Þjóðviljinn - 06.02.1988, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 06.02.1988, Blaðsíða 2
FRÉTTIR Ullariðnaðunnn r SPURNINGIN Óttast þú að aðgerðir Greenpeace muni skaða fiskútflutning okkar? Sævar Guðmundsson, húsasmiður Nei, ég trúi því ekki að fólk taki mark á svona vitleysu. Birgir Ingvason, bílstjóri Já, ég óttast það. Við eigum samt að standa á okkar skoðun í þessu máli. Guðmundur Jóhannsson, bifreiðastjóri Já, ég hef grun um það. Lárus Hannesson, húsasmiður Já, áþyggilega. Ragnheiður Guðmunds- dóttir, húsmóðir Já, það geri ég. Við eigum endilega að hætta þessum hval- veiðum. Fátt nýtt á prjónunum Friðrik Sophusson boðar skuldbreytingar og að sveitarfélögfelli niður aðstöðugjöld áfyrirtœkjum í ullariðnaði. Hjörleifi Guttormssyni fannst þetta lélegar björgunaraðgerðir í atvinnugrein sem hefur sagt upp 500 manns Undanfarin tvö til þrjú ár hafa 500 til 600 starfsmenn í uilar- iðnaði misst atvinnu sína, þar af um helmingur vegna þess að fjórtán fyrirtæki hafa lagt upp laupana. Hjörleifur Guttormsson spurði því iðnaðarráðherra til hvaða aðgerða stjórnvöld ætluðu að grípa til að bæta rekstrarstöðu iðnaðarins. Friðrík Sophusson sagði veiga- mestu ástæðu siæmrar afkomu í ullariðnaði vera innlendar kostn- aðarhækkanir einsog laun og hrá- efni. Hann sagði að horfur í greininni væru betri nú í upphafi árs en í nóvember sl., fyrst og fremst vegna þess að útflytjendur hafa í undirbúningi verulegar verðhækkanir á ullarvörum. Þannig mun Álafoss ætla að hækka vöru sína um 20-40%. Á sl. ári stóðu íslenskar ullarvörur í stað eða beinlínis lækkuðu í verði á vestrænum mörkuðum meðan sambærilegar vörur frá öðrum löndum hækkuðu. Ráðherra kvaðst ætla að beita sér fyrir nokkrum aðgerðum á næstunni, t.d. hafi hann farið fram á við viðskiptabanka, Byggðasjóð og lánasjóð iðnaðar- ins að þeir skuldbreyttu lánum einsog hægt væri. Einnig að sveitarfélög felldu niður aðstöðu- gjöld á ullarfyrirtæki. í þriðja lagi að tekin yrði upp endurgreiðsla á söluskatti til erlendra ferða- manna við brottför héðan. í fjórða lagi að safnað yrði upplýs- ingum um skuldastöðu fyrirtækja í ullariðnaði við ríkissjóð og kannað hvort hægt væri að skuldbreyta opinberum gjöldum fyrirtækjanna. f>á benti hann á starfsþjálfun í fataiðnaði og að smærri framleiðendur hefðu kynnt ráðuneytinu hugmyndir um að efla enn frekar sölustarf- semi erlendis og hefði umsjónar- mönnum Iðnlánasjóðs og Iðn- þróunarsjóðs verið falið að gera úttekt á rekstrarmöguleikum minni fyrirtækja í greininni. Pá hótaði ráðherra því að fækkað yrði í starfsliði sovéska sendiráðsins ef Sovétmenn gerðu ekki samninga okkur að skapi við íslenska ullarframleiðendur. Hjörleifur taldi þetta ekki stór- mannlegar björgunaraðgerðir og benti á að nú ætti að biðja sveitarfélögin að falla frá að- stöðugjöldum en nokkrar vikur væru síðan ríkisstjórnin hefði sett 1% launaskatt á ullarfyrirtækin. Taldi Hjörleifur þýðingarmikið að þessum fyrirtækjum yrði gef- inn kostur á áhættulánum að vel athuguðu máli. -Sáf Umferðarmiðstöðin Sýning á fombílum Bifreiðastöð íslands og Forn- bílaklúbburinn hafa tekið hönd- um saman um reglulegar sýning- ar á gömlum bilum á Umferðar- miðstöðinni. Þrátt fyrir að fjöldi fornbfla sé til hérlendis er ekkert bflasafn til. Bflasýningarnar í Umferðarmið- stöðinni eru fyrsti vísir að bflas- afni en ætlunin er að skipta mán- aðarlega um sýningarbfl. Fyrsti bflinn sem er til sýnis er Ford Model A „Nýi Ford“ árgerð 1929, en hann er í eigu Rúdolfs Kristinssonar, formanns Forn- bflaklúbbsins. Nýi Ford á sýningarpalli á Umferðarmiðstöðinni. Það er örn Sigurðsson markaðsstjóri stöðvarinnar sem stendur hjá bílnum. Mynd-Sig. Ráðstefna Konur í stjómunarstörfum sérstakur gestur ráðstefnunnar hjá starfsmannahaldi norska verður Arnny Floden sem starfar ríkisins. -Ig. Landsbókasafnið Handrit Sverris afhent Bandalag háskólamanna og Endurmenntunarnefnd Há- skólans efna í dag kl. 13.30 til ráð- stefnu í Norræna húsinu sem ber yfírskriftina: Konur í stjórnunar- störfum - Hvernig aukum við hlut þeirra? Ásdís Rafnar formaður Jafnréttisráðs fjallar um hlut kvenna í stjórnarstörfum hér- lendis, Hörður Sigurgestsson for- stjóri Eimskips ræðir stöðu þess- ara mála hjá einkafyrirtækjum og Lára V. Júlíusdóttir aðstoðar- maður félagsmálaráðherra skýrir áform stjómvalda um úrbætur. Þá verður fjallað um ýms nám- skeið sem standa konum til boða varðandi rekstur og stjórnun en Asunnudaginn eru rétt 80 ár liðin frá fæðingu Sverris Kristjánssonar sagnfræðings en hann féll frá í febrúar árið 1976. Af þessu tilefni hefur ekkja Sverr- is, Guðmunda Elíasdóttir söng- kona, afhent handritadeild Landsbókasafnsins ýmis handrit hans til varðveislu. Sverrir var lengi tíður gestur í Safnahúsinu en hann var einmitt staddur í því húsi er hann varð bráðkvaddur. Fyrir var í vörslu Landsbókasafnsins skrá Sverris um bréf íslendinga, varðveitt í dönskum söfnum, sem hefur reynst mörgum hið þarfasta hjálpargagn. -Ig. Rótin Bæjaimál í Hafnarfirði og Kópavogi Á mánudags- og þriðjudags- kvöld í næstu viku verður fjallað um bæjarmálefni í Hafnarfirði og Kópavogi í þáttum Alþýðubanda- lagsins í útvarpi Rót. Bæjarfulltrúar Alþýðubanda- lagsins í þessum kaupstöðum sitja fyrir svörum og ræða fram- kvæmdir og önnur helstu verk- efni sveitarfélaganna. Þátturinn um Kópavog verður á mánudags- kvöld kl. 22.30 og um Hafnar- fjörð á sama tíma á þriðjudags- kvöldið. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 6. febrúar 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.