Þjóðviljinn - 30.07.1987, Qupperneq 9
SVONA GERUM VID
MINNING
Gunnar Guðmundsson
raftæknir Fæddur 9. apríl 1947 Dáinn 23. júlí 1987
Úr djúpum geimsins
er dagurinn risinn og slœr
dýrlegum roða
á óttuhimininn bláan
- og lof sé þér, blessaða líf,
og þér, himneska sól,
og lof sé þér, elskaða jörð,
að ég fékk að sjá hann.
(Guðmundur Böðvarsson)
Fimmtudaginn 23. júlí sl. barst
okkur sú sorgarfregn að mágur
okkar Gunnar Guðmundsson
hefði farist í flugslysi við
Blönduós fyrr um daginn, ásamt
þremur öðrum. Mann setur
hljóðan við slíka helfregn og hug-
urinn leitar til baka.
Gunnar var fæddur og uppal-
inn í Reykjavík, sonur hjónanna
Guðmundar Þ. Björnssonar mál-
ara, og Sigurveigar Stellu Kon-
ráðsdóttur. Hann lauk raftækni-
námi frá Tækniskóla íslands um
áramótin 1978-’79.
Stofnuðu þeir Friðrik Dungal
fyrirtækið Rafmótun s/f á árinu
1984 og ráku það í sameiningu til
dauðadags.
Gunnar var kvæntur Kolbrúnu
Jónsdóttur og áttu þau saman
eina dóttur Asu Dagnýju fædda
1975. Gunnar átti einn dreng
fyrir, Stein fæddan 1970.
Gunnar var félagslyndur mað-
ur, virkur og starfsamur, þó ekki
léti hann mikið á sér bera.
Ungur fékk hann brennandi
áhuga á knattspyrnu og gekk í
Knattspyrnufélagið Fram og
keppti og starfaði dyggilega fyrir
það félag alla tíð síðan.
Einnig tók Gunnar virkan þátt
í starfi Alafosskórsins.
Eftir að fundum okkar bar
saman kom fljótt í ljós, að hann
var ávallt boðinn og búinn að
veita alla þá aðstoð sem hann gat,
er til hans var leitað.
Gunnar var skapgóður og jafn-
lyndur, ávallt hress og viðræðu-
þýður en þó mikill baráttumaður
í starfi og leik.
Erfitt er að lýsa tilfinningum
okkar á þessari stundu, en minn-
ingin um Gunnar mun lifa, minn-
ing um góðan dreng. Eiginkonu
hans Kolbrúnu, börnunum Steini
og Ásu Dagnýju, foreldrum og
systkinum vottum við okkar
dýpstu samúð.
Ásmundur, Eyjólfur, Torfi
Mig langar að minnast bróður
míns með fáeinum orðum.
Gunnar Guðmundsson var
fæddur 9. apríl 1947 og því nýlega
orðinn fertugur að aldri þegar
kallið kom með svo hörmulegum
hætti. Maður verður svo van-
máttugur og skortir orð. En
myndir og minningar koma upp,
svo ótal margar. Góðar, hlýjar og
jafnvel broslegar, það gefur
styrk.
Ég er lítið eitt eldri og því man
ég þegar hann kom sem sólarg-
eisli inn í líf mitt. Ég man fyrstu
sporin, hlaupin og hláturinn,
matrósafötin með flautunni og
fyrstu jakkafötin því þá var mað-
ur orðinn fullorðinn. Umhverfið
var frjálslegt og börn gátu leikið
sér nánast allsstaðar. En ábyrgð
stórusystur var mikil að mér
fannst.
Það var stundum brosað kank-
víslega til mömmu þegar hún
hafði þennan litla snáða með í
strætó. Það mátti rétt greina fal-
legu augun og brosið frá plástrum
og skeinum. Ég átti líka einlæga
aðdáun hans þegar ég lærði að
hjóla á stóra hjólinu hans pabba,
auðvitað undir stöng.
Hann var ekki gamall þegar
aðaláhugamáiið var alveg ljóst,
það var knattspyrnan. Framfé-
lagið og allir þeir góðu félagar
sem hann eignaðist þar. Síðasta
ferðin var farin til að hvetia og
horfa á félagana í leik á Ólafs-
firði,
Fjörutíu ár eru ekki langur tími
á mannsævi. Gunnar átti góð ár
og oft viðburðarík. Hann eignað-
ist góðan lífsförunaut, Kolbrúnu
Jónsdóttur og með henni eina
dóttur, Ásu Dagnýju. Fyrir
hjónaband eignaðist hann einn
son, Stein. Bæði Steinn og Ása
Dagný minna mig um margt á
föður sinn, ekki síst íþróttaáhug-
inn. Guð blessi þau og styrki.
Kolla og Gunnar áttu margar
góðar stundir og um margt lík.
Tóku virkan þátt í áhugamálum
hvors annars. Þá bættist söngur-
inn við. Þau voru meðlimir Ála-
fosskórsins. Þar eignuðust þau
góða vini og minningar.
Ég sakna þín elsku bróðir
minn, sakna þín úr eldhúsinu
þegar þú skaust inn og fékkst bita
áður en farið var á æfingu með
gömlu félögunum. Báðar fjöl-
skyldurnar eiga góðar minningar
frá 17. júní síðastliðnum og góðri
kvöldstund fyrir stuttu. Þá gat ég
stolt sýnt þér fyrsta barnabarnið
mitt.
Til eru þeir sem gefa og þekkja
hvorki þjáningu þess né gleði og
eru sér ekki meðvitaðir um dyggð
sína. Þeir gefa eins og blómið í
garðinum, sem andar ilmi sínum
út í loftið.
Guð blessi ykkur öll.
Traustur vinur og bróðir er
genginn, hvíli hann í friði.
Sirrý systir
Einkareikningur Landsbankans
er tékkareikningur sem tekur
öðrum fram: Háir vextir, kostur á
yfirdrá ttarheimild, láni og margvís-
Segrí greiösluþjónustu. Reikningur sem er
saminn aó þínum þörfum í nútíö og framtíð.
Með Einkareikningi sameinar Landsbankinn þau viðhorf
sem ríkjandi eru í fjármálaviðskiptum um góða ávöxtun,
greiðsluþjónustu og sveigjanleika.
í tengslum við Einkareikning gefst ennfremur kostur á
láni að fjárhæð allt að 150.000 krónur í formi skuldabréfs til
allt að tveggja ára.
Einkareikningur er um margt frábrugðinn hefðbundnum
tékkareikningum. Vextir eru reiknaðir daglega og eru miklu
hærri en áður hafa þekkst svo þú þarft ekki lengur að eltast
við að millifæra á milli tékkareikninga og sparisjóðsbóka til
að fá hærri vexti. Þeir fara ekki stighækkandi eftir upphæðum
heldur eru jafnháir af öllum innstæðum.
Einkareikningshafar geta sótt um yfirdráttarheimild, allt
að 30.000 krónur, til að mæta aukafjárþörf ef á liggur.
Einkareikningi fylgir bankakort sem þjónar tvennum
tilgangi, annars vegar að vera ábyrgðarkort í tékkaviðskipt-
um og hins vegar að vera aðgangskort að hraðbönkum.
Bankakortið gerir 16-17 ára unglingum fært að stofna
Einkareikning þótt þeir hafi ekki aldur til að nota tékkhefti.
Snúðu þér til næsta afgreiðslustaðar Landsbankans og
fáðu nánari upplýsingar um þennan nýja reikning.
Einkareikningur er tékkareikningur sem tekur öðrum fram.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna