Þjóðviljinn - 02.02.1988, Page 1
Karfa
Tíu leikir
um helgina
Urvalsdeildin
Haukar-lBK.. 72-59
Valur-Þór 98-56
UMFG-UBK. 60-54
UMFN-KR .... 91-77
Staðan
UMFN .. 10 9 1 880-714 18
IBK ...972 711-561 14
Valur ..10 7 3 809-663 14
Haukar .. 10 6 4 724-672 12
KR .. 10 5 5 783-747 10
UMFG .. 10 5 5 706-720 10
(R ...9 3 6 594-689 6
Þór ..10 1 9 752-945 2
UBK ..10 1 9 534-782 2
1. deild karla
Reynir-Léttir. 56-51
ÍA-ÚMFS 83-76
IS-UlA 75-50
HSK-UlA 53-49
Staðan
UlA...........10 9 1 669-555 18
UMFT.......... 8 8 0 677-499 16
(S............ 7 5 2 447-398 10
Lóttir........ 9 4 5 579-614 8
HSK........... 8 3 5 508-512 6
ÍA........... 8 3 5 498-576 6
Reynir........ 9 2 7 502-623 4
UMFS.......... 9 0 9 582-675 0
1. deild kvenna
ÍBK-Haukar..............63-45
(R-KR...................57-43
Staðan
(R.........11 10 1 614-501 20
IBK...........10 7 3 580-454 14
(S............ 9 6 3 422-379 12
Haukar........10 4 6 515-524 8
UMFN..........10 3 7 370-418 6
UMFG......... 10 3 7 355-473 6
KR............10 2 8 418-525 4
-ste
Handbolti
Harka í Höllinni
Víkingur vann KR naumlega í
spennandi leik þegar Sigurður
Gunnarsson Víkingog Stefán
Kristjánsson KR gerðu samtals 21 mark
Það einkenndi leikinn hversu
harkan var mikil enda fengu leik-
menn að sjá gula spjaldið 5 sinn-
um og voru útaf í samtais 18 mín-
útur.
Leikurinn byrjaði jafnt og var
staðan þegar 7 mínútur voru bún-
ar 4-4. En þá fóru Víkingarnir að
taka leikinn í sínar hendur, ógn-
uðu meira í sókninni og voru
harðir í vörninni. Þeir komust í 5
marka forskot fljótlega og héldu
þeim mun til leikhlés. Stefán
Kristjánsson KR átti mjög falieg
mörk þegar hann stökk upp fyrir
utan varnarvegg Víkinga.
í síðari hálfleik var greinilegt
að vesturbæingarnir ætluðu sér
stig í þessum leik. Þeir byrjuðu af
hörku og brutu oft illa á Víking-
um án þess að dómararnir
dæmdu neitt. Einnig reyndu þeir
að setja “frakka“ á Sigurð Gunn-
arsson og á tímabili Siggeir
Magnússon líka en það tókst ekki
sem skildi. Var mikið fát og fum á
KR-ingum í sókninni, liðin skipt-
ust á að skora og var staðan þegar
20 mínútur voru búnar af síðari
háifleik 22-18. Þá virtust Víking-
arnir fara að slappa af og KR-
ingar gengu á lagið, skoruðu 2
mörk en Sigurður Gunnarsson
Víkingur svaraði því með 2 mörk-
um einnig, 24-20. KR gerði þá 3
mörk í röð en Kristján Sigmunds-
son varði vel og bjargaði Víking-
um frá jafntefli eða jafnvel tapi.
í liði Víkings bar mest á Sigurði
Gunnarssyni og virðist hann vera
að komast í form eftir frekar
daufan kafla. Kristján í markinu
var góður að venju og ver vel í
hverjum leik. Aðrir leikmenn
voru ágætir og var Einar góður í
vörninni. KR-liðið var frekar
jafnt, Stefán átti góð mörk og
Þorsteinn og Konráð voru góðir í
vörninni. Þeir fengu að komast
upp með mörg brot hjá dómurun-
um og virtust Víkingar vera með
handföng á búningum sínum sem
KR-ingar notuðu óspart.
Laugardalshöll 30. janúar
Víkingur-KR 24-23 (16-11)
Mörk Víkinga: Sigurður Gunn-
arsson 11 (2v), Bjarki Sigurðsson
4, Hilmar Sigurgíslasson 4, Guð-
mundur Guðmundsson 3, Karl
Þráinnsson 1 og Einar Jóhannes-
son 1.
Varið: Kristján Sigmundsson
14 skot (1v).
Útaf: Sigurður Ragnarsson 4
mín, Guðmundur Guðmundsson
2 mín og Einar Jóhannesson 2
mín.
Spjöld: Bjarki Sigurðsson gult
og Einar Jóhannesson gult.
Mörk KR: Stefán Kristjánsson
10 (4v), Guðmundur Albertsson
4, Sigurður Sverrisson 4, Konráð
Olavsson 3 og Ólafur Lárusson 2.
Varið: Gísli Felix Bjarnason 13
skot.
Útaf: Þorsteinn Guðjónsson 4
mín, Guðmundur Albertsson 2
mín, Sigurður Sverrisson 2 mln
og Guðmundur Pálsson 2 mín.
Spjöld: Þorsteinn Guðjónsson
gult, Konráð Olavsson gult og Jó-
hannes Stefánsson gult.
Dómarar: Guðjón Sigurðsson
og Hákon Sigurjónsson byrjuðu
vel en leyfðu síðan alltof mikla
hörku þegar leið á leikinn.
Maður leiksins: Sigurður
Gunnarsson Víking
-ste
Einar Ólafsson átti góðan leik. (mynd E.ÓI.)
Karfa
' ..mm
Yfirtwrðir Valsara
Pórskorti úthald ogfáttgekk upp. Vals-
menn spiluðu af krafti allan leikinn
Þór byrjaði leikinn vel og
skoraði Eiríkur Sigurðsson fall-
egar þriggja stiga körfur í byrjun
leiksins. En fljótlega fóru þeir að
dala. Leikkerfin voru strax brotin
niður fyrir þeim af snöggum
Völsurum og sendingar þeirra
voru ansi ónákvæmar. Valsmenn
aftur á móti spiluðu vel og greini-
legur munur á liðunum kom í
ljós. Þó var jafn framanaf 15-14
og 18-16 en þá tóku Valsmenn
leikinn í sínar hendur, skoruðu
hvert stigið á fætur öðru og var
staðan fljótlega 24-16, 36-24 og í
leikhléi 49-28.
í síðari hálfleik endurtók sagan
sig. Þórsarar byrjuðu vel en gátu
ekki haldið dampi. En Valsmenn
héldu áfram fyrri iðju, gerðu
hverja körfuna á fætur annarri og
juku muninn í 55-30,65-34,73-39
og 86-46. Þegar leið á leikinn
tóku Þórsarar við sér um tíma en
það dugði ekki til. Undir lokin
var þetta orðin svotil einstefna á
körfu gestanna og reyndu Vals-
menn allt hvað þeir gátu til að
rjúfa 100 stiga múrinn. Þrátt fyrir
góðar tilraunir tókst það þó ekki.
Bestu menn í liði Vals ungu
mennirnir Svali Björgvinsson,
Tómas Holton og Einar Ólafs-
son. Leifur Gústafsson gerði
góða hluti undir körfunni. í
Þórsliðinu bar langmest á Kon-
ráði Óskarssyni en aðrir ágætir
voru Einar Karlsson sem barðist
vel og Eiríkur Sigurðsson sem
skoraði flest stig þeirra í byrjun
en þreyttist fljótlega og fór loks
útaf.
Dómarar voru þeir Jóhann
Dagur Björnsson og Jón Otti Ól-
afsson og dæmdu þeir alveg
prýðilega. Áhorfendur voru því
miður fáir til að sjá Valsmenn
taka góðar rispur.
Maður leiksins var Konráð
Óskarsson sem var potturinn og
pannan í leik Þórsara.
Hlíðarendi 31. janúar -ste
Valur-Þór 98-56 (49-28)
Umsjón: Ingibjörg Hinriksdóttir/Stefán Stefánsson
Þrlðjudagur 2. febrúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9