Þjóðviljinn - 20.09.1987, Blaðsíða 16
Saulján mörkum
minna en síðasti
Framarar voru nálægt því að skora úr þessu færi gegn Sparta Prag en markvörðurinn varði frá Ragnari Margeirssyni.
Útkoman hjá íslensku félags-
liðunum í Evrópumótunum í
knattspyrnu er ólíkt betri í ár
en ífyrra. í fyrri umferðinni í
fyrraskoruðu þessi sömu þrjú
félög ekkert mark gegn nítján
en í ár er markatalan 0-2.
Þrennt kemur til; liðin sjálf eru
sterkari, mótherjarnir í ár ekki
jafn öflugir og í fyrra og nú virðist
hugarfarið vera annað. Skellirnir
í fyrra voru greinilega þörf
áminning fyrir Val, Fram og ÍA.
Að loknum fyrri leikjunum nú
eiga Valsmenn ágæta möguleika
á að komast í 2. umferð eftir frá-
bær úrslit í Austur-Þýskaiandi.
Markalaust jafntefli gegn Wis-
mut Aue þóttu einhver óvænt-
ustu úrslitin í öllum 64 Evrópu-
leikjunum sem háðir voru í vik-
unni víðsvegar um álfuna. ÍA
gerði markalaust jafntefli með 10
mönnum gegn sænska liðinu
Kalmar á Akranesi og á mögu-
leika þrátt fyrir að á brattann
verði að sækja í Svíþjóð. Þar get-
ur munað því að Kalmar náði
ekki að skora mark á Akranesi,
Skagamönnum dugar því jafn-
tefli úti ef mörk eru skoruð, t.d.
1-1 eða 2-2. Það er þó mikið áfall
fyrir þá að Guðbjörn Tryggvason
verður í leikbanni í þeim leik.
Fram á enga möguleika á að
sigra Sparta Prag með þremur
mörkum á útivelli þannig að
bikarmeistararnir geta einir
bókað frí frá og með næstu mán-
aðamótunum. Framarar komust
ágætlega frá fyrri Ieiknum á
Laugardaisvellinum, léku að
mörgu leyti vel en varnarmistök á
lokamínútunum færðu Tékkun-
um 2-0 sigur. Sparta Prag er með
sterkari erlendu félagsliðum sem
hafa leikið hér á landi síðustu
árin, enda með fimm fastamenn í
tékkneska landsliðinu innan-
borðs.
En það er eitt sem vantaði í
Evrópuleiki íslensku liðanna
þrátt fyrir ágæta útkomu. Þau
skoruðu ekki eitt einasta mark!
Þar með hefur íslenskt félag ekki
skorað mark í Evrópukeppni síð-
an í nóvember 1985 og það er
atriði sem vonandi verður kippt í
lag í seinni leikjum 1. umferðar
þann 30. september.
Sigfried Held hefur tilkynnt
landsliðið sem mætir Norð-
mönnum í Osló á miðvikudaginn.
Val hans er mjög „lógískt“ að
þessu sinni og lítið hægt útá það
að setja. Pétur Pétursson gaf ekki
kost á sér vegna brúðkaupsferðar
og Lárus Guðmundsson hefur
verið valinn í hans stað. Ómar
Torfason og Guðni Bergsson
koma inní hópinn á ný og styrkja
hann verulega. Þá er spurningin
hvernig uppstillingin verður - og
þá helst hvort Guðni Bergsson fái
nú loks tækifærið sem beðið hef-
ur verið eftir, sem aftasti maður í
vörn. Þó Gunnar Gíslason hafi
staðið sig vel gegn Norðmönnum
hér heima ættu hraði og yfirveg-
un Guðna að nýtast betur í erfið-
um útileik. Ómar Torfason er
með á ný og fer líklega beint í
byrjunarliðið. Þá er spurnig hver
eða hverjir detta út.
Mín spá er sú að Guðni verði í
vörninni ásamt Sævari og Atla,
Ómar fari í sína gömlu stöðu sem
aftasti tengiliður, Sigurður Jóns-
son á ný í stöðuna sem hann hat-
ar, á hægri vængnum, og Gunnar
Gíslason verði settur í stöðu
Viðars vinstra megin, einsog til
stóð í fyrri leiknum þar til í ljós
kom að Guðni gæti ekki leikið.
Þetta þýðir að Viðar og Ólafur
Þórðarson detta út. Það getur
verið gott að luma á baráttuj axli á
borð við Ólaf á bekknum ef í hart
fer.
Pétur Ormslev og Ragnar Mar-
geirsson verða væntanlega áfram
í fremri tengiliðastöðunum, þótt
Ragnar hafi átt erfitt uppdráttar í
fyrri leiknum við Noreg. Frammi
verður Lárus við hlið Guðmund-
ar Torfasonar. Bjarni Sigurðsson
örugglega kyrr í markinu. Þá eru
eftir á bekknum Viðar, Ólafur,
Ingvar Guðmundsson, Pétur
Arnþórsson og Friðrik Friðriks-
son. Sterkur hópur varamanna
og lítið mál fyrir hvern þeirra sem
er að koma inní leikinn, og allir
myndu spjara sig í byrjunarlið-
inu.
Það er vissulega slæmt að hafa
ekki Ásgeir Sigurvinsson eða
Arnór Guðjohnsen í þessum erf-
iða leik. Skörð þeirra eru vand-
fyllt í hvaða liði sem er. Norð-
menn verða einnig örugglega
fegnir að vera lausir við Pétur
Pétursson sem fór illa með þá á
Laugardalsvellinum. Lárus ætti
þó að geta gert þeim skráveifur í
staðinn. Víst er að Norðmenn
hyggja á hefndir eftir tapið á
Laugardalsvellinum. Heiður
beggja þjóða er í veði, önnur
hafnar í neðsta sæti riðilsins þeg-
ar upp verður staðið og hvorug
sættir sig við þau örlög. Sérstak-
lega ekki Norðmenn sem alltaf
hafa lent í neðsta sæti í sínum riðli
í Evrópukeppninni frá upphafi, á
meðan ísland hefur einu sinni
náð að forðast það. Það skiptir
líka miklu máli fyrir báðar þjóðir
að ná sem bestu sæti til að standa
betur að vígi þegar dregið verður
í riðla fyrir heimsmeistarakeppn-
ina í desember.
Lokaumferðir 1. og 2. deildar
voru æsispennandi og dramatísk-
ar. Eitt mark skildi að Völsung og
Víði þegar upp var staðið, og FH-
ingar sátu eftir stigi neðar. Það
dugði ekki Víðismönnum að
leggja bæði ÍA og KR í síðustu
umferðunum og FH-ingar eiga
eftir að naga sig í handarbökin í
allan vetur yfir 3-0 forskotinu
sem þeir misstu niður gegn Völs-
ungum á dögunum.
Þegar Víðir kveður eftir sinn
óvænta framgang síðustu árin
tekur nýtt ævintýralið við í 1.
deildinni, Leiftur frá Ólafsfirði.
Það er ótrúlegt að þetta lið sem
ekki alls fyrir löngu var í 4. deild
og var ekki hátt skrifað í vor skuli
vera komið í 1. deild með lítið
breyttan mannskap. Þetta sýnir
hvað er hægt að gera þegar allir
leggjast á eitt í litlu bæjarfélagi.
Hvort sem Ólafsfirðingar stoppa
eitt ár eða fleiri meðal þeirra
bestu er víst að þeir munu njóta
dvalarinnar þar meðan hún
endist.
Eftir langan og strangan undir-
búning varð draumur íslenskra
körfuboltamanna að engu.
Landsliðið tapaði öllum sínum
leikjum í Evrópukeppninni í
Sviss og er úr leik. Samt var
skammt í annað sætið og leikirnir
við Dani og Svisslendinga hníf-
jafnir og spennandi. En það eru
óskemmtilegar fregnir að lands-
liðsþjálfarar skuli þurfa að slá
persónuleg lán til að standa
straum af kostnaði við undirbún-
ing liðsins. Það sýnir að ekki sitja
allir við sömu kjötkatlana og
greinilegt að körfuboltinn hefur
farið halloka í samkeppninni við
knattspyrnuna og handboltann.
Ekki aðeins hvað vinsældir snert-
ir, heldur einnig hvað varðar fjár-
stuðning fyrirtækja og íþrótta-
hreyfingarinnar sjálfrar. Þetta
tvennt helst að sjálfsögðu í hend-
ur og það segir sig sjálft að það
hljóta að vera takmörk fyrir því
hjá svona fámennri þjóð hversu
mikið og marga er hægt að styðja.
Það er hætt við að þetta dragi enn
úr vinsældum körfuboltans og
áhuga fyrir honum, ekki síst þar
sem reikna má með miklum upp-
gangi í íslenska handboltanum í
vetur.
Eftirtaldar greinar eru í boði á haustönn 1987
ef þátttaka ieyfir:
Tungumál: íslensk málfræði og stafsetning. ís-
lenska fyrir útlendinga. Danska 1.-4. flokkur.
Norska 1.-4. fl. Sænska 1.-4. fl. Enska 1.-5. fl.
Skrifleg enska. Þýska 1 .-4. fl. (talska 1 .-4. fl. (tal-
skar bókmenntir. Spænska 1.-4. fl. Spænskar
bókmenntir. Franska 1.-4. fl. Portúgalska.
Gríska. Hebreska. Tékkneska.
VERSLUNARGREINAR. Vélritun. Bókfærsla.
Tölvunámskeið. Stærðfræði (grunnskólastig/
i framhaldsskólastig).
VERKLEGAR GREINAR: Fatasaumur.
Myndbandagerð. Myndmennt. Leðursmíði.
Skrift. Skrautskrift. Postulínsmálun.
NÁMSKEIÐ í UNDIRBÚNINGI: Bókband. Að
gera upp húsgögn. Ferðamannaþjónusta.
Einnig verður boðið upp á kennslu í dönsku,
sænsku og norsku fyrir börn 7-10 ára, til að
viðhalda kunnáttu þeirra barna sem kunna
eitthvað fyrir í málunum.
í almennri deild er kennt einu sinni eða tvisvar í
viku, ýmist 2, 3 eða 4 kennslustundir í senn í 11
vikur.
Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla, Lauga-
lækjarskóla, Gerðubergi og Árbæ.
Námsgjald fer eftir kennslustundafjölda og
greiðist við innritun.
INNRITUN fer fram 21. og 22. sept. kl. 17-20 í
Miðbæjarskóla. Kennsla hefst 28. sept.
Móðir okkar
Anna Halldórsdóttir
áður húsmóðir
Hofsvallagötu 18, Reykjavík
andaðist að morgni 18. september að Skjólgarði, dvalar-
heimili aldraðra, Höfn, Hornafirði. Jarðarförin auglýst síðar.
Börn hinnar látnu.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma
Þorbjörg Pálsdóttir
frá Söndum í Meðallandi
til heimilis að Álfhólsvegi 24
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, mánudaginn 21. sept-
ember kl. 10.30.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast
hennar er bent á Sjálfsbjörg félag fatlaðra í Reykjavík og
nágrenni.
Sigurjón Björnsson
Sigurrós M. Sigurjónsd. Jónas Gunnar Guðmundss.
Erla Sigurjónsdóttir Kristmundur Þorsteinsson
Sigurbjörg Sigurjónsdótir Haraidur Sumarliðason
Páll Sigurjónsson Ágústa Hulda Pálsdóttir
Guðmundur A. Sigurjónsson Hildur Pedersen
Birna Sigurjónsdóttir
Jón Páll Sigurjónsson Steinunn Gunnlaugsdóttir
Sigurður Sigurjónsson
og barnabörn
ÍÞRÓTTASPEGILL
VIÐIR
SIGURÐSSON
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN