Þjóðviljinn - 06.02.1988, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 06.02.1988, Qupperneq 11
ALÞÝDUBANPAIAGK) Alþýðubandalagið Hafnarfirði Bæjarmálaráð Fundur í bæjarmálaráði, laugardaginn 6. febrúar kl. 10-12 í Skálanum, Strandgötu 41. 1) Umræða um stöðu bæjarmála og helstu verkefni framundan. 2) Undirbúningur fyrir afmælishátíð, blaðaútgáfa og fleira. Fólagar eru hvattir til að mæta stundvíslega. Formaður Alþýðubandalagið Byggðamenn Alþýðubandalagsins Boðað er til þings sveitarstjórnarmanna í Þinghóli í Kópavogi 6. og 7. febrúar nk. Fundurinn hefst kl. 13.00 þann 6. febrúar og er takmarkið að honum Ijúki síðdegis á sunnudeginum. Eftirtaldir málaflokkar verða teknir til umræðu: 1) Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga. 2) Hugmyndir Alþýðubandalagsins um breytingar í stjórnkerfinu. 3) Starf Byggðamanna næstu misseri. Sveitarstjórnarmenn og aðrir áhugamenn innan Alþýðubandalagsins um sveitarstjórnarmál eru beðnir að láta vita sem fyrst um þátttöku á skrifstofu AB, Hverfisgötu 105. Stjórnin Alþýðubandalagið Kópavogi Morgunkaffi ABK Valþór Hlöðversson bæjarfulltrúi og Unnur Björnsdóttir fulltrúi í Tóm- stundaráði verða með heitt á könnunni í Þinghóli, Hamraborg 11, laugar- daginn 6.I febrúar frá kl. 10-12. Allir velkomnir. Stjórnin Alþýðubandalagið í Reykjavík Spilakvöld næstkomandi þriðjudagskvöld 9. febrúar kl. 20.00 að Hverfisgötu 105. Gestur kvöldsins: Kristín Á. Ólafsdóttir segir frá fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar. ABR Alþýðubandalagið Kópavogi Spilakvöld í Kópavogi Efnt verður til þriggja kvölda spilakeppni í Þinghóli, Hamraborg 11. Spilað verður annan hvern mánudag, 8. og 22. febrúar og 7. rrr Byrjað verður að spila öll kvöldin kl. 20.30. Góð kvöld- og heildarve. m í boði. Mætið tímanlega. Allir velkomnir. Stjórn AJK Alþýðubandalagið Reykjavík Félagsfundur Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 11. febrúar að Hverfisgötu 105 kl. 20.30. Fundarefni: ísland og bandalögin - er endurskoðunar þörf? Utanríkismálin og tengsl íslands við NATÓ og EB rædd í víðu samhengi. Nánar auglýst síðar. Stjórn ABR ^RARIK RAFMAGNSVEITUR RlKISINS Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftirtilboöum í eftir- farandi: RARIK-88004: Einfasa dreifispennar, 25-40 kVA. Opnunardagur: Fimmtudagur 10. mars 1988, kl. 14.00. RARIK-88005: Þrífasa dreifispennar, 31,5-1250 kVA. Opnunardagur: Fimmtudagur 17. mars 1988, kl. 14.00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyriropn- unartíma og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns- veitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, frá og með þriðjudegi 9. febrúar 1988 og kosta kr. 200.- hvert eintak. Reykjavík 4. febrúar 1988 RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Takið eftir Vanur sölumaður óskast til afleysinga á auglýs- ingadeild Þjóðviljans í ca. 3 mánuði. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. þiómnuiNN ERLENDAR FRÉTTIR Erich Honecker hinn austurþýski ávarpar þegna sína í tilefni 25 ára afmælis „frelsismúrsins" í Austur-Beriín. Austur-Evrópa Ovissa um mannréttindi Hvarvetna austantjalds togast gamlingjar og ungtyrkir á um glasnost og perestrojku Fyrir þá 200 austurþýsku frið- arsinna sem handteknir voru í fyrra mánuði er þeir reyndu að skáskjóta sér inní opinhera skrúðgöngu er glastnost Gorbat- sjovs sovétleiðtoga lítið annað en hin nýja Jerúsalem annars heims. Tékkneskir ráðamenn brosa feimnislega þegar glasnost ber á góma og gera hikandi og með semingi tilraunir með pínulitla perestrojku í efnahagslífi. En óhikað siga þeir hundum sínum á félaga andófshópsins Carta-77. Pólitískt andrúmsloft er ekki jafn fúlt í Póllandi um þessar mundir og það hefur lengst af verið frá því herinn batt enda á lýðræðisþróunina þar þann 13.desember árið 1981. Engu að síður eru stjórnvöld á varðbergi og Iáta enga óþektaranga komast upp með múður. Petta kom glögglega í ljós fyrir nokkrum dögum þegar hópur fólks hugðist hafa í frammi mótmæli gegn mannréttindabrotum stjórnvalda í Búkarest. Mannsskapurinn hafði vart tekið sér stöðu utan rúmönsku sendiráðsbyggingar- innar í Varsjá þegar „öryggis- sveitir“ höfðu dreift honum og haft forsprakkana á brott með sér. Rúmenskur almenningur er ekki öfundsverður af því að lúta „leiðsögn“ Nikolais Ceausescus. Efnahagur landsins er í kaldakoli og matur af skornum skammti. Leiðtogum verkamanna sem efndu til mótmæla gegn nauðsynjaskorti í nóvember síð- astliðnum var umsvifalaust stungið í svartholið og hafa þeir dúsað þar síðan. Ceausescu er eini valdsherrann í Austur- Evrópu sem hefur lýst því yfir á opinberum vettvangi að ekki ger- ist þörf fyrir glasnost og perest- rojku í landi sínu. Ástæðan er ósköp einföld. Þau glasnost og perestrojka hafa verið við lýði um tveggja áratuga skeið í Rúm- eníu og þurfa aðeins á örlítilli andlitslyftingu að halda. En þrátt fyrir þetta eru ýms teikn á lofti um að umbótasinn- um sé að vaxa fiskur um hrygg í ráðaflokkum „bræðraríkja" So- vétríkjanna. Ymsir stjórnmála- skýrenda halda því fram að nú sé millibilsástand þar eystra því gamlir brésnefistar og yngri glasnistar togist á um völdin og framtíðarstefnumótun. Hinir fyrrnefndu óttist að allt fari í háa- loft verði slakað örlítið á klónni en þeir síðarnefndu sjái ekki aðra færa leið útúr sjálfheldu efna- hagskreppunnar. Þessi kenning skýrir í öllu falli þversagnarfullt athæfi ráða- manna sumra þessara ríkja. Á meðan einn er læstur inni fyrir fundarstúss er annar látinn ó- áreittur fyrir sömu sakir. Þeir sem gerst þekkja til eru fullvissir um að Kremlverjar reyni ekki að beita bandamenn sína þvingunum af neinu tagi til þess að þeir efni til umbóta og málfrelsis. Ráðamenn í Moskvu láti þá fara sfnu fram svo fremi þeir standi við efnahagslegar, pólitískar og hernaðarlegar skuldbindingar sínar við Sovét- ríkin. Enda virðast umbótasinnar í Kommúnistaflokki Sovétríkj- anna, undir forystu sjálfs aðal- ritarans, eiga fullt í fangi með að fá vilja sínum framgengt á heimaslóðum. Á stundum er engu líkara en að fyrir hvert skref framávið sé tekið eitt til baka. Til dæmis má nefna að á síðasta ári var um 200 pólitískum föngum veitt frelsi og útflytjendum, eink- um gyðingum, fjölgaði áttfalt. Engu að síður dúsa enn fjölmarg- ir andófsmenn á bak við lás og slá og fólki er meinað um vegabréfs- áritun. Engin skynsamleg rök sjást fyrir því að einum sé veitt það sem náungann verður enn um sinn að dreyma um. Andófs- menn á geðveikrahælum virðast ekki sjá fram á opna gátt í bráð og enn varðar við hegningarlög að uppfræða menn um trúmál utan veggja heimilanna. I fyrri viku sótti alþjóðleg mannréttindanefnd Moskvu heim. Fulltrúum var tekið með kostum og kynjum og fengu þeir óáreittir að ræða við fulltrúa ráðamanna, andófsmanna og fé- laga ýmissa óopinberra samtaka. Þegar þorri gestanna hélt heim á ný urðu tveir eftir. Þeir hóuðu saman nokkrum andófsmönnum en ekki höfðu þeir setið lengi að hljóðskrafi í einkahýbýlum þegar lögregluþjónar í jakkafötum ruddust inn og hleyptu upp sam- kundunni. Reuter/-ks. Laugardagur 6. febrúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.