Þjóðviljinn - 19.01.1988, Qupperneq 1
Hagur húsbyggjenda og ann-
arra þeirra sem hafa á bakinu
verðtryggð lán mun síst vænkast
eftir efnahagsaðgerðir ríkis-
stjórnarinnar, sem m.a. hafa leitt
til aukins framfærslukostnaðar
heimilanna. Fastlega má búast
við að lánskjaravísitala febrú-
armánaðar hækki í kjölfar hækk-
unar framfærsluvísitölunnar,
sem stigið hefur um 3,71% á ein-
um mánuði þrátt fyrir heit-
strengingar stjórnvalda um hið
gagnstæða.
Lánskjaravísitala febrúarmán-
aðar liggur ekki fyrir fyrr en í lok
vikunnar eftir að byggingarvísi-
talan hefur verið reiknuð út, en
lánskjaravísitalan samanstendur
að 1/3 hluta af vísitölu bygging-
arkostnaðar og 2/3 af vísitölu
framfærslukostnaðar.
Samkvæmt mati stjórnvalda er
byggingarvísitölunni ætlað að
lækka í kjölfar lækkunar bygging-
arkostnaðar um 2%. Óvíst er þó
hvort og að hve miklu leyti lækk-
un tolla skilar sér í lækkuðu vöru-
verði byggingarvöruverslana,
sem aftur skilar sér með lægri
byggingarvísitölu.
Sé miðað við að byggingarvísi-
talan standi í stað, í stað þess að
lækka, leiðir hækkun framfærslu-
vísitölunnar til 2,5% hækkunar
lánskjarvísitölu. f>að þýðir að
1.500.000 kr. verðtryggt lán sem
tekið hefur verið fyrir réttu ári
síðan væri komið uppí rúmlega
1.879.000 krónur og lán uppá
2.000.000 kr. hefði hækkað um
rúma hálfa miljón króna.
-rk
Matarskattur
Lánsbyrðin þyngist
Allt bendir til að lánskjaravísitalan hœkki vegna skattsins.
Atti að standa ístað. Auknar álögur á húsnœðiskaupendur
13. tölublað 53. árgangur
Reykjavíkurborg
Monthúsin
fá mest
Ráðhúsog
Öskjuhlíðarhús kosta
meira en allar aðrar
borgarbyggingar.
Samkvæmt fjárhagsáætlun
borgarinnar fyrir þetta ár verður
hærri upphæð varið til byggingar
ráðhúss og veitingahúss á Oskju-
hlíð en til framkvæmda við bygg-
ingu skóla, dagheimila, leikskóla,
gæsluvalla, leiguíbúða, verka-
mannabústaða, heilsugæslu-
stöðva, B-álmu Borgarspítalans
og framkvæmda vegna æskulýðs-
og íþróttamála. Til þessara mála-
flokka eru áætlaðar 421,5 miljón-
ir en til byggingar ráðhúss og
veitingahúss 464,5 miljónir
króna, sagði Sigurjón Pétursson í
samtali við Þjóðviljann.
Pá kom það fram hjá Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur á
Stöð 2 í gær að út frá þeim upplýs-
ingum sem liggja fyrir um áætlað-
an ráðhússkostnað dragi hún þá
ályktun að á meðan ráðhúsið
kosti 250 miljónir munu útgjöld
vegna byggingar 190 bflastæða
undir ráðhúsinu nema 500 milj-
ónum. Samkvæmt upplýsingum
frá meirihlutanum kosti helming-
ur bflastæðanna, bílastæði til al-
mennra nota, 250 miljónir og sé
hinn helmingur kostnaðarins,
einkabílastæði ráðhússins, færð-
ur á byggingarkostnað ráðhúss.
Sagði Ingibjörg Sólrún ekki
óeðlilegt að álykta sem svo að sá
helmingur kostaði það sama,
þ.e.a.s. 250 miljónir, en sam-
kvæmt þessu reikningsdæmi kosti
framkvæmdir við byggingu ráð-
hússins sjálfs því 250 miljónir og
bílastæðin 500 miljónir. _k.Ó1.
Sjá síður 5-6
VSI
Fallöxin eða gálginn
s
Asmundur Stefánsson: Verðbólgu og gengisfellingu hótað verðisamið
um kauphœkkanir. Verkafólki œtlað að axla byrðar óráðsíunnar
Loðna
Óvenjugóð
veiði
57 þúsund loðnutonn
veiðstfrá þvífyrir helgi
Óvenjugóð loðnuveiði hefur
verið frá því rétt fyrir helgi og
þegar síðast spurðist seinnipart-
inn í gær var búið að veiða rúm 57
þúsund tonn af ioðnu, aðallega
austur af Gerpi. Skipin hafa
dreift aflanum á svo til alla lönd-
unarstaðina.
Að sögn Ástráðar Ingvars-
sonar hjá Loðnunefnd er búið að
veiða rúm 400 þúsund tonn af
loðnu frá því vertíðin hófst í haust
og eru rúm 500 þúsund tonn enn
eftir af kvótanum.
Frá því að loðnuverð var gefið
frjálst í lok síðasta árs hefur sam-
keppni verksmiðjanna farið
harðnandi um hráefnið og síðast í
gær bárust þær tilkynnti verk-
smiðjan í Grindavík að fyrir
fyrstu 4 þúsund tonnin sem
landað sé fyrir 25. verði borgaðar
2800 krónur fyrir tonnið. í>ó eru
þrjú skip á siglingu til Noregs og
eitt til Færeyja með loðnufarm.
Norðmenn bjóða rúmar 3 þúsund
krónur fyrir tonnið og virðast út-
gerðarmenn ekki hika við að láta
skipin sigla þangað þótt litlu
muni í verði. -grh
Skilaboð atvinnurekenda eru
ótvíræð hótun við verkafólk:
Hvað sem þið semjið um í kaupi
skal það verða tekið aftur með
verðbólgu og gengisfellingu.
Þetta er eins og bjóða mönnum að
velja á milli fallaxarinnar og gálg-
ans, sagði Ásmundur Stefánsson,
forseti Alþýðusambandsins, um
isamþykkt sambandsstjórnar
VSI, en þar er launþegum boðið
að fallast sjálfviljugir á
kaupmáttarskerðingu, eilegar
verði hér óðaverðbólga og gengis-
felling.
- Það er ljóst að verðbólgan er
laus úr viðjum að verulegu leyti
fyrir beint og opinbert frumkvæði
frá atvinnurekendum. í þeirri
stöðu sjá menn gömlu ráðin að nú
eigi að stöðva kauphækkanir,
fella gengið og láta launafólk axla1
allar byrðarnar.
Þetta dæmi getur ekki gengið
upp - launafólk sættir sig einfald-
lega ekki við slíka niðurstöðu.
Þeir hópar sem hafa ekki notið
neins nema lágmarkshækkana að
undanförnu, hópar sem standa
frammi fyrir því að launahlutföll-
in hafa á engan hátt farið á þann
veg sem við reiknuðum með,
hljóta að gera kröfur um leiðrétt-
ingar, sagði Ásmundur.
I samþykkt VSÍ segir m.a. að
samdráttur útflutningstekna, lak-
ari viðskiptakjör, vaxandi við-
skiptahalli og taprekstur útflutn-
ingsfyrirtækjanna hljóti að leiða
til þess að kaupmáttur skerðist.
- Því miður virðist vera að
þetta viðhorf eigi hljómgrunn hjá
stjórnvöldum, sem stjórna því
sem atvinnurekendur ekki
stjórna sjálfir í þeirri ringulreið
efnahagsmála sem viðgengist
hefur að undanförnu. Það er við
erfiðan að eiga þegar þessi öfl
standa saman að viðhorfum af
þessu tagi, sagði forseti ASÍ.
-rk
Hvalaráðstefnan
Watson kemur á morgun
Fulltrúar Whale Conservation Society einnig vœntanlegir. Hérlendir
hvalavinir hyggjast mótmæla
Paul Watson, forystumaður
Sea Shepherd samtakanna, kem-
ur til Islands á morgun ásamt
leiðtoga samtakanna í Bretlandi.
Enn er ekki kunnugt hvernig ís-
lensk yfirvöld munu bregðast við,
en Watson hefur lýst samtök sín
ábyrg fyrir skemmdarverkunum
i hvalbátunum og hvalstöðinni.
Þá eru á leiðinni hingað fulltrú-
ar samtakanna Whale Conservat-
ion Society í Bretlandi, að sögn
Magnúsar Skarphéðinssonar, fé-
laga í íslenska hvalavinafélaginu,
og munu fleiri hvalavinir hafa
sýnt því áhuga að koma hingað
vegna fundarins.
Á laugardag er ráðgert að
halda fund á Hótel Borg og mun
Paul Watson þar kynna sjónar-
mið samtaka sinna. Þá munu ís-
lenskir hvalavinir efna til ein-
hverra mótmæla á meðan að ráð-
stefnan stendur yfir en Magnús
vildi ekki láta uppi í hverju þau
yrðu fólgin.
-Sáf