Þjóðviljinn - 13.01.1988, Side 2
Guöbjörn Arnórsson
ættfræðingur:
Ég held að ísland vinni. Er ekki
sjálfsagt að trúa því? En gaman-
laust: Eg er viss um að strákarnir
standa sig vel.
Steinar Ómarsson
nemi:
Ég spái því að íslendingar verði
ofarlega í röðinni.
Kristján Kristjánsson
verslunarmaður:
Liðið kemur til með að standa sig
vel þótt andstæðingarnir séu nú
engir aukvisar. Ég yrði ósáttur við
önnur úrslit en góð.
Sigurður Baldursson
nemi:
Uss, við hljótum að vinna. Það
kemur bara ekkert annað til
mála.
-SPURNINGIN—
Hverju spáir þú um ár-
angur handboltaliðs
okkar í heimsmeistara-
keppninni í Svíþjóð?
Leifur Bragason
tamningamaður:
Ég spái okkar mönnum vel-
gengni. Erum við ekki í riðli með
Dönum, Austur-Þjóöverjum og
Júgóslövum? Ég held við vinnum
Dani og Þjóðverja en töpum fyrir
Júgóslövum.
FRÉTTIR
Matarskattur
Kaupmenn kvarta sáran
Sölulaun ísmásölu skert á landbúnaðarafurðum. Mœtt með aukinni
álagningu á aðrar matvörur
etta er óþolandi ástand og get-
ur haft alvarlegar afleiðingar,
einkum fyrir hverfaverslunina og
verslunina úti á landi, segja for-
svarsmenn verslunardeildar
Sambandsins og Kaupmannas-
amtakanna sem hafa harðlega
mótmælt þeirri ákvörðun verð-
lagsráðs að skerða sölulaun smás-
öluversiunarinnar á landbúnað-
arafurðum við gildistöku matar-
skattsins.
Með þessum niðurskurði sölu-
launa hafa stjórnvöld látið versl-
unina taka þátt í niðurgreiðslum
á þeim landbúnaðarvörum sem
ekki hafa hækkað vegna matar-
skattsins. Þannig hafa sölulaun
kaupmanna lækkað um 0,87 aura
fyrir hvern seldan mjólkurlítra,
um 59 aura fyrir undanrennulít-
rann, 1,53 kr. fyrir hvert kg. af
skyri, 5,70 kr. fyrir hvert kíló af 1.
flokks smjöri og 5.96 kr. fyrir
hvert kg af dilkakjöti í heilum
skrokkum.
Kaupmenn eru reiðir vegna
þessarar ákvörðunar verð-
lagsráðs og segja að verið sé að
brjóta verðlagslögin, þar sem
verslanir verði nú að mæta þess-
ari skerðingu með aukinni álagn-
ingu á aðrar vörur.
Meðalsöluálagning í matvöru-
verslunum er í dag um 17% en
álagningin á áðurnefndum land-
búnaðarvörum er nú fastákveðin
um 10% af verðlagsráði og gildir
sú ákvörðun til 1. mars n.k.
-Jg-
Það var fátt um manninn í áfengiskringlunni í hádeginu í gær. Einungis blaðamaður Þjóðviljans að kanna verðbreytingar.
Mynd-Sig.
Áfengi og tóbak
Enn ein
hækkun
í Ríkinu
Yfir 10% hækkun á
léttum vínum. Minna
—á sterkum
Áfengi og tóbak hækkaði í
verði í gær um 5.7% að meðal-
tali. Hækkunin er mismunandi á
vínum, þar sem léttu vínin hækka
mun meira en þau sterku.
Að sögn Höskuldar Jónssonar
forstjóra ÁTVR stafar hækkunin
bæði af hækkun innkaupsverðs á
léttum vínum og óhagstæðri
gengisþróun og einnig þeirri
ákvörðun stjórnvalda að auka
skil ÁTVR í ríkissjóð um þriðj-
ung frá því í fyrra, eða uppí 4,3
miljarða.
Léttu vínin hækkuðu um 10-
12% en sterk vín um 4,6% að
jafnaði. Þó er hækkun á vodka
nokkru minni. Hækkun á tóbaki
er á svipuðum nótum en sígar-
ettupakki kostar nú 136 kr. í stað
130 áður.
Straumsvík
r
Góðæri í Alverinu
Árið 1987skilarfyrirtœkinu hagnaði. Metframleiðsla ífyrra eða
84,579 tonn. Verðmæti 5,2 miljarðar króna. Útflutningurinn nam
89,166 tonnum
Afkoma Álversins í Straumsvík
var mun betri á síðasta ári en
oft áður og er búist við að fyrir-
tækið skili hagnaði eftir skatta og
afskriftir.
Heildarframleiðslan á árinu
1987 varð 84,579 tonn af áli og er
það mesta framleiðsla á einu ári í
sögu íslenska álfélagsins. Seld
voru 86,608 tonn af áli að verð-
mæti 5,2 miljarðar króna. Út-
flutningurinn nam 89,166 tonn-
um. Sala og útflutningur umfram
framleiðslu stafaði af birgða-
lækkun og fyrirframsölu.
f frétt frá Álverinu segir að á
árinu 1986 hafi álverð verið lágt
og á síðasta ársfjórðungi ársins,
samkvæmt skráningu London
Metal Exchange fyrir staðgreitt
áltonn, var það 800 sterlings-
pund. (GBP). En á síðasta ári fór
álverð hægt og sígandi uppávið
frá því að vera að meðaltali 825
GBP á fyrsta ársfjórðungi síðasta
árs uppí 1070 GBP á þriðja árs-
fjórðungi ársins. Hæst varð ál-
verðið í október 1987 en þá var
meðalverðið 1180 GBP. Fyrstu
dagana í janúar 1988 vr meðal-
verðið á áli á milli 1070 og 1080
sterlingspund fyrir tonnið.
grh
Loðna
Bræla á miðum
Nætur rifnuðu og
sprungu vegna
erfiðra aðstœðna
Sex bátar voru búnir að melda
sig í gær með um 2500 lesta loðnu-
afla. Loðnuna fengu skipin 30-40
sjómflur út af Langanesi. Loðnan
hefur færst mun nær landi en
áður var, en þó eru um 12-15 tíma
sigiing til dæmis til Seyðisfjarðar.
Að sögn Ástráðar Ingvars-
sonar hjá loðnunefnd var bræla á
miðunum í gær og haugasjór.
Lentu skipin því í töluverðum
erfiðleikum með að innbyrða
aflann og var mikið um að loðnu-
næturnar rifnuðu og spryngju í
látunum. _ grj,
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvlkudagur 13. janúar 1988