Þjóðviljinn - 24.02.1987, Síða 15
ÍÞRÓTTIR
■
Ísland-Júgóslavía
Handbolti
í heims-
klassa!
Fimm mínútna kafli gerði
útslagið í skemmtilegum leik
gegn snjöllum Júgóslövum
Júgóslavía er mesta handknatt-
leiksþjóð heims. Handhafi
heimsmeistara- og ólympíutitils-
ins og ræður yfir þvflíkri breidd
að undrun sætir. Endurnýjunin á
liðinu sem vann heimsmeistara-
titilinn með glæsibrag fyrir ári
síðan er nánast algjör - en í júg-
óslavneska liðinu sem sigraði það
íslenska 20-19 í gærkvöldi voru
einstaklingar sem eru ekki síðri
en hinir, sumir jafnvel betri ef
eitthvað er. Þarna er á ferð lið
sem er og verður áfram i fremstu
röð í heiminum, og lið sem leikur í
senn agaðan og yfirvegaðan
handknattleik, en um leið lifandi
og skemmtilegan. Það er engin
skömm að tapa á heimavelli fyrir
slíkum mótherjum.
En ísland var grátlega nálægt
því að uppskera betur en eins
marks tap. íslensku landsliðs-
mennirnir sýndu mikinn styrk
með því að vinna upp fjögurra
marka forskotið sem Júgóslavar
náðu í byrjun síðari hálfleiks og á
síðustu mínútunni var það nánast
tilviljun ein hvoru megin sigur-
markið lenti. Og Sigurður
Sveinsson var nálægt því að
jafna. Settur inná í fyrsta skipti 5
sekúndum fyrir leikslok þegar ís-
land fékk aukakast, kom skoti í
gegnum varnarvegginn en Velic
sá við honum og varði.
Það var 5 mínútna kafli í byrjun
seinni hálfleiks sem gerði út-
slagið. ísland komst yfir, 12-11,
en þá tók við keðja mistaka, Júg-
óslavar gerðu 5 mörk í röð og
komust í 12-16. „Þarna gerðum
við afdrifarík mistök, við fórum
að skjóta of snemma og leyfðum
þeim að keyra upp hraðann. Það
er banvænt á móti þessu liði. Eftir
þetta vorum við alltaf að sækja á
brattann, alltaf að vinna upp
forskot, og náðum aldrei undir-
tökunum aftur. Betra Iiðið vann
en við getum betur - við ætlum að
sigra þá annað kvöld,“ sagði
Þorgils Óttar fyrirliði eftir
leikinn.
í fyrri hálfleik sýndu bæði lið
handknattleik í heimsklassa.
Góður varnarleikur á báða bóga,
sóknarleikur beggja líflegur en
öruggur og lítið um mistök.
Mikið að gerast allan tímann og
engir dauðir punktar. íslenska
vömin var sérstaklega hreyfanleg
og þétt og hinar snjöllu skyttur
Júgóslava þurftu oft að þreifa
lengi fyrir sér til að finna smugu.
En hinn útsjónarsami Portner og
vinstrihandarskyttan frábæra
Saracevic voru íslensku vörninni
erfiðir.
í seinni háifleik var meira um
mistök, sérstaklega hjá íslenska
liðinu, og vörnin var ekki jafn
þétt. „Við lentum í að leika mað-
ur gegn manni, sem gengur ekki
upp á móti Júgóslövum. Þeir eru
snöggir og skoruðu fyrir bragðið
einföld mörk og leiðinleg fyrir
okkur,“ sagði Alfreð Gíslason.
Af einstökum leikmönnum
stóð Kristján Arason uppúr í ís-
lenska liðinu, geysisterkur í vörn
og sókn. Alfreð var líka kraft-
mikill, Páll stjórnaði vel og er á
uppleið á ný og Þorgils Óttar
nýtti þau færi sem gáfust gegn
vörn sem gaf fá færi á sér. Bjarni
var lengi í gang í afmælisleiknum,
eðlilegt eftir þá umgjörð sem var í
kringum þennan áfanga hans.
„Bogdan vissi vel hvaða álag var á
mér og hvfldi mig þessvegna vel í
seinni hálfleik. Eftir að ég kom
inná aftur var ég afslappaðri,“
sagði Bjarni, sem jafnaði leikinn
með tveimur mörkum, 19-19,
undir lokin.
,JÉg er ánægður með leikinn að
mörgu leyti - Júgóslavar hafa ein-
faldlega betri mönnum á að skipa
en við. I fyrsta lagi leika þeir
geysigóða vörn og í öðru lagi eru
þeir óhemju flinkir með boltann.
Júgóslavneskur handknattleikur
er alltaf góður. Okkar leikur var í
meðallagi, baráttan var mjög góð
en vörnin gekk ekki vel í seinni
hálfleik. Á morgun vonast ég eftir
meiri baráttu og að leikmennirnir
haldi betur haus,“ sagði Bogdan
Kowalczyck, landsliðsþjálfari.
Þorbjörn Jensson, fyrrum
landsliðsfyrirliði, er í hópnum á
ný en lék ekki í gærkvöldi. „Þetta
var mjög skemmtilegur leikur en
það var erfitt að vera bara áhorf-
andi,“ sagði hann. „Leikurinn
var vel spilaður á báða bóga og
það var jgífurleg barátta í íslenska
liðinu. Eg efast ekki um að strák-
arnir koma tvíefldir til leiks og
leggja allt í sölurnar til að sigra
annað kvöld. Þeir hefðu sigrað í
kvöld með örlítið meiri heppni og
í lokin fannst mér dómararnir
bera heldur mikla virðingu fyrir
Júgóslövunum,“ sagði Þorbjörn.
Það var sárt að leikurinn skyldi
tapast - hann var jafn og tvísýnn
og úrslit gátu orðið á hvorn veg-
inn sem var. En áhorfendur sem
troðfylltu Höllina og sköpuðu
stórkostlega stemmningu fengu
mikið fyrir aurana sína - þeim var
boðið uppá góðan og skemmti-
legan handknattleik hjá tveimur
snjöllum liðum. Það stefnir í ann-
an slíkan í kvöld, íslensku strák-
arnir eiga harma að hefna og
leggja vafalítið allt undir.
Skemmtunin verður vonandi
ekki síðri en í gærkvöldi. -VS
Fólskubragð!
Guðmundur Guðmundsson bryst
framhjá Saracevic, sem reynir að
stöðva hann með „júgóslavneska
bragðinu", lúmsku og hættulegu broti
sem Júgóslavar beita óspart og er
svartur blettur á þeirra skemmtilega
handknattleik. „Þeir voru að þessu
allan tímann en dómararnir tóku ekki
eftir neinu," sögðu íslensku leik-
mennirnir heitir í hamsi eftir leikinn.
Mynd: E.ÓI.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
Leikurinn í tölum
ísland (11)19 Júgóslavía (11) 20
1-0, 3-1, 4-2, 5-3, 5-5, 6-7, 8-7, 8-9,
10-9, 11-10, 11-11 - 12-11, 12-16,
14-16, 14-17, 17-17, 17-19, 19-19,
19-20.
Kristján Arason - 7(2v) mörk
úr 12 skotum. Tvær sendingar
gáfu mörk.
Alfreð Gíslason - 4 mörk úr 7
skotum. Tvær sendingar gáfu
vítaköst, tapaði bolta einu sinni.
Lék tæpar 40 mínútur.
Bjarni Guðmundsson - 2 mörk
úr 4 skotum. Lék tæpar 40 mínút-
ur.
Páll Ólafsson - 2 mörk úr 3
skotum. Tvær sendingar gáfu
mörk, tapaði bolta einu sinni.
Þorgils Óttar Mathiesen - 2
mörk úr 2 skotum. Ein sending
gaf mark, fiskaði 2 víti, tapaði
bolta einu sinni.
Guðmundur Guðmundsson -1
mark úr 3 skotum, ein sending
gaf mark.
Atli Hilmarsson - 1 mark úr 1
skoti. Tapaði bolta einu sinni.
Lék rúmar 20 mínútur.
Geir Sveinsson - ein sending
gaf mark. Lék í vörn allan
leikinn.
Karl Þráinsson - eitt skot í
stöng. Lék £ 20 mínútur.
Sigurður Sveinsson - eitt skot
varið. Lék síðustu 5 sekúndurn-
ar.
Jakob Sigurðsson og Brynjar
Kvaran komu aldrei inná.
Einar Þorvarðarson stóð í
markinu allan leikinn og varði 8
skot.
Mörk Júgóslavíu: Portner
5(lv), Saracevic 4, Jarak 4, Uz-
eirovic 3, Smailagic 2, Perkovac
2.
Dómarar: Jean Lelong og Ger-
ard Tancrez frá Frakklandi -
dæmdu þokkalega, öllu betur en í
Eystrasaltskeppninni á dögun-
um.
Brottvlsanir: Smailagic 2x2
mín, Uzeirovic 2x2 mín, Jarak,
Portner, Geir, Alfreð, Þorgils
Óttar og Kristján 2 mínútur hver.
Maður leiksins:
Portner, Júgóslavíu.
Zlatko
-VS