Þjóðviljinn - 20.01.1988, Síða 1
Lífeyrissjóðirnir
Ráðheira ýjar að
hagsmunaárekstri
Jóhanna Sigurðardóttir: Hvaða hagsmuni er Pétur Blöndal að verja, eru það hagsmunir
lífeyrissjóðanna eða verðbréfamarkaðsins sem hann er forsvarsmaður fyrir?
Pétur Blöndal er einn af for-
svarsmönnum stórs verðbréf-
amarkaðs hér í Reykjavík, auk
þess sem hann er talsmaður
Landssambands lífeyrissjóða, en
verðbréfamarkaðarnir eru í sam-
keppni við Húsnæðisstofnun um
fjármagnið. Sú spurning hlýtur
því að vakna hvort þarna geti ver-
ið um hagsmunaárekstur að
ræða, segir Jóhanna Sigurðar-
dóttir, félagsmálaráðherra.
Landssamband lífeyrissjóða
sem Pétur er í forsvari fyrir hefur
beint þeim tilmælum til sjóða
sinna, að þeir geri einungis samn-
ing um skuldabréfakaup fyrir
40% af ráðstöfunarfé fyrir árið
1990.
Félagsmálaráðherra sagði í
samtali við Þjóðviljann í gær, að
sjóðirnir fengju hvergi betri
ávöxtun en hjá Húsnæðisstofnun
og því væri það óeðlilegt að þeir
ætluðu sér að ráðgast með það
hvernig fjármagninu er ráðstaf-
að.
Samkvæmt lögunum, sem
liggja til grundvallar samkomu-
lagi aðila vinnumarkaðarins, á
Húsnæðisstofnun að ákveða
skiptinguna milli Byggingarsjóðs
ríkisins og Byggingarsjóðs verka-
manna, en í ályktun Landssam-
bandsins er gagnrýnt harðlega að
hlutdeild Byggingarsjóðs verka-
manna skuli aukin.
Geri lífeyrissjóðirnir samning
upp á kaup fyrir 40% af ráðstöf-
unarfénu skerðast lán sjóðfélaga
hjá Húsnæðisstofnun. Þannig
fengi félagi í Lífeyrissjóði vers-
lunarmanna 2,1 miljón í stað 2,9
miljónir, sem er fullt lán til ný-
byggingar í dag. Fullt lán til
kaupa á gömlu eru um 2 miljónir í
Landsmenn
„Útlendir“
aldrei fleiri
Erlendir ríkisborgarar búsettir
hérlendis voru 3.874 þann 1. des-
ember sl. og hafa ekki áður verið
fleiri. Þá voru 8.131 íbúi fæddur
erlendis sem hafði lögheimili á ís-
landi og hafði þeim fjölgað veru-
lega frá árinu á undan.
Erlendir sendiráðsmenn hér-
lendis og liðsmenn Bandaríkja-
hers í landinu eru ekki skráðir
með lögheimili hérlendis.
Flestir landsmanna sem fæddir
eru erlendis, litu fyrst dagsins ljós
í Danmörkú, 2.045 talsins og 971
í Svíþjóð. 803 voru fæddir í
Þýskalandi, 623 í Noregi og 555 í
Bretlandi. Þá má geta þess að 88
eru fæddir á Srí-Lanka, 77 á Nýja
Sjálandi og 66 í Indónesíu.
dag en ef sjóðurinn keypti ein-
göngu fyrir 40%. „Það kom fram
hjá Pétri Blöndal að lífeyrissjóð-
irnir muni lána það sem upp á
vantar, en á hvaða kjörum ætla
þeir að gera það og til hversu
langs tíma verða þau lán?“ spurði
Jóhanna.
Fari lífeyrissjóðirnir að tilmæl-
um félagsfundar á mánudag kem-
Yfir 4 tonn af neysluvatni voru
flutt inn til landsins 9 fyrstu
mánuði ársins í fyrra. Þar af voru
3,3 tonn af sódavatni og 0,8 tonn
af drykkjarvatni sem fylgdi með
gúmbjörgunarbátum.
Innflutningur á sódavatni jókst
verulega á sl. ári þvi árið 1986
voru flutt samtals 2,1 tonn. Sóda-
ur skerðing á lán þeirra sem
sækja um í dag, því þau lán verða
ekki borguð út fyrr en 1990.
Samband almennra lífeyris-
sjóða mun taka ákvörðun í dag
um hvernig það bregst við nýju
reglugerðinni. Hrafn Magnússon
bjóst ekki við því að SAL yrði
samstíga Landssambandinu:
„Við teljum að félagar í lífeyris-
vatnið kemur að stærstum hluta
frá Svíþjóð. Vatnið í gúmbjörg-
unarbátana kemur frá Bretlandi
ogvarfluttinn 1,1 tonnafþvíárið
1986.
Að sögn Egils Jóns Kristjáns-
sonar hjá Gúmmíbátaþjónust-
unni, er drykkjarvatnið fyrir
björgunarbátana bæði flutt inn
sjóðunum þurfi einnig að nota fé-
lagslega íbúðakerfið og verða því
að sitja við sama borð og aðrir
hvað það varðar.“
Þá bjóst Hrafn ekki við því að
SAL myndi letja lífeyrissjóðina
til að ganga frá samningum við
Húsnæðisstofnun.
-Sáf
vegna endurnýjunar í bátunum
og eins með nýjum bátum.
Drykkjarvatnið er gerilsneytt og
fúlnar því ekki. Hann sagði að
þetta væri það lítið vatnsmagn að
ekki svaraði kostnaði að ger-
ilsneyða það hérlendis.
- grh.
Hvalaráðstefnan
Mikil
launung
Engar upplýsingar fást
um ráðstefnuhaldið né
hvernig tekið verður á
móti Paul Watson
Mikil leynd hvílir yfir allri
framkvæmd hvalveiðiráðstefn-
unnar, sem sett verður í Reykja-
vík á morgun. Á það jafnt við um
það hvert umræðuefnið á ráð-
stcfnunni verður, auk þess sem
ekkert er látið uppi um, með
hvernig löggæslu við ráðstefnuna
verður háttað.
„Ég vil ekkert upplýsa um
það,“ sagði Þorsteinn Geirsson,
ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðu-
neytinu.
Hann vildi heldur ekkert upp-
lýsa um það hvaða móttökur Paul
Watson fengi þegar hann kæmi
hingað til lands. Hvort hann yrði
tekinn fastur eða hvort honum
yrði stefnt fyrir rétt, né heldur
hvort honum yrði vísað frá landi.
„Þá væri ég farinn að veita upp-
lýsingar,“ sagði Þorsteinn.
íslenskir hvalavinir hafa að
undanförnu leitað eftir lögfræð-
ingi til að taka að sér mál Paul
Watson, ef honum verður stefnt,
en allsstaðar farið bónleiðir til
búðar. Enginn lögfræðingur vill
gefa kost á sér til starfans. Wat-
son hefur frestað för sinni til
landsins um einn dag og kemur
hann hingað síðdegis á
fimmtudag. _Sáf
Matarskatturinn
Stormur í
vatnsglasi
Pétur Sigurðsson, for-
maður Alþýðusambands
Vestfjarða: íþjófa-
þjóðfélagi verður það
sama að ganga yfir alla.
Sammála Jóni Baldvin
- Eg styð Jón Baldvin heilshug-
ar í söluskattsálagningu á mat-
væli. Það hefur einfaldlega sýnt
sig, að í þessu þjófasamfélagi
verður að einfalda skattkerfíð og
fækka undanþágum til að koma í
veg fyrir að menn steli undan,
sagði Pétur Sigurðsson, formað-
ur Alþýðusambands Vestfjarða,
er hann var inntur eftir því hvort
hann tæki undir með flokksstjórn
Alþýðuflokksins sem lýst hefur
yfír ánægju með matarskatt og
önnur verk ráðherra Alþýðu-
flokksins.
Pétur sagði að sért fyndist hafa
verið þyrlað upp óþarfa mold-
viðri um álögur á matvæli. - Það
skýtur til dæmis skökku við að
innan sambandsstjórnar ASÍ eru
menn sem eru margir hverjir með
100.000 króna mánaðarlaun og
samþykkja mótmæli við matar-
skattinum vegna þess að hann
komi harðast niður á láglauna-
fólki.
Nær hefði verið að samþykkja
og berjast fyrir launahækkun til
þeirra lægst launuðu svo þeir
gætu greitt matarskattinn eins og
hinir hærra launuðu, sagði Pétur.
-rk
Kemur sjálfsagt mörgum spánskt fyrir sjónir að fleiri tonn af vatni skuli árlega flutt inn til landsins. Mynd E. Ól.
Innflutningur
Áfjórða tonn afsódavatni og tœpttonn afdrykkjarvatni ígúmbjörg-
unarbáta flutt inn á sl. ári