Þjóðviljinn - 16.01.1988, Side 1
Laugardagur 16. janúar 1988 11. tölublað 53. órgangur
Framfœrsluvísitalan
Stjómvöld hafa hellt
oliu á verðbólgubálið
Áhrif matarskattsins beint út í vísitöluna. Mesta hækkun vísitölu í3 ár.
Ársverðbólga miðað við janúar komin Í55%.
Þröstur Ólafsson framkvœmdastjóri Dagsbrúnar: Skelfileg þróun
eað er skelfileg þróun að þær
fórnir sem almenningur hefur
fært til að koma hér á eðlilegu
efnahagslífi, verði til einskis og
við sitjum uppi með 55% verð-
bólgu eða hærri eins og nú blasir
við. Matarskatturinn er nú mesti
verðbólguvaldurinn og það eru
stjórnvöld sem eru að hella olíu á
verðbólgubálið, segir Þröstur Ol-
afsson framkvæmdastjóri Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar.
Útreikningar Hagstofunnar,
sem lagðir voru fram í gær, sýna
að vísitala framfærslukostnaðar
miðað við verðlag í þessum mán-
uði hefur hækkað um 3,71% sem
er mesta hækkun í einum mánuði
sl. 3 ár. Þessi mikla hækkun sem
er að langstærstum hluta af-
leiðing af matarskatti ríkisstjórn-
arinnar, samsvarar 54,8% verð-
bólgu í mánuðinum.
Matvöruverðið sem vísitalan
er reiknuð eftir, er frá því sl.
föstudag en samkvæmt útreikn-
ingum Hagstofunnar hafa kjöt og
kjötvörur hækkað um 13,6% frá
síðasta mánuði. Hagstofan telur
að verðlagsáhrif af völdum mat-
arskattsins séu að mestu komin
fram en lækkunaráhrifa tolla-
breytinga sjái enn ekki merki.
- Þessi hækkun er töluvert
meiri en ég átti von á og það er
skelfilegt ef framhaldið verður
eins. Það eru stjórnvöld sem eru
ábyrg fyrir þessari þróun og það
hlýtur að vera krafa verkalýðs-
hreyfingarinnar að fá eitthvað af
þessu til baka. Annað er óverj-
andi. Það er hægt að skila því
strax í gegnum staðgreiðslukerfi
skatta, sagði Þröstur Ólafsson.
-•g-
Steingrímur
Róm
brennur
Fjármagns-
markaðurinn orðinn
hrein ófreskja
- Róm brennur. Eg er orðinn
mjög óþolinmóður og það verður
eitthvað að gera á næstu vikum í'
efnahagsmálum, sagði Steingrím-
ur Hermannsson formaður
Framsóknarflokksins m.a. á
fundi með flokksmönnum sínum í
fyrrakvöld.
Utanríkisráðherra sagði menn
hafa farið offari í fjárfestingum
og eytt langt umfram efni ásl. ári.
Fjármagnsmarkaðurinn væri
orðinn hrein ófreskja og vextir
allt of háir.
Ekki tókst Þjóðviljanum að ná
tali af Steingrími í gær. Hann var
þá floginn erlendis. -|g.
Mikligarður
Ráðherrar
þorðuekki
Ólafur Ragnar:
Harma áhugaleysi
Jóns og Þorsteins
Ég harma að forsætisráðherra
og fjármálaráðherra skyldu ekki
hafa áhuga á því að koma hingað.
Það er víðar lýðræði í landinu en
á þingi og í stjórnarráðinu. Það er
líka á vinnustöðunum og úti í
verslununum. Ráðamenn þjóð-
arinnar sem skynja ekki hvað
fólk er að segja þegar það kaupir
sín brýnustu matvæli eru búnir að
missa samband við þjóð sína,
sagði Ólafur Ragnar Grímsson
formaður Alþýðubandalagsins
við viðskiptavini Miklagarðs þeg-
ar það var ljóst að forsætisráð-
herra og fjármálaráðherra höfðu
ekki þegið boð Ólafs Ragnars um
að taka þátt í kappræðum um
matarskattinn og vöruhækkanir í
Miklagarði í gær.
—K.Ól.
Sjá bls. 2
sj, .* t** mpm
jh < i
sMBr j
„Þegar ráðamenn þjóðarinnar skynja ekki hvað fólk er að segja þegar það ætluðu ekki að þiggja boð hans til kappræðna um matarskattinn í Miklagarði í
kaupir sín brýnustu matvæli eru þeir búnir að missa samband við þjóð sína," gær. Mynd E.ÓI.
sagði Ólafur Ragnar Grímsson m.a. þegar Ijóst var að Jón Baldvin og Þorsteinn
Landsbankinn
Bankaráö haft að fíflum
Stefán Hilmarsson, Búnaðarbanka: Skýtur skökku við aðþeirsem sömdu bankalögin skuli
sjá sig knúna til að takaframfyrirhendur bankaráðs. Afskipti sem bankaráð Búnaðarbanka
lœtur ekki bjóða sér
Hafnarfjörður
Saltkistur
sprengdar
Pörupiltar í Hafnarfirði hafa
sprengt upp allar saltkistur í bæn-
um á síðustu dögum með heimat-
ilbúnum sprengjum.
„Þessar sprengjur eru keimlík-
ar þeim sem unglingar á N-
írlandi hafa notað, samkvæmt
upplýsingum sem við höfum
fengið, og sprengikrafturinn er
með ólíkindum, enda hafa kist-
urnar sprungið í frumeindir
sínar,“ segir Eðvarð Ólafsson
rannsóknarlögreglumaður.
Að sögn Eðvarðs eru spren-
gjurnar stórhættulegar og mesta
mildi að enginn skuli hafa orðið
fyrir slysi af þeirra völdum. - grh
- Það má eiginlega segja að
bankaráð Landsbankans hafi
verið haft að fífli í þessu máli.
Mér er engin launung á þessari
skoðun minni, sagði Stefán Hilm-
arsson, bankastjóri Búnaðar-
bankans, er hann var inntur eftir
skoðun á allri málsmeðferðinni
við ráðningu Sverris Hermanns-
sonar sem bankastjóra.
Stefán taldi ekkert knýja á um
breytingar á bankalögunum
þannig að ráðningar bankastjóra
ríkisbankanna verði á hendi ráð-
herra, en ekki bankaráðanna eins
og kveðið er á um í lögunum. En
Sverrir Hermannsson hinn ný-
ráðni bankastjóri og Þorsteinn
Pálsson hafa báðir lýst yfir þeirri
skoðun sinni að ráðningar banka-
stjóra ríkisbankanna skuli vera á
hendi framkvæmdavaldsins.
- Einhver hlýtur meiningin að
hafa verið hjá stjórnmálamönn-
unum þegar þeir settu þessa klá-
súlu í lög. Það skýtur því skökku
við að sömu mennirnir og settu
lögin skuli hafa séð sig knúna til
að taka fram fyrir hendurnar á
bankaráði Landsbankans, sagði
Stefán.
Stefán sagði að bankaráð Bún-
aðarbankans hefði sýnt það í
verki að það liði ekki slík afskipti
og léti ekki segja sér fyrir verk-
um. -rk