Þjóðviljinn - 30.01.1988, Síða 3

Þjóðviljinn - 30.01.1988, Síða 3
Verðlagsráð Bakarar undir eftirliti Verð á brauði ogýsu lœkkar. Bökurum heimiltað sœkja um sérhœkkun. Bensínlækkunfrestað Bakarameistarar gerðu sam- komulag við Verðlagsráð um að draga nýlegar hækkanir sínar á brauðvörum til baka og reikna verð upp á nýtt, þannig að 10.3% söluskattshækkun komi ofan á út- söluverð eins og það var í desem- ber. Þá er þeim bökurum, sem telja sig hafa orðið á eftir með hækkanir, heimilt að sækja um sérhækkanir til Verðlagsráðs. -Þetta samkomulag gildir fyrir næstu tvománuði. Verðlagningin í bakaríunum verður undir eftir- liti okkar þennan tíma og engar aðrar hækkanir eiga að koma til nema með okkar samþykki, sagði Georg Ólafsson verðlagsstjóri í samtali við Þjóðviljann. Þá hefur Verðlagsráð lækkað útsöluverð á ýsu um 8% og lækk- ar kflóverðið úr 304 kr. í 280 kr. Jafnframt beinir ráðið þeim til- mælum til fisksala að þeir lækki að sama skapi útsöluverð á öðr- um fisktegundum sem frjáls verð- lagning er á. Verðlagsstjóri segist hafa trú á að þessar verðlækkanir gangi eftir. Akvörðun um lækkun bensín- verðs hefur verið frestað fram í næstu viku. Verðlagsstjóri segir ljóst að bæði bensín og svartolía muni lækka í verði en meiri óvissa sé um verðlagningu á gasolíu. -•g- A útsölunni verða boðnar ÚRVALSBÆKUR Á ÓTRÚLEQA LÁQU VERÐI, MEÐ ALLTAÐ 80% afslætti. Það uerður enginn fyrir vonbrigðum, hvorki með verð né vörugæði. Lítfð útlitsgallaðar bækur verða einnig á boðstólum. Sumar þeirra eru nánast nýjar en seldar með ótrúlegum afslætti vegna smávægilegra úttitsgalla. ^—f^ðmmargurggðuraúP---- & • ÖRN OG ÖRLYGUR Síðumúla 11, sími 84866 Alþýðubandalagið Fundað í miðstjóm Miðstjórn Alþýðubandalagsins kom saman til fundar í gærkvöld og mun funda áfram um helgina. Aðalumræðuefni fundarins er yf- irlýsing um „Framtíðarstefnu Al- þýðubandalagsins“ sem vísað var af landsfundi til afgreiðslu miðst- jórnar. Þá verða á fundinum umræður um kjaramál og kosið verður í nýtt verkalýðsmálaráð flokksins. Einnig verður kosið í ýmsar starfsnefndir sem landsfundur samþykkti að komið yrði á fót, m.a. um lagamál. FRETTIR HIK Ríkið vill fresta Ríkið samþykkir að greiða kennurum umsamda launahækkun 1. febrúar. Fjármálaráðuneytið með tilboð um óbreytta samninga HÍK till. september. Þá verði samið á grundvelli nýs launakerfis Indriði H. Þorláksson, formað- ur samninganefndar ríkisins, hefur tilkynnt HÍK að launafl- okkahækkun sú sem kennarar áttu að fá 1. febrúar samkvæmt síðustu samningum þeirra, komi til greiðslu 5. febrúar. Að sögn Ómars Árnasonar, varafor- manns HÍK, kemur greiðslan til framkvæmda á þeim forsendum að aðrir ríkisstarfsmenn fái launahækkun á þessum tíma sem sé þó ekki greidd í samræmi við 12. grein laga um kjarsamninga opinberra starfsmanna sem kenn- arar hafa viljað fá samþykkta af hálfu ríkisvaldsins, en ágreining- ur er um túlkun laganna. HÍK mun svara tilboði fjár- málaráðuneytisins á samninga- fundi á mánudag, en félagið hef- ur óskað eftir áliti lögfræðings á tilboði ráðuneytisins. Á samningafundi HÍK og fjár- málaráðuneytisins í síðustu viku lagði ráðuneytið fram tilboð til félagsins þess efnis að samningar héidust óbreyttir framt til 1. sept- ember að öðru leyti en því að sú áfangahækkun sem starfsmenn ríkis og bæja njóta á tímabilinu komi einnig til greiðslu hjá kenn- urum. Tilboðið felur í sér að starfskjaranefnd vinni að breyttu launakerfi kennara á tímabilinu, en 1. september verði samið á grundvelli þeirra breytinga til eins árs. Kennarar svara þessu til- boði 1. febrúar. Að sögn Ómars Árnasonar mun félagið leitast við að fá við- brögð félagsmanna við þessari til- lögu áður en henni verður svar- að. Sagði Ómar að þeir félags- menn sem nú þegar hefðu tjáð sig um tillöguna hefðu lýst yfir mikl- um vonbrigðum með frestun þá sem í henni fælist á uppstokkun launakerfisins. „Menn hafa bundið miklar vonir við starfs- kjaránefnd og því veldur tiilagan vonbrigðum,“ sagði Ómar, en starfskjaranefnd hefur þegar komið með tillögu um að kennsluskylda verði lækkuð um sem nemur 15%. Heimavinna kennara, sem hingað til hefur verið metin sérstaklega til launa, verður það ekki lengur sam- kvæmt tillögunni og kemur hún því til frádráttar í þessu dæmi. Heimavinnan er metin á bilinu 6-8%. Fulltrúaráð HÍK tekur ákvörð- un um allherjaratkvæðagreiðslu um verkfallsboðun og má vænta þess að það mál verði á dagskrá fulltrúaráðsfundar HÍK 5. febrú- ar nk. -K.Ól. Jólapoppgetraun Þjóöviljans reyndist mörgum erfið og þaö voru ekki allir sem náðu að hafa öll svör sín rétt. Heimir Pétursson úr Reykjavík var einn þeirra sem vissi réttu svörin og hlaut hann 1. verðlaun, geislaspilara af bestu tegund. Hér sést Ævar Örn Jósepsson, umsjónarmaður Heygarðs- hornsins, afhenda Heimi verðlaunin. (Mynd: Sig.) LÍN Fyrir dómstóla? Meirihluti Lánasjóðsins virðir úrskurð Lagastofnunar HI að vettugi. Námsmenn íhuga dómsmál |y| eirihluti stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna felldi á fimmtudag tillögu námsmanna um að farið verði að landslögum og hætt að draga meðlags- greiðslur frá við útborgun náms- lána til einstæðra foreldra. Námsmenn hafa harðlega mót- mælt þessum vinnubrögðum sjóðsstjórnar þar sem meðlag er lögum samkvæmt greiðsla til barna en ekki foreldra. Fyrr í vet- ur vísuðu námsmenn málinu til Lagastofnunar Háskólans sem tók undir túlkun námsmanna og segir vinnubrögð LÍN vera lög- brot. Menntamálaráðherra hefur beint þeim tilmælum til stjórnar- innar að hætt verði að draga með- lögin frá við endurskoðun úthlut- unarreglna fyrir næsta haust. - Við viljum fá leiðréttingu á þessum málum strax og einnig endurgreiðslur frá sl. hausti. Það nær engri átt að ætla að bíða með það að fara að lögum þar til næsta haust eins og ráðherra vill, segir Ólafur Darri Andrason, fulltrúi námsmanna í stjórn LÍN. Hann segir vel koma til greina að náms- menn fari með þetta mál fyrir dómstóla. -Jg- Við efnum til stórkostlegrar • • BOKAUTSOLU fró og með 30. janúar - 13. febrúar í verslun okkar að Síðumúla 11. Opið frá 9-18, nema 10-16 ó laugardögum. Laugardagur 30. janúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.