er Guðni formaður Al- þýðubandalagsins í Reykjavík. Áður en hann gekk í Alþýðu- bandalagið hafði hann þó tekið virkan þátt í félagsmálum á öðr- um vettvangi, vettvangi Búseta. „Ég tók þátt í stofnun og upp- byggingu Reykjavíkurdeildar- innar. Það voru mjög skemmti- legir og bjartsýnir tímar þegar samtökin voru að fæðast.“ Má ekki segja að samtökin hafi fæðst andvana? „Nei. Hinsvegar héldum við að Búsetafyrirkomulagið ætti greið- ari aðgang að fjármagni en raun reyndist, ekki síst vegna þess að félagsmálaráðherra gaf strax ák- veðin fyrirheit um að félagið fengi lánafyrirgreiðslu úr Bygg- Guðni A. Jóhannesson, sjötti maður á G-listanum í Reykjavík ingasjóði verkamanna. Svo reyndist þó ekki vera. Þegar fór að nálgast kosningar virtist hins- vegar þiðna og Búseti fékk fjár- magn þó sú fyrirgreiðsla sé bund- in afarkostum. Nú eru hafnar framkvæmdir við fyrsta áfanga Búseta-blokkarinnar í Grafar- vogi.“ Hversvegna Búsetafyrirkomu- lag? „Þegar húsnæðiskerfið var skoðað á þessum árum misgengis launa og lána var augljóst að sér- eignastefnan var hrunin. Á þess- um erfiðu árum var enginn grundvöllur fyrir svo háu sér- eignahlutfalli einsog tíðkaðist hér. Það varð því að leita nýrra leiða, leiða sem byggðu á félags- legum grunni og hentuðu fólki með lágar tekjur. Búsetafyrir- komulagíð sýndist okkur henta mjög vel til að ná þeim markmið- um sem sett voru, enda hefur það reynst vel í nágrannalöndum okkar.“ NÝJU HÚSN/EÐISLÖGIN Gera nýju húsnœðislögin Bú- setafyrirkomulagið úrelt? „Éf grannt er skoðað kemur í ljós að hin nýja húsnæðislöggjöf tekur töluvert mið af hugmynd- um Búseta. Lánshlutfallið hefur verið hækkað fyrir flesta umsækj- endur, lánin verið lengd og nálg- ast nú það að gera mönnum kleift að borga þau niður þann hluta ævinnar sem þeir eru virkir í starfi. Síðast en ekki síst hefur verið tekið upp biðraðakerfi við Húsnæðisstofnun, sem á margan hátt svipar til þess kerfis sem Bú- seti hafði. Hinsvegar er fjármögnunar- hlutfallið of lágt til að tekjulægstu hóparnir geti nýtt sér núverandi lán. Ég er þeirrar skoðunar að ef stofnunin ætti að veita þessum hópum það lán sem þeir þyrftu gætu þeir ekki axlað þá fjárhags- byrði sem afborgun lánanna yrði. Þá geta sveiflur á fasteignamark- aðinum orðið til þess að íbúðin stæði ekki undir lánunum. Búsetaformið er því rökrétt viðbót við núverandi lánakerfi til séreigna. Það er nauðsynlegt að lán til félagslegra íbúða séu aukin.“ Hversvegna Búseturéttarform- ið frekar en verkamannabústað- akerfið eða leiguíbúðir á vegum sveitarfélaga? „Verkamannabústaðakerfið er £ ákveðinni óvissu núna. Það er t.d. ljóst að fyrirkomulag upp- gjörs við endursölu íbúða er úr- eít. Það skapar fleiri vandamál en það leysir að íbúarnir eigi hús- næðið einsog nú er. Rekstur leiguhúsnæðis á vegum sveitarfé- laga hefur gengið misvel og reynslan t.d. frá Norðurlöndun- um sýnir okkur að búseturéttar - formið hefur einmitt reynst sveitarfélögunum hagkvæmasta lausnin á þeirra vanda.“ NÝJAR LEIÐIR LEIÐIR í DAGVISTUN Hvað með aðra félagslega þjónustu? „Sú félagslega þjónusta sem við veitum í dag liggur í skýrt mörkuðum farvegum. Við viljum byggja upp samfélag þar sem ein- staklingar geta notið sín jafnt á heimili sem og við atvinnu sína og að réttur barna í samfélaginu sé tryggður, sem er þeim nauðsyn- legt.“ Pað er langtfrá því að svo sénú. „Því miður hafa börnin orðið útundan þrátt fyrir miklar fram- farir og uppbyggingu í okkar fé- lagslega umhverfi. Það verður að bæta þjónustuna við barnafjöl- skyldur með því að fjölga dagvist- arstofnunum og huga betur að hlutverki skólans sem uppeldis- stofnun. Börn eiga t.d. að sjálf- sögðu rétt á máltíðum í skólan- um, sem er þeirra vinnustaður. Hvað varðar dagvistun og aðra félagslega þjónustu við einstak- linga og fjölskyldur hafa á undan- förnum árum verið gerðar til- raunir með ný form. Dæmi um það eru foreldrar sem stofna sam- vinnufélag um dagvistarstofnun fyrir börnin sín. í þessum tilfell- um taka foreldrarnir virkan þátt í uppbyggingu starfseminnar og leggja fram ákveðna vinnu í dag- legan rekstur hennar. Þetta er dæmi um það hvernig hægt er að brjóta þjónustuna upp í smærri einingar, veita einstakl- ingnum rétt til lýðræðislegrar þátttöku og gera hann jafnframt ábyrgari fyrir rekstrinum." ÓSKILGETNIR KRÓAR ÍHALDSINS Efvið snúum okkur frá félags- legri þjónustu að öðrum málum. Pú hafðir á sínum tíma mjög ákveðnar skoðanir á Nesjavall- amálinu. Hafa þær breyst síðan þá? „Nei. Því miður virðist Sjálf- stæðisflokkurinn ekkert hafa lært af sögunni sé horft til nýjustu virkjunaráformanna, þ.e.a.s. Nesjavallavirkjunar. Allar ák- varðanir um nýjar virkjanir og nýja áfanga í dreifikerfum verður að taka á grundvelli útreikninga út frá tæknilegum og hagfræði- legum forsendum sem fyrir liggja . Því miður virðist Sjálfstæðis- flokkurinn ekki hafa burði til þess að beita nútímalegum að- ferðum við uppbyggingu virkjana landsins. Ákvarðanirnar fæðast líkt og óskilgetnir króar einhversstaðar í skúmaskotum flokksmaskínunn- ar og þegar hagsmunaaðilar, verktakar og innflytjendur finna Það þarf að brjóta þjónustuna upp í smærri einingar, veita einstaklingnum rétt til lýðræðislegrar þátttöku og gera hann jafnframt ábyrgari fyrir rekstrinum, segir Guðni A. Jóhannesson. peningalyktina þá renna þeir á slóðina með slíkum þunga að flokksbáknið fær ekki rönd við reist.“ Hvað átti þá að koma í staðinn fyrir Nesjavallavirkjunina? „Við vildum láta gera úttekt á þeim möguleikum sem stóðu til boða, t.d. að nýta umframorku frá Landsvirkjun, orkusparnað og betri nýtingu orku og afls á svæðinu. Sjálfstæðisflokkurinn hafði hinsvegar engan áhuga á að leita að ódýrustu lausninni fyrir borgarbúa, heldur hagar hann sér einsog góðum ríkiskapítalistum er tamt og velur áþreifanlega framkvæmd með mikið auglýs- ingagildi.“ GULLGRAFARAEÐLÐ Á undanförnum árum hefur stór breyting átt sér stað í atvinnu- uppbyggingunni og nýjar atvinnugreinar litið dagsins Ijós, einsog t.d. fiskeldið. Förum við of geyst í þessum efnum? „Þessu er erfitt að svara. Það er augljóst að gullgrafaraeðli ís- lendinga verður oft til þess að ráðist er í óarðbærar fjárfestingar sem stefna atvinnugreinum með vaxtarmöguleika í hættu. Þetta er gert undir merkjum hinnar frjálsu samkeppni og besta dæm- ið sem við okkur blasir er í fisk- eldinu. Þar virðist aðgangur að fjármagni mjög rúmur enda hef- ur gríðarlega mikið verið fjárfest í fiskeldi á undanförnum árum. Nú virðist hinsvegar vera að skapast óvissa í markaðsmálum greinarinnar og hætta er á að hluti þess fjármagns sem lagt hef- ur verið í uppbygginguna skili sér ekki. Nú má ekki misskilja mig því ég tel að miklir möguleikar séu í fiskeldinu. Hinsvegar virðist sem okkur íslendinga hafi skort þekk- ingu á markaðinum einsog svo oft áður. Okkur hættir til að gleyma því að markaðsþekking og sölu- mennska er það sem endanlega ræður því hvort ný fyrirtæki og fjárfestingar skili árangri.“ H/ETTULEG TENGSL Mikil áhersla hefur verið lögð á það að efla tengsl Háskólans við atvinnulífið. Hver er skoðun þín á því? „Ég vil vara við þeirri miklu áherslu sem lögð hefur verið á það að gera Háskólann að þjón- ustustofnun við atvinnulífið. Há- skólinn á að vera þjónustustofn- un fyrir allt þjóðfélagið. Of stíf tengsl háskóla við atvinnulífið, þar sem slíkt hefur verið reynt erlendis, hafa leitt til þess að vísindamenn frá háskól- unum hafa í æ ríkari mæli farið að vinna störf fyrir fyrirtækin, sem á engan hátt heyra undir nýsköpun og þekkingarleit. Tilgangur vísindarannsókna á fyrst og fremst að vera sá, að byggja upp almenna þekkingu sem gerir okkur kleift að halda uppi háu menntunar- og menn- ingarstigi £ landinu. Það er erfitt að skipuleggja hvernig vfsinda- rannsóknir geta gagnast atvinnu- lffinu. Slíkt gerist eftir leiðum sem ekki er gott að sjá fyrir, en það gerist þó mun oftar séu rann- sóknir stundaðar óháðar skammtimasjónamiðum ein- stakra fyrirtækja." Að lokum Guðni. Hvernig verður starfinu fram að kosning- um hagað? „Við frambjóðendur Alþýðu- bandalagsins verðum að vera ólatir við að fara út á meðal fólks- ins og finna á þvf G-blettina.“ -Sáf ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.