Þjóðviljinn - 29.04.1987, Side 9
Kosningarnar
Afall fyrir Alþýðubandalagsmenn
Alþýðubandalagið oghelstiforveriþesshafaaldreifengið minnaíkosningumogaldreitapaðjafnillilega.Höfuðáfallið í einu helsta víginu, Reykjavík
Niðurstöður í kosningunum á
laugardaginn eru svo margþættar
að jafnvel ælðum stjórnmála-
mönnum og -fræðingum vefst
tunga um tönn að skýra og túlka.
Þó er augljóst að ein helsta niður-
staða kosninganna er alvarlegt
fylgistap Alþýðubandalagsins,
hið mesta í sögu flokksins.
Sósíalistaflokkurinn vann ný-
stofnaður mikinn sigur í tvennum
kosningunum. árið 1942, fékk
rúm 16 prósent í fyrra skiptið og
18,5 prósent í síðara skiptið, og
að undanteknum kosningasigrin-
um mikla árið 1978 hefur fylgi
Sósíaiistaflokksins og þess flokks
sem til varð úr honum og öðrum
minni vinstrihópum, Alþýðu-
bandalagsins, verið í nálægð við
þessar tölur frá 1942.
Sósíalistaflokkur og Alþýðu-
bandalag hafa aðeins einu sinni
náð uppfyrir 20 prósent mörkin, í
kosningasigrinum mikla árið
1978, og aðeins einu sinni áður
farið niðurfyrir 15 prósent, árið
1967 þegar Hannibal bauð ásamt
öðrum óánægðum Alþýðubanda-
lagsmönnum fram sér í Reykja-
vík. Atkvæði hans voru við út-
hlutun þingsæta reiknuð Alþýðu-
bandalaginu til tekna, og er því
sögulega á reiki hvort flokkurinn
fékk 13,9 eða 17,6 prósent í kosn-
ingunum 1967.
Aldrei meira tap
Kosningaúrslitin nú, 13,35%,
eru einnig hin lökustu í sögu Al-
þýðubandalags og Sósíalista-
flokks þegar eingöngu er litið til
taps og vinnings. Glæstasti sigur-
inn er 1978 þegar 4,5% kjósenda
gengu til liðs við Alþýðubanda-
lagið, og einnig unnust umtals-
verðir sigrar þegar bandalagið
bauð fyrst fram 1956 (+3,1%) og
þegar viðreisnarstjómin féll 1971
(+3,2%).
Mesta fyrra tap í sögu samtak-
anna er Ungverjalandsáfall Sósí-
alistaflokksins 1959 (-3,9), og
bakslagið ‘79 (-3,2). Nú tapast
hinsvegar 4%, sem að vísu verða
3,95 þegar aukastöfum er fjölg-
að.
Enn ein leið til að meta tap og
vinning í tölum er að athuga hver
staða er miðað við fyrra fylgi, og
verður þá að miða við híutfalls-
legt fylgi, - atkvæðatalan sjálf
segir lítið vegna mismikillar fjölg-
unar í kjósendahópi. Sé þessi leið
MORÐUR
ÁRNASON
farin eru kosningarnar á laugar-
dag líka dapurlegt met í sögu Al-
þýðubandalagsins og forvera
þess. Flokkurinn tapar nú tæpum
fjórðungi af hlutfallsfylgi sínu í
síðustu kosningum, 22,85 prós-
ent, en verstu áföllin áður voru
20,5% fylgistap Alþýðubanda-
lagsins árið 1959 og 17,7 prósent
tap Sósíalistaflokksins ‘53.
Afturúr krötum
í kosningunum 1942 gerðust
þau pólitísku tíðindi að Sósíal-
istaflokkurinn varð stærri en Al-
þýðuflokkurinn og hafa kratar
síðan mátt sætta sig við hlutverk
litla bróður gagnvart flokknum til
vinstri við sig, þótt oft hafi litlu
munað. Eina undantekningin er í
Hannibalsklofningnum ‘67, þar-
sem Alþýðuflokkur er öflugri en
Alþýðubandalag séu atkvæði I-
listans talin sér. Nú fengu kratar
1,9% meira en Allaballar.
Það hefur einkennt íslensk
kosningaúrslit að Alþýðuflokkur
og Sósíalistaflokkur og Alþýðu-
bandalag hafa verið furðu sam-
stiga, báðir flokkar unnið á eða
báðir flokkar tapað atkvæðum.
Þessi hefur orðið raunin átta
sinnum frá ‘42, og í öðrum kosn-
ingum (nema þá 1967) hafa krat-
ar tapað meðan sósíalistar vinna
á eða standa í stað. Sé litið fram-
hjá árinu 1967 kom í fyrsta sinn
upp sú staða á sunnu-
dagsmorguninn að sósíalistar
töpuðu fylgi en kratar unnu á.
Reykjavík
verst úti
Tölur laugardagsins sýna að
mesta prósentutapið í kjördæm-
unum var á Austurlandi, þar sem
G-listinn tapaði 6,9%, og hlut-
fallslegt fylgistap var mest á Vest-
urlandi, þar sem G-listinn tapaði
28,6% af hlutfallsfylgi sínu ‘83.
Nokkur einföld rök hníga þó að
því að Alþýðubandalagið hafi í
þessum kosningum orðið verst
úti í Reykjavík, kjördæmi sem
kemst næst Austurlandi í pró-
sentutapi (5,2) og næst Vestur-
30 i
10
s? sP s? sO sP O^- Sp O'- CO Np vO o' vP
CM 10 10 C\J 0 0 cn r—
CO 00" o> O) cd cn IO cd ? cd N-
7“ 7— T— T~ 7“ T r~ r~
N N VO w vD 0» 0V M Þ*
+ * ♦ ♦ m in m 10 vö V0
0S cv 0» 0» CÞ ov 0V Cb Ov CÞ flv
/
co o
Súlurnar sýna landsfylgi Sósíalistaflokksins (1942 til 1953) og Alþýðubandalagsins
(1956-1987). í súlunnifyrir 1967erfylgi l-listans (Hannibal og fleiri) í Reykjavík 1967
(3,7% á landsvísu).
landi í hlutfallslegu tapi (27,4%
af ‘83-fylginu töpuð).
Kosningabaráttan í Reykjavfk
er öðrum þræði háð fyrir augum
allra landsmanna og staðan í
Reykjavík hefur meiri áhrif út-
fyrir kjördæmismörkin en staðan
í öðrum kjördæmum. Þá er
Reykjavík mannflest kjördæm-
anna og tap eða vinningur í borg-
inni hefur því mest áhrif á
heildarfylgið hjá öllum flokkum.
Við þetta bætist að úrslit kosn-
Fylgi G-lista í kjördæmum
Dökku f letirnir
-5,2
í hringjunum sýna hvað hef ur tapast af fylginu frá 1983 (hlutfallslega), við
hlið hringjanna er beint tap í prósentum
Reykjanes ______ -2,0 Vesturland -4,4 Vestfirðir
-1,9%
13,78% nú, 18,98% síðast. Tap
5,20%, tap af fyrra fylgi 27,39%.
11,73% nú, 13,77% síðast. Tap
2,04%, tap af fyrra fylgi 14,83%.
10,85% nú, 15,21 % síðast.Tap
4,36%, tap af fyrra fylgi 28,64%.
11,27% nú, 13,14% síðast.Tap
1,86%, tap af fyrra fylgi 14,17%.
Norðurland vestra -2,3% Norðurland eystra -3,7% Austuriand
-6,9% Suðurland
-3,0%
15,75% nú, 18,03% síðast. Tap
2,28%, tap af fyrra fylgi 12,69%.
13,71 % nú, 16,84% síðast.Tap
3,71%, tap af fyrra fylgi 22,01%.
22,97% nú, 29,85% síðast. Tap
6,88%, tap af fyrra fylgi 23,06%.
11,51 % nú, 14,53% síðast. Tap
3,02%, tap af fyrra fylgi 20,79%.
inganna í Reykjavík eru ein hin
verstu frá 1942. Sósíalistaflokkur
og Alþýðubandalag hafa yfirleitt
verið með um 20 prósent í borg-
inni. Lægsta tala í fyrri kosning-
um er frá 1963, 17,7 prósent,
nema 1967 þegar G-listi fékk
13,2%, I-listi 8,6%. Bæði á
Austurlandi og Vesturlandi hafa
menn síðustu þrjá áratugi séð
verri tölur en nú. Vestlendingar
eru til dæmis nú á svipuðu róli og
á viðreisnarstjómarárunum, og á
Austurlandi eru menn vel yfir
tölum þess tíma, - án þess að
þarmeð sé verið að gera lítið úr
tapinu þar.
Það er einnig athyglisvert að
ekki er liðið ár síðan G-listinn
fékk 20,3 prósent í borgarstjórn-
arkosningum í Reykjavík. Hann
hefur því á milli kosninga ‘86 og
‘87 misst um 7 prósent fylgis og
fær nú 2469 atkvæðum minna en í
fyrra.
Skárra á Reykjanesi
Alþýðubandalagið á Reykja-
nesi tapaði á laugardaginn um 2
prósentum, sem jafngildir að það
hafi hlutfallslega misst tæplega 15
prósent af fylginu síðast. Það var
af minna fylgi að taka á Reykja-
nesi en í Reykjavík, en Alþýðu-
bandalagsmenn þar geta þó unað
við sæmilega þegar þeir líta til
höfuðborgarinnar. Almenn úrslit
á Reykjanesi einkennast af mik-
illi fylgisaukningu Framsóknar
vegna „forsætisráðherraeff-
ektsins“ svokallaða, en Borgara-
flokkurinn þar er aftur ívið
veikari en Albertsmegin við læk-
inn.
{ þessum kosningum hafa
Réykjavík, Reykjanes og Norð-
urland eystra þá sérstöðu að
Kvennalistinn býður þar fram
öðru sinni. Annarstaðar eru
gömlu flokkarnir að kljást við
kvennaframboð í fyrsta sinn.
Fylgisaukning Kvennalistans í
Reykjavík er veruleg, úr 8,4 í
15,6 prósent, og það framboð
hefur sýnilega höggvið stærst
skörð í fylgi Alþýðubandalags-
ins. Fylgi Kvennó á Reykjanesi
og Norðurlandi eystra hefur hins-
vegar aukist lítið frá ‘83, „aðeins“
um 1,8% á Reykjanesi og um
0,6% nyrðra.
Á Norðurlandi eystra tapar Al-
þýðubandalagið samt illa og virð-
ist sérframboð Stefáns Valgeirs-
sonar eiga þar allnokkurn hlut að
máli. Bæði þessi framboð lögðu
mikla áherslu á byggðamál í bar-
áttu gegn stjórnarflokkunum, og
framboð Stefáns var stutt af fólki
af öllu tæi sem „norðlenskt“.
Varnarsigur á
Norðurlandi vestra
Þegar kosningaúrslit Alþýðu-
bandalagsins á Vesturlandi,
Vestfjörðum, Norðurlandi
vestra, Austurlandi og Suður-
landi eru athuguð verður að hafa
í huga að í þessum kjördæmum
bauð Kvennalistinn nú fram í
fyrsta sinn í samkeppni við Al-
þýðubandalagið öðrum flokkum
fremur. Að auki kemur Þjóðar-
flokkurinn við sögu í öllum þess-
um kjördæmum nema Suður-
landi.
Alþýðubandalagið tapar í
öllum þessum kjördæmum, og
meginskýringa hlýtur auðvitað
að vera að leita í greinilegri
niðursveiflu flokksins á lands-
vísu.
Tapið á Austurlandi og Vest-
urlandi er þó svo mikið að þar
hljóta að spila inn sérstaða í kjör-
dæmi. Benda má á að framboð
bæði Borgaraflokks og Kvenna-
lista virðast hafa tekist mjög vel á
Vesturlandi, þar sem enginn
„gömlu“ flokkana hafði konu í
vonarsæti og sonur Alberts sá um
persónubönd kjósenda við höf-
'uðpaurinn í Reykjavík.
Og sennilega má finna ein-
hverjar forsendur fylgistaps G-
listans á Austurlandi í því að þar
hætti þingmennsku einn vinsæl-
asti stjórnmálamaður flokksins,
auk þess sem helsti Framsóknar-
forkólfur þar, Halldór Ásgríms-
son, nýtur mikillar persónuhylli.
Aðeins á Austurlandi bætti
Framsókn við sig í landsbyggðar-
kjördæmunum, þegar tillit er
tekið til klofnings Framsóknar á
Norðurlandi vestra fyrir fjórum
árum. Það er vert að benda á að
þrátt fyrir fylgistapið eru Aust-
lendingar enn mestir Alþýðu-
bandalagsmenn á landinu og er
það eina kjördæmið þarsem G-
listinn fær meira en fimmtung at-
kvæða nú.
Næstir í þeirri röð eru Allaball-
ar á Norðurlandi vestra, og í því
kjördæmi er rökrétt að tala um
varnarsigur flokksins. G-listinn
fær tæp 16 prósent, tapar aðeins
2,3%, og verða úrslitin að teljast
persónulegur sigur fyrir efsta
mann listans, Ragnar Arnalds.
Margrét Frímannsdóttir og fé-
lagar hennar á Suðurlandi geta
líka verið sæmilega ánægðir á
Suðurlandi. Tapið er 3%, mun
minna en á landsvísu. Á Suður-
landi virðist það hafa vegið hvað
á móti öðru að þar hættir þing-
maður með talsvert persónufylgi
í heimabyggð og að við tekur eina
konan í fararbroddi á listum
fjórflokkanna.
Á Vestfjörðum er tap G-listans
minnst í kjördæmunum, innan
við tvö prósent, og sárt fyrir
Vestfirðinga að Kristinn hefði
farið inn á gamla kosningakerf-
inu þrátt fyrir tapið, vegna fjölda
framboða og ónýttra atkvæða. Á
Vestfjörðum var af einna
minnstu fylgi að taka hjá Alþýðu-
bandalaginu, en árangurinn þar
er ánægjulegur vegna erfiðrar
vígstöðu vestra sem meðal annars
sést á því að kunnur Alþýðu-
bandalagsmaður sat í öðru sæti
fylgismikils Þjóðarflokks.
Dagur eftir þennan
Það kemur dagur eftir þennan
dag, sagði formaður Álþýðu-
bandalagsins í Þjóðviljaviðtali í
gær. Það er eins gott að sá dagur
verði bjartur því að kosningarnar
á laugardaginn voru hinar þriðju
sem Alþýðubandalagið tapar síð-
an sigurinn vannst árið 1978, og
flokkurinn hefur tapað rúmlega
40 prósent af fylgi sínu þá.
Til að rétta við þarf flokkurinn
samkvæmt ívitnuðu viðtali að
taka sér tak, og það verður ein-
ungis gert með því að finna hinar
sennilegu pólitísku skýringar
kosningaósigursins nú. Það hefur
ekki verið reynt hér, en slíkar
skýringar hljóta meðal annars að
byggjast á ámóta greiningu kosn-
ingaúrslitanna og sett er fram á
þessum síðum. Ef Alþýðubanda-
lagsmenn ætla sér nýja sókn
verða þeir að þora að horfa fram-
an í staðreyndirnar hversu blá-
kaldar og óaðlaðandi sem þær
kunna að vera.
-m
Kammermúsíkklúbburinn
Mörkl-kvartettinn
íkvöld
Sjöttu tónleikar Kanmmermús-
íkklúbbsins á þessu starfsári
verða í Bústaðakirkju í kvöld kl.
20.30. Þá mun Márkl-kvartettinn
frá V-þýska Sambandsiýðveld-
inu flytja Strengjakvartett í C-dúr
op. 76 eftir Josef Hayden (1732-
1809), Strengjakvintett eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart (1756-
1791) og Strengjakvartett nr.1 op
45 eflir hinn heimskunna píanó-
leikara Wilhelm Kempff.
Wilhelm Kempff fæddist í
Juteborg skammt frá Berlín 25.
nóvember 1895. Hann stundaði
nám í píanóleik og tónsmíðum
við Tónlistarháskólann í Berlín
auk þess sem hann lagði jafn-
framt stund á nám í latínu og
grísku. Hann stýrði tónlistar-
háskólanum í Stuttgart á árunum
1924-‘29, en mestan hluta ævinn-
ar hefur hann ferðast um og hald-
ið tónleika sem einn fremsti pí-
anóleikari samtímans. Þótt tóns-
míðar hans séu minna þekktar,
þá eru þær bæði margar og fjöl-
skrúðugar - sinfóníur, konsertar,
píanósónötur, ljóðasöngvar,
kammermúsík og 4 óperur.
Strengjakvartettinn op. 45 samdi
hann 1942, en hann var fyrst
frumfluttur 43 árum síðar af
Márkl-kvartettinum. Daginn
eftir léku þeir félagar verkið
heima hjá tónskáldinu, sem
heyrði það þá í fyrsta skiptið.
Von er á þessu tónverki á hljóm-
plötu innan tíðar í flutningi
Márkl-kvartettsins.
Márkl-kvartettinn skipa þeir
Josef Márkl, fiðla, David John-
son, fiðla og lágfiðla, Bernhard
Oll, lágfiðla, Manfred Becker,
knéfiðla. Auk þess mun Ásdís
Þorsteinsdóttir Stross fiðluleikari
Ieika með kvartettinum í einu
verkanna.
T ónlistarskólinn
Tveir nýir
einsöngv-
arar
Hrafnhildur Guðmundsdóttir
mezzosópran mun koma fram á
tónleikum á vegum Tónlistar-
skólans í Reykjavík sem haldnir
verða í Norræna húsinu í kvöld
kl. 20.30. Tónleikarnir eru hluti
af einsöngvaraprófi Hrafnhildar
frá Tónlistarskólanum og mun
hún syngja lög eftir Gluck, Hugo
Wolf, Pál ísólfsson, Áma Thor-
steinsson, Gustav Mahler, Ric-
hard Strauss, Erik Satie,
Reynaldo Hahn og Arnold
Schönberg. Undirleikari verður
Anna Guðný Guðmundsdóttir.
Næst komandi miðvikudags-
kvöld mun Kolbrún Arngríms-
dóttir alt-söngkona síðan halda
próftónleika á sama stað kl.
20.30. Kolbrún mun syngja lög
eftir Mahler, Pál lsólfsson,
Brahms og Schumann. Undir-
leikari með Kolbrúnu verður
Selma Guðmundsdóttir. Að-
gangur að tónleikum þessum er
ókeypis og öllum heimill.
Þessar súlur sýna árangur Sósíalistaflokks og Alþýðubandalags í kosningum frá
1942 til 1987, vinning (efri súlurnar) og tap (neðri súlurnar) frá kosningunum næst á
undan, mælt í prósentum af heildarfylgi. í súlunni fyrir 1967 er ekki reiknað með fylgi
l-listans.
Miðvikudaaur 29. aDríl 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA •
8 SfÐA - ÞJÓÐVIUINN Miðvikudagur 29. apríl 1987