Þjóðviljinn - 24.02.1987, Blaðsíða 13
HEIMURINN
Líbanon
Sýrlandsher inní Beirút
Fimm þúsund sýrlenskir hermenn réðustinníVesturbeirút ogheftu bardaga andstœðra fylkinga
í fyrradag strunsuðu fimm
þúsund sýrlenskir hermenn
inní Vesturbeirút á trukkum og
jeppum í fylgd að minnsta
kosti sextíu skriðdreka og
bundu skjótan enda á skærur
andstæðra hópa í borgarhlut-
anum.
Þar höfðu Amalsítar átt í vök
að verjast fyrir sameiginlegum
her Drúsa, Súnní múslíma og
kommúnista í vikutíma. Að
minnsta kosti tvöhundruð menn
féllu í þeim átökum og fimm-
hundruð urðu óvígir af sárum.
Þetta er í annað sinn á tæpu ári
að Sýrlendingar senda lið inní
Vesturbeirút sem ætlað er að
skakka hildarleik vígglaðra
fjenda. í júlí á síðasta ári héldu
fjögurhundruð einkennis- og
óeinkennisklæddir útsendarar
stjórnarinnar í Damaskus inní
hverfi múslíma í því augnamiði
að bera klæði á vopnin í orrahríð
Amalsíta og sveita PLO en allt
kom fyrir ekki.
Amalmenn kváðu hafa fagnað
komu Sýrlendinga ákaflega en
dátar Drúsa og kommúnista
hurfu inní skuggana, þegjandi og
hljóðalaust. Alþýða manna fagn-
aði lokum vopnaviðskiptanna en
horfði á herfylkingarnar streyma
hjá þögul og minnug þess að sýr-
lenski herinn hefur ekki alltaf
verið friðflytjandi í Beirút.
Það var Karami forsætisráð-
herra Líbanon sem fór þess á leit
við Assad forseta Sýrlands að
hann léti her sinn stilla til friðar í
Vesturbeirút. Gemayel forseti
mótmælti hinsvegar hernáminu
og sagði það brjóta í bága við
stjórnarskrá Líbanons. í sama
streng tóku ráðamenn í Jerúsal-
em og Washington.
Sýrlenski herinn nam staðar
við hina svonefndu grænu línu
sem skilur að hverfi múhameðs-
trúarmanna og kristinna í Beirút.
Tóku bryndrekar þeirra sér stöðu
við erlend sendiráð, háskóla og
opinberar byggingar. Yfirmaður
leyniþjónustu sýrlenska hersins í
Líbanon lét all drýgindalega þeg-
ar her hans hafði náð borgarhlut-
anum í sínar hendur og sagði
valdaskeið „strætisbarónanna" á
enda runnið. -ks.
Skák
Kaipof og Sókólof glíma
Orrustan um réttinn til að skora á Kasparof hefst í dag
í dag hefst einvígi
skáksnillinganna Anatolys
Karpofs og Andrei Sókólofs í
Línares á Spáni um það hvor
þessara tveggja muni fá að
reyna að þrífa skákkórónuna
roðagylltu af höfði Garrís
Kasparofs heimsmeistara að
hausti.
Tefldar verða fjórtán skákir og
er umhugsunartíminn tvær og
hálf klukkustund á mann fyrir
fjörutíu leiki en sá háttur er hafð-
ur á þegar alvöru skákmenn etja
kappi.
Það er mál manna að Karpof sé
mun sigurstranglegri í þessari
viðureign enda margreyndur ein-
vígishestur, fyrrum heimsmeist-
ari og almennt viðurkenndur
annar besti skákmaður heims.
Víst er að hann mun leggja allt í
sölurnar til að knýja fram sigur
því nú stendur hann á tíma-
mótum á ferli sínum. Lúti hann í
lægra haldi verður hann tæpast
heimsmeistari að nýju en beri
hann sigurorð af andstæðingi sín-
um gæti hann endurheimt sitt
gamla og góða sjálfstraust er beið
allmikinn hnekki þegar Garrí
rúllaði honum upp.
Sókólof er af kynslóð yngstu
stórmeistara í Sovétríkjunum,
jafnaldri Kasparofs eða tuttugu
og þriggja ára gamall. Hann er
sókndjarfur kóngspeðari með
stáltaugar og næmt auga fyrir
fléttum og óvæntum uppákomum
á skákborðinum. Skákstíll hans
minnir á taflmennsku Mikaels
Tals, fyrrum heimsmeistara og
góðkunningja okkar á IBM mót-
inu, þegar hann var uppá sitt
besta. Leið Sókólofs til Línares
Anatoly Karpof til vinstri og Andrei
Sókólof.
er vörðuð glæstum sigrum í ein-
vígjum við tvo gríðarsterka skák-
menn, sovésku stórmeistarana
Artúr Júsúpof og Rafael Vaganj-
an. Einnig sakar ekki að minna á
síðustu viðureign þeirra Karpofs
er Sókólof sigraði glæsilega.
Það er því útlit fyrir hörkuein-
vígi og vonandi að engum fólsku-
brögðum verði beitt. -ks.
Hvíta húsið
Fyrsti
demókratinn
í slaginn
Kosningabaráttan að hefjast í Bandaríkjun-
umþótt tuttugu mánuðir séu í kjördag. Um
tólf sennilegir í slaginn
Washington - Fulltrúadeildar-
þingmaðurinn Richard Gep-
hart tilkynnti í gær að hann
gæfi kost á sér sem frambjóð-
andi demókrata í forsetakosn-
ingunum í Bandaríkjunum í
nóvember á næsta ári, og er
fyrsti demókratinn til að fara
opinberlega í framboð. Á
næstu vikum og mánuðum er
búist við að bætist ört í hópinn
í báðum flokkum, og er um tylft
nafna orðuð við framboð eins-
og nú standa sakir.
Þótt forsetakosningarnar sjálf-
ar séu langt undan þykir Gephart
og keppinautum ekki eftir neinu
að bíða. Fyrstu forkosningarnar
verða eftir ár í New Hampshire-
fylki, og forkosningarnar þjapp-
ast nú saman á æ skemmri tíma
þannig að frambjóðendur verða
að vera komnir í fullan gang í
tíma. Sú þróun á sér meðal ann-
ars þær forsendur að málefni ein-
stakra fylkja ráða miklu um kjör í
forkosningunum og því vilja fylk-
in gjarna komast sem næst úr-
slitaáhrifum, - þannig hefur hóp-
ur suðurríkja flýtt forkosninga-
dögum sínum til að jafna metin á
lóðarskálum við norð-austurrík-
in.
Sjálfur kosningaslagurinn
innan flokkanna tveggja verður
því sneggri og snarpari en áður,
og fyrir hann þarf að fylla kosn-
ingasjóði og virkja sjálfboðaliða.
Fjármagn í forkosningabarátt-
unni vex með hverri hrinu, og í
þeirri síðustu eyddu frambjóð-
endurnir Mondale og Reagan
hvor um sig jafnvirði rúmlega
milljarðs íslenskra króna í til-
nefningarbaráttuna eina, og var
þó Reagan einn um hituna í sín-
um flokki.
Atburðir í þeim kosningaslag
sem nú er að hefjast hafa raunar
einkum falist í því hingað til að
hugsanlegir vonbiðlar hafa neit-
að framboði. Mario Cuomo
borgarstjóri í New York lýsti því
yfir í síðustu viku að hann ætlaði
fram, Edward Kennedy þvertók
fyrir forsetadrauma fyrir rúmu
ári, og Lee Iacoca framkvæmda-
stjóri Chryslerfyrirtækisins, fræg-
ur kraftaverkamaður í bandarísk-
um bisness, hefur gefið til kynna
að hann ætli ekki að láta undan
þrýstingi til framboðs.
En það eru nægir um hituna.
Að minnsta kosti sex eru taldir
munu berjast um hylli repúblik-
ana og sjö um tilnefningu demó-
krata, og ekki fráleitt að fleiri
bætist í hópinn. Af repúblikönum
hefur varaforsetinn George Bush
besta stöðu, en vinsældum hans
hefur hrakað að undanförnu í
takt við álitshnekki Reagans útaf
íransskandal og fleiru. Það
stendur í vegi Bush að hægri-
menn innan flokksins hafa ekki
enn fyrirgefið honum óvægna
andstöðu við Reagan í forkosn-
ingunum 1980, þegar Bush kenn-
di efnahagsstefnu Reagans við
svartagaldur, eða „vúdú“, og
sagnfræðilega sinnaðir fréttask-
ýrendur benda auk þess á það að
varaforsetar hafa allajafna átt
erfitt uppdráttar í forsetakosn-
ingum. Stuðningsmenn Bush
Jess Jackson
Robert Dole
Richard Gephart
George Bush
Bruce Babbitt
hafa þegar myndað kosninga-
stjórn en búist er við að varafor-
setinn bíði með formlega yfirlýs-
ingu frammá haustið.
Einn repúblikani hefur þegar
lýst yfir framboði, Pierre Du
Pont, frá Delaware en er ekki tal-
inn eiga möguleika. Það eiga
hinsvegar Jack Kemp, sem hægri-
hluti flokksins styður, Howard
Baker leiðtogi repúblikana í
öldungadeildinni, og einkum Ro-
bert Dole frá Kansas. Að auki
hefur hægrisinnaður prédikari,
Pat Robertson, lýst yfirframboði.
Af demókrötum á Gary Hart
frá Colorado mesta möguleika.
Hann tapaði naumlega síðast
fyrir Mondale, en þótti frísklegur
og með kennedílegan sjarma.
Hart mun ekki tilkynna um fram-
Jack Kemp
boð fyrren í apríl að því talið er,
en er augljós frambjóðandi og
hefur verið síðan fyrir síðustu
kosningar. Þriðji demókratinn í
slagnum 1984 er einnig á ferð nú,
blökkumaðurinn Jesse Jackson
með ragnbogafylkingu sína.
Jackson á enga möguleika á til-
nefningu, og ef hann fengi hana
væru kosningarnar sjálfar tapað-
ar fyrirfram, en með góðum
stuðningi getur hann haft umtals-
verð áhrif á stefnu forsetafram-
bjóðandans. Óþekktari demó-
kratar eru svo Richard Gephart
Missouri-þingmaður, sem stend-
ur heldur til vinstri í flokknum,
Bill Bradley frá New Jersey,
Bruce Babbitt frá Arizona, öld-
ungadeildarmaðurinn Joseph Bi-
den, og Samuel Nunn frá Georgíu
Howard Baker
Samuel Nunn
Gary Hart
sem talinn er til hægri við demó-
kratamiðju. Þessir fara allir af
stað á næstunni.
Forsetakosningarnar skera sig
að því leyti úr að fráfarandi for-
seti hefur setið út kjörtímabil sitt,
og hefur kosningabarátta ekki
verið háð við slík skilyrði síðan
eftir Eisenhower-árin átta 1960.
Þá tapaði varaforseti Eisenhow-
ers, Nixon, naumlegafyrirdemó-
kratanum Kennedy þótt „Ike“
nyti mikilla vinsælda. Flestir spá
því að eins fari nú, sérstaklega
vegna dalandi gengis Reagans.
Hinsvegar geta bandarískar
kosningar ráðist af skeggbrodd-
um í sjónvarpsþætti, eitt orð
breytt veig heillar skálar og því
óvarlegt að leggja undir á þessu
stigi mála. -m
Þriðjudagur 24. febrúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17