Þjóðviljinn - 29.04.1987, Blaðsíða 13
ÖRFRÉTTIR
ERLENDAR FRETTIR
Suður-Afríka
Minnihlutastjórn
Fanfanis varð að ósk sinni í gær
þegar ítalska þingið samþykkti
vantrauststillögu á hana og er nú
gatan greið fyrir Cossiga forseta
að efna til þingkosninga. Að
öllum líkindum munu þær fara
fram í júnímánuði í sumar.
Ríkisráð Portúgals
undir forystu Mario Soares for-
seta ákvað í gær að leysa upp
þing landsins og efna til kosn-
inga. Gera menn ráð fyrir að for-
setinn muni ávarpa þjóð sína í
dag og tímasetja þingkjörið sem
flestir telja að fara muni fram um
miðjan júlí.
Paul Laxalt
fyrrum Öldungadeildarþingmað-
ur frá Nevada hyggst freista gæf-
unnar í forkosningum Repúblik-
anaflokksins fyrir forsetakjörið í
Bandaríkjunum að ári. Hann er
mikill aðdáandi og vinur Ronalds
Reagans og hyggst halda merki
hans á lofti í bandarískri pólítík.
í Tokyo
þurfa menn að vera nokkuð loðn-
ir um lófana vilji þeir sjá sér og
sínum farborða því í höfuðborg
Japans er verðlag hærra en á
nokkrum öðrum stað á byggðu
bóli. Genf er dýrasta borgin í Evr-
ópu en hún er í tíunda sæti á
heimslistanum. New York á
metið fyrir borgir Ameríku en hún
rétt lafir í þrítugasta og fjórða sæti
á listanum yfir dýrustu borgir
heims.
í Sviss
er látinn Robert Favre le Bret.
Hann er frægur fyrir að hafa átt
frumkvæði að því að efnt er til
Cannes kvikmyndahátíðarinnar
ár hvert. Sú fyrsta var haldin árið
1946 og allar götur síðan var
hann driffjöðurin í hátíðahaldinu.
Hann var áttatíu og tveggja ára
gamall.
Geisladauðinn
kann að vitja um tvö þúsund Úkr-
aínumanna sem voru svo óláns-
samir að búa í námunda við
Tjernóbýl þegar kjarnorkuslysið
átti sér stað fyrir ári síðan. So-
véskir sérfræðingar segja að á
næstu fimmtíu árum kunni þetta
fólk að verða krabbameini að
bráð.
Ofsóttum hommum
verður á næstunni reistur veg-
legur minnisvarði í miðborg Am-
sterdam að sögn formælanda
hommasamtakanna Coc en þau
hafa veg og vanda af framtakinu.
Verkið mun verða saman sett af
þremur bleikum marmarastöpl-
um sem mynda þríhyrning en
bleiki þríhyrningurinn var einmitt
merkið sem nasistar þvinguðu
homma til að bera til auðkennis á
stríðsárunum á sama hátt og
gyðingar urðu að sauma gula
Davíðsstjörnu á klæði sín.
Árið 2050
munu helmingi fleiri guðsbörn
byggja þessa jörð en á því herr-
ans ári 1987 ef svo heldur fram
sem horfir. Ellefu miljarðarertala
sem ugglaust skýtur mönnum
skelk í bringu en draga má úr
fólksfjölguninni ef framleiðsla
getnaöarvarna verður stóraukin
og hver hjón láta sér nægja að
eignast tvö börn.
Beinmenjar Búdda
sjálfs munu nýverið hafa fundist í
námunda við Peking, höfuðborg
Kína, að sögn tveggja fyrirmanna
Kínverska Búddasambandsins.
Hér er um tvær litlar beinkúlur að
ræða en þær munu hafa legið í
jörðu í þrettánhundruð sjötíu og
eitt ár uns grafró þeirra var rask-
að á dögunum.
Spánn
ný
r
Igær gerði dómstóll í Suður-
Afríku að engu þau fyrirmæli
lögregluyfirvalda í landinu að
óheimilt væri að hafa í frammi
mótmæii og krefjast þess að látnir
yrðu laiisir um tuttugu og fimm
þúsund einstaklingar sem læstir
hafa verið á bak við lás og slá í
krafti neyðarlaga.
Dómarinn sem kvað upp úr-
skurðinn lét ennfremur svo um-
mælt að hann féllist í öllum at-
riðum á ákvörðun kollega síns er
á föstudag dæmdi ríkisritskoðun-
ina á öllu fréttaefni sem færi frá
landinu ólöglega og vítti Jóhann
Coetzee lögreglustjóra landsins
harðlega fyrir að fara út fyrir
valdsvið sitt með því að birta
reglugerðir í lögbirtingablaðinu
um bann við hverju því sem hon-
um þætti banna þurfa.
Þann ellefta apríl lýsti Coetzee
því yfir að óheimilt væri að efna
til mótmæla og krefjast lausnar
fanganna tuttugu og fimm þús-
und. Hann fór offari og lét
jafnvel varða refsingu að klæðast
stuttermabolum sem á var letrað
„Frelsum börnin“ því einsog
kunnugt er gista mörg þúsund
þeldökk ungmenni dýflissur
stjórnvalda í landinu.
Gerræði þetta vakti mikla öldu
andmæla hvaðanæva að úr
heiminum og jafnvel sendiherra
Bandaríkjanna, Edward Perkins,
sá sig knúinn til að leggja orð í
belg, en hann og húsbóndi hans í
Hvíta húsinu eru annars þekktir
fyrir annað en að láta
mannréttindabaráttu blökku-
manna til sín taka.
Málið um ritskoðunina var fært
fyrir dómstóla af tveim sam-
tökum, baráttusamtökum fyrir
frelsun blökkumannaleiðtogans
Nelsons Mandela og Sameinuðu
lýðræðisfylkingunni en hún er
stærst þeirra samtaka sem berjast
fyrir afnámi aðskilnaðarstefn-
unnar og er heimilt að starfa í
Suður-Afríku.
Sigurinn í því máli veitir frétta-
og blaðamönnum auk kvikmynd-
atökumanna heimild til að ferð-
ast á ný um óróasvæði að vild
sinni og greina umheiminum frá
því sem fyrir augu ber. Ekki virð-
ist starf þeirra hafa dregið stór-
lega úr fautaskap og fúlmennsku
óeirðalögreglunnar því eitt fyrsta
verk þeirra var að fylgjast með
morði á tveim námsmönnum sem
tóku þátt í mótmælaaðgerð og
voru skotnir til bana af sveinum :
Coetzees í fyrradag. Þeir voru að-
eins tvö af rúmlega tvöþúsund og
fjögurhundruð fórnarlömbum
aðskilnaðarstefnunnar á umliðn-
um þrem árum.
-ks.
Jóhann Coetzee drúpir höfði og dottar meðan þjóðsöngur hvíta minnihlutans
mjakast inn í eyru hans. Á innfelldu myndinni er hörundsdökkur snáði
íklædddur hinum bannfærða stuttermabol með áletruninni „Frelsum börnin'1.
Laus staða
Laus er til umsóknar hálf dósentsstaða í matvælafræði við efna-
fræðiskor raunvísindadeildar Háskóla Islands. Aðalkennslugreinar
eru matvælaefnagreining, og gæðamat og matvælalöggjöf.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda,
ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 20
júní nk.
Menntamálaráðuneytið
24. apríl, 1987
Mótmæli heimil á
Dómstóll í Suður-Afríku úrskurðar að barátta
sé heimil fyrir frelsun fanga sem stungið var
inn í krafti neyðarlaga. Coetzee lögreglustjóri
ávítaður fyrir gerrœði
Hvarvetna
verkföll
Igær hófu starfsmenn við kjarn-
orkuverið nærri Tarragona
tvcggja sóiarhringa verkfall sem
ætlað er að knýja fram 7,6 pró-
sent launahækkun en eigendur
versins hafa ekki boðið meira en
6,25 prósent.
Petta er aðeins nýjasta dæmið
um vinnustöðvun á Spáni en sem
kunnugt er hefur eitt verkfallið
rekið annað þar á undanförnum
tveim mánuðum og sér ekki fyrir
endann á þeim ósköpum fyrir
stjórn Felipe Gonzalez og Sósíal-
istaflokks hans. Hún hvikar þó
hvergi frá þeim ásetningi sínum
að halda launahækkunum í lág-
marki og vill ekki að landslýður
fái meiri kjarabætur en sem nema
fimm prósent hækkun.
En það hangir fleira á spýtunni
en átök um kaup, ekki óttast
menn síður atvinnuleysisvofuna
sem gengur ljósum logum um
landið þvert og endilangt. Nú
mun láta nærri að um tuttugu og
einn af hundraði vinnufærra
manna sitji með hendur í skauti á
Spáni.
Stefna stjórnarinnar um að
færa iðnað landsmanna í „nú-
tímalegt horf“ mun enn fjölga í
þessum hópi og gegn henni berj-
ast verkamenn með oddi og
eggju. í gær kom til harðvítugra
átaka verkamanna við skipa-
smíðastöð og lögregluþjóna í
borginni Cadiz á sunnanverðum
Spáni. Þrír menn slösuðust, einn
verkamaður og tveir lögreglu-
menn.
Einnig sló í brýnu á milli náms-
manna og lögreglusveita í sömu
borg en þeir fyrrnefndu flykktust
um götur og kröfðust umbóta á
Felipe Gonzalez er ekki með hýrri há
enda steðja vandamálin að auk þess
sem lyktin er vond í Madrid þessa
dagana.
háskólamenntun. Til að mynda
vilja þeir að læknisfræðikennsla
verði stórlega bætt en henni kvað
vera verulega ábótavant á Spáni.
í Baskahéraðinu Cantabríca
handtóku þjóðvarðliðar þrettán
manns í gær og í fyrradag. Þeim
er gefið að sök að hafa æst til
óspekta og hróflað upp götuvígj-
um í óeirðum sem urðu um helg-
ina þegar mótmæli fóru fram
gegn fækkun starfsfólks í stáliðn-
aði.
í höfuðborginni Madrid er
þeygi góður ilmur þessa dagana
því vinna sorphreinsunarmanna
hefur legið niðri í vikutíma og
hafa þeir ekki hugsað sér til
hreyfings á næstunni. Ferðamenn
hafa því bæði mátt sæta leiðind-
um vegna ódauns og tafa sem
orðið hafa á flugi vegna ólgu
meðal starfsmanna flugfélaganna
Iþeria og Aviaco. -ks.
Miðvlkudagur 29. apríl ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 13
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma
Guðný Stefanía Guðmundsdóttir
Vífilsgötu 22, Reykjavík
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 30.
apríl kl. 13.30.
Magnús Brynjólfsson
Guðmundur H. Magnússon Hrafn Magnússon
Guðbjörg Richter Kristín Erlingsdóttir
og barnabörn
Aðalheimild: REUTER