Þjóðviljinn - 20.09.1987, Síða 23
Morgunblaðs
dellingar
Heimdellingar héldu aðal-
fund sinn síðasta laugardag
og bar þar hæst formanna-
skipti. Sá frægi bróðir Árna
Sigfússonar, nýkjörinn for-
maður SUS, Þór Sigfússon
vék fyrir Ólafi nokkrum Step-
hensen. Ólafur er sonur séra
Þóris Dómkirkjuprests, sem
auglýsti í sjónvarpinu fyrir síð-
ustu kosningar að hann kysi
Sjálfstæðisflokkinn. Ólafur
ætti þannig að hafa faktúru
bæði frá Guði og mönnum í
nýja embættið. Ólafur útskrif-
aðist úr MR í vor og var síðan,
eins og lög gera ráð fyrir, ráð-
inn blaðamaður á Morgun-
blaðið.
Og ritstjórn Morgunblaðs-
ins á sem betur fer fleiri full-
trúa í stjórn Heimdalls. Þar er
líka Andrés Magnússon, en
hann skrifar um popp og
áhugamál fræga fólksins.
Andrés er sonur Magnúsar
Þórðarsonar - NATO-
Manga - og á þannig líka stutt
að sækja stórasannleikann.
Móðir Andrésar hefur líka
lengi verið viðloðandi Mogga,
Áslaug Ragnars, skáldsagn-
ahöfundurinn góðkunni. Og
það er ekki allt búið enn.
Steingrímur Sigurgeirsson
er enn einn ungliðinn úr Aðal-
strætinu sem kosinn var í
stjórn Heimdellinga - en að
auki eru ýmsir í henni sem
skrifað hafa í Moggann um
lengri eða skemmri tíma.
Þess skal að lokum getið að
nýi formaðurinn fékk viðtal við
sig í Morgunblaðið í gær þar
sem hann reifar helstu áhug-
amál sín á sviði stjórnmála.
Ekki kom fram hvort það
var Andrés eða Steingrímur
sem tók viðtalið - nema það
hafi verið Ólafur sjálfur? ■
Soldið skert
Á fimmtudagskvöldið fór af
stað nýi lausbeislaði frétta-
þátturinn hjá Stöð tvö og þykir
ágæt nýbreytni þótt fyrsti þátt-
urinn væri svolítið klaufa-
legur. Fyrirmyndin er auðvit-
að bandarísk, en þar heitir
vinsæll þáttur í einu sjónvarp-
anna 20.20, og hefst tuttugu
mínútur yfir átta. Það var ekki
hægt að herma eftir hér útaf
Sjónvarpinu, og tóku Stöðvar-
menn það til bragðs að skýra
sinn þátt 19.19 í staðinn og
hefja hann nítján mínútur yfir
sjö. Sem er ágætt, nema að í
ensku hefur tvöfalt 20
ákveðnatilvísun. íenskumæl-
ándi löndum er notuð sú að-
ferð við að mæla sjón manna
að láta þá greina stafi úr tutt-
ugu feta fjarlægð, og óskert
sjón og fullkomin er þess
vegna kölluð 20-20, „twenty-
twenty", sem síðan yfirfærist,
þannig að 20.20 þýöir líka
skarpskyqqni, skýrleiki. 19.19
hinsvegar...B
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23
Forval
Fjármálaráðuneytiö f.h. Fasteigna ríkissjóðs
hyggst reisa viðbyggingu við norðurenda húss-
ins Sölvhólsgötu 7 í Reykjavík.
Viðbyggingin verður tvær hæðir, hvor um 260 fm.
Áætlaður verktími við jarðvinnu og uppsteypu er
15. október 1987 til 6. mars 1988.
Verktakar, sem áhuga hafa, eru vinsamlga beðn-
ir að sækja forvaisgögn (umsóknareyðublað) til
Innkaupastofnunar ríkisins, Borgartúni 7,
Reykjavík og skila þangað útfylltu, sama dag,
mánudaginn 21. sept. 1987.
Útboðsgögn verða afhent mest 6 verktökum (lok-
að útboð) hinn 25. september 1987.
REYKJMJÍKURBORG
Acuc&a/i S&xúcn
Þroskaþjálfa eða annað uppeldislega menntað
starfsfólk óskast tið stuðnings börnum með sér-
þarfir á leikskóladeild í Fálkaborg.
Upplýsingargefa forstöðumenn og Málfríður Lor-
ange sálfræðingur á skrifstofu Dagvistar barna,
sími 27277.
Tilsjónarmenn
Félágsmálastofnun Kópavogs óskar eftir körlum
og konum til að veita börnum, unglingum og fjöl-
skyldum þeirra félagslegan stuðning. Um er að
ræða 4-8 stundir á viku að meðaltali.
Boðið verður uppá námskeið fyrir væntanlega
tilsjónarmenn. Umsóknarfrestur er til 1. október
n.k.
Nánari upplýsingar veita unglingafulltrúi og
deildarfulltrúi fjölskyldudeildar í síma 45700.
Félagsmálastofnun Kópavogs
Útboð
Ólafsvíkurvegur, Vegamót - Hofsstaðir
%'S/Æ _ Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan- V greint verk.
Lengd veaarkafla 2,5 km, fylling og burðarlag 41.000 m .
Verki skal lokið 25. júlí 1988. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkis- ins í Borgarnesi og Reykjavík (aðalgjaldkera)
frá og með 22.þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir 14:00 þann 5. október 1987.
Vegamálastjóri
VORUÞROUN
<1
ATAK
IÐNTÆKNISTOFNUNAR ISLANDS
Vöruþróunarátaki Iðntæknistofnunar íslands er ætlað að efla
nýsköpun í atvinnulífinu. Unnið verður að afmörkuðu verkefni og er
megináhersla lögð á að þátttakendur markaðsfæri afurð í verkefnislok.
Verkefnið er styrkt af Iðnaðarráðuneytinu og Iðnlánasjóði.
Kynningarfundur um verkefnið verður haldinn 22. september næstkomandi
kl. 15.00 hjá Iðntæknistofnun íslands, Keldnaholti.
Fyrirtækjum og einstaklingum sem óska eftir að gerast þátttakendur
í verkefninu er bent á að hafa samband við stjómanda þess, Karl Friðriksson,
ísíma (91) 687000.
Umsóknareyðublöð fást hjá Iðntæknistofnun íslands og öðrum aðilum
verkefnisins. Einnig munu þau liggja frammi á kynningarfundinum.
Umsóknarfrestur rennur út 15. október 1987.
íl Iðntæknistofnun fslands
Keldnaholti, 112 Reykjavík. Sími (91) 687000.
í verkefnisstjórn sitja fulltrúar
Félags íslenskra iðnrekenda,
Landssambands iðnaðarmanna,
Iðnlánasjóðs,
Alþýðusambands íslands og
Iðntæknistofnunar íslands.