Þjóðviljinn - 07.02.1988, Blaðsíða 18
KROSSGÁTA
Nr. 203
BRIDGE
s Z 3 5' Z W T— 9 )0 2 W )l
*L 1Z ? J3 V ;</ 7 IS Uo k> 93 17 18 (o
"b Ý )Z ;9 ;9 1* V 20 8 21 ;9 ;9 T~ (o V
23 23 Z'l JÍ Jlo V 7 8 H z 7 2Ý n
9 zs y u, )¥■ )3 2J V 2V Hsr y V? H
/3 )(? ZÉ w w 30 T U 13 ‘l¥ rt b 99 22
Zá> b w 19 T 22 7 W %> b 7 4 20
'(o 30 h V- 28 V c? 2</ 30 d 31 27 Ib 7 2
U- V 8 3 2¥ 22 V ¥ 7 20 8 lo 2l> T
h ih 7 zz 31 ? 27 V ;9 7 ;9 )(? V~ 2?
Y 31 ;9 !C> 7- 7“ 17 2¥- 2¥ h % b
)h /9 ? V (x> Uo 2? 27 (o 2H- W~ F> 13
ZZ T~ 2¥ z? TT tr~ II U ih 2<e 7 II
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá alþekkt örnefni. Sendið
þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík,
merkt: „Krossgátanr. 203“. Skilafresturerþrjárvikur. Verðlaunin verða sendtil
vinningshafa.
26 31 21 )8 (o 2H- 20 17 8 7
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lárótt eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá aö finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Ása Hafliðadóttir, Rauðholti á Egils-
stöðum hlaut verðlaunin fyrir
krossgátu númer 600. Lykilorð henn-
ar var Goðheimar. Hún fær sent
Ijóðasafn Sjóns, Maðurinn með rönt-
genaugun.
Verðlaunin fyrir krossgátuna að
þessu sinni er bókin Blaðið okkar,
þættir úr sögu Þjóðviljans, sem Árni
Bergmann tók saman.
Brídgehótið
um nœstu helgi
Bridgehátíð 1988 verður á
Hótel Loftleiðum um næstu
helgi. Hátíðin hefst með tví-
menningskeppni næsta föstudag
með þátttöku 48 para. Meðal
keppenda verða heimsfrægir spil-
arar, einsog Zia Mahmoud frá
Pakistan, einn litnkasti spilari
heimsins í dag, Alan Sontag
heimsmeistari frá USA, George
Mittelmann heimsmeistari í para-
keppni, sænska Evrópuliðið sem
sigraði svo eftirminnilega í Brig-
hton í fyrrasumar og atvinnu-
mennirnir Ron Smith og Ron
Cokin frá USA og hjónin Matt og
Pam Granovetter (sem einnig
komu hingað í fyrra með Alan
Sontag) frá USA og loks Mike
Molson frá Kanada, sem margoft
hefur komið hingað áður á Bri-
dgehátíð.
Tvímenningskeppninni lýkur
um kl. 18 á laugardeginum en á
sunnudeginum kl. 13 hefst svo
Opna Flugleiðamótið, sem er
sveitakeppni með um 40 sveita
þátttöku. Hátíðinni lýkur síðan
með verðlaunaafhendingu á
mánudagskvöldinu.
Leikir í Flugleiðamótinu verða
sýndir á sýningartöflu fyrir áhorf-
endur og reynt verður að skapa
góða aðstöðu almennt í öllu mót-
inu, fyrir áhorfendur.
Vilhjálmur Þ. Pálsson og Krist-
ján Már Gunnarsson urðu Suður-
landsmeistarar f tvímenning
1988, á móti sem haldið var á
Flúðum um síðustu helgi. 24 pör
tóku þátt í mótinu.
vestra í tvímenning verður spilað
á Sauðárkróki laugardaginn 5.
mars n.k. Spilaður verður baro-
meter.
Úrtökumót fyrir íslandsmótið í
sveitakeppni á Vestfjörðum, er
spilað á Tálknafirði um þessa
helgi. 8 sveitir spila um réttinn,
en svæðið á 2 sveitir til íslands-
móts.
Meistarastigaskránni verður
dreift til allra félaga innan BSÍ í
næstu viku. í skránni eru á fjórða
þúsund nöfn spilara, sem hlotið
hafa stig í keppnum hér á landi
frá 1. mars 1976 til 1. j anúar 1988.
Minnt er á skráninguna í fs-
landsmót kvenna/yngri spilara í
sveitakeppni, sem spilað verður í
Sigtúni 9, helgina 20.-21. febrúar
n.k. Skráð er á skrifstofu BSÍ.
ÓLAFUR
LÁRUSSON
Bridgefélag Hafnfirðinga held-
ur til Danmerkur í keppnisferð,
helgina 25. mars. Farið verður til
vinabæjar þeirra Gaflara, sem er
Fredriksberg í Danmörku. Milli
20-30 spilarar eru skráðir í ferð-
ina. Gott framtak hjá stjórn B.H.
Frmaður er Einar Sigurðsson.
Bridgefélag Menntaskólans á
Laugarvatni heldur Opið stórmót
í tvímenning laugardaginn 5.
mars. Afar glæsileg verðlaun
m.a. kr. 40.000 í 1. verðlaun.
Vakin er athygli á að aðeins er
skráð í mótið á skrifstofu BSÍ og
þátttaka takmörkuð við 32-40
pör. Spilað um silfurstig og eftir
barometer-fyrirkomulagi.
Enn er hægt að sækja um þátt-
töku í Opna Flugleiðamótið,
sveitakeppnina. Sl. fimmtudag
voru 37 sveitir skráðar til leiks, en
gert er ráð fyrir að hámark 40
sveitir spili í mótinu (vegna
þrengsla á Loftleiðum). Skráð er
á skrifstofu BSÍ.
Bræðurnir Ásgrímur og Jón
Sigurbjörnssynir frá Siglufirði,
sigruðu Sambandstvímenning-
inn, sem spilaður var á Akureyri
um síðustu helgi. Mjög góð þátt-
taka var í keppninni, yfir 30 pör.
Meistaramót Norðurlands
Borgarstarfsmenn í Reykjavík
munu halda bridgemót í dag, að
Grettisgötu 89. Ollu spilaáhuga-
fólki (á vegum borgarinnar) er
heimil þátttaka. Spilamennskan
mun hefjast kl. 13.03. Bridge-
sambandið mun annast uppsetn-
ingu og framkvæmd.
FJOLMIÐLAPISTILL
Skákfréttir og aðrar frétiir
Skákfylleríið sem verið hefur á
íslenskum fjölmiðlum undanfarið
hefur vakið með mér þær hug-
renningar hversu mismunandi
þær kröfur eru sem almenningur
gerirtil fjölmiöla. Á flestum svið-
um blaðamennsku eru gerðar
kröfur um að blaðamenn sýni
hlutlægni og séu ekki um of litaðir
af einhverjum hagsmunum, hvort
sem þeir verða kenndir við þjóð-
arhag, flokkshollustu eða beina
fjárhagslega hagsmunagæslu.
En þegar fréttir snúast um
skák er annað uppi á teningnum.
Þá geta kaldbrynjaðir frétta-
haukar leyft sér að fá útás fyrir
alls konartilfinningar: Þjóð-
rembu, almenna reiði og þörf fyrir
sjálfsupphafningu (í nafni skák-
þjóðarinnar, vitanlega). Þetta
hefur orðið æ augljósara eftir að
okkar manni við skákborðið á Ný-
fundnalandi fór að sækjast miður
gegn hinum landlausa Kortsnoj.
Ekki eru ýkja mörg ár síðan
Viktor þessi átti hug og hjörtu ís-
lenskra skákunnenda, að ég ekki
tali um skákfréttamanna. Þá átti
hann í langvinnri glímu við
stjórnvöld í landi sínu, Sovétríkj-
unum, og fór hún ýmist f ram á
vettvangi samtaka skákmanna
eða á taflborðinu í frægum ein-
vígum hans og Karpovs. Sjálfur
Friðrik Ólafsson beitti sér fyrir því
að Viktor næði sínu f ram gegn
stórveldinu og varð vel ágengt.
En nú hafa vinsældir Kortsnojs
dalað. Hann sýndi Friðrik van-
þakklæti (sumir segja að hann
hafi kunnað Friðriki litla þökkfyrir
að ná eiginkonunni vestur yfir) og
nú bítur hann höfuðið af skömm-
inni með því að vera ókurteis og
ruddalegur við íslenska þjóðar-
dýrlinginn. Og íslenskirskák-
fréttamenn taka undir, já kynda
undir réttlátri og heilagri reiði (s-
lendinga í garð þessa lúsablesa
sem ætlar með fantabrögðum og
fólsku að hafa hann Jóhann okk-
ar undir. Eins og hann Jói á það
skilið að vinna.
ÞRÖSTUR
HARALDSSON
Hræddur er ég um að tilfinn-
ingasemi í þessum styrkleika-
flokki (svo ég noti skákmál sem
er svo vinsælt þessa dagana)
þætti heldur óviðeigandi á ýms-
um öðrum sviðum þjóðlífsins. En
ekki í skák eða handbolta. Nei,
þar er Halli Hallssyni óhætt að
beraokkurþau „voveiflegu" tíð-
indi að Jóhann hafi tapað.
Einhvern tíma heyrði ég þá
skýringu að íþróttirnar væru það
svið mannlífsins þar sem karl-
menn gætu fengið tilfinningalega
útrás án þess að sýnast minni
karimennfyrirvikið. Þaðþykir
ekkert tiltökumál að stórvaxin
vöðvaknippi og hetjur knatt-
spyrnuvallanna faðmist af innlif-
un, slái hver annan nett á boss-
ann eða reki upp óskýranleg
hljóð; sýni meö öðrum orðum
hegðun sem þykir afar óvið-
eigandi á vinnustað og jafnvel á
skemmtistöðum.
Og í rökréttu framhaldi af þess-
ari skýringu hlýtur fréttaflutningur
af íþróttaviðburðum að lúta öðr-
um lögmálum en annarfrétta-
flutningur. Einhversagði að
íþróttafréttirværu karlmönnum
það sama og dönsku blöðin kon-
unum. Á íþróttasíðunum við-
gengstmikil hetjudýrkun, þareru
sagðarslúðursögur, menn velta
sér af mikilli mærð upp úr slysa-
bálkum afreksmanna og eru ým-
ist grátandi eða hlægjandi af
þjóðlegheitum.
Ekki veit ég af hverju það eren
mér virðist íslenskir blaðamenn
hafa meiri þörf en blaðamenn
annarra þjóða fyrir að beita að-
ferðum íþróttamennskunnará
öðrumsviðum. Eðaernokkur
munur á því hvernig farið er með
Kortsnoj núna og hvemig rætt er
um Patul Watson, Greenpeace-
hyskið og þetta dót sem vill ekki
leyfaokkur(les: Kristjáni Lofts-
syni) að veiða hvali eins og okkur
sýnist?
18 SfÐA — ÞJÖÐVILJiNN Sunnudagur 7. febrúar 1988