Þjóðviljinn - 23.01.1988, Side 1
Bjarki Elíasson yfirlögregluþjónn leiðirWatson útúrSíðumúlafangelsinu ígæreftiryfirheyrslurog þorramat. (Mynd: EÖI.)
Watson harðánægður
Paul Watson segist harðánœgður með athygli vegna hand töku hans hér og erlendis.
Segir ósatt að hann hafi dregið fyrri framburð um hlutdeild að skemmdarverkum
til baka. Ætlar að halda áfram að hvetja til skemmdarverka
Paul var öskurciður þegar við
töluðum við hann rétt fyrir
brottför hans í gær vegna þeirra
yfírlýsinga lögreglunnar að hann
hefði dregið fyrri framburð til
baka. Að sögn Watsons gerði
hann það ekki og hann sagðist
hafa sagt við lögregluna að hann
myndi halda áfram að eiga aðild
að skemmdarverkum á íslandi ef
hvalveiðum yrði haldið áfram.
Hins vegar var hann harðánægð-
ur með alla þá athygli sem sam-
tökin hafa fengið með handtöku
hans, sagði Magnús Skarphéðins-
son hvalavinur en hann náði að
spjalla við Paul Watson, forystu-
mann Sea Shepherd samtakanna
áður en honum var vísað úr landi
í gær eftir sólarhrings gæsluvarð-
hald og yfirhcyrslur hjá RLR.
Paul Watson var handtekinn
við komu sína til landsins í fyrra-
dag vegna yfirlýsinga sem hann
hefur gefið um hlutdeild sína að
skemmdarverkum samtakanna á
íslandi. í tilkynningu frá
dómsmálaráðuneytinu segir að í
yfirheyrslunum hafi Watson
haldið því fram að hann hafi
hvorki átt þátt í skemmdarverk-
unum né undirbúningi þeirra.
Ríkissaksóknari taldi því ekki
ástæðu til þess að gefa út opin-
bera ákæru á hendur Watson, en
með tilliti til fyrra framferðis
hans í íslenskri lögsögu og marg-
ítrekaðar yfirlýsingar hans sem
dómsmálaráðuneytið telur
beinast gegn íslenskum hagsmun-
um, var honum vísað úr landi.
Verður Watson framvegis
meinuð endurkoma til landsins
sem og til annarra Norðurlanda.
Að sögn Magnúsar Skarphéð-
inssonar var Paul Watson mjög
vel búinn undir handtöku og yfir-
heyrslur, en hann hafði bæði ráð-
fært sig við lögfræðinga og gefið
fjölmiðlum um allan heim til
kynna við hverju mætti búast. Þá
má geta þess að í viðtali við Wat-
son sem birtist f nýútkomnu
Þjóðlífi sagði hann að það yrði
bæði hvölunum og samtökunum
til mikils gagns yrði hann hand-
tekinn við komuna til Reykjavík-
ur. „Það væri það besta sem fyrir
gæti komið,“ sagði Watson í við-
talinu. Að sögn Magnúsar Skarp-
héðinssonar hefur símhringing-
um til landsins frá erlendum fjöl-
miðlum ekki linnt frá handtöku
Watsons. -K.ÓI.
Rannsóknir
Sjúklegt skammdegi?
Lœknir til starfa á geðdeild Landspítalans til að rannsaka ‘punglyndi
vegna birtuleysis í skammdeginu
Barnabótahækkun
125 kr.
á mánuði
Hækkun barnabóta sem eiga
að sögn stjórnvalda að vega upp á
móti áhrifum matarskattsins eru
125 kr. á mánuði fyrir 1 barn og
190 kr. á mánuði fyrir önnur
börn í fjölskyldu. Hæsti mögulegi
barnabótauki hækkar um 280 kr.
á mánuði þannig að hækkun
barnabóta og barnabótaauka
fyrir fjölskyldu með 2 börn yfir 7
ára aldri getur mest orðið 870 kr.
á mánuði.
- Þessar tölur hef ég látið taka
saman og fengið staðfestar hjá
Alþýðusambandinu og fjármála-
ráðuneytinu, en þetta er sú hækk-
un sem fjármálaráðherra básúnar
í fjölmiðlum að eigi að vega upp á
móti 1800 kr. hækkun matar-
skattarins á mánuði á hverja
meðalfjölskyldu, sagði Svavar
Gestsson alþm. í samtali við
Þjóðviljann í gær. -Ig.
Nú í vikunni hóf Andrés
Magnússon læknir störf hjá
rannsóknastofu geðdeildar
Landspítalans við að kanna tíðni
skammdegisþunglyndis meðal Is-
lendinga. Sjúkdómur þessi hefur
nýlega verið viðurkenndur af
læknavísindunum í kjölfar nýrra
upplýsinga um áhrif birtunnar á
geðheilbrigði manna.
Andrés sagði í samtali við
Þjóðviljann, að sjúkdómurinn
hefði reynst vandamál hjá
ákveðnum hópi á meðal þjóða á
svipaðri breiddargráðu og því
mætti ætla að hann væri jafn-
mikið vandamál hér á landi.
Erlendis eru þeir sem greindir
eru með sjúkdóminn hvattir til
útivistar í björtu yfir vetrarmán-
uðina auk þess sem notuð er ljós-
lækning með náttúrlegu dagsbirt-
uljósi.
Andrés sagði að sól-
arljósalampar dygðu ekki gegn
sjúkdóminum, þar sem áhrif birt-
unnar kæmu fyrst og fremst í
gegnum augun, en venjulegir sól-
arljósalampar væru hættulegir
fyrir sjónina.
Nánar er fjallað um skamm-
degisþunglyndi í Sunnudagsblaði
Þjóðviljans í dag, en Andrés
Magnússon biður þá sem telja sig
illa haldna af þessum sjúkdómi
að hafa samband við sig hjá Geð-
deild Landspítalans í síma 29000
eða bréfleiðis með upplýsingum
um sjúkdómseinkenni og heimil-
isfang.
-ólg.
Sjá Sunnudagsblaðið bls.
4-5
Ráðstefna hvalveiðiríkja
Halldor
áfram í
faraifiroddi
Svœðasamtök rædd. ís-
lendingarsjá um nýjan
fund. Auglýsingaherferð
undirbúin
„Ráðstefnan ákvað að halda
áfram samráði þessara þjóða og
tóku íslendingar að sér að sjá um
að þessar þjóðir hittast aftur ein-
hverntíman í framtíðinni," sagði
Halldór Ásgrímsson blaða-
mönnum í gær að lokinni ráð-
stefnu hvalveiðiríkja.
Halldór sagði óákveðið hve-
nær hist yrði aftur, en bjóst við að
það skýrðist síðar á árinu. Hins-
vegar virðist allt benda til að
vinnuhópur um auglýsingar- og
kynningarherferð fyrir ríkin
verði stofnaður á næstu mánuð-
um.
Að sögn Halldórs fékkst engin
ákveðin niðurstaða í umræðunni
um svæðasamtök hvalveiðiríkja,
enda ekki stefnt að slíku, hins-
vegar hefði verið ákveðið að
halda áfram samráði og í því fæl-
ist meðal annars að þátttakendur
á ráðstefnunni kynntu þessa hug-
mynd í sínu heimalandi.
Þá sagði Halldór að úrsögn úr
Alþjóðahvalveiðiráðinu hefði
ekki komið til umræðu, enda væri
slíkt mál viðkomandi ríkis-
stjórna, og ekki þessa fundar.
-Sáf
Útvarp
Rótin lengst
til hægri
Útvarp Rót mun hafa hæsta út-
sendinganúmer FM bylgjunnar,
106.8, og lengst til hægri á út-
varpstækjunum þegar að útsend-
ingar hefjast á sunnudag.
Utsendingin á sunnudag hefst
klukkan 13.00 með hátíðardag-
skrá þar sem allir dagskráraðilar
kynna þætti sína. Gestir koma í
heimsókn og syngja, leika á
hljóðfæri, lesa upp og spauga. Þá
verða viðtöl við ýmislegt fólk og
nokkrir stuttir samtalsþættir.
Opið hús verður á Utvarp Rót
fyrsta daginn, það er til húsa að
Brautarholti 3. -K.ÓI.
Matarreikningar
Úr 22 í 28
Útgjöld meðalfjölskyldu til
matvörukaupa hafa hækkað um
23,7% á hálfu ári. Matarreikn-
ingurinn er nú í janúar 28.200, en
var 22.800 krónur í júlímánuði á
síðasta ári, segir í samþykkt
miðstjórnar ASI þar sem ítrekuð
eru fyrri mótmæli við matar-
skattinum.
Á sama tíma og matarreikning-
ur heimilanna hefur stórhækkað
hafa lágmarkslaun í landinu að-
eins hækkað um 2.100 krónur,
segir í samþykktinni þar sem lýst
er fullri ábyrgð á hendur
stjórnvöldum.
Samþykktin hefur verið send
forsætisráðherra og fjármálaráð-
herra.