Þjóðviljinn - 28.11.1987, Blaðsíða 10
ALÞÝÐUBANDALAGtÐ
Alþýðubandalag Selfoss
og nágrennis
Almennur félagsfundur
Alþýðubandalag Selfoss og nágrennis boðar til al-
menns félagsfundar laugardaginn 28. nóvember í
Hótel Selfossi (hliðarsal) kl. 13.30.
Ólafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubanda-
lagsins mætir á fundinn.
Félagar og stuðningsmenn á Suðurlandi vei-
komnir. - Stjórnln.
Alþýðubandalagið
uppsveitum Árnessýslu
Fullveldisfagnaður
Fullveldisfagnaður Alþýðubandalagsins í uppsveitum Árnessýslu verður
haldinn laugardaginn 28. nóvember í Hótel Geysi Haukadal, og hefst með
borðhaldi kl. 20.30.
Gestur fagnaðarins verður Ólafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðu-
bandalagsins.
Fjölmennumífagnaðinn. Stjórnin
Alþýðubandalagið Akureyri
Félagsfundur
verður haldinn í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, laugardaginn 28. nóvember
klukkan 14.
Sagt verður frá störfum og niðurstöðum 8. landsfundar Alþýðubandalags-
ins.
Allir félagar hvattir til að mæta. Stjórn ABA
Alþýðubandalagsfélag Skagafjarðar
Almennur félagsfundur
verður í Villa Nova næstkomandi mánudagskvöld,
30. nóvember, klukkan 20.30.
Dagskrá: Landsfundurinn, bæjarmálin og önnur
mál.
Ragnar Arnalds mætir á fundinn. Stjórnin
Ragnar
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Morgunkaffi
Heiðrún Sverrisdóttir verður með heitt á könnunni í Þinghól, Hamraborg 11,
laugardaginn 28. nóvember kl. 10-12 f.h. Allir velkomnir. — Stjórnin.
Alþýðubandalagið á Akureyri
Bæjarmálar áð
Fundur mánudaginn 30. nóvember í Lárusarhúsi kl. 20.30. Dagskrá: 1.
Breytingar á stjórnkerfi Akureyrarbæjar. 2. Stefnumótun í dagvistarmálum.
3. Dagskrá bæjarstjórnarfundar. 4. Ónnur mál. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið Akureyri
Öldrunarmál
Bæjarmálaráð heldur fund um öldrunarmál í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18,
miðvikudaginn 2. desember, klukkar 20.30.
Lagðar verða fram upplýsingar um þá þjónustu sem öldruðum stendur til
boða á Akureyri og í framhaldi af því verða settar fram tillögur um úrbætur.
Allir áhugamenn velkomnir. Bæjarmálaráð
Alþýðubandalagið Kópavogi
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur í bæjarmálaráði mánudaginn 30. nóvember kl. 20.30 í Þinghóli.
Dagskrá: 1) Yfirlit frá nefndum. 2) Ný vinnubrögð við fjárhagsáætlun.
3) Starfáætlun bæjarmálaráðs næstu mánuði. 4) Onnur mál.
Mikilvægt erað allir fulltrúarí bæjarmálaráði mæti. Stjórnin
Alþýðubandalagið fíeykjavík
Félagsfundur
ABR heldur félagsfund miðvikudaginn 2. desember að Hverfisgötu 105 kl
20.30.
Fundarefni: 1) Kosning 4 fulltrúa og 2ja varafulltrúa í miðstjórn AB. 2)
Jafnréttisbaráttan: Hvers vegna og fyrir hverja.
Stjórnin
Menningarnefnd AB
Fyrsti reglulegi fundur nefndarinnar verður haldinn fimmtudaginn 3. des-
ember kl. 17.
Alþýðubandalagið Siglufirði
Opið hús
hjá AB Suðurgötu 10 þriðjudaginn 1. des. milli klukkan 5 og 7.
Ragnar Arnalds og Ólafur Ragnar Grímsson mæta.
Stjórnin
ABL Norðurlandi vestra
Almennir fundir á Siglufirði og Sauðárkróki
Ólafur R. Grímsson og Ragnar Arnalds mæta á almennum umræðufund-
um í Villa Nova á Sauðárkróki n.k. mánudagskvöld 30. nóv. kl. 20.30 og í
Alþýðuhúsinu á Siglufirði n.k. þriðjudagskvöld 1. des. kl. 20.30.
Fundirnir eru öllum opnir.
Alþýðubandalagið
____________MINNING__________
Rögnvaldur Rögnvaldsson
Fœddur 21. okt. 1912 - Dáinn 15. nóv. 1987
Þó að flœði flest mín sker,
fjúkið nœði um hreysi.
Guð á hæðum gefðu mér
gleði og œðruleysi.
R.R.
Þessar ljóðlínur setti Rögn-
valdur saman er hann dvaldi á
sjúkrahúsi sem oftar hin síðari ár.
Rögnvaldur fæddist að Litlu-
Þverá í Miðfirði. Hann var sonur
Rögnvaldar Hjartarsonar Líndal
bónda að Hnausakoti og Mar-
grétar Björnsdóttur frá Fossi í
Hrútafirði. Foreldrar hans
bjuggu ekki saman. Fyrstu átta
æviárin dvaldi hann hjá föður sín-
um sem þá lést. Fór hann þá til
móður sinnar. Hennar naut ekki
lengi við því að tveim árum síðar
kveður hún son sinn hinsta sinni
með þeirri bæn að hann standi
alltaf með lítilmagnanum. Þess-
ari bæn var hann trúr.
Hann var róttækur í skoðunum
en hafði til að bera sveigjanleika
og hlýju að ógleymdri kímninni
er setti svip á allt hans umhverfi.
Eftir að foreldra hans naut ekki
lengur við dvaldist hann fyrst hjá
Bjarna móðurbróður sínum að
Mýrum í Hrútafirði en síðan var
hann að Bessastöðum í sömu
sveit.
Á unglingsárunum var hann
tvo vetur í Reykjaskóla í Hrúta-
firði. Á árunum 1934-’39 var
Rögnvaldur í byggingavinnu og
við sölumennsku hjá tryggingafé-
lagi í Reykjavík. Þá liggur leiðin
norður í Mývatnssveit og kynntist
hann þar eftirlifandi konu sinni
Hlín Stefánsdóttur frá Haganesi.
Þar bjuggu þau til 1950 er leiðin
lá til Akureyrar.
Dæturnar urðu þrjár. Margrét
fædd 26. maí ’40, þá dóttir er
fæddist andvana, þá Úlfhildur
fædd 1. sept. ’46. Barnabörnin
eru sex og ólst elsti sonur Mar-
grétar, Rögnvaldur Dofri að
hluta til upp hjá afa sfnum og
ömmu. Er Rögnvaldur varð 75
ára í október s.l. dvaldi hann hjá
Dofra og fjölskyldu hans í
Reykjavík. Bar hann sig svo vel
að þau uggði ekki hve stutt var í
lokaþáttinn.
Farið var í sund og sá gamli
klæddi sig í sitt fínasta púss og
skrapp í þinghúsið að heilsa upp á
vini sína. Hann lék við hvurn sinn
fingur.
Mér er oftast glatt í geði,
gleymi þvi sem miður fer.
Eigir þú nóg af innri gleði
eyðist skuggi dagsins hver.
R.R.
Þeir eiginleikar er Rögnvaldur
lýsir svo vel sjálfur voru ríkir í fari
hans, og leiddu til þess að fjöl-
mennt var oft í kring um hann.
Minnisstæð eru árin er hann var
„náðhússtjóri" þeirra Akur-
eyringa. Skólastrákar sátu þar
daga langa og tefldu og spiluðu.
Þeir ylja nú margir hin mýkri sæti
þjóðfélagsins. Utangarðsmenn
áttu þar einnig afdrep og vitum
við að Rögnvaldur ætlaði sér ekki
alltaf af f aðstoð sinni við þá. Hin
síðari árin var hann húsvörður í
Ráðhúsinu á Akureyri.
Hlíf og Rögnvaldur voru ólík,
en þau auðguðu hvort annað og
umhverfi sitt. Brennandi áhugi á
þjóðmálum og heimsmálum ein-
kenndi daglegt líf þeirra, nú þeg-
ar allar hugsjónir eru að þynnast
út í sinnuleysi fólks er lekur niður
fyrir framan „skjáinn" eftir
langan vinnudag. Ekki þannig
séð að sú kynslóð er þau til-
heyrðu hafi ekki unnið, heldur
það að þau létu ekki mata sig um-
hugsunarlaust. Það var andleg
veisla að sækja þau heim. Það var
farið með vísur, flutt tónlist og
gripin bók til að vitna í. Slíku
fólki fer fækkandi er svo gott á
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
með að miðla af lífsreynslu sinni.
Veit ég að Hlín heldur merkinu
uppi, þótt lífsförunauturinn hafi
flutt sig um set.
Það er stutt milli þeirra karla er
okkur hafa verið einna kærastir.
Þess vegna er draumur eins
barnabarna Rögnvaldar ylur í
nepjunni þar sem það sá föður
okkar Helga Stefánsson og
Rögnvald komna „heim“ í Hag-
anes.
Vonin hún er mannsins máttur
mœld við hugsjón hvers og þrár.
í sorginni er hún sigurþáttur
sárin grœðir, þerrar tár.
R.R.
Þannig kveður Rögnvaldur
okkur.
Blessuð sé minning hans.
Bryndís Helgadóttir
Hildur Helgadóttir
Frœndi, hvíld er með
þökkum þegin
Hún þreytir gangan
um mjóa veginn
En ólíkt þér
þykir mér
ef þeir fá ekki vísu
hinum megin
Rúna
Sóknarfélagar
Úthlutun úr
Vilborgarsjóði
Hin árlega úthlutun úr Vilborgarsjóði stendur frá
mánudegi 7. desember til 18. desember. Um-
sækjendur komi á skrifstofu félagsins í Skipholti
50a eða hafi samband í síma 681150 eða
681876.
Stjórn Starfsmannafélagsins Sóknar
Verkamannafélagið
Dagsbrún
heldurfélagsfund í Iðnó sunnudaginn
29.nóvember kl. 14.00
Dagskrá: Félagsmál, kjaramál.
Félagar fjölmennið.
Stjórn Dagsbrúnar
Útboð
's/v/Æ Y Efnisvinnsla á Suðurlandi 1988 Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Magn 74.000 m3. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Sel- fossi og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 30. nóvember nk. Skila skal tllboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 14. desember 1987.
Vegamálastjóri
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Sjúkraliðar:
Lausar stöður sjúkraliða frá og með áramótum, á
hinum ýmsu deildum sjúkrahússins.
Upplýsingar gefa Sonja Sveinsdóttir og Svava
Aradóttir hjúkrunarframkvæmdastjórar.
Viðtalstími kl. 13.00-14.00.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.