Þjóðviljinn - 24.02.1987, Síða 4
LEHDARI
Gífurlegur verslunargróði
Sú umdeilda spástofnun, sem kennd er viö Þjóð-
hag, hefur nú sent frá sér endurskoðaða þjóðhags-
spá.
Að sönnu hefur reynslan af fyrri spám sýnt ótví-
rætt, að kristalskúlan sem hinir spámannlega vöxnu
hagfræðingar stofnunarinnar nota til að skyggnast
inn framtíð lands og þjóðar er á stundum nokkuð
þokuslúngin. Þeim hefur því á síðustu misserum
vaxið ásmegin sem vilja stofnunina feiga. Hitt er
Ijóst, að sú upplýsingasöfnun og -vinnsla sem stofn-
unin stendur fyrir er einkar gagnleg, og þjóðhags-
spáin sem nú er fram komin er að ýmsu leyti merkari
en fyrri spár.
Þar eru til að mynda staðfest fjögur atriði, sem
Þjóðviljinn hefur áður haldið fram, en merkismenn af
ýmsum toga þó borið á móti.
í fyrsta lagi er Ijóst, að meðan góðærið hefur siglt
framhjá hinum venjulega íslenska launamanni, hef-
ur verslunin í landinu upplifað ofsagróða. Þannig er
staðfest í þjóðhagsspánni, að gróðinn af smásölu-
versluninni hefur sjaldan verið meiri en á síðasta ári.
í framhaldi af þeim upplýsingum birtir Þjóðviljinn á
forsíðu í dag mjög nákvæmar upplýsingar um ofsa-
gróða verslunarinnar. Þar er skýrt frá því, að árið
1986 hafi gróði smásölunnar í landinu vaxið um rösk
70 af hundraði, sem vitaskuld er fáheyrð aukning.
Þetta jafngildir þvi, að 1986 hafi verslunareigend-
ur í landinu grætt heilum 800 miljónum meira að
raunvirði en árið á undan. Alls var svo heildargróði
verslunarinnar 1900 miljónir á síðasta ári, sam-
kvæmt upplýsingum frá Þjóðhagsstofnun.
Þetta sannar fyrri staðhæfingar Þjóðviljans um
hvað varð af góðærisgróðanum. Hann fór aldrei til
þeirra sem sköpuðu hann með erfiði og svita, launa-
fólksins sjálfs. Hann hvarf!
Hvarf í bókstaflegri merkingu ofan í vaxa grósser-
anna!
í öðru lagi sýnir þjóðhagsspáin það nokkuð Ijós-
lega, að ríkisstjórninni er ekki á neinn hátt að þakka
það efnahagslega góðæri sem ríkir. Það eru ein-
vörðungu ytri þættir: Betri aflabrögð en nokkru sinni
fyrr, hærra aflaverðmæti, gífurleg lækkun olíuverðs
og lækkun vaxta á alþjóðlegum fjármagnsmörkuð-
um.
Meira að segja lækkun dollarans hefur komið okk-
ur til góða, þrátt fyrir að hinu gagnstæða sé yfirleitt
haldið fram. Dollaralækkunin hefur að vísu leitt til
þess að minna hefur skilast til landsins fyrir sölu
sjávarafurða á erlendum mörkuðum. En hækkun
fiskverðs hefur gert meira en vinna þá lækkun upp,
og með lækkun á verði dollarans hefur svo verðgildi
erlendra skulda þjóðarinnar lækkað verulega, og
greiðslubyrðin af þeim samfara.
Með öðrum orðum: það eru ekki aðgerðir af hálfu
ríkisstjórnarinnar, sem hafa skapað góðærið. Góð-
ærið er eingöngu að þakka ytri skilyrðum, einsog
kemur glöggt fram í þjóðhagsspánni.
í þriðja lagi kemur ótvírætt fram í henni, að það er
einmitt ódugnaður stjórnarinnar, verkleysi og skortur
á stefnu, sem gerir það að verkum, að jafnvel hið
einstæða góðæri virðist ekki ætla að nýtast til að
halda verðbólgunni í skefjum.
Þannig segir beinlínis í spánni, að það hljóti að
teljast „nokkurt áhyggjuefni, að ekki skuli takast að
fylgja eftir þeim árangri í verðlagsmálum, sem náðist
á árinu 1986 og ná fram enn frekari lækkun verð-
bólgunnar á þessu ári, ekki síst í Ijósi áframhaldandi
hagstæðra ytri skilyrða þjóðarbúsins."
I þessu felst að sjálfsögðu þungur áfellisdómur yfir
ríkisstjórninni. Þarna er blátt áfram sagt, að þrátt fyrir
árgæsku og góðæri meir en nokkru sinni fyrr sé
ríkisstjórnin samt sem áður að klúðra verðbólgu-
stríðinu. Skírara getur það tæpast verið.
í fjórða lagi er Ijóst af þjóðhagsspánni, að góðærið
mun halda áfram. Allt bendir til að olíuverð verði ekki
hærra á þessu ári en því síðasta, ef til vill lægra.
Fiskverð er enn á uppleið, spáð er vaxtalækkunum
erlendis, og batnandi aflabrögðum. Þetta ætti
auðvitað að hvetja allt launafólk til harðrar kjarabar-
áttu á komandi misserum.
Þjóðhagsspáin sýnir það svart á hvítu, að það eru
til nógir peningar í þjóðfélaginu. Það þarf einungis að
skipta þeim á annan hátt en gert er núna.
-ÖS
KLIPPT OG SKORIÐ
Frank Sinatra og John F. Kennedy: „Tökum því öllu með fyrirvara," sagði
Morgunblaðið.
Umhyggja
fyrir forsetann
Morgunblaðið hefur um margt
sérstöðu í íslenskum blaðaheimi
og þótt víðar væri leitað. Það er
ekki barasta stærsta blað landsins
stærsta blað heimsins. Og þetta
stóra blað hefur meiri áhyggjur af
orðstír og pólitískri velferð fors-
eta Bandaríkjanna á hverjum
tíma en Bandaríkjamenn sjálfir.
Sem sýnir svo að ósérplægni og
einlæg og fórnfús umhyggja eru
ekki úr sögunni í þeim grimma
fjölmiðlaheimi.
Þessi hluttekningariðja Morg-
unblaðsins stóð með nokkrum
blóma í Reykjavíkurbréfi á sunn-
udaginn var. Þar var ekki síst tal-
að um Reagan forseta og skrif um
hann í Bandaríkjunum og látin
upp nokkur hneykslun yfir því að
„það er engu líkara en það sé eitt
helsta markmið margra að eyði-
leggja manninn í Hvíta húsinu,
jafnvel fyrir svo óverulegar sakir,
sem engum dytti í hug að skerða
hár á nokkurs manns höfði fyrir
svipaðar ,syndir“ eða „yfirsjón-
ir“ í öðrum löndum, allra síst ein-
rœðisríkjum. “
Ojæja. Hér er vitanlega átt við
þau vandræði sem Reagan karl-
inn hefur ratað í út af ír-
ansmálum. Rétt er það, að væri
hann einvaldsherra mundu blöð-
in í landi hans hvorki æmta né
skræmta. En ætli þeir slyppu við
hirtingu þeir ábyrgðarmenn í
opnari samfélögum sem hefðu
með jafn glæfralegum hætti leikið
tveim skjöldum og Reagan og
hans menn gerðu í íransmálum?
Þegar þeir reyndu að fá þegna
sína úr gíslingu með því að útvega
írönskum verndurum mannræn-
ingja í Beirút vopn - um leið og
haft var hátt um að hvergi skyldi
látið undan hryðjuverka-
mönnum, loftárásir gerðar á Lí-
býu til að sanna að alvara væri á
ferðum - og bandamenn skamm-
aðir fyrir hálfvelgju í slíkum mál-
um. Svo ekki sé nú á það minnst,
að gróði af þessum viðskiptum
fór til að halda uppi hryðjuverk-
astarfsemi í Nicaragua.
Samstillt
hjörtu
En semsagt - þetta sýnist
Morgunblaðsmanni „óverulegar
sakir“ og bendir hann í staðinn á
það, hve vei Reagan hafi komið
fyrir þegar hann las stefnuskrá
sína á þingi í lok janúar og að
viðtökur þingsins hefðu verið
,frábœrar“. Allir klöppuðu fyrir
forsetanum nema „Kennedy-
frœndur“ og finnst bréfritara ber-
sýnilega, að slík fúlmennska sé
allt að því óþjóðleg. Sjálfur
gleymir hann öllum ávirðingum
Reagans þegar forsetinn fer að
vitna í „yfirburði bandarísku
stjórnarskrárinnar“ og hafa þeir
Reagan komið sér saman um að
þeir séu fólgnir í því að „valdhaf-
arnirsœkja umboð sitt til fólksins.
Pað ákveður stefnuna, það rœður
en ekki þeir. “
Leiðinlegt fyrir þá félaga, að
Bandaríkjamenn hafa ekki meiri
trú á þessu valdi fólksins yfir
stjórnarstefnunni en svo, að vart
helmingur þeirra nennir að kjósa
þegar upp á það er boðið, og er
þó morð fjár varið til að draga þá
að kjörborði.
Einkamála-
bisness
En það er minnst á fleiri forseta
í Reykjavíkurbréfinu. Þar er al-
hæft á þessa leið m.a.:
„Menn skyldu þó taka öllu með
fyrirvara sem Bandaríkjamenn
skrifa um forseta sína. Pað er
engu líkara en þeir hafi hvað
mesta þörf fyrir að lýsa þeim sem
hinum mestu úrhrökum og hefur
John F. Kennedy ekki farið var-
hluta af því. Jafnvel látið að því
liggja að hann hafi verið óforbetr-
anlegur kvennabósi og þeir
bræður Robert og hann, átt ein-
hverja aðild að dauða Marylin
Monroe. “
Þetta er fróðleg klausa - ekki
síst vegna þess hve augljóst er að
bréfritarinn getur alls ekki trúað
því að bandarískur forseti sé
kvennabósi eða tengist með vafa-
sömum hætti örlögum til nefndr-
ar kvikmyndastjörnu. En það er
rétt að viðurkenna, að bréfritar-
inn hefur að nokkru leyti rétt
fyrir sér: forsetar og aðrir frægð-
armenn í Bandaríkjunum njóta,
lífs eða liðnir, miklu síður frið-
helgi einkalífs en tíðkast víðast
hvar annarsstaðar. Ástæðan er
ekki barasta sú að í Bandaríkjun-
um sé miklu meira málfrelsi - til
ills og góðs - en til dæmis hjá
Rússum. Hér er fyrst og fremst
um það að ræða, að þar í landi er
einna lengst komið þeirri þróun,
að hvað sem er sé til sölu hæst-
bjóðanda - og þá líka vitneskja
um einkamál frægðarmanna.
Hnýsni um þau mál er vitanlega
landlæg allsstaðar - en hvergi
hefur markaðshyggjan rutt jafn
blygðunarlaust úr vegi öllum
hindrunum fyrir því að menn geri
sér pening úr slíku og í landi
þeirra Kennedys og Reagans.
Og því græða dætur kvikmynd-
astjarna miljón dollara á því að
lýsa skepnuskap mæðra sinna og
hver sú sem svaf hjá forseta getur
haft arðvænlegt samband við ein-
hvern höfund af „gjörgæslu-
skóla“ slúðursins. Við mörlandar
höfum að sönnu verið á hraðferð
vestur í andlegum efnum undan-
farna áratugi, en þótt við séum
forvitnir um okkar
stjórnmálaforingja og aðra
frægðarmenn, þá eigum við enn
til góða og gamaldags sómatil-
finningu í þeim mæli, að slíkar
afhjúpanir eru ekki komnar á
markað að ráði.
Hitt er svo annað mál, að
stundum verður samhengi hlut-
anna í hásölum Bandaríkjanna
svo undarlegt, að erfitt er að vita
hvenær „einkalífi" lýkur og
önnur mál og alvarlegri taka við.
Úttekt á ævi söngvarans Frank
Sinatra er um þessar myndir
mikil metsölubók í Bandaríkjun-
um. Ástæðan er ekki síst sú, að
þessi þekkti dægurlagasöngvari
kom einatt fram sem undarlegur
milliliður milli mafíunnar og
Hvíta hússins - meðal annars
með því að senda vinkonu sína í
bólið á víxl hjá forsetanum og
einum helga Guðföðurnum.
- ÁB
þJOÐVILJINN
Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis
og verkalýöshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur
Skarphéðinsson.
Fróttastjóri: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: GarðarGuðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Kristín
Ólafsdóttir, Magnús H. Gíslason, MörðurÁrnason, ÓlafurGíslason,
Sigurður Á. Friðþjófsson, Stefán Ásgrímsson, Vilborg Davíðsdóttir,
VíðirSigurðsson (íþróttir), Yngvi Kjartansson(Akureyri).
Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar.
LJóamyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útlitstelknarar: Sævar Guðbjörnsson, GarðarSigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrlf stof ustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Guðbergur Þorvaldsson.
Auglýsingastjóri: Sigríður HannaSigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Olga Clausen, Guðmunda Kristinsdóttir.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, SigríðurKristjánsdóttir.
Húsmóðir: ólöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Útbreiðslu-og afgreiðslustjóri: HörðurOddfríðarson.
Afgreið8la: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
In nheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333.
Auglý8ingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 50 kr.
Helgarblöð: 55 kr.
Áskr iftarverð á mánuði: 500 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 24. febrúar 1987