Þjóðviljinn - 29.04.1987, Blaðsíða 12
ERLENDAR FRÉTTIR
Afvopnun
Kjamaflaugar burt úr Evrópu!
Alexei Obukhof, aðalsamningamaður Sovétmanna á afvopnunarráðstefnunni í Genf, kynnti í
gœrmorgun tillögur stjórnar sinnar um eyðingu allra meðal- og skammdrœgra kjarnaflauga í Evrópu.
Telur að ná megi samkomulagi í ár
Mý samningsdrög sem fulltrúar
Sovétstjórnarinnar lögðu
fram í viðræðum við Bandaríkja-
menn á afvopnunarráðstefnunni í
Genf í fyrradag voru í gærmorg-
un gerð heyrinkunnug blaða-
mönnum á fundi með aðalsamn-
ingamanni Kremlverja, Alexei
nokkrum Obukhof.
Kjarni tillögunnar er í sama
dúr og hugmyndir þær sem Gor-
batsjof Sovétleiðtogi hafði látið
uppi í viðræðum sínum við
Shultz, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, í Moskvu nýverið.
Gert er ráð fyrir eyðingu allra
meðaldrægra kjarnorkuflauga
risaveldanna í Evrópu, SS-20
flauga Sovétmanna og Pershing-2
og Cruise flauga Bandaríkjanna,
en að auki skal öllum skamm-
drægum flaugum komið fyrir
kattarnef.
Samningsdrögin eru bæklingur
uppá tólf síður en við það bætist
ítarlegur eftirmáli sem gengur útá
það hvernig koma megi í veg fyrir
að svikist verði um að standa við
gerðan samning.
f drögunum er gert ráð fyrir að
báðir aðilar hafi fullt eftirlit með
framkvæmdinni handan járn-
tjaldsins, þeir kæmu til með að
horfa á flaugar andstæðingsins
teknar niður, fylgdust með eyði-
leggingu þeirra, könnuðu verk-
smiðjur sem framleiða flaugar,
hvort heldur í eign ríkis eða ein-
staklinga, og skoðuðu tilrauna-
svæði og herbækistöðvar mótað-
ilans í krók og kring, bæði á ætt-
jörðinni sem og í banda-
lagsríkjum. Þorri flauganna sem
málið snýst um er nefnilega stað-
settur í vinaríkjum risaveldanna.
Bandaríkjamenn lögðu fram
sínar tiilögur í Genfarviðræðun-
um í síðasta mánuði. Risaveldin
1
Þetta kvað vera bandarísk Pershing-
2 meðalskutla.
eru á einu máli um eyðingu tvö
hundruð og sjötíu SS-20 meðal-
flauga Sovétmanna sem bera þrjá
kjarnaodda hver og þrjúhundruð
og sextán Perrshing-2 og Cruise
meðalflauga Sovétmanna sem
hver inniheldur einn kjarnaodd.
Aðilar fallast á að hvor um sig
megi eiga eitt hundrað kjarna-
odda í meðalflaugum svo fremi
þeir séu geymdir utan seilingar
Evrópu, í Bandarfkjunum sjálf-
um og í Asíuhluta Sovétríkjanna.
Flugþol meðaldrægra kjarna-
flauga er á bilinu frá eitt þúsund
til fimm þúsund kílómetra leið.
En alkunna er að Bandaríkja-
stjórn teygði lopann í viðræðun-
um um meðaldrægu flaugarnar á
þeirri forsendu að Sovétmenn
Sovéskir dátar á hlaupum við skammdræga kjarnaflaug steinsnar frá Len-
íngrad.
ættu svo mikið meira af skamm-
drægum flaugum að stórlega
myndi halla á Vesturveldin yrði
meðalflaugunum eytt.
Þann Gordionshnút höggva
Kremlverjar nú í sundur með til-
boðinu um eyðingu allra
skammdrægra flauga, sem flogið
geta fimm hundruð til þúsund
kílómetra leið, úr Evrópu, jafn-
hliða rústun hinna meðaldrægu.
„Upp frá því yrði slíkum smá-
skutlum fenginn sess þar sem
ekki stafaði ógn frá þeim í Evr-
ópu,“ sagði félagi Obukhof.
Að mati Bandaríkjamanna
eiga Sovétmenn nú hundrað og
þrjátíu skammdrægar flugur í
Evrópu sem í heild gætu haft
innanborðs sex til sjö hundruð
kjarnaodda. Obukhof vildi ekki
tjá sig um þessar tölur en benti á
að til mótvægis ættu Bandaríkja-
menn sjötíu og tvo kjarnaodda
sem hæglega mætti koma fyrir í
vesturþýskum Pershing-IA rak-
ettum á viðsjártímum. „Ef sam-
komulag næst um smáflugurnar
þá verður vitaskuld að útiloka
þann möguleika," bætti Obukhof
við.
Hann lagði á það ríka áherslu
að Sovétmenn teldu sig hafa
komið verulega til móts við
kröfurnar sem Bandaríkjamenn
settu fram í samningsdrögum sín-
um þann fjórða mars. Nú væri
ekkert að vanbúnaði og því teldi
hann brýna nauðsyn bera til að
hefjast handa þegar í stað um frá-
gang samkomulags sem hann
taldi allar líkur á að mætti nást á
þessu ári.
-ks.
Aðalfundur
Samvinnubankans
Aöalfundur Samvinnubanka íslands hf. veröur
haldinn á morgun, fimmtudaginn 30. apríl 1987 að
Hótel Loftleiðum, Kristalssal og hefst kl. 14.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð
fram tillaga um heimild bankaráðs til útgáfu jöfn-
unarhlutabréfa og tillögur til breytinga á
samþykktum bankans, ef fram koma.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins
verða afhentir íaðalbanka, Bankastræti 7, dagana
27. - 29. apríl svo og á fundarstað.
Bankaráð Samvinnubanka íslands hf
Auglýsing
frá Útvegsbanka íslands
um innlánsreikninga
Samkvæmt 7. gr. laga nr. 7, 18. mars 1987, um
stofnun hlutafélagsbanka um Útvegsbanka ís-
lands skulu innlánsreikningar við Utvegsbank-
ann flytjast til Útvegsbanka íslands hf. þann 1.
maí nk. nema innistæðueigendur óski annars.
Jafnframt er bent á, að ríkisábyrgð á innistæðum
í Utvegsbanka íslands hf. helst til 1. maí 1989.
Útvegsbanki íslands
Auglýsing
frá Útvegsbanka íslands
um greiðslustað skuldaskjala
Samkvæmt 8. gr. laga nr. 7, 18. mars 1987, um
stofnun hlutafélagsbanka um Útvegsbanka ís-
lands skal greiðslustaður skuldaskjala í eigu eða
til innheimtu hjá Útvegsbankanum vera í Útvegs-
banka íslands hf. eftir yfirtöku hans á Útvegs-
bankanum þann 1. maí nk.
Útvegsbanki íslands