Þjóðviljinn - 24.01.1988, Blaðsíða 18
KROSSGATA
Nr. 601
BRIDGE
T~ 2 3— 1 3 ¥ 6' (o z— s? 7 )k 3? 1 /o
li IZ ó? w~ é w~ TT~ 3? )s )£? 17 )7 ié )2
)°i 20 V 10 2 21 22 23 TT~ 20 22 T~ 3? 2
20 11 IS io /3 )o 17 17 ll 3? 27 17 )8
)1 l¥ 1Z V ¥- 2V / 3? ls> )S 2 10 13 T~ 3?
(o 2(o (p 18 27 ¥• 13 2 2$ %
T~ 23 )i 2 W S? 13 23 3 T~ 20 )3
1 22 27 2? 22 n 17 22 ?? )% JW 23 18 (s>
S <2 35 2/p 2? 32 n )? i 22 27 3? 27 3 )i
26' 3? 27 1T 2 3? 3 1 W~ 23 5 )& 20
£ 2* ! 32 )8 20 18 27 27 W 3o 3 17 3?
8 T~ 22 2$ V n )</ 5- 13 3? 2 13 íj M 22 2
)i i7 32 3 20 J? /3 2 )0 /3 4 £
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
- ARNI BERGíVUNN BLAÐIÐ OKKAR
25 é> ' Z9; e? y; 22 . )5 6 5 . 20
I'aitir um wjgu I»j<M>viiiaiis
Stafirnir mynda isienskt orö eöa mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lárétt eða lóörétt.
Hver stafur hefur sitt númer og qaldurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru þvi eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda örnefni á Norðurlandi.
Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6,
Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 601". Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaun
verða send til vinningshafa.
Lilja Ólafsdóttir, Reykjavík, hlaut
verðlaun fyrir krossgátu númer 598.
Hún fær senda bók Málfríðar Einars-
dóttur, Samastaður í tilverunni.
Verðlaunin fyrir krossgátuna að
þessu sinni er hin stórfróðlega bók
Árna Bergmann um Þjóðviljann -
Blaðið okkar.
Strákarnir
unnu
Sveit Samvinnuferða/Land-
sýnar varð bikarmeistari Reykja-
víkur, annað árið í röð, eftir úr-
slitaleik við sveit Pólaris um síð-
ustu helgi.
16 sveitir hófu þátttöku og var
spilað eftir útsláttarfyrirkomu-
lagi. f sigursveitinni eru: Helgi
Jóhannsson, Björn Eysteinsson,
Hrannar Erlingsson, Svavar
Björnsson, Matthías Þorvaldsson
og Ragnar Hermannsson. Að-
eins Helgi var í sveitinni í fyrra
sem einnig sigraði þessa keppni.
Úrslitaleikurinn var nokkuð
jafn en 2. lotan (af 4) var örlaga-
rík fyrir Pólaris, og tapaðist
leikurinn þar. Sýnt var á sýning-
artöflu á Loftleiðum og m.a. not-
ast við sjónvarpsupptökuvél.
Sömu tækni verður beitt á
Bridgehátíð í næsta mánuði.
Nokkurt fjör hefur færst í und-
anrásir Reykjavíkurmótsins í
sveitakeppni, sem jafnframt er
úrtökumót fyrir íslandsmótið.
Staða efstu sveita að loknum 15
umferðum af 21 er þessi:
Verðbr.markaður Iðnaðarb. 295
Pólaris 286
Flugleiðir 280
Jón Þorvarðarson 264
Samvinnuferðir/Landsýn 262
Fataland 254
Bragi Hauksson 246
Sigurður Steingrímsson 235
Fjórar efstu sveitirnar keppa til
úrslita um Reykjavíkurhornið,
en 14 efstu auk íslandsmeistara
öðlast rétt til þátttöku á íslands-
móti. Undanrásum lýkur núna
um helgina, þrjár umferðir verða
í dag og einnig þrjár umferðir á
morgun, sunnudag.
Úrtökumót Norðurlands
eystra vegna íslandsmótsins í
sveitakeppni var háð um síðustu
helgi á Akureyri. Aðeins 8 sveitir
kepptu um réttinn, en svæðið á 2
sveitir til íslandsmóts, auk 1. var-
asveitar yfir landið. Sveit Gunn-
ai s Berg sigraði og sveit Kristjáns
Guðjónssonar varð í 2. sæti. Var-
asveitin verður svo sveit Grettis
Frímannssonar, sem hafnaði í 3.
sæti, stigi á eftir Kristjáni.
Matthías Þorvaldsson og ísak
Örn Sigurðsson hafa tekið að sér
að annast umsjón með Opnu
húsi, sem Bridgesambandið
hyggst standa fyrir á föstudags-
kvöldum í Sigtúni 9 frá og með
fyrstu viku í febrúar nk. Einnig
eru uppi hugmyndir að nýta
laugardagsmorgna í Sigtúni fyrir
skoðanaskipti í anda Café Hallar,
fyrir áhugafólk um framgang
bridge hér á landi.
Breiðfirðingar eru að hefja
barometer-tvímenning næsta
fimmtudag í Sigtúni 9. Keppnis-
stjóri er ísak Örn Sigurðsson
(32482) en formaður er Guð-
laugur Karlsson.
Suðurlandsmótið í tvímenning
verður spilað á laugardaginn
kemur að Flúðum. 34-36 pör
munu taka þátt í mótinu. Keppn-
isstjóri verður Jakob Kristinsson.
Úrtökumót Vestfjarða fyrir fs-
landsmótið í sveitakeppni verður
spilað á ísafirði, laugardaginn 5.
febrúar.
Meistarastigaskrá,in er komin í
prentun. Henni verður dreift til
allra félaga innan BSÍ um leið og
vinnslu lýkur. Tæplega 3200
ÓLAFUR
LÁRUSSON
manns eru á skrá hjá BSÍ, sem
hlotið hafa stig frá upphafi skrán-
ingar 1. mars 1976. Óþarft að
taka það fram að íslenska Bridge-
sambandið er það stærsta í heimi
(miðað við íbúafjölda)...
Skráning á Bridgehátíð 1988
hefur farið vel af stað. Skráð er á
skrifstofu BSÍ og minnt á að spil-
að er um gullstig í báðum mótun-
um, tvímenningskeppninni og
Opna Flugleiðamótinu (sveita-
keppni). Öllum frjáls þátttaka
meðan húsrúm leyfir.
Minnt er á að fyrri gjalddagi
árgjalda til Bridgesambands ís-
lands var 15. janúar sl. Pá áttu
félögin að hafa verið búin að
jafna reikninga fyrir spila-
mennsku fram til áramóta. Næsti
gjalddagi er 15. júlí í ár. Allar
greiðslur hafa áhrif til „kvóta“-
útreiknings vegna íslandsmóts í
sveitakeppni ár hvert.
SKYRT OG SKORINORT
snatabyltingin
i
loksins byrjað að snjóa af ein-
hverju viti, snötum og mönnum
að leik. samur þessi fimbulkuldi
engu síður; kuldabolinn sem er
helsti dragbíturbyltingarinnar.
því byltingarmenn með húfu og
vettlinga og hor í nefinu eru engir
byltingarmenn. ef einhvervogar
sér að minna á histastigið í mos-
kvu anno 1917 skal sá hinn sami
einhver minntur á að það var ein-
hver blíðasti október um þær
slóðir sem elstu menn mundu og
voru þeir þó býsna aldraðirog
höfðu drukkið ýmis fallvötn og
fossa á lífsleiðinni.
II
en hér á íslandi geri enginn bylt-
ingu; segir ekki múkk þósvo einn
góðan veðurdag sé einum
matarskatti dýrara að vera til;
varalituð sjónvörp hinsvegaraf-
tolluð niðrúröllu valdi. byltingar
íslendinga felast í því að segja:
það er sami andskotans aftur-
endinn á þeim öllum svo þetta
skiptir engu máli. og þeir sem
voga sér að rísa upp og andæfa;
hafajafnvel sínareigin skoðanir
á málunum þeir eru á samri
stundu hrópaðir niður af fólkinu
sem vill fyrir alla muni láta trampa
á sér. það er þó ekki eins
þreytandi og að berjast fyrir ein-
hverjum málstað sem alls óvíst er
hvortskilararði.
undirritaðursnatijátarað hlut-
deild hans í byltingarrekstri hing-
aðtil hefur veriðfremurfáfengi-
leg; hugsjónum helst þjónað með
þusi yfir blásaklausu fólki eða
þeim sem hvorteðereru hjartan-
legasammála. en þótt undirritað-
ur snati sé vissulega enginn
öldungur þá er honum nú nóg
boðið: þjóðfélag sem gerir ræn-
ingja að fyrirmönnum og atvinnu-
heimskingja að leiðtogum sínum;
það þjóðfélag verðskuldar kann-
ski matarskatt, húsnæðisbasl og
þrengingar. fyrir alla muni gott
fólk ergrundvallaratriði að bíða
eftir því að „einhver annar“ geri
„eitthvað" (málunum, segi
„eitthvað“:segi þaðsemallir
hafa verið að bíða eftir, lausnar-
orðið sem frelsar okkur úr móki
afskiptaleysisins og skoðana-
hræðslunnar.
undirritað hundsspotttilkynnir:
ég bíð ekki lengur.
III
castró lagði af stað uppí fjöllin við
tólfta mann og hafði nokkrum
misserum síðar gert byltingu: jes-
ús kristur hafði jafnsmáan flokk
og er fullyrt af sanntrúuðum að
hann hafi unnið í framlenging-
unni.
þeim er sjálfsagt hvorugum
nokkuð um þessa samspyrðingu
gefið, þeim castró og jesúsi, en
það mega þeir eiga að þeir gerðu
eitthvað í málunum. sátu ekki
stjarfir hvor við sína jötu og biðu
eftir byltingu með póstinum.
undirritaðursnati hefurekki einu
sinni tólf menn eða hunda sér til
fulltingis. en engu að síður býst
hann nú til þeirrar ferðar að frelsa
heiminn - sinn litla einkaheim
einan sér ef ekki vill betur.
þetta er því síðasta kveðja snata
til lesenda þjóðviljans; en dag
nokkurn má heyra skothríð í esj-
unni og þá mega ýmsir ístrubelgir
byrja að skjálfa:
þáersnatabyltingin hafin!
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 24. janúar 1987