Þjóðviljinn - 09.02.1988, Síða 1
________________Þriðjudagur 9. febrúar 1988 31. tölublað 53. árgangur
Hafnarverkamenn
Yfirvinnubann í Sundahöfn
Við náum engum samningum nema því aðeins að við förum í hart, sögðu hafnarverkamenn m.a. við Þjóðviljann i gær. Mynd. E.Ol.
Kjarnorkukafbátar
Karpov
Verkamenn hœttu störfum kl. 17 ígœr. Almenn samstaöa um aðgerðir
„Það er alveg á hreinu að við
náum engum samningum nema
því aðeins að við förum í hart.
Það lifir enginn á núverandi
kaupi og eins og málin standa í
dag sé ég ekki annað en að verk-
fall blasi við á næstunni, ef ekkert
fer að gerast í samningamálun-
um,“ sagði Jón Þór Önundarson,
hafnarverkamaður við Þjóðvilj-
ann í gær.
Með þessum aðgerðum sínum
vilja hafnarverkamennirnir sýna
vinnuveitendum það svart á hvítu
að þolinmæði þeirra sé senn á
þrotum, og ef ekki verður samið
um raunhæfa samninga von
bráðar, má allt eins búast við
frekari aðgerðum, áður en langt
um líður.
r
Igær hófst vakta- og yfirvinnu-
bann meðal hafnarverka-
manna í Dagsbrún sem vinna hjá
Eimskip við Sundahöfn. Þar
vinna rúmlega 200 verkamenn,
og samkvæmt viðtölum Þjóðvilj-
ans við verkamenn í gær, er mikil
samstaða meðal þeirra um þessar
aðgerðir og sögðust þeir allir
hætta vinnu kl. 17.00
það var ekki annað að heyra á
hafnarverkamönnum í gær að til
þess að ná raunhæfum samning-
um yrðu menn að keyra á hörku-
nni; annað þýddi ekki að bjóða
•vinnuveitendum. -grh
Sjá viðtöl á bls. 5
Á fimmtudag verður félags-
fundur hjá Dagsbrún og verður
þar farið fram á verkfallsheimild
til handa stjórn og trúnaðar-
mannaráði. Þá verður einnig á
fundinum gerð grein fyrir þeim
samningaviðræðum sem farið
hafa fram. Án efa verður einnig
rætt um til hvaða aðgerða beri að
grípa ef samkomulagsvilji vinnu-
veitenda fer ekki að liðkast. En
Erfitt að fá upplýsingar
Steingrímur Hermannsson: Það liggja ekkifyrir neinar
upplýsingar umferðir kjarnorkuknúinna kafbáta og skipa
um íslensk hafsvœði
„Það liggja ekki fyrir neinar
upplýsingar um ferðir kjarnork-
uknúinna kafbáta og herskipa um
íslenskt hafsvæði,“ sagði
Steingrímur Hermannsson utan-
ríkisráðherra í umræðu um þing-
sályktunartillögu Hjörleifs Gutt-
ormssonar og fleiri, um að Al-
þingi mótmæli stækkun kjarn-
orkuendurvinnslustöðvarinnar í
Dounreay.
Steingrímur sagðist hafa farið
fram á slíkar upplýsingar en það
gengi ákaflega illa að fá þær.
Hann sagði einnig að þeir sem
Hvalveiðar
Grænfriðungar á Islandsmið
Skipfrá Grænfriðungum tilíslands ísumar verði hvalveiðum haldið áfram. Vilja
íslendinga íáhöfnina. Halldór Ásgrímsson rœðir við bandarískstjórnvöld
Grænfriðungar erustaðráðnir í
að senda skip á íslandsmið í
sumar verði hvalveiðum haldið
áfram. Samkvæmt heimildum
Þjóðviljans skýrðu fulltrúar
Grænfriðunga, sem staddir voru
hér á landi fyrir skömmu, fé-
lögum úr hópi íslenskra hvalavina
frá þessari ákvörðun samtak-
anna.
Að sögn hvalavina verður Sírí-
us - núverandi flaggskip samtak-
anna - að öllum líkindum valinn
til íslandsfararinnar og hafa
Grænfriðungar hug á að fá tvo til
þrjá íslendinga í áhöfn skipsins í
sumar.
Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, er um þessar
mundir staddur vestur í Washing-
ton, þar sem hann á viðræður við
bandarísk stjórnvöld um starfs-
hætti vísindanefndar Alþjóða-
hvalveiðiráðsins. -rk
hann hefði rætt þetta við hefðu
gert lítið úr hættu á slysum vegna
þessara skipa, en hinsvegar sagð-
ist hann draga mjög í efa áreiðan-
leika þeirra upplýsinga.
Það var Árni Gunnarsson sem
fjallaði almennt um mengun í
Norðurhöfum í umræðu um til-
löguna, en hann var einn með-
flutningsmanna Hjörleifs. Sagð-
ist hann hafa það eítir skipherra
að slík slys gætu vel átt sér stað og
sagðist Steingrímur trúa skip-
herranum betur en herforingjun-
um.
Steingrímur J. Sigfússon benti
á að fyrir Alþingi lægi frumvarp
vegna flutninga kjarnorkuvopna
og umferðar kjarnorkuknúinna
skipa um íslensk hafsvæði, sem
Alþýðubandalagið flytti.
Tillagan um mótmæli við Do-
unreay var svo samþykkt með 40
samhljóða atkvæðum. _Sáf
Hlakkar til
Anatolí Karpov:
Störkostlegur sigur
Jóhanns í St. John
Anatolí Karpov, heimsmeistari
í skák um tíu ára skeið og næsti
mótherji Jóhanns Hjartarsonar í
áskorendaeinvígjunum, segir að
það sé sér gleðiefni að mæta hin-
um unga íslenska skákmeistara.
Fyrir bænarstað Þjóðviijans
hafði APN-fréttastofan í Reykja-
vík samband við Karpov í gær.
Hann bað fyrir innilegar ham-
ingjuóskir til Jóhanns Hjartar-
sonar í tilefni af hinum stórkost-
lega sigri í St. John í Kanada, og
einnig í tilefni af 25 ára afmælinu.
Óskar heimsmeistarinn fyrrver-
andi Jóhanni áframhaldandi sigra
í skákíþróttinni og velfarnaðar í
einkalífi.
Við þetta tækifæri bað Karpov
einnig fyrir bestu kveðjur og
heillaóskir til íslensku þjóðarinn-
ar, en hún væri kunn öllum sem
hefðu áhuga á skáklistinni.
HS
Meira um skák
á bls. 3