Þjóðviljinn - 13.01.1988, Side 15
ÍÞRÓTTIR
Karfa
Njarðvíkingar unnu
Valur útaf með aðeins 2 villur
Njarðvíkingum tókst að
tryggja sér sigur á lokamínútum
yfir Keflvikingum í Keflavík í
gærkveldi. Var troðfullt hús eins
og oftast þegar þessi lið eiga í hlut.
Strax í byrjun komust Njarð-
víkingar yfir og virtust ætla að
halda góðri forystu. Náðu
Keflvíkingar að jafna, 23-23 og
komust yfir í eina skiptið í
Lokatölur: Njarövík-Keflavík 88-83 (45-
43)
Stlg Keflavíkur: Guðjón Skúlason 31,
Jón Kr. Gíslason 16, Magnús Guöfinnson
10, Hreinn Þorkelsson 8, Siguröur Ingi-
mundarsson 7, Ólafur Gottskálksson 7,
Axel Nikulásson 7 og Falur Haröarson 2.
Stlg Njarðvlkur: Valur Ingimundarson
37, IsakTómasson 13, Helgi Rafnsson 12,
Teitur Örlygsson 11, Sturla örlygsson 9 og
Hreiðar Hreiöarsson 6.
Dómarar: Ómar Scheving og Jóhann
Dagur Björnsson stóöu sig vel.
Maður leiksins: Valur Ingimundarson.
Áhorfendur: 804
leiknum 23-25. En með sterkri
vörn og yfirveguðum leik tókst
Njarðvíkingum að komast yfir
aftur og héldu yfir í leikhléi 45-
43.
í síðari hálfleik j uku svo Nj arð-
víkingar forskotið og var mesti
munur 81-68. Tóku þá
Keflvíkingar að saxa á og náðu að
minnka muninn í 83-81 þegar
nokkrar mínútur voru eftir af
leiknum. Var þá kominn tals-
verður hiti í leikinn og menn farn-
ir að stimpast á. Njarðvíkingar
skoruðu þá 2 stig, Keflvíkingar
svöruðu fyrir sig en allt kom fyrir
ekki. Njarðvíkingar náðu að
skora 3 stig og þar með var sigur
þeirra staðreynd, 88-83.
Það vakti athygli að Valur Ingi-
mundarson var rekinn útaf með
tvær tæknivillur en það ku vera
nýjar reglur því í fyrra þurfti 3 til
að vera vikið af velli. Var Valur
ekki alveg sáttur við þetta.
Knattspyrna
V-Þýskaland og Italía
saman í riðli
Liðin sem léku til úrslita í
Heimsmeistarakeppninni á Spáni
1982, V-Þjóðverjar og ítalir,
lentu í sama riðli þegar dregið var
í úrslitariðla Evrópukeppninnar í
gær.
8 ára gamall dró
Athöfnin fór fram í Diisseldorf
í V-Þýskalandi. Það var 8 ára
gamall drengur Cristian Stilike,
sonur Ule Stilike, sem dró liðin
út. Franz Beckenbauer, þjálfari
v-þýska liðsins, virtist brugðið
fyrst eftir að riðlarnir lágu fyrir.
„Okkar riðill er e.t.v. erfið-
ari,“ sagði Beckenbauer. „En við
verðum að taka því. Við viljum
leika við vel þekkt lið, þess vegna
getum við ekki verið annað en
ánægðir.“
ítalir sigruðu V-Þjóðverja 3-1 í
úrslitaleik Heimsmeistarakeppn-
innar 1982. Og í leik sem háður
var á Ítalíu í apríl gerðu liðin
markalaust jafntefli.
Þegar eftir að ljóst var hverjir
léku saman í riðlunum var farið
að veðja um sigurvegara. V-
Þjóðverjar voru taldir sigur-
stranglegastir, þá ítalir, Sovét-
menn og Englendingar. Becken-
bauer var ekki sammála veð-
möngurunum.
„Hefndargjöf"
„Ég tel ekki að við séum sigur-
stranglegastir, við eigum jafna
möguleika og hin liðin. Það að
við leikum í okkar heimalandi
skiptir engu máli,“ sagði Becken-
bauer. „Við erum með ungt lið og
það verður nógu erfitt fyrir þá að
þurfa að spila á móti svona þekkt-
um og sterkum liðum. Það er
hálfgerð hefndargjöf að við þurf-
um að spila við Italíu fyrst. Þeir
eru með mjög sterkt lið og það
væri mjög slæmt að tapa í fyrsta
leiknum.
Danski þjálfarinn, Sepp Piont-
ek var mjög vonsvikinn að lenda
Guðmundur Guðmundsson átti góðan leik og skoraði þrjú mörk.
með Spánverjum í riðli. Það voru
einmitt þeir sem slógu Dani út úr
Evrópukeppninni 1984 og
Heimsmeistarakeppninni 1986.
„Við hljótum að hafa þá núna,“
sagði Piontek. „Þessi keppni
verður örugglega mjög spenn-
andi. Hver leikur verður úrslita-
leikur.“
Hætta á ólátum
Enski landsliðsþjálfarinn
Bobby Robson sagði að fyrirhug-
aður vináttuleikur Englendinga
og Hollendinga yrði leikinn þrátt
fyrir að liðin hefðu dregist saman
í riðil. Sá leikur mun örugglega
verða einn sá umsvifamesti á
sviði öryggisgæslu. Bæði liðin
hafa haft á sér það orð að eiga
óróasama áhangendur og má
fastlega gera ráð fyrir að dragi til
tíðinda þegar þau mætast.
Stjórnendur keppninnar hafa
lýst því yfir að ekkert verði til
sparað svo að keppnin geti farið
friðsamlega fram. Þeir hafa þó
ekki gefið upp neinar nánari upp-
lýsingar varðandi gæslu meðan á
keppninni stendur.
Alls verða leiknir 15 leikir í úr-
slitakeppninni. Þeir munu allir
fara fram í 8 borgum í V-
Þýskalandi. Úrslitakeppnin fer
fram í júní.
í 1. riðli leika V-Þjóðveriar,
ítalir, Danir og Spánverjar. I 2.
riðli leika Englendingar, írar,
Hollendingar og Sovétmenn.
Tvö efstu liðin í hvorum riðli
komast áfram í undanúrslit. -ih
Heimsbikarkeppnin í Svíþjóð
Afdrifankar lokamínútur
Guðmundur skoraði þrjú mörk og fiskaði þrjú víti
Það eru enn síðustu mínúturn-
ar sem fara á annan veg en vonast
er eftir hjá íslenska landsliðinu í
handknattleik, þótt þeir næðu
næstum upp fjögurra marka for-
skoti á Austur-Þjóðverja tókst
þeim þó að misnota færi á síðustu
sekúndu og mótherjarnir bættu
við marki.
Aðeins 12 mörk
í fyrri hálfleik
Leikurinn byrjaði af hörku og
voru varnir beggja liðanna vel
lokaðar. Austur-Þjóðverjar gátu
samt potað inn 3 mörkum á 10
mínútum án þess að íslendingar
gætu svarað fyrir sig. Tókst
Guðmundi Guðmundssyni að
skora á 12. mínútu og náði
landinnaðjafnaá23. mínútu 4-4.
Var síðan aftur jafnt 5-5 á tuttug-
ustu mínútu en Þjóðverjarnir
sigu yfir og var staðan í leikhléi
7-5 þeim í vil.
Héldu haus
í síðari hálfleik héldu Austur-
Þjóðverjar forskotinu og voru 2
til 4 mörkum yfir þar til á 20.
mínútu, þá komust þeir 5 mörk
yfir 15-10. Á því tímabili varði
þýski markvörðurinn, Wieland
Schmidt, mjög vel auk þess að
verja víti frá Sigurði Gunn-
arssyni. En þá fóru íslendingar
að taka við sér og komust í 15-13
en Þjóðverjar bættu við marki 16-
13. Enn fiskaði Guðmundur víti
en í þetta skipti varði markvörð-
urinn hjá Alfreð Gíslasyni og
skoruðu Þjóðverjar næsta mark
þegar þrjár mínútur voru eftir,
17-13.
Valdimar tók syrpu
En þá skoraði Kristján Arason
og Valdimar tók góða syrpu,
gerði tvö mörk á skömmum tíma
þegar aðeins rúm mínúta var I
eftir. Á síðustu sekúndum kom-
ust íslendingar síðan í sókn og
skutu en hinn stórkostlegi mark-
maður Schmidt varði, Austur-
Þjóðverjar komust í sókn og
skoruðu lokamarkið þegar 5 sek-
úndur voru eftir, 18-16.
í kvöld
Næstu mótherjar fslendinga [
eru Júgóslavar og er leikurinn í
kvöld. Rás tvö verður með beina
lýsingu og hefst hún klukkan sex.
Það verður án efa mjög erfiður
leikur þótt talið sé að Austur-
Þjóðverjar séu með sterkara lið.
Þess má geta að einn besti leik-
maður Þjóðverja var ekki með
gegn íslendingum.
Leikirnir í gærkvöldi
A-riðill:
Svíþjóð-Spánn............19-16
Ungverjaland-V-Þýskaland
B-riðill: 21-23
Júgóslavía-Danmörk.......21-19
Ísland-Austur-Þýskaland 16-18
Mörk Islands: Guðmundur Guð-
mundsson 3, Kristján Arason 3, Vald-
imar Grímsson 3, Alfreð Gíslason
2(víti), Þorgils Óttar Mathiesen 2, Atli
Hilmarsson 1, Karl Þráinsson 1 og
Sigurður Gunnarsson 1.
Fiskuð vítl: Guðmundur Guð-
mundsson 3 og Valdimar Grímsson
1.
Brottrekstur: Geir Sveinsson 2
mín. og Atli Hilmarsson 2.
Misnotuð víti: Alfreð Gíslasson 1,
Kristján Arason 1 og Sigurður Gunn-
arsson 1.
Getraunir
Enginn með 12 rátta
Frjálsar
Fimm frjálsíþrótta-
menn til Glasgow
í síðustu leikviku getrauna
kom engin röð fram með 12 rétta.
Má því búast við tvöföldum
sprengipotti á laugardaginn.
5 raðir komu fram með 11 rétta
og gaf hver röð 47.961 kr. Á
laugardaginn verða 2% af
heildarsölu getrauna á tímabilinu
lögð við pottinn. Það er því ljóst
að rúmlega 1.2 miljónir leggjast
við vinningspott 20. leikviku.
Leikur Liverpool og Arsenal
verður sýndur beint í Ríkissjón-
varpinu og verður spennandi að
sjá hvort Liverpool tapar sínum
fyrsta leik á tímabilinu í beinni
útsendingu til íslands.
England
Liverpool
vann
Stoke 1-0
Sjá nánar á morgun.
Fimm frjálsíþróttamenn halda
til Glasgow á fimmtudag til að
taka þátt í Opna skoska meistara-
mótinu í frjálsum íþróttum
innanhúss.
Það eru þau Þórdís Gísladóttir
HSK, Gunnlaugur Grettisson
ÍR, Soffía Gestsdóttir HSK, Sús-
anna Helgadóttir FH og Jóhann
Jóhannsson ÍR sem skipa ís-
lensku sveitina.
Að sögn Hafsteins Óskars-
sonar fararstjóra er Gunnlaugur
líklegastur til afreka á þessu
móti. Hann er nú í mjög góðu
formi, setti m.a. íslandsmet í hás-
tökki innanhúss um daginn er
hann sveif yfir 2.12 metra.
Þórdís Gísladóttir, hástökkv-
ari, undirbýr sig nú af krafti fyrir
ólympíuleikana í Seul. Hún er þó
ekki í mikilli stökkþjálfun heldur
hafa æfingar hennar miðast við
grunnþjálfun.
Eftir skoska mótið munu
Gunnlaugur og Þórdís halda til
Bretlands þar sem þau taka þátt í
samskonar móti.
-ih
Miðvikudagur 13. janúar 1988 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 15
1X2... 1X2... 1X2... 1X2... 1X2...
_ _ .. ^ a :c> -2,
20. Vlka
Liverpool-Arsenal...................................................1 11111111
Luton-Derby.........................................................1 11111111
Norwich-Everton.....................................x 2 2 x 2 x 2 x 2
Portsmouth-Oxford...................................1 x 1 1 1 1 1 1 x
Q.P.R.-WestHam ...................................1 112 111x1
Sheff.Wed.-Chelsea..................................x x 1 1 1 x 1 1 x
Tottenham-Coventry..................................................1 11111111
Wimbledon-Watford..........................................1 11x11112
Aston Villa-lpswich.....................................1 2 12 12 111
Blackburn-Hull.............................................2 1111x2x1
Plymouth-Man.City...................................2 2 2 2 x 1 x 1 2
Swindon-Bradford.........................................1 1 1 1x1x21