Þjóðviljinn - 11.10.1987, Page 23
BRUCKNER
BLÍFUR
Jæja! Þá byrja ég að messa
yfirallaböllunum. ígamla
dagavoru brjálaðirbolsar,
kræfir kommar og seigir
sósíalistar. Nú eru baraaum-
ingjans allaballar. Það er hin
díalektíska sögulega fram-
vinda.
Þegar undirritaður tónlistar-
gagnrýnandi sté í vor út úr óræðri
þögninni, er hafði umlukt hann í
nokkur ár inn á blaðsíður Helgar-
póstsins til að krítisera, varð
fyrsta embættisverk hans að út-
skýra vin sinn Anton Bruckner.
Nú þegar gagnrýnandinn byrjar á
Þjóðviljanum eftir glæstan feril á
Helgarpóstinum, verður fyrsta
verk hans að endurmeta gamla
góða vin sinn hann Anton Bruc-
kner. Ef tónlistargagnrýnandi
Þjóðviljans væri hjátrúarfullur
krítiker og sannfærður um mikil-
vægi sitt í veröldinni, myndi hann
halda að þetta væru djúpar og
táknrænar vísbendingar frá æðri
máttarvöldum. Og tónlistargagn-
rýnandi Þjóðviljans útilokar ekki
að svo sé. Hann skipar þeim
möguleika í annan flokk líkinda.
En í fyrsta flokk líkinda setur
hann tilviljunarlögmálið sem er
merkis lögmál en af þess völdum
sprakk alheimurinn út, jörðin
varð til, lífið kviknaði, mannkyn-
ið fæddist og drottinn allsherjar,
og síðast en ekki síst undirritaður
tónlistargagnrýnandi sjálfur.
Tónlistargagnrýnandi Þjóð-
viljans þarf ekki að taka það fram
rétt einu sinni að hann hefur ekki
hundsvit á músík. Um tíma hafði
hann af því vægar áhyggjur.
Hann bar upp þá spurningu við
vísa menn, hvort það samrýmdist
þeim kúlturrenisans sem þjóðin
væri að endurfæðast til, að einn
kritiker sem ekkert hefur vit á
músík, skuli ekki hafa við að
dæma um músík og sé nánast rif-
inn með valdi í miðjum dómsorð-
um úr einu dómarasæti í annað til
að dæma. Og fái með engu móti
spomað við ofurvaldi örlaganna.
En hinir vísu menn, allir sem
einn, hafa fullvissað tónlistar-
gagnrýnanda Þjóðviljans um
það, að þetta skipti andskotans
engu máli. Nú á dögum séu þeir
alveg úti að aka sem viti alla
skapaða hluti um alla skapaða
hluti. En þeir séu inni í nútíman-
um er viti ekki neitt í sinn haus
um eitt eða neitt. Flón fljúgi upp
alla metorðastiga eins og ekkert
sé. Og það sé vonlaust að verða
stjama í fjölmiðlaheiminum
nema vera viðurkenndur hálfviti.
Tónlistargagnrýnandi Þjóðvilj-
ans sé því einmitt réttur maður á
réttum stað.
Og þá er að venda sér yfir í
alvöru lífsins: Anton Bruckner
og fyrstu tónleika Sinfóníunnar á
þessu starfsári. En í þeim skrifuð-
um orðum uppgötvar tónlistar-
gagnrýnandi Þjóðviljans sér til
mikillar undrunar að andríkið er
fokið út í veður og vind og rúm
blaðsins að auki. Gagnrýnin í dag
verður því að bíða þar til í næsta
blaði. En þangað til vill tónlistar-
gagnrýnandi Þjóðviljans lýsa því
yfir til bráðabirgða, að hann er
fullkomlega sammála öllu sem
Leifur Þórarinsson segir í sínu
blaði um málið, en algerlega ó-
sammála öllu sem Jón Asgeirsson
segir í sínu blaði um málið. Og
svo bíður hann bara spenntur
eftir að sjá hvað Sigurður Þór
Guðjónsson ætlar að segja um
málið í sínu blaði.
Að lokum vill tónlistargagn-
rýnandi Þjóðviljans hvetja alla
landsmenn til að gerast áskrif-
endur að blaðinu og slá þannig
tvær flugur í einu höggi: Komast
að raun um hvað í ósköpunum
tónlistargagnrýnandi Þjóðviljans
ætli eiginlega að segja um Bruc-
kner og Sinfóníuna - og stuðla að
framgangi sósíalismans í heimin-
um, fegurstu hugsjón mannkyns-
ins, sem hefur það framyfir allar
aðrar hugsjónir að geta aldrei
orðið að veruleika.
Slgurður Þór Guðjónsson
Útboð
S.V.R. og
Póstur & sími
S.V.R. og Póstur & sími óska hér meö eftir tilboð-
um í jarövinnu vegna nýbyggingar að Þöngla-
bakka 4, Reykjavík.
Helstu magntölur eru:
Uppgröftur 6.800 m3
Fylling 8.000 m3
Byggingargirðing 300 m
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu okkar,
Borgartúni 20, gegn 2.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á Verkfræðistofu Stefáns Ól-
afssonar h/f, Borgartúni 20, Reykjavík, þann 15.
október 1987 kl. 11.00.
\“lT VERKFRÆÐISTOFA
\ fy | ) STEFANS OLAFSSONAR HF. F.R.V
Y v x y CONSULTING ENGINEERS
BORGARTUNI 20 105 REYKJAVIK SlMI 29940 8. 29941
Hefur þú áhuga á
líflegu starfi?
Lögreglan í Reykjavík óskar eftir að ráða fólk til
tímabundinna lögregluþjónsstarfa.
Þetta er tilvalið tækifæri fyrir þá sem vilja kynnast
lögreglustarfinu og öllum þeim mannlegu sam-
skiptum sem það býður upp á.
Upplýsingar um störfin veitir starfsmannastjóri í
síma 10200 eða í lögreglustöðinni að Hverfisqötu
115.
Lögreglustjórinn í Reykjavík
Aðalfundur
Landverndar
verður haldinn að Flúðum í Hrunamannahreppi
dagana 7. og 8. nóvember 1987. Nánari upplýs-
ingar verða sendar aðildarfélögum í bréfi.
Kópavogur-
lausar stöður
Fóstrur - starfsfólk
Dagvistarheimilið Kópasteinn við Hábraut
Fóstra eða starfsmaður við uppeldisstarf óskast
til starfa. Um er að ræða 50% starf eftir hádegi.
Einnig vantar fóstru eða starfsmann með uppeld-
ismenntun til að annast sérstuðning. Um er að
ræða starf eftir hádegi. Upplýsingar veitir for-
stöðumaður í síma 41565.
Dagvistarheimilið Marbakka.
Fóstra eða starfsmaður með uppeldismenntun
óskast til að annast sérstuðning. Um er að ræða
starffyrirhádegi. Upplýsingarveitirforstöðumað-
ur í síma 641112.
Dagvistarheimilið Efstahjalla
Fóstra óskast til starfa. Upplýsingar veitir for-
stöðumaður í síma 46150.
Dagvistarheimilið Kópasel
Fóstra óskast til starfa. Opnunartími er frá kl.
7.30-15.00. Upplýsingar veitir forstöðumaður í
síma 84285.
Hafið samband við forstöðumenn og kynnið ykk-
ur aðstæður.
Dagvistarfulltrúi
Sunnudagur 11. október 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 23