Þjóðviljinn - 15.01.1988, Page 1

Þjóðviljinn - 15.01.1988, Page 1
Föstudagur 15. janúar 1988 10. tölublað 53. örgangur Hvalveiðiráðstefnan Þingmönnum úthýsl Sjávarútvegsráðherra meinar Guðrúnu Helgadóttur að sitja ráðstefnu hvalveiðiþjóða sem áheyrnarfulltrúi. Neitar einnig að gefa skriflegtsvar. Guðrún: Alþingismönnum meinað að sitja ráðstefnu um málsem Alþingi hefur ályktað um. Utanríkismálanefnd neitar boði um þátttöku. Blaðamönnum meinaður aðgangur Guðrúnu Helgadóttur, þing- manni Alþýðubandalagsins í Reykjavík, hefur verið meinuð þátttaka sem áheyrnarfulltrúi á ráðstefnu hvalveiðiþjóða, sem haldin verður í Reykjavík að frumkvæði Halldórs Ásgríms- sonar sjávarútvegsráðherra, dag- ana 21. og 22. janúar. Guðrún sagðist hafa óskað eftir því hjá sjávarútvsegsráðu- neytinu að fá að sitja ráðstefnuna sem áheyrnarfulltrúi. Hún fékk það svar að það gæti hún ekki Landsbankinn Stangast á við bankalög „Ég mótmæli þessum vinnu- brögðum með því að neita að taka þátt í þeirri formafgreiðslu sem hér fer fram, segir í bókun Lúð- víks Jósefssonar í bankaráði Landsbankans í gær, er Sverrir Hermannsson var ráðinn banka- stjóri frá og með 16. maí nk. að telja að tillögu beggja fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og fuiltrúa Framsóknar. Eyjólfur K. Sigur- jónsson, fulltrúi Alþýðuflokksins neitaði einnig að taka þátt í at- kvæðagreiðslu og mótmælti vinnubrögðunum. „Þessa ráðningu hefur borið að með heldur óskemmtilegum hætti fremur en óeðlilegum," sagði Sverrir Hermannsson. „Meðan bankar eru í ríkiseign held ég að framkvæmdavaldið ætti ekki að framlengja vald sitt til einhverra bankaráða til að ráða fram úr þessu. Það ætti að taka þennan kaleik, sem veldur svo miklu iðraþrautum, ,frá bankaráðum.“ í samþykkt stjórnar Sambands ísl. bankamanna í gær segir m.a. að eðlilegt sé að starfsmenn bankanna sitji að öðru jöfnu fyrir við ráðningar í stöður innan bankastofnana og skorað er „á bankaráðsmenn að fara eftir sannfæringu sinni við val banka- stjóra, en láta ekki utanaðkom- andi pólitískan þrýsting ráða ákvörðunum sínum.“ -rk Sjá bókun Lúðvíks á bls. 3 Heimsbikarkeppnin Sigur íslendingar sigruðu Dani í gær með 24 mörkum gegn 22. Hefði markamunurinn verið 3 mörk í stað tveggja hefði ísland komist í úrslit. Þeir leika um þriðja cða fjórða sæti. Sjá nánar á íþróttasíðu. fengið en hinsvegar væri henni heimilt að mæta við setningu ráð- stefnunnar og hlusta á framsögu- erindi frá því klukkan 9 um morg- uninn til hádegis. Sagðist Guðrún þá hafa farið fram á að þessi skilaboð yrðu send henni skrifleg, en því hefði ráðherra neitað. Ekki er kunnugt um að aðrir þingmenn hafi óskað eftir að fá að sitja ráðstefnuna en utanríkis- málanefnd Alþingis var boðin þátttaka. Nefndin hafnaði því hinsvegar, taldi ekki ástæðu til að bendla Alþingi við þessa ráð- stefnu. Sagði Guðrún að ýmsir þing- menn væru mjög óánægðir með hvernig að þessu væri staðið og hefðu fulltrúar stjórnarandstöð- unnar í utanríkismálanefnd borið fram mótmæli við þessa ráð- stefnu þegar hún var á dagskrá nefndarinnar fyrir jól. „Ýmsir óttast að með þessu sé verið að gera þetta vandræðamál enn verra og það er furðulegt að menn skuli hafa svo vonda sam- visku í þessu máli að það verði að halda leynilega ráðstefnu. Ráð- stefna þessi virðist vera á vegum eins ráðherra og er ekki ætlast til þess að alþingismenn þjóðarinn-i ar fái að sitja hana, jafnvel þótt á I ráðstefnunni verði fjallað um mál sem Alþingi hefur þegar ályktað um.“ Það er ekki bara þingmönnum sem verður úthýst frá ráðstefn- unni því blaðamönnum verður einnig meinaður aðgangur. -Sáf Mikligarður Kapprætt um matarskattinn - Ég hef boðið þeim Jóni Bald- vin fjármálaráðherra og Þor- steini Pálssyni forsætisráðherra til umræðufundar um matar- skattinn og vöruhækkanir, í Miklagarði kl. 16 á á morgun, föstudag. Alþingi hefur lokið störfum í bili og því ættu ráðherr- arnir að hafa tíma til að ræða þessi mál og svara fyrirspurnum almennings sem verður að gera sín matarinnkaup í Miklagarði, sagði Ólafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubandalagsins í samtali við Þjóðviljann í gær. - Mér fannst rétt að gefa Þor- steini annað tækifæri til að ræða þessi mál og einnig er rétt að fjár- málaráðherrann taki þátt í þess- ari umræðu. Verslunarstjóri Miklagarðs tók vel í þá beiðni að halda þennan umræðufund í versluninni og viðskiptavinum verður gefinn kostur á að bera fram fyrirspurnir, sagði Ólafur Ragnar. -Ig. Tttlfræ&ilegar líkur á sigri mínum eru ekki miklar, en veikasta hlið Korchnois er sennilega sú hversu djarfur skákmaður hann er og leggur jafnan mikið í stöðuna. Undir þeim kringumstæðum getur honum fatast flugið, sagði Jóhann Hjartarson, stórmeistari í skák, í samtali við Þjóðviljann, en í fyrramálið heldur hann til Kanada til að taka þátt í áskorendaeinvígi við Korchnoi. Helgi Ólafsson verður í Kanada og skýrir gang einvígisins fyrir lesendum Þjóðviljans. Á myndinni eru þeir Margeir Pétursson, Jóhann Hjartcrson, Friðrik Ólafsson og Þráinn Guðmundsson, forseti Skáksambands islands. Mynd: Sig. Sjá nánar um áskorendaeinvígin í Sunnudagsblaði Þjóðviljans um helgina. Jökull á Höfn Verkafólk í baráttuham Fjórðungurfélaga verkalýðsfélagsins á baráttufundi. Verkfallsvopninu beittfáist atvinnurekendur ekkitilsamninga. Björn Grétar Sveinsson, formaðurJökuls: Verkafólk lifir ekki á reiknilíkönum VSÍ Langlundargeð verkafólks er þrotið. Við látum ekki bjóða okkur lengur uppá molana sem hrjóta af borðum atvinnurek- enda, sagði Björn Grétar Sveins- son, formaður veraklýðsfélagsins Jökuls á Höfn í Hornafirði, en í gær var haldinn á vinnutíma feikifjölmennur fundur í félaginu og öll atvinnustarfsemi á staðnum lagðist niður að heita mátti með- an á fundi stóð. Um hundrað manns mætti á fundinn, sem jafn- gildir fjórðungi af tölu fullgildra félaga Jökuls og er því trúlega met í fundarsókn verkalýðsfélaga hin síðari ár. Á fundinum var samþykkt samhljóða tilllaga þar sem skorað er á „stjórn og trúnaðarmanna- ráð að hika ekki við að beita verkfallsvopninu ef sýnt þykir að með öðrum ráðum náist ekki kjarasamningar. Fundurinn minnir á kröfu Alþýðusambands Austurlands frá því í haust og skorar á stjórn sambandsins að endurskoða áðurnefndar kröfur með tilliti til þeirrar verðhækkun- arbylgju sem nú brotnar á ís- lenskum alþýðuheimilum". - Ef atvinnurekendur skilja ekki svona skilaboð þá hikum við ekki við að beita verkfallsvopn- inu af fullri hörku, sagði Björn Grétar. - Við skulum gera okkur grein fyrir því að verkafólk lifir ekki á reiknilíkönum. Reiknimeistarar Vinnuveitendasambandsins og aðrir geta étið sínar reikningsspár sjálfir. Við hér á Höfn tökum ekki þátt í því stundinni lengur, sagði Björn Grétar í tilefni dóms- dagspár VSÍ um efnahagshorf- urnar. Björn sagðist skora á launafólk annarsstaðar á landinu að fylgja fordæmi félaga Jökuls og fylkja sér saman og krefjast óskoraðs réttar síns. - Við höfum rækilega afsannað þá hégilju að verkafólk sé áhugalaust um sín mál og fáist ekki tii að taka þátt í starfi verka- lýðsfélaganna, sagði Björn. -rk

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.