Þjóðviljinn - 29.04.1987, Page 2
I
—SPURNINGIN-
Telur þú trúlegt að kona verði
næsti forsætisráðherra?
Ragnar Þórsson
næturvörður.
Það hef ég ekki minnstu hugmynd
um. Gæti sjálfsagt alveg komið til
greina en spurningin snýst bara ekki
um konur eða karla heldur um hvers
konar samfélagi við viljum búa í. Eins
- og er stendur það bara skrifað í skýin
hvað verður, en þjóðin hefur kallað
Borgaraflokkinn yfir sig eða hvað?
Vllborg Jóhannsdóttir,
sjúkraliði.
Af hverju ekki? Ég tel sennilegt að
kvennalistinn komi til með að eiga
aðíld að stjórnarmyndunarvið-
ræðum, enda virðist fólk vilja það ef
marka má kosningaúrslitin.
Ölver Skúlason
skipstjóri.
Nei, ég held að stjórnmálin í dag séu
það flókin að gömlu fjórflokkarnir nái
sér einhvern veginn saman og hleypi
ekki nýjum aðilum að.
Magnús Valdimarsson
verksmiðjustjóri.
Nei það vona ég ekki, ég hef enga trú
á þeim. Við þurfum sterkan karlmann
og sterka tveggja flokka stjórn.
Hallfríður Jónsdóttir
sölumaður.
Ábyggilega ekki. Það eru engar líkur
á að það geti gerst, en ég hefði alls
ekkert á móti því ef til kæmi.
FRETTIR
Félagsráðgjafar
Þrjár vikur í verkfalli
Félagsráðgjafar samþykktu nýgerðan kjarasamning. Svava Stefánsdóttir, form.
Félags félagsráðgjafa: Núskiptir mestu hvortstjórnmálamennirnir standa við
kosningaloforðinogfólkverðurekkilátiðborga áfram niður verðbólguna
• / ■ • / . / ‘ f f " * * f / I rí A n **■ n *vi ri * w íyp ri rvi n m p r* nm . ' / / 1. n — 1 _ 1 _ — _
Félagsráðgjafar í þjónustu
ríkisstofnana samþykktu á
fundi sínum í fyrrakvöld nýgerð-
an kjarasamning við ríkisvaldið
og var þriggja vikna verkfalli fé-
lagsráðgjafa þar með aflýst.
Samningur félagsráðgjafa er til
tveggja ára og er uppsagnar-
ákvæði á síðara ári samnings-
tímans. Hluti þeirra fél-
agsráðgjafa sem sögðu jafnframt
upp störfum hefur snúið aftur til
vinnu.
Að sögn Svövu Stefánsdóttur,
formanns Félags íslenskra félags-
ráðgjafa færir samningurinn fél-
agsráðgjöfum viðlíka hækkun
launa og aðrir hópar ríkisstarfs-
manna hafa samið um að undan-
förnu.
„Þessi samningur er viðunandi
í ljósi þess að aðrir ríkisstarfs-
menn hafa þegar samið áður og
línurnar verið lagðar af öðrum.
Við höfum ekki slegið á það hvað
samningurinn færir okkur væm-
lega. Byrjunarlaun hækka þó úr
32.800 krónuupp í 41.000 krónur.
Annars er mest um vert að við
fengum inn uppsagnarákvæði á
síðara ári samningstímans, sem
kemur til framkvæmda verði
kaupmáttáttur dagvinnulauna
meira en 6.5% lægri heldur en
hann reynist að jafnaði febrúar til
október í ár.
Það sem skiptir mestu máli
núna er hvernig þessi samningur
kemur til með aðreynast. Hvað
gerist núna þegar tekur við ný
ríkisstjórn? Verður Iaunafólk
látið borga niður verðbólguna
áfram? Spurningin er hvort þær
hækkanir sem launafólk hefur
verið að fá að undanförnu verður
tekið af fólki strax eða hvort
stjórnmálaflokkarnir standi við
kosningaloforðin,“ sagði Svava
Stefánsdóttir. ~RK
Skák
Minningarmót
Minningarmót Halldórs Jóns-
sonar verður haldið á Akureyri
dagana 30. apríl til 3. maí. Fyrsta
umferð verður tefld kl. 20 að
kvöldi þess þrítugasta. Teflt
verður í félagsheimili Skákfélags
Akureyrar á Þingvallastræti 18.
Tefldar verða sjö umferðir eftir
Monrad-kerfi. Umhugsunartími
er 1 Vi klst. á 36 leiki og Vi klst. til
að ljúka við skákina eftir það.
Fyrstu verðlaun eru 25.000
krónur en alls verða veitt tíu pen-
ingaverðlaun fyrir árangur í ýms-
um flokkum. Samanlagt er verð-
launaféð 90.000 krónur.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast í síðasta lagi að kvöldi 29.
apríl. Þátttöku má tilkynna hjá
Gylfa Þórhallssyni í síma 23926
og Sigurbirni Sigurjónssyni í síma
25245.
Svíavinir
Hópurinn sem útskrifaðist fyrir utan Egilsbúð í Neskaupstað. Mynd-HB.
Neskaupstaður
Elsti nemandinn 87 ára
86 starfsmenn Síldarvinnslunnar í Neskaupstað tóku þátt ífiskverkun-
arnámskeiði á vegum sjávarútvegsráðuneytisins
Síðasta vetrardag voru útskrif-
aðir 86 starfsmenn Síldarvinnsl-
unnar í Neskaupstað af nám-
skeiði fyrir fastráðna starfsmenn í
fiskvinnslu. Námskeið sem þessi
hafa verið haldin víða um land í
kjölfar kjarasamninganna í fyrra
og veitir þátttaka í þeim launa-
hækkun.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra mætti á útskriftina í
Neskaupstað og ávarpaði út-
skriftarnemendur sem síðan þágu
veitingar í boði sjávarútvegs-
ráðuneytisins.
Elsti nemandinn á námskeið-
inu í Neskaupstað er 87 ára og
sjötíu árum eldri en yngsti nem-
andinn. Þátttakendur nám-
skeiðsins var allt fastráðið starfs-
fólk Sfldarvinnslunnar, bæði í
saltfiskverkun og frystihúsi.
Valborgar
messa
Annað kvöld heldur íslensk-
sænska félagið árlegan Valborgar-
messufagnað sinn í Skíðaskálanum í
Hveradölum.
Ræðumaður kvöldsins er Hjálmar
W. Hannesson sendiráðunautur en
veislustjóri er Árni Björnsson þjóð-
háttafræðingur og stjórnar hann einn-
ig almennum söng undir borðum.
Viðar Gunnarsson óperusöngvari
skemmtir með söng við undirleik
Selmu Guðmundsdóttur, og eftir
borðhald verður tendrað Valborg-
armessubál. Þann þátt fagnaðarins
annast Rúnar Bjarnason slökkviliðs-
stjóri. Loks skemmta menn sér við
tóna frá Reyni Jónassyni.
Fagnaðurinnn hefst kl. 19.30, og
eiga menn að tilkynna þátttöku í dag,
helst fyrir hádegi, í síma 10024. Lang-
ferðabflar fara frá Hlemmi klukkan
19 annað kvöld og koma í bæinn aftur
að lokinni skemmtun.
Flugstöðin
Slökkt á vopnaleitartækjunum
SigurjónA. Friðjónsson: Enginþjónusta. Fengumhvorkivottnéþurrt. Útlend-
ingar mjög óhressir með þjónustuleysið. Ekki flugstöðinni til framdráttar
„Það var slökkt á vopnaleitar-
tækjunum og ekkert athugað
hvað farþegar höfðu meðferðis í
handfarangri út í vélina. Þar að
auki var allt lokað í flugstöðinni
nýju og fengu farþegar hvorki
vott né þurrt og gátu ekkert versl-
að fyrir brottför,” sagði Sigurjón
A. Friðjónsson, farþegi með Flug-
leiðavél til Kaupmannahafnar á
dögunum.
Astæðan fyrir þessu þjónustu-
leysi sem farþegarnir urðu fyrir
var að á sama tíma og þeir biðu
brottfarar var flugstöðin opin
fyrir almenning til skoðunar og
þess vegna var lokað fyrir alla
þjónustu í flugstöðinni.
Sagði Sigurjón að þeir útlend-
ingar sem hann hefði rætt við
hefðu lýst megnustu óánægju
með þetta þjónustuleysi sem þeir
hefðu mætt og væri óskiljanlegt
með öllu á sama tíma og verið
væri að auglýsa flugstöðina upp
og dásama þjónustuna sem þar
fengist.
„Vegna þess að vélin bilaði rétt
áður en hún átti að fara í loftið og
fór ekki fyrr en um miðjan dag,
þá lentu farþegarnir í því að stöð-
in var lokuð fyrir allri þjónustu
vegna skoðunar almennings á
sama tíma. Þarna hittist bara
svona á. En það fór fram handleit
í farangri rétt áður en þeir stigu
upp í vélina, svo það er ekki alls-
kostar rétt að engin leit hafi átt
sér stað,” sagði Þorgeir Þorgeirs-
son lögreglustjóri á Keflavíkur-
flugvelli.
grh.
2 S(ÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 29. april 1987