Þjóðviljinn - 24.02.1987, Qupperneq 6
FLÓAMARKAÐURINN
Vagga tll sölu
vel með farinn. Verð kr. 2 þúsund.
Uppl. í síma 17561 eftir kl. 17.
Tll sölu
vínrauður flauels-barnavagn kr. 6
þúsund, skiptiborð með baði og
hillum kr. 4 þúsund, hvít prins-
essubarnavagga kr. 3 þúsund og
hoppróla kr. 500.-. Uppl. í síma
70581 og 671836 eftir kl. 17.
Tll sölu
Lada Samara '86 vetrar- og
sumardekk, útvarp og segul-
band, vel með farinn bíll. Verð
225 þúsund. Staðgreiðsluafslátt-
ur. Uppl. í síma 70581 eftir kl. 17.
Nýtt gyllt
BMX reiðhjól til sölu
Selst með afslætti. Uppl. í síma
26069.
Til sölu
Latex-svampdýna frá Lystadún.
Br. 1.50 m og lengd 2 m. Svefn-
bekkur 1.50 m með rúmfata-
geymslu, hillur í barnaherbergi,
stakir stólar, mokkakápa nr. 36-
40, nýr mittis-kanínupels lítið
númer. Sími 33094.
Óska eftir
gömlum, góðum og ódýrum sóf-
um. Uppl. í síma 39600. Hrefna.
Tll sölu
Fataskápur til að festa á vegg.
170x60 með hillum og fatahengi.
Á sama stað er óskað eftir vara-
hlutum í Mercury Monarch '75 og
bílskúr á leigu. Sími 42524.
3 léttir sjónvarpsstólar úr furu
til sölu. Verð kr. 3 þúsund stk.
Sími 29003.
Vantar dagmömmu
fyrir 2V2 árs gamla stúlku sem
næst Lindargötu - allan daginn.
Uppl. í síma 23218.
Gróðurhús á tombóluverðl
Verð kr. 10 þús. Sími 23218.
Byggingarefni til sölu
Vinnupallatimbur og glerull. Sími
25703.
Mjög fallegar
rússneskar tehettur
Matrúskur (Babúskur) og grafík-
myndir tii sölu. Uppl. gefur Selma
í síma 19239.
Þórberg 2ja óra vantar pössun
1-2 kvöld í viku. Uppl. í síma
31705.
Tll sölu borðstofuborð og 6
stólar
Uppl. í síma 12747.
Dagmóðir
Dagmóðir í Árbæjarhverfi óskar
að bæta við sig einu barni. Hefur
leyfi. Uppl. í síma 78747.
Bamgóð og dugleg kona
eða stúlka óskast til að gæta
bama og sjá um létt heimilisstörf
3-4 kvöld í viku og öðru hvoru um
helgar. Uppl. í síma 688575 eftir
kl. 19. Helga.
Ég hef stúdentspróf fré Versl-
unarskóla fslands
og eðlisfræðideild fjölbrauta-
skóla. Mig vantar vinnu frá kl. 1-5
helst í Hafnarfirði eða nágrenni.
Sími 51876.
Tll sölu gullfallegt fururúm
með dýnu 11/2 breidd. Á sama
stað er Galant GLX '79 til sölu.
Þarfnast lagfæringar eftir árekst-
ur. Sími 25791 á kvöldin.
Kringlótt eldhúsborð
á einum stálfæti og 4 stólar til
sölu. Mjög vel með farið. Uppl. í
síma 33612.
Tll sölu
2 happý stólar og eitt borð. Verð
kr. 2.500.-. Á sama stað fæst
gamall svefnbekkur á kr. 1.500.-.
Uppl. í síma 74135.
fbúð óskast
Óska eftir að taka á leigu 2-3
herb. íbúð strax. Engin fyrirfram-
greiðsla möguleg. Vinsamlegast
hringið í síma 36090 milli kl. 14 og
18.30 eða 84840 á öðrum tímum.
Tll sölu
4 vetrardekk á Peugeot 5 gata
felgum. Stærð 165 SP 15. Seljast
mjög ódýrt. Uppl. í síma 40667
eða 77337.
Tll sölu blár Brió barnavagn
á kr. 6.000.-, fururúm IKEA
1.10x2.10 m, kr. 7.000.-. 10 stk.
gamlir skólastólar á kr. 1.500,-
(allir) og mótatimbur 2x4” 100 m.
Uppl. í síma 671238.
Bíll til sölu
Lada 1600 '78 í góðu standi. Verð
kr. 50.000.-. Sími 687898.
Tll sölu rúm
11/2 breidd, sökkull á hjólum með
springdýnu. Kostar nýtt kr.
20.500.-. Selst á kr. 13.000,-
ársgamalt. Sími 687898.
Gott sveitaheimlll óskast fyrir
Trygg
fyrir Ijúfan og fallegan, 2ja ára
gamlan hund. (Blanda af íslensk-
um og Husky-sleðahundi). Uppl. í
síma 687898. Guðmundur.
VII kaupa
góðan barnabílstól og leikgrind á
sanngjörnu verði. Sími 29338.
Óska eftir
að kaupa ódýrt eða (helst) fá gef-
ins eftirfarandi: ísskáp, þvottavél,
sjónvarp, kringlótt eldhúsborð.
Uppl. í síma 75745.
fbúð óskast
Okkur vantar íbúð strax. Þórunn
og Hörður sími 20099.
Hjálp! Herbergi strax!
islensk, sænsk- og finnsktalandi
skólanemi óskar strax eftir ódýru
herbergi með eldunar- og snyrti-
aðstöðu. Helst með þvottaað-
stöðu og sima en ekki nauðsyn-
legt. Ódýr einstaklingsíbúð eða
tveggja herbergja íbúð koma til
greina. Engin fyrirframgreiðsla
möguleg. Vinsamlegast hringið
skilaboð í síma 622428 eftir kl. 19
og allan daginn um helgar.
Reglusemi heitið.
Vlnna strax!
Sjúkraliðanemi óskar eftir vinnu.
Hefur unnið við ýmislegt, t.d. á
spítala, i verslun, á hóteli, í banka
og á pósti. Kann mörg tungumál.
Óska fyrst og fremst eftir nætur-
vinnu, helgar- og/eða kvöldvinnu.
Gæti hugsað mér að vinna við
gistiheimili, á hóteli, í kvikmynda-
húsi eða á vídeóleigu. helst ekki
verksmiðjuvinnu, ræstingar eða
eldhúsvinnu. Vinsamlegast
hringið inn skilaboð í síma
622428 eftir kl. 18 og 19 og allan
daginn um helgar.
Tll sölu
vel með farinn djúpsteikingarpott-
ur. Verð 3.500.-, Philips grillofn
kr. 4.000.- og nýlegur barnavagn.
(Burðarrúm á grind) kr. 7.000.-.
Uppl. í síma 11653.
fsskápur
Til sölu er lítil Ignis kæliskápur.
Breitt 45 cm hæð 85 cm. Uppl. í
s(ma 14503 eftir kl. 18.
Tll sölu
Tvö stór hamstrabúr, sem má
tengja saman. Ýmsir fylgihlutir
fylgja og tveir hamstrar geta fylgt.
Uppl. í síma 51138.
Til sölu
Nýr Þorvaldarhnakkur og beisli.
Uppl. í síma 685133.
Tll sölu
Ljósabakkur. Gott staðgreiðslu-
verð. Uppl. í síma 641556.
Óska eftír 2ja herb. íbúð í mið-
bæ
eða vesturbæ. Góðri umgengni
heitið. Uppl. í síma 26804.
Smóklng til sölu
Uppl. í síma 44651 eftir kl. 17.
m LAUSAR STÖÐURHJÁ
III REYKJAVÍKURBORG
Fóstrur eða annað starfsfólk með aðra uppeldislega
menntun óskast til starfa á leikskólann/skóladagheimilið
Hálsakot, Hálsaseli 29 og Hraunborg Hraunbergi 10.
Upplýsingar gefur umsjónarfóstra á skrifstofu Dagvistar
barna í síma 27277 og 22360 og forstöðumaður viðkomandi
heimilis.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á sérstökum eyðublöðum
sem þar fást.
SKÁK
Þriðja, fjórða og fimmta umferð ofurmótsins
Djarft og snjallt
“Cracy games, cracy tournament“ segir Ljubo. íslenskir sigrar og
ósigrar. Short með fullt hús
Um helgina var teflt af sömu
hörkunni og fyrr á IBM skák-
mótinu á Loftleiðum. Virðast
menn hvorki láta mótlæti né
meðbyr draga úr sér kapp
heldur leggja alla sína orku í
skákirnar. Má nokkuð marka
hörkuna á því að nú hafa 20
skákir unnist en aðeins tíu
endað með jafntefli en það er
óvanalega lágt jafnteflishlut-
fall í svona sterku móti. En
hugum nú að úrslitum helgar-
innar.
Þriðja umferð
Skákirnar á laugardag buðu upp á
mörg spennandi augnablik eins og í
tveimur fyrstu umferðunum. Vopna-
bræðurnir Margeir og Helgi börðust
hatramlega. Helgi beitti Drottningar-
indverskri vörn með svörtu og náði
ekki að jafna taflið gegn vandaðri
taflmennsku Margeirs en þegar
Margeir gerðist of veiðibráður og
hirti peð losnaði um stöðu Helga og
náði hann hættulegu mótspili sem
hefði átt að leiða til vinnings. Helgi
tefldi hins vegar ekki nákvæmt í tíma-
hrakinu svo að útkoman varð bræðra-
bylta. Polugajevskí og Tal tefldu
rólega skák í Enskum leik og var fljót-
lega samið um skiptan hlut. Meðal
áhorfenda var talað um að þarna
hefði sovéska samtryggingarkerfið
ráðið gangi mála. Portisch mætti
Ljubojevic sem tefldi óhræddur á
tvær hættur að vanda og hugðist aug-
sýnilega laga stöðu sína í mótinu eftir
hrakfarir í fyrstu umferðunum. Lju-
bojevic lagði of mikið á stöðu sína og
kaus frekar að falla með sæmd en fara
út í heldur lakara endatafl sem trú-
lega hefði mátt halda. Blóðhiti Júg-
oslavans náði því ekki að hagga stóí-
skri ró Ungverjans hæglynda sem
hirti með þökkum það sem að honum
var rétt. Skákin birtist hér skýringa-
laus:
Hvít: Portisch
Svart: Ljubojevic
Drottningarindversk vörn
1. d4 Rf6
2. c4e6
3. RÍ3 b6
4. g3 Ba6
5. b3 d5
6. cxd5 exd5
7. Bg2 Bb4+
8. Bd2 Bxd2+
9. Dxd2 0-0
10. 0-0 He8
11. Hel c5
12. Rc3 Rc6
13. dxc5 bxc5
14. Ha-cl Hc8
15. Rh4 d4
16. Ra4 c4
17. Rc5 c3
18. Ddl Db6
19. Rxa6 Dxa6
20. Rf5 He5
21. Rxd4 Rxd4
22. Dxd4 Hxe2
23. Bh3 Hxel
24. Hxel Hb8
25. De5 Hd8
26. Dc7 Dd3
27. Bfl Dd4
28. He3 Rg4
29. HD Re5
30. Hf4 Ddl
31. Dxe5 c2
32. Dc7 Hd7
33. Dc8+ Hd8
34. Hc4 g6
35. Dc5 He8
36. Da3 Hel
37. Hc8+ Kg7
38. Df8+ Kf6
39. Hc6+ Kg5
40. h4+ Kg4
41. Hc4+ Kh5
42. Hc5+ f5
43. Hxf5+
Svartur gafst upp.
Jóhann virtist ætla að ná hefndum
gegn Agdestein sem oft hefur reynst
skákmönnum okkar erfiður ljár í
þúfu. Jóhann fékk vænlega stöðu
gegn Drottningarindverskri vörn
Norðmannsins en fór á röngu
augnabliki út í endatafl sem Agde-
stein bjargaði af mikilli útsjónarsemi
Skákin sem mesta athygli vakti var
viðureign Jóns L. við forystusauðinn í
mótinu, Short, sem valdi hið hvassa
Keresar-afbrigði gegn Sikileyjarvörn
Jóns. Skákin varð flókin og tvísýn.
Jón náði að jafna taflið fyllilega og
átti kost á að þráleika en hann vildi
meira og hugðist ætla sér óskiptan
hlut. Hann lenti síðan í geigvænlegu
tímahraki þar sem hann þurfti að
leika sextán leiki á sjö mínútum og
staðan var einfaldlega alltof flókin til
þess að hann gæti lokið þeim áfalla-
laust og játaði sig síðan sigraðan.
Skák umferðarinnar var þó að mati
skákskýrenda Þjóðviljans viðureign
Timmans og Kortschnois sem inn-
byrti vinninginn með kristalstærri
endataflstækni. f skákinni var þung
yndiralda undir lygnu yfirborðinu.
Þannig geta aðeins mestu meistarar
skáksögunnar teflt og fylgir skákin
hér með skýringum:
Hvítt: Timman
Svart: Kortschnoi
Spænskur leikur
1. e4 e5
2. RD Rc6
3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6
5. 0-0 Rxe4
Opna afbrigðið sem kom við sögu í
einvígjum Kortschnois og Karpofs.
6. d4 b5
7. Bb3 d5
8. dxe5 Be6
9. Be3 Be7
10. c3 Dd7
Þessi leikmáti er hugarfóstur
Kortschnois og birtist fyrst í viðureign
hans við Karpof.
11. Rb-d2 Hd8
12. Rxe4 dxe4
13. Dxd7+ Bxd7
14. Rg5 Rxe5
15. Bd4 Bxg5
16. Bxe5 0-0
17. Bxc7 Hc8
18. Bb6 Hf-e8
19. Hf-el h5!
Kortschnoi hefur nú jafnað taflið.
Staðan virðist ekki bjóða upp á mikl-
ar sviptingar og eflaust hefðu margir
samið um jafntefli hér en Kortschnoi
er meiri baráttumaður en svo að hann
reyni ekki að sjá hvað endataflið ber í
skauti sér enda það hans sterkasta
hlið.
20. Bd4 Bc6
21. He2 Hc-d8
22. h3 h4
23. a4 b4
24. Bc4 Bb7
25. Ha-el bxc3
26. Bxc3 Bf6!
Kortschnoi splundrar peðastöðu
sinni til þess að ná biskupakaupum
því að svarti biskupinn á b7 verður þá
sterkari en sá hvíti á c4.
27. Bxf6 gxf6
28. D Hd4
29. b3 f5
30. fxe4 Hexe4
31. Hxe4 fxe4
32. KÍ2 Hd2+
33. He2 Hxe2+
34. Bxe2 a5
abcdefgh
Þessi staða virðist ekki bjóða upp á
mikil átök en þegar betur er að gáð
hefur svartur í raun peð yfir því að
a5-peðið heldur niðri tveimur peðum
hvíts á drottningarvæng. Auk þess
Vinningstölurnar 21. febrúar 1987
Helldarvinnlngsupphæft: 5.040.147.-
1. vlnnlngur var kr. 2.526.605.- og kom ( hlut eins vinningshafa.
2. vlnningur var kr. 755.929.- og skiptist hann á 229 vinningshafa, kr.
3.301.- á mann.
3. vinnlngur var kr. 1.757.613.- og skiptist á 7293 vinningshafa, sem fá
241 krónu hver.
Frá menntamálaráðuneytinu:
Umsóknarfrestur um áður auglýsta stöðu fræðslustjóra í
Norðurlandsumdæmi eystra framlengist til 1. apríl nk.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík.
Félag
járniðnaðarmanna
Aðalfundur 1987
Verður haldinn fimmtudaginn 26. febrúar
1987 kl. 20.00 í Suðurlandsbraut 30, 4.
hæð.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Ath.: Reikningar félagsins liggja frammi á
skrifstofunni þriðjudag 24. febrúar og mið-
vikudaginn 25. febrúar kl. 16.00-18.30.
Mætið stundvíslega.
Stjórnin
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN