Þjóðviljinn - 06.12.1987, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 06.12.1987, Blaðsíða 4
Hugarflug úr viðjum vanans Pólitískar aðgerðir Skömmu fyrir jól 1968 urðu harðvítugustu átök þessara miss- era, og enn fór Fylkingin með að- alhlutverk. Birna Þórðardóttir: 21. desember hélt Æskulýðs- fylkingin og Félag róttœkra stúd- enta baráttufund í Tjarnarbúð gegn Víetnamstríðinu, hernum og NATO. Eftir fundinn átti að ganga að bandaríska sendi- ráðinu, yfir Austurvöll og í gegn- um miðbœinn þar sem búðir voru opnar vegna jólanna. A fundinn bárust okkur skilaboð frá lögregl- unni um að þessa leið mœtti ekki ganga. Við sinntum því engu, enda ekki ástœða til. Pá gerist það, að lögreglan byrjar að hand- taka fólk um leið og það kom út. Hún handtók Sigurð A. Magnús- son og fleiri alþekkta ofbeldis- sinna (!!), handjárnaði og skellti inn í Svörtu Maríu. Mér tókst að komast út á Austurvöll og lenti þar í einhverjum þrengslum og datt á svellinu. Til að koma í veg fyrir að ég yrði troðin undir, sparkaði ég frá mér. Á eftir var sagt að ég hefði sparkað ípunginn á lögregluþjóni og jafnvel skert tímgunargetu hans, en ég veit ekk- ert um það, ég var bara að verjast því að vera troðin undir. Ein- hvern veginn greiddist úr þvög- unni, og ég kalla „fasistasvín" á eftir einhverjum löggum. Þá veit ég ekki fyrr en einn lögginn snýr sér eldsnöggt við og grípur brot af fánastöngsem ég hafði verið með, og lemur mig í hausinn. Það sprakk fyrir og ég varð alblóðug. Þá var sjónvarpið komið á stað- inn, og einhverjir draga mig að sjónvarpsmönnum og kalla á þá að mynda mig. Bjarki Elíasson kom þá að og kallaði: „Nei, nei, nei, ekki mynda þetta. “ Þá brá ég hönd á kinn og löðrungaði Bjarka. Það voru svo saumuð 12 spor í hausinn á mér, eins og sjá má. Viðbrögðin við þessum átök- um voru mjög á tvo vegu. Morg- unblaðið og lögreglan fordæmdu mótmælendur hörðum orðum, en þeir gagnrýndu hins vegar hörku lögreglunnar og nutu þar samúðar margra. Menn áttu til dæmis erfitt með að trúa því að Sigurður A. Magnússon hefði haft í frammi þess háttar óspekt- ir, sem réttlættu barsmíðar og handtöku. Þegar Fylkingin boð- aði til fundar tveimur dögum síð- ar eða á Þorláksmessu, var mun fjölmennara en á fyrri fundinum. Tilefni fundarins var að hnykkja á stríðinu, í annað sinn ruddust þau inn í beina útsendingu hjá kanasjónvarpinu. Eitt sinn gerði Einn af leshringjum Rauðsokka í upphafi starfsins. F.v.: Gerður G. Óskarsdótt- ir, Helga Gunnarsdóttir, Eygló Eyjólfsdóttir, Helga Sigurjónsdóttir, Helga Ólafs- dóttir og Guðrún Ágústsdóttir. Óttar Felix í hópi „popplandsliðsins" haustið 1968. Fremri röð f.v.: Sigurjón Sighvatsson, Kristín Á. Ólafsdóttir, Óttar Felix Hauksson, Engilbert Jensen, Shady Owens, Vignir Bergmann og Rafn Sigurbjörnsson. Aftari röð f.v.: Karl Sighvatsson, ?, Arnar Sigurbjörnsson, Gunnar Jökull og Jónas R. Jónsson. Unglingablaðið „Toppkorn“ smalaði þessu liði saman fyrir forsíðuljósmynd. hópur Fylkingarfélaga mishepp- naða tilraun til að sprengja upp mannvirki Bandaríkjamanna í Hvalfirði, og fleiri slíkar herskáar smáaðgerðir mætti nefna. Vegna slíkra aðgerða var Fylkingin afar óvinsæl hjá meginþorra þjóðar- innar, og í hugum flestra var hún hópur harðsnúinna öfgamanna. Lögreglunni stóð greinilega stuggur af þessu fólki, og mörg- um fannst hún ganga mun harðar að því en nauðsyn krafði. Bjarki Elíasson neitar því og segir m.a. að aldrei hafi verið gefin skipun um að draga upp kylfur á þessum árum; þeim hafi eingöngu verið beitt, þegar einstökum lögreglu- mönnum fannst þrengt svo að sér, að þeir yrðu að berja frá sér, í sjálfsvörn. Bjarki: Lögreglumenn voru ekki hrœddir íþessum látum, enfannst þetta ógeðfellt. Innan um mót- mælendur voru alltaf einstak- lingar, sem hrœktu á okkur, brutu rúður, hentu belgjum með máln- ingu, börðu, spörkuðu eða reyndu á annan hátt að koma illu af stað. Þessir einstaklingar settu alltaf leiðindasvip á aðgerðirnar og við vorum farnir að þekkja þá. Hins vegar varð ég t.d. aldreifyrir neinu aðkasti í einkalífinu. Ég ber enga persónulega óvild til þessa fólks og ég held að það sé gagn- kvœmt. Sumir menn mœttu í allar mót- mœlaaðgerðir, hverju sem verið var að mótmœla. Þetta var ein- hver árátta. Þeir hefðu komið að mótmœla fœðingu Frelsarans, ef þeim hefði boðist það. Kvenna- hreyfingin í flestum kvennahreyfingum í nágrannalöndunum störfuðu konur mikið í vitundarvakningar- hópum (consciousness raising groups) fyrstu árin. í þessum hópum ræddu konur á opinskáan hátt um reynslu sína í karlasamfé- laginu. í gegnum þessa umræðu komust konur að því að upplifan- ir þeirra á sviði heimilis, kynlífs, vinnumarkaðar, skóla, pólitískra hreyfinga o.s.frv. og vanmáttar- kennd gagnvart karlmönnum og ýmsum stofnunum samfélagsins var ekki einstaklingsbundin, heldur reynsla sem heill þjóðfé- lagshópur átti sameiginlega. Þar með uppgötvuðu konur að einka- lífið var ekki einkamál hverrar og einnar heldur pólitískt vandamál. Þessi umræða fór líka fram í Rauðsokkahreyfingunni, en hún fór ekki eins mikið fram í sérstök- um skipulögðum vitundarvakn- ingarhópum og víðast hvar er- lendis. Muninum má kannski lýsa á þann hátt að erlendis voru kon- ur meira uppteknar af vitundar- vakningu inn á við á meðan kon- ur í Rauðsokkahreyfingunni beittu sér meira að vitundarvakn- ingu út á við. Hér á landi reyndist það aldrei mikilvægur hluti af starfinu að sitja í skipulögðum hópum og ræða á opinskáan og hreinskilinn hátt um tilfinningar og upplifanir heldur var meiri áhersla lögð á það að vekja al- menning til vitundar með ýmsum aðgerðum. Vilborg Harðardóttir segir að Rauðsokkahreyfingin sem slík hafi á fyrstu árunum ekki lagt neina sérstaka áherslu á að slíkir hópar væru settir á fót. Þeg- ar slíkir hópar hafi verið í gangi þá hafi það verið fyrir tiistilli nokkurra vinkvenna sem hafi tekið sig saman um að koma hópnum af stað. Þó hafi hreyfing- in skipulagt starf í svokölluðum nýliðahópum þar sem nýliðar fóru í gegnum ákveðið lesefni með „eldri“ rauðsokkum. Þeir hópar hafi vissulega unnið að vit- undarvakningarstarfi í gegnum umræður um lesefnið, en aðeins að takmörkuðu leyti. Vilborg Harðardóttir: Þessar umræður leiddu oft út í umræður um tilfinningalegar upplifanir, en okkur fannst mörg- um eftir á að við hefðum átt að leggja meiri rækt við þessa um- ræðu. Að við hefðum átt að vinna aðþvíað veita hverannarristuðn- ing með umræðu sem hefði farið fram í skipulögðum hópum frek- ar en á vinkvennagrundvellinum. Margar okkar áttu í miklum erfið- leikum, bæði í hjónabandi, ísam- skiptum okkar við börnin og ann- að. En gagnvarthverannarri urð- um við alltaf að bera okkur svo djöfulli vel. Ein ástæðan fyrir þessum augljósa mun á starfi Rauðsokka annars vegar og systrahreyfinga erlendis má e.t.v. að einhverju leyti rekja til þess að á íslandi er ekki sama hefð fyrir vitsmuna- legri umræðu um tilfinningar og upplifanir og víða erlendis. Starf- ið hefur því tilhneigingu til þess að verða skýrt afmarkað í fræðslustarf annars vegar og pól- itískar aðgerðir hins vegar. Vil- borg bendir á annað sem gæti skipt máli í þessu sambandi, sem er smæð íslenska samfélagsins. Hér á landi sé styttra á milli þrýstihópa og stjómvalda og því trúin á að aðgerðir geti skilað ár- angri inní kerfið meiri. í stærri samfélögum sé þetta ferli lengra og ógagnsærra og hvatningin til þess að steyta hnefann framan í kerfið því minni. Enda, segir Vil- borg, voru konur í þessum samfé- lögum bundnari við innri vitund- arvakningu og fræðistörf en kon- ur á íslandi. Rokk- kynslóðin Enn hefur enginn skrifað margflókna sögu rokksins á ís- landi, þótt sú saga sé einn besti lykillinn að sögu hvunndags- menningar síðustu þriggja ára- tuga. Fyrir þrjátíu árum spruttu upp leðurjakkaklæddir gæjar, sem klístruðu hárið með brilljantíni í kótilettu og píku. Þetta voru strákar um og innan við tvítugt, unnu margir verka- mannavinnu hér og þar og skruppu á vertíð. Þeir höfðu ekki farið neina sigurgöngu í gegnum skólakerfið og stóð heldur stugg- ur af tungutaki Snorra, Jónasar og Helga Hjörvar. Með rokkinu fengu þeir sitt eigið tungumál sem lyfti sjálfsvirðingunni um margar tommur. Þeir dingluðu sér mátulega kæruleysislega eins og Marlon Brando og James Dean gerðu í myndum þessara ára, smelltu fingrum og geifluðu sig í framan. Ef einhver kom of nálægt þeim, gátu þeir skellt fram gullvægum frösum eins og „Don’t you step on my blue suede shoes“ eða „Don’t crowd me“. Þeirra heimur var meðal annars kaffi- og mjólkurhristingsbarir, bíóin, sjoppurnar, rúnturinn, að óg- leymdum Vetrargarðinum suðrí Tívolí. Stelpur voru stundum í út- jaðri klíkunnar, ómissandi þegar sýna þurfti sig í dansi, og um þær snerust margar samræður og töff- araskapur, en þegar sú Eina rétta var fundin, hurfu gæjarnir af vett- vangi, og þeir sáust skjótast út úr litlum kjallaraíbúðum, veifandi til konu og barns, á leið í vinn- una. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 6. desember 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.