Þjóðviljinn - 12.01.1988, Side 3

Þjóðviljinn - 12.01.1988, Side 3
FRETTIR Njarðvík Vatnsból lagt af Njarðvíkingar hœtta vatnstöku úr einu vatnsbóla sinna vegna grunnvatnsmengunarinnar. Öryggisráðstöfun, segir Oddur Einarsson bæjarstjóri Mannslát Eiginmaður handtekinn Rannsóknarlögreglan krefst gœsluvarðhalds Tuttugu og sex ára gömul kona fannst látin í íbúð sinni við Klapp- arstíg í fyrrakvöld. Var hún með áverka á höfði og var eiginmaður hennar handtekinn á staðnum. Vegna ölvunar var frásögn hans óljós af því sem gerðist. Að sögn Rannsóknarlögreglu ríkisins í gær verður lögð fram krafa um gæsluvarðhald yfir manninum vegna rannsóknar málsins, en að öðru leyti varðist rannsóknarlögreglan allra frétta af gangi rannsóknarinnar. grh. - Það er á mörkunum að við getum verið án þessarar holu, en við eigum ónýtta borholu í aðal- vatnsbólinu og höfum gert ráð- stafanir til að auka dælingu þar til að bjarga okkur, segir Öddur Einursson bæjarstjóri i Njarðvík, en að kröfu heilbrigðiseftirlitsins hefur vatnstöku nú verið hætt úr vatnsbóli því sem hættast er við mengun eftir að mikið magn gas- olíu af olíugeymslusvæði hersins lak út í jarðveginn og mengaði grunnvatn. Að sögn Odds verður holunni lokað af öryggisástæðum meðan séð verður hversu víðtæk meng- unin er orðin, en sýni eru þarna tekin daglega, sem og í öðrum vatnsbólum bæjarins. Rannsóknarholur vegna grunnvatnsmengunarinnar verða boraðar einhvern næstu daga, og munu niðurstöður liggja fyrir fljótlega. Oddur kveðst ekki eiga von á öðru en að þá verði hægt að nýta holuna á ný, og halda því áfram meðan tryggt sé að vatnið sé óspillt. Bæjarstjórarnir í Njarðvík og Keflavík héldu fund með Steingrími Hermannssyni utan- ríkisráðherra síðdegis í gær og komu á framfæri sjónarmiðum bæjarstjórna sinna í þessu máli. HS Bergþór KE Leitaðán r Norðurlandaráð Norrænt tækniár Árið íár tileinkað tœkni á Norðurlöndum. Ýmsar ráðstefnur á döfinni. Fyrirtœki kynna starfsemi sína Markmið Norræns tækniárs eru að auka þekkingu al- mennings á tækni og skilning á mikilvægi tækniþróunar, og að efla innlenda og norræna sam- vinnu milli atvinnulífs og þeirra aðila sem starfa að tæknimálum, en Norðurlandaráð hefur ákveð- ið að tileinka árið 1988 tækni á Norðurlöndum. Nokkur samnorræn verkefni hafa þegar verið undirbúin af þessu tilefni, og unnið er að öðr- um; Norræn tækniverðlaun verða veitt á árinu, gagnabanki verður settur á stofn og ýmsar ráðstefnur eru á döfinni. Helstu rannsóknarstofnanir og ýmis önnur fyrirtæki munu standa fyrir opnu húsi einn sunnudagseftirmiðdag hvert og kynna starfsemi sína og tækni. Ríkisútvarpið ríður á vaðið, en þar verður opið hús á sunnudag- inn kemur. Meðal ráðstefna sem eru í bí- gerð á tækniári má nefna Konur og tækni, Áhrif tækni á samfélög manna í nútíð og framtíð, Tækni- þróun og sjálfvirkni í atvinnulíf- inu, og Tækni og umferðarör- yggí- Norrænt tækniár hér á landi hófst formlega í gær með sam- komu í Norræna húsinu, en nokkur félagasamtök hafa tekið að sér undirbúning framkvæmda. Þau eru Alþýðusambandið, Fé- lag íslenskra iðnrekenda, Há- skólinn, Iðnaðarráðuneytið, Iðn- tæknistofnun, Rannsóknaráð ríkisins, Tæknifræðingafélag ís- lands og Verkfræðingafélag ís- lands. HS Magnús Kjartansson og samverka- menn hans leika tæknivædda tónlist eins og vera ber við upphaf Norræns tækniárs, en það hófst formlega í gær með samkomu í Norræna húsinu. Mynd: E. Ól. Verkaskiptingin llla undirbúinnsandormur arangurs Leitin að mönnunum tveim sem saknað er af vélbátnum Bcrg- þóri KE 5, sem fékk á sig brotsjó og sökk átta sjómílum vestnorðvestur af Garðskaga síð- astliðinn föstudag, hefur enn eng- an árangur borið. Þrem skipverj- um tókst að komast í gúmmí- björgunarbát og var skömmu seinna bjargað um borð í Akurey KE. Mennirnir tveir, sem leitað er að, heita Magnús Geir Þórarins- son og Elvar Þór Jónsson. Magn- ús Geir er skipstjóri og eigandi Bergþórs. Hann er 50 ára, fædd- ur 20. september 1937, til heimi- lis að Óðinsvöllum 1 í Keflavík, kvæntur og á þrjú uppkomin börn. Elvar Þór matsveinn er 30 ára, fæddur 18. janúar 1957, til heimilis að Tunguvegi 10, í Ytri- Njarðvík. Hann er í sambúð og á tvö börn og eina fósturdóttur. Að sögn Sigfúsar Magnús- sonar, formanns björgunarsveit- arinnar Ægis í Garði, gengu fjöl- mennir flokkar björgunarsveitar- manna frá Suðurnesjum fjörur beggja megin Garðskaga yfir helgina, án þess að finna nokkuð. Ennfremur hefur flugvél Land- helgisgæslunnar TF-Syn leitað úr lofti og bátar siglt um svæðið án árangurs. Eftir hádegi í gær var leit haldið áfram og fjörur gengnar. Sigfús sagði í samtali við Þjóðviljann að björgunarsveitarmenn úr Garð- inum og Sandgerði myndu leita á hverjum degi út vikuna og fleiri bætast í hópinn um næstu helgi. grh. Vestfirðir Frumvarpið um verkaskiptingu ríkis ogsveitarfélaga er illa undirbúið og stjórnarandstaðan vísarþví heim tilföðurhúsa og leggur til að málið verði endurskoðað íheild ísamvinnu við sveitarstjórnir og þingflokka. Guðni Ágústsson tekur undirþað og segist ekki styðja frumvarpið Hofleg bjarsýni Fyrirliggjandi frumvarp er illa undirbúið og sú stefna, sem birtist i einstökum köflum þess, orkar mjög tvímælis. Minni hlutinn leggur því til að frum- varpinu verði vísað til ríkisstjórn- arinnar með það að markmiði að málið verði endurskoðað í heild í samvinnu við sveitarstjórnir og þingflokka.“ A þessum orðum hefst nefnd- arálit minni hluta félagsmála- nefndar neðri deildar um frum- varp um breytingar á verkaskipt- ingu ríkis og sveitarfélaga og undir þetta tóku allir stjórnar- andstöðuþingmenn sem tóku til máls í gær við aðra umræðu um frumvarpið og það sama gerði Guðni Ágústsson, þingmaður Framsóknarflokksins. „Ég hef miklar efasemdir um að við séum að ganga götuna til góðs með þessu frumvarpi," sagði Guðni og bætti því við að hann gæti ekki staðið að af- greiðslu á frumvarpinu einsog það lægi fyrir. Guðni gagnrýndi alla máls- meðferð einsog aðrir gagnrýn- endur frumvarpsins, sagði að það hefði verið leitað til alltof fárra til umsagnar um frumvarpið, t.d. hefðu sveitarstjórnarmenn ekki fengið málið til umsagnar. Það var Óli Þ. Guðbjartsson sem hóf umræðuna í gær og ræddi hann m.a. bréf frá Jóni G. Tóm- assyn/borgarritara til félagsmála- ráðherra, þar sem Jón kvartar undan því að í greinargerð með frumvarpinu sé gefið í skyn að hann hafi staðið að tillögu, sem hann hafði áður mótmælt, um að fjárveitinganefnd skipti greiðslum úr uppgjörsnefnd milli sveitarfélaga og félagasamtaka. Guðrún Helgadóttir sagði það með ólíkindum að sveitarstjórnir hefðu ekki fengið málið til um- sagnar, en það væri eftir öðru enda væri frumvarpið svo illa unnið að þar rækist hvað á annars horn og í sama streng tóku þau Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir og Stefán Valgeirsson, sem sagði að hér væri á ferðinni illa undirbúinn bandormur sem ekki hefði verið fjallað nógu vel um úti í þjóðfé- laginu og að þeir sem hefðu fjall- að um það hefðu flestir mótmælt frumvarpinu. Alexander Stefánsson formað- ur félagsmálanefndar neðri deildar átti síðasta orðið í gær. Gagnrýndi hann það að hvorki félagsmálaráðherra né forsætis- ráðherra, sem bæði hefðu mælt fyrir frumvarpinu, hefðu verið viðstödd umræðuna í gær. Þá boðaði Alexander að frumvarpið yrði aftur tekið til umfjöllunar í félagsmálanefnd á milli annarrar og þriðju umræðu. Verkaskiptingin er eitt þeirra frumvarpa sem hafa verið á for- gangslista ríkisstjórnarinnar og stefnt er að því að ljúka af í þess- ari viku, áður en þingheimur tekur sér síðbúið jólafrí. Efast nú flestir um að það nái fram að ganga á svo skömmum tíma því þegar fundi var slitið í gær var enn ólokið annarri umræðu og þegar þeirri þriðju lýkur á frumvarpið eftir að fara í gegnum þrjár um- ræður í efri deild. -Sáf Vestfirðingar svartsýnni á gang samningsviðrœðna Ég er hættur að vera mjög bjartsýnn og er það nú aðeins í hófí, sagði Pétur Sigurðsson for- maður Alþýðusambands Vestf- jarða um gang samningavið- ræðna fyrir vestan eftir síðasta fund sambandsins og samtaka vinnuveitenda, en Pétur hefur að undanförnu lýst yfír því að tónn- inn í viðræðunum gæfí tilefni til bjartsýni. Pétur sagði að verkalýðsfé- lögin hefðu enn ekki lagt fram neinar beinar launakröfur heldur hefðu menn mest verið að velta fyrir sér þeim leiðum sem hægt væri að fara án þess að „allt fari á annan endann“. -K.ÓI. Þriöjudagur 12. janúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.