Þjóðviljinn - 05.11.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
Föstudagur 6. nóvember 1987 247. tölublað 52. örgangur
Þjónusta
íþína þágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Námsmenn
4000 kr. í leiðréttingu
Stjórn LINsker úr umþað ídag hvort námsmennfá lán sín leiðrétt. Lánin langt
undir lágmarksframfœrslukostnaði. Nemendur fjölmenna á fundarstað
Útvegsbankinn
í endumýj-
un lífdaga
Útvegsbankinn gengur nú í
endurnýjun lífdaga. Bankanum
hefur verið fundið nýtt einkennn-
ismerki og hluthafarnir og banka-
stjórnin áforma ýmsar brcytingar
til hagræðingar á rekstri bank-
ans.
f stað tveggja bankastjóra áður
er nú aðeins einn. í stað aðstoð-
arbankastjóranna áður, hafa ver-
ið ráðnir tveir fulltrúar banka-
stjórnar, er ganga bankastjóra
næstir völdum af starfsliði bank-
ans.
Sérhvert útibú verður sjálfstæð
rekstrareining og aðalbankinn í
Austurstræti verður sérstakt úti-
bú. -rk.
w *
Astjórnarfundi Lánasjóðs Is-
lenskra námsmanna í dag fæst
úr því skorist hvort leiðrétting
verður gerð á þeim framfærslu-
vfsitölum sem lagðar hafa verið til
grundvallar útreikningum náms-
lána, en í stjórnartíð Sverris Her-
mannssonar menntamálaráð-
herra voru lánin skert um 15 % er
hann frysti vísitöluhækkun lán-
anna í sex mánuði. Þau eru því nú
undir reiknuðum framfærslu-
kostnaði og er mikil ólga meðal
námsmanna vegna þessa.
Á fundinum í dag munu full-
trúar námsmanna í stjórninni
leggja fram tillögu um íeiðrétt-
ingu, en framfærslumat Lána-
sjóðsins brýtur í bága við lög
sjóðsins þar sem kveðið er á um
að námslán eigi að mæta 100%
fjárþörf námsmanna. Miðað við
vísitöluna 1. september sl. er
áætluð framfærsluþörf náms-
manns sem býr í leiguhúsnæði
25.950 krónur, eða langt undir
lágmarkslaunum í landinu.
Leiðrétt yrði sú upphæð 29.903
krónur. I fréttatilkynningu frá
samstarfsnefnd námsmannasam-
takanna sem aðild eiga að LÍN,
er bent á það að sú upphæð væri
síður en svo ofrausn. Þá er með
nokkrum dæmum sýnt fram á það
að núgildandi framfærslumat sé
gjörsamlega óraunhæft, en í því
er t.d. reiknað með því að náms-
maður greiði 4 þúsund krónur í
húsaleigu á mánuði.
í fréttatilkynningu náms-
manna segir að fallist LÍN ekki á
réttlætiskröfu námsmanna muni
námsmenn svara slíkri aðför með
fullum þunga. Námsmenn í öllum
deildum Háskóla íslands munu
afhenda fulltrúum LÍN áskorun
við upphaf fundarins í dag, en
námsmenn hyggjast fjölmenna í
húsnæði Lánasjóðsins á meðan á
fundinum stendur. Hann hefst
klukkan 17.
-K.ÓI.
Fjárlagaumrœða
Bankaleyndin
afnumin
Jón Baldvin boðaði afnám
bankaleyndar verðifarið út í að
skattleggja eignatekjur
Bryndís Schram fylgdist stolt með bónda
gær. Mynd-E.ÓI.
sínum flytja hátt í þriggja tíma framsöguræðu fyrir fjárlagafrumvarpi sínu á þingi í
Verði farið út í almcnna skatt-
lagningu eignatekna að hætti
flestra grannþjóða okkar verður
ekki undan því vikist að koma á
upplýsingamiðlun frá bönkum og
öðrum fjármálastofnunum, svo
og öllum sem versla með hvers
kyns veðbréf og fasteignir, til
skattyfirvalda, sagði Jón Baldvin
Hannibalsson fjármálaráðherra
m.a. i tveggja og hálfs tíma langri
ræðu þegar hann fylgdi fjárlaga-
frumvarpi ríkisstjórnarinnar úr
hlaði á Alþingi í gær.
Jón Baldvin sagði að næstu
skref í endurskoðun laga um
tekjuskatt og eignaskatt væru
annarsvegar lagaákvæði um
eignatekjur einstaklinga og væri
þar átt við tekjur af vöxtum, af-
föllum og gengishagnaði af inni-
stæðum í bönkum og sambærj-
legum stofnunum, svo og af
veðbréfum, víxlum og sambæri-
legum kröfum. Þá tiltók Jón
Baldvin einnig arð af hlutab-
réfum.
„Endurskoðun á skattlagningu
eignatekna mun óhjákvæmilega
snerta mjög skattlagningu eigna,
skattlagningu fyrirtækja og skatt-
lagningu einstaklinga með rekst-
ur.“
Hinsvegar sagði Jón Baldvin
að ákvæði skattalaga um fyrir-
tæki væru í endurskoðun en um
þau giltu sömu meginsjónarmið
og um skattlagningu einstak-
linga, að fækka undanþágum og
sérreglum. _Sáf
Sjá bls. 2
Besti vinur Ijóðsins
Skáldsögur
á Borginni
Besti vinur Ijóðsins heldur
skáldakvöld á Hótel Borg í kvöld
klukkan 21 þar sem kynntar
verða nýjar og væntanlegar
skáldsögur.
Eftirtaldir höfundar Iesa úr
bókum sínum: Gyrðir Elíasson,
Sjón, Svava Jakobsdóttir, Nína
Björk Árnadóttir og Einar Kára-
son. Þá mun Elísabet Jökulsdótt-
ir lesa úr bók Álfrúnar
Gunnlaugsdóttur, Andrés Sigur-
vinsson les úr bók Vigdísar
Grímsdóttur og Hrafn Jökulsson
úr bókum þeirra Tómasar Dav-
íðssonar og Auðar Haralds.
Kynnir á skáldakvöldinu er Viðar
Eggertsson. hj/BVL
Virðing Alþingis
Beint frá hjartanu
Starfsfólk Hjartaverndar gagnrýnir þingmenn
„Starfsfólkinu hér hjá Hjarta-
vernd þótti kominn tími tii að láta
frá okkur heyra um að okkur
þyki þingmenn ekki tala nógu
virðulega í sölum Alþingis, sem
við álítum að sé aðeins til þess að
minnka virðingu fólks í þess
garð,” segir Nikulús Sigfússon
yfirlæknir Hjartaverndar í sam-
tali við Þjóðviljann.
Það hefur vakið mikla athygli
meðal landsmanna að starfsfólki
Hjartaverndar þótti ástæða til að
senda Þorvaldi Garðari Krist-
jánssyni forseta Sameinaðs Al-
þingis bréf þar sem starfsfólkið
kvartar yfir því við forsetann að
þingmenn tali á þann hátt og noti
til þess orð, sem grafi undan virð-
ingu þingsins í augum fólks.
Að sögn Nikulásar Sigfússonar
yfirlæknis var kveikjan að bréf-
inu umræður manna á meðal á
kaffistofu Hjartaverndar yfir
orðfæri og tungutakiþingmanna.
f umræðum um h úsnæðisfrum-
varp félagsmálaráðherra hefði
það komið fyrir í umræðunni hjá
ónefndum þingmanni að ráð-
herra gæti ekki „nauðgað”
ákveðnum þingflokki til fylgis við
sig og í umræðu á þingi um Bíldu-
dalsmál hefði orðið „mafía“
heyrst oftar en einu sinni.Fyrir
nokkrum árum varð það þing-
forseta að tilefni til að slá í bjöllu
sína, en ekkert gerðist álíka í um-
ræðunni nú.
„En það er ástæða til að taka
það fram að gefnu tilefni að
bréfið var ekki sent í nafni
Hjartaverndar og er samtöku-
num með öllu óviðkomandi.
Þetta er ábyrgð starfsfólksins og
engra annarra og er tilkomið
vegna umræðna manna á meðal
hér á kaffistofunni,” sagði Niku-
lás Sigfússon yfirlæknir. -grh
Fjárlagafrumvarpið
Iðnráðgjaf-
ar hættir
Ekki gert ráðfyrir
greiðslum úr ríkissjóði
vegna starfsemi
iðnráðgjafa úti á landi
I fjárlagafrumvarpi Jóns Bald-
vins Hannibalssonar er ekki
reiknað með neinum greiðslum
vegna iðnráðgjafa sem nú starfa i
flestum landshlutum samkvæmt
lögum frá 1981. í ár er reiknað
með að þátttaka ríkissjóðs í þess-
ari starfsemi nemi kr. 6.830.000.
Iðnráðgjafar hafa starfað í
flestum kjördæmum og þá í
tengslum við samtök sveitarfé-
laga. Hefur ríkissjóður greitt
upphæð, sem nernur dagvinnu-
launum þeirra, en sveitarfélög
eða iðnþróunarfélög á þeirra veg-
um allan annan kostnað af
starfseminni sem ekki fæst hjá
þeim sem þjónustu njóta. Þeir
hafa víða aðstoðað fyrirtæki við
að taka upp nýjungar og þróa
framleiðslu sína.
Samþykki alþingi fjárlögin
óbreytt að þessu leyti má telja
líklegt að starf iðnráðgjafa á
landsbyggðinni leggist af.
ÓP