Þjóðviljinn - 09.05.1987, Blaðsíða 14
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Vesturland
Kjördæmisráðsfundur
í Borgarnesi
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins í
Vesturlandskjördæmi er boðað til
fundar sunnudaginn 10. maí klukkan
13.30. Fundurinn verður í Röðli,
Brákarbraut 3, Borgarnesi. Svavar
Gestsson og Skúli Alexandersson
mæta á fundinn.
Stjórnin
Svavar
Skúli
Alþýðubandalagið I Hafnarfirði
Félagsfundur
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði held-
urfólagsfund í Skálanum, Strandgöfu 41, miðvikudaginn 13; maí klukkan 20.30. Umræðuefni: Úrslit kosning- anna, stjórnmálaþróunin og starfið framundan. Efstu frambjóðendur á G-listanum mæta á fundinn.
3elr
n
Stjórnin
Ólafur Ragnar
Alþýðubandalagið Kópavogi
Félagsfundur ABK
Alþýðubandalagið í Kópavogi heldur fólagsfund í Þinghóli, Hamraborg 11
mánudaginn 11. maí klukkan 20.30 um úrslit kosninganna,
stjórnmálaþróunina og starfið framundan.
Stjórn ABK
Alþýðubandalagið
og nágrenni
Selfossi
Almennur félagsfundur
Fólagsfundur miðvikudaginn 13. maí klukkan 20.30i
að Kirkjuvegi 7, Selfossi. Til umræðu: Kosningaúr-
slitin og stjórnmálaviðhorfið að loknum kosningum.
Frummælandi er Margrét Frímannsdóttir. - Félagar
fjölmennið.
Stjórnini
Margrét
Alþýðubandalagið í Reykjanesi
Umræðufundir
Umræðufundir um úrslit kosninganna, stjórnmálaþróunina og starfið fra-
mundan verða haldnir á eftirtöldum stöðum næstu daga:
Kópavogi, mánudaginn 11. maí kl. 20.30 í Þinghóli, Hamraborg 11.
Keflavík, þriðjudaginn 12. maí kl. 20.30 í húsi Verslunarmannafélagsins.
Garðabæ, miðvikudaginn 13. maí kl. 18.00 í Safnaðarheimilinu Kirkju-
hvoli.
Hafnarfirði, miðvikudaginn 13. maí kl. 20.30 í Skálanum, Strandgötu
41.
Frambjóðendur G-listans til alþingiskosninganna á Reykjanesi koma á
fundina. Fundir á öðrum stöðum verða auglýstir síðar.
Alþýðubandalagið í Reykjanesi
Alþýðubandalagið Kjósarsýslu
Félagsfundur
Alþýðubandalagið í Kjósarsýslu heldur félagsfund þriðjudaginn 12. maí
klukkan 20.30 að Borgartanga 2 í Mosfellssveit. Dagskrá: Umræður um
niðurstöður kosninganna. Stjórnin
Alþýðubandalagið Vestur-Skaftafelissýslu
Félagsfundur í Ketilsstaðaskóla
Alþýðubandalagið í Vestur-Skaftafellssýslu heldur félagsfund í Ketils-
staðaskóla þriðjudaginn 12. maí. Fundurinn hefst klukkan 21.00. Margrét
Frímannsdóttir mætir. Nýir félagar velkomnir.
Stjornin
Alþýðubandalagið Akranesi
Félagsfundur
mánudagskvöldið 11. maí .klukkan 20.30 stundvíslega. Fundarefni: Kosn-
ingaúrslitin og miðstjórnarfundurinn 16. og 17. maí. Kaffi á könnunni.
Stjórnin
Alþýðubandalagið
Miðstjórnarfundur í Varmalandi
Miðstjórn Alþýðubandalagsins heldur fund 16. og 17. maí nk. Fundarstað-
ur: Varmaland, Stafholtstungum, Borgarfirði. Til fundarins eru boðaðir auk
miðstjórnarmanna efstu frambjóðendur flokksins við síðustu alþingiskosn-
ingar.
Fundurinn hefst klukkan 13.00 laugardaginn 16. maí og er stefnt að því að
Ijúka honum fyrir klukkan 17.00 sunnudaginn 17. maí.
Dagskrá: 1. Niðurstöður alþingiskosninganna og sá lærdómur sem Al-
þýðubandalagið þarf af þeim að draga. 2. Önnur mál.
Ath.! Mikilvægt er að fólk tilkynni þátttöku eða forföll til skrifstofunnar (s.
91-17500) fyrir fimmtudaginn 14. maí.
Formaður miðstjórnar.
Alþýðubandalagið
Sumardvöl á Laugarvatni
Eins og á liðnum sumrum gengst Alþýðubandalagið fyrir orlofsdvöl á
Laugarvatni fyrir alla fjölskylduna. í sumar verðum við með tvær síðustu
vikurnar í júlí. Skráning er þegar hafin og er fólk hvatt til að tryggja sér pláss í
tíma. Síminn er 17500. Nánar auglýst síðar.
Alþýðubandalaglð
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Vinningstölur í happdrættum
Vinningur í happdrætti ungra kjósenda kom á bækling númer 9009, ferð til
Rhodos fyrir tvo. Hafið samband við Flokksmiðstöðina, sími 17500.
Vinningur í skyndihappdrætti ABR í kosningamiðstöð á kjördag kom á miða
númer 313, Mallorka-ferð. Hafið samband í síma 17500.
Verði þessara ferðavinninga ekki vitjað fyrir 12. maí falla þeir úr gildi
þarsem gert var ráð fyrir að ferðirnar væru farnar síðari hluta maímánaðar.
Drætti í kosningahappdrættinu hefur verið frestað til 1. júní. Þeir sem enn
eiga eftir að gera skil eru beðnir að gera það hið fyrsta.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Sumartími
Skrifstofa ABR á Hverfisgötu 105 verður í sumar opin frá 10 til 12 fyrir
hádegi.
DJÚÐVIIJINN mm Tíminn
' 68 13 33 e 68 18 66 0 68 63 00
Blaðburður er
£ 68 18 66 0 686300
og borgar sig
Blaðbera
vantar
víðsvegar 'r'-
um borgina # / , u
DJÚÐVIIJINN
Síðumúla 6
0 6813 33
Fóstrur
Okkar á Foldaborg vantar fóstrur í hálfar og heilar
stöður.
Foldaborg er nýtt, þriggja deilda dagvistarheimili
í mótun.
Ef þú hefur áhuga á að vinna með okkur að
uppbyggingu uppeldisstarfs þá hafðu samband
við Guðbjörgu eða Ingibjörgu í síma 673138.
©
Blikkiðjan1
Iðnbúð 3, Garðabæ.
Önnumst hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð.
46711
Kenndu ekki
öðrum um. Hver bað
þig að hjóla í myrki og hálku?
IUMFEROAR
PRAO
Iðnþróunarsjóður
Styrkur
til sjálf-
virkni-
væðingar
Á ársfundi Iðnþróunarsjóðs á
fimmtudaginn var samþykkt að
veita styrk að upphæð allt að 10
milljónir króna á næstu tveimur
árum til að stuðla að aukinni
sjálfvirknivæðingu hér á landi.
Þessi ákvörðun kemur í fram-
haldi af ársskýrslu Iðnþróunar-
sjóðs þar sem fram kemur að
hagnaður af starfsemi sjóðsins á
síðasta ári nemur 105 milljónum
króna.
Þróun í framleiðsluiðnaði er ör
hér á landi segir í fréttabréfi frá
Iðnþróunarsjóði, og helstu
breytingar felast í nýrri fram-
leiðslutækni þar sem fjölhæf
sjálfvirkni gegnir lykilhlutverki í
stað þess að áður einkenndist
sjálfvirkni af flóknum vélum sem
gátu með miklum hraða en lítilli
fjölhæfni framleitt ákveðna vöru.
Þörfin fyrir sveigjanlega fram-
leiðslu eykst sífellt og með nýt-
ingu á möguleikum örtölvutækni
eykst fjölbreytni framleiðslu og
sérhæfing vex. Iðnþróunarsjóður
hefur að undanfömu tekið þátt í
verkefni með Iðntæknistofnun
sem lýtur að því að auka sjálf-
virkni í innlendum iðnaði og
verður styrk þeim sem hér um
ræðir varið til áframhaldandi að-
gerða á þessu sviði. Verður verk-
efnið áfram unnið undir stjóm
Iðntæknistofnunar í samvinnu
við Iðnþróunarsjóð, auk fyrir-
tækja í rafeinda- og framleiðslu-
iðnaði. Er markmið þessa verk-
efnis að auka framleiðni í hefð-
bundnum iðnaði með notkun
nýrrar tækni og að aðstoða fyrir-
tæki við að auka sjálfvirkni í fra-
mleiðsluferli sínu. _inP
Ferðamenn
Aukin
ferðalög
um fóstur-
■ ■■ $Lm
joroina
íslendingar vaxandi
viðskiptahópur
ferðamála. Straumur
útlendinga frá fjarlœgum
löndum að aukast
Ýmsar breytingar hafa orðið á
ferðamálum frá því sem áður var.
Að sögn Kjartans Lámssonar
forstjóra Ferðaskrifstofu ríkisins
hefur innlendur markaður verið
mest vaxandi viðskiptahópurinn í
ferðamálum á síðustu árum en
þar sem stærstur hluti íslenskra
ferðamanna innanlands virðist
vera fjölskyldur á einkabíl eru
ekki til neina tölur um þessa
aukningu.
Kjartan sagði að straumur er-
lendra ferðamanna hingað hefði
vaxið hraðar hlutfallslega en í
hinum Evrópulöndunum og væri
þessi aukning ekki síst frá
löndum sem lítið af fólki hefði
sést frá til skamms tíma, svo sem
Ítalíu, Spáni og öðrum fjarlægari
Evrópulöndum. Einnig sagði
hann fjölga ferðamönnum frá
öðrum heimsálfum, Asíu og
Suður-Ameríku. Bandaríkja-
menn koma hingað jafnt og þétt
en eru nú farnir að koma á
óvenjulegum ferðamannatíma,
þ.e. á vorin og haustin og jafnvel
nokkuð yfir vetrarmánuðina.
-ing.