Þjóðviljinn - 12.06.1987, Blaðsíða 7
Neil Kinnock gerði sitt ítrasta til að
hnekkja veldi frjálshyggjunnar í
bresku þjóðfélagi en allt kom fyrir
ekki.
Járnfrúin mun tróna á toppi skriðdrekans eitt
kjörtímabil í viðbót.
Bretland
Ihaldið hélt velli
Margrét Thatcher mun búa í Downingstrœti 10þriðja
kjörtímabilið íröð. Búist við að íhaldsflokkurinn fái 58-92
sœta meirihluta í neðri málstofu breska þingsins
Eftir að fyrstu töivuspár voru
birtar í gærkveldi um niður-
stöður bresku þingkosninganna
mátti vera Ijóst að Ihaidsflokkur-
inn, undir forystu Margrétar
Thatchers, hafði unnið hreinan
meirihluta og hnekkt atlögu
Verkamannaflokks Neil Kinn-
ocks.
Tölvurnar unnu úr fyrstu
tölum og spáðu því að íhaldið
myndi hreppa 58-92 þingsæta
meirihluta í neðri málstofu
breska þingsins. Reynist úrslitin í
samræmi við þetta þá er ljóst að
Thatcher hefur unnið þriðja
þingkjörið í röð sem er breskt
met.
Áður hafði skoðanakönnun á
vegum sjónvarpsstöðvarinnar
ITN, sem lét spyrja fólk á 100
lykilkjörstöðum, gefið í skyn að
meirihluti íhaldsins yrði 68 sæti.
Það myndi hreppa alls 359,
Verkamannaflokkurinn 243,
miðjubandalagið fengi 24 og
ýmsir smáflokkar 24.
Thatcher má vel við una þótt
meirihlutinn sé ekki jafn mikill
og eftir kosningarnar árið 1983 en
þá fékk flokkur hennar 144 sæti
umfram stjórnarandstöðuna. En
þá logaði Verkamannaflokkur-
inn í innbyrðis deilum og laut for-
ystu manns sem naut lítilla vin-
sælda.
Nú var hinsvegar annar uppi,
nýr formaður Verkamanna-
flokksins, Neil Kinnock, þótti
hafa unnið gott starf við að efla
flokkinn, stóð sig vel í kosninga-
baráttunni og nýtur hylli almenn-
ings.
En allt kom fyrir ekki. „Ég tel
að við höfum tapað vegna þess að
flokkurinn naut svo lítils fylgis í
upphafi kosningabaráttunnar,"
sagði kosningastjóri Verkamann-
aflokksins, Bryan Gould, í gær-
kveldi. Ýmsir gera því skóna að
stefna flokksins í varnarmálum
hafi verið þung á metunum,
meirihluti breskra kjósenda virð-
ist ekki kæra sig um að Bretar
eyði kjarnvopnum sínum.
En það urðu fleiri fyrir von-
brigðum. Miðjubandalagsleið-
togarnir, Davíðarnir Steel og
Owen, höfðu alið þá von í brjósti
að komast í lykilaðstöðu en verða
enn að sætta sig við hlutskipti
dverganna við hlið Mjallhvítar og
prinsins. „Því er ekki að leyna að
úrslitin eru mér mikil vonbrigði,“
sagði Steel í gær, „en það kemur
dagur eftir þennan dag.“
-ks.
Davíðarnir Steel og Owen. Miðjubandalagið verður enn sem fyrr örverpið í
breskri pólitík.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
ísrael
Samneyti við PLO refsivert!
Vinstri sinnaðirþingmenn hittufulltrúa PLO að máli í
Búdapest. Eiga ákœrur yfir höfði sér þegar heim kemur
Israelski vinstriþingmaðurinn
Charlie Biton umfaðmaði Abu
Abas, háttsettan PLO-mann í gær
og sagði að Palestínumenn ættu
rétt á að stofna sjálfstætt ríki.
Þetta gerðist í Búdapest, þar
sem fimmtán vinstri sinnaðir
stjórnmálamenn hittu átta PLO-
menn að máli, og eiga hinir fyrr-
nefndu nú yfir höfði sér ákæru
þegar heim kemur fyrir að leggja
lag sitt við fulltrúa „hryðjuverk-
asamtaka".
„Fundarmenn greinir mjög á í
pólitískum efnum, en að þessu
Íeyti erum við sammála," sagði
Biton á blaðamannafundi eftir að
viðræðunum lauk. „Það ber að
viðurkenna að PLO er eini lög-
mæti fulltrúi Palestínuaraba, og
ísraelsmenn verða að gangast við
því að Palestínumenn eigi rétt á
að stofna sjálfstætt ríki.“
í fundarsamþykktinni segir að
ísraelsmönnum beri að taka þátt í
friðarráðstefnu sem haldin verði
undir stjórn Sameinuðu þjóð-
anna, þar sem öll ríki Miðaustur-
landa eigi fulltrúa, sem og PLO
og fastaríki Öryggisráðsins.
Abas á sæti í framkvæmda-
nefnd PLO, og sagði hann að
sendinefnd Palestínuaraba á
fundinum styddi tillögurnar
heilshugar. Jafnframt dró hann
dár að hugmyndum ísrelska utan-
ríkisráðherrans, Símonar Peres,
en hann hefur mælt fyrir alþjóð-
legri ráðstefnu um málefni Mið-
austurlanda. „Peres vill útiloka
Palestínuaraba frá slíkri ráð-
stefnu, og það er sami rassinn
undir Bandaríkjamönnum,“
sagði Abas.
Israelsmennirnir fimmtán eiga
ákærur yfir höfði sér þegar þeir
halda heim, þar sem lög landsins
kveða svo á að allt samneyti við
„hryðjuverkamenn" sé ólöglegt.
Aðrir fjórir hittu PLO-menn á
fundi í Rúmeníu seint á síðasta
ári, og verður mál þeirra dóm-
tekið í næstu viku, í samræmi við
þessi lög. Arabar líta svo á að
lagabálkur þessi sé rasískur.
Biton sagði að hann og landar
sínir hefðu farið til fundar við
Palestínumennina í Búdapest til
að mótmæla lögunum. Hann
bætti við: „ísraelsstjórn lemur
hausnum við steininn og neitar að
horfast í augu við veruleikann
með því að koma í veg fyrir frið-
arumleitanir milli eigin lands-
manna og Palestínuaraba."
— HS