Þjóðviljinn - 13.02.1988, Qupperneq 1
Laugardagur 13. febrúar 1988 35. tölublað 53. árgangur
Ráðhúsið
Aætlunin hvellsprungin
Áœtlun umfyrsta áfanga 250 miljónir - lægsta tilboðið 450 milljónir.
Tilboðum haldið leyndum, reyntað lœkka upphœðir verktakanna.
Þórður Þorbjarnarson: Viljum vinnufrið til að ræða við verktaka.
Tölur lagðarfram í borgarráði á þriðjudag
Allt bendir til þess að bygging
ráðhússins í Tjörninni verði
mun dýrari en borgaryfirvöld
hafa viljað halda fram til þessa.
Tilboð í 1. áfanga ráðhússins sem
opnuð voru í síðustu viku janúar
voru mun hærri en kostnaðar-
áætlun gerði ráð fyrir og hefur
þcim tölum verið haldið vandlega
leyndum meðan embættismenn
borgarinnar hafa átt í stöðugum
viðræðum við tilboðsgjafa um
endurskoðun á tilboðum.
Kostnaðaráætlun við 1. áfanga
sem er m.a. bergþétting, upp-
steypa á bílakjallara og plötu ráð-
hússins var um 250 miljónir en
samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum Þjóðviljans var lægsta til-
boð í þennan áfanga um 450 milj-
ónir en hæsta tilboðið af þremur í
lokuðu útboði hljóðaði uppá 540
miljónir. Lægsta tilboðið kom frá
Ellert Skúlasyni verktaka en Ha-
gvirki átti hæsta tilboðið. Þriðja
fyrirtækið sem bauð í verkið var
fstak. Öll þessi fyrirtæki eru með
erlendan samstarfsaðila.
Það var Almenna verkfræði-
skrifstofan hf. sem sá um gerð
útboðsgagna en Svavar Jónatans-
son framkvæmdastjóri stofunnar
vísaði öllum upplýsingum um
framkomin tilboð til embættis
borgarverkfræðings. - Við höf-
um ætlað okkur góðan vinnufrið
til að ræða við verktakana, þetta
er mjög óvenjulegt útboð, sagði
Þórður Þorbjarnarson borgar-
verkfræðingur í samtali við Þjóð-
viljann, aðspurður hvers vegna
ekki væri upplýst um tilboð í ráð-
hússbygginguna.
Fulltrúar minnihlutans óskuðu
eftir því á fundi borgarráðs á
þriðjudag að fá upplýsingar um
tilboð í þennan verkáfanga.
Þórður Þorbjarnarson sagði í gær
að þær tölur yrðu trúlega kynntar
í borgarráði á þriðjudaginn.
Heildarkostnaður við bygg-
ingu ráðhússins í Tjörninni er
samkvæmt yfirlýsingum borgar-
yfirvalda áætlaður um einn milj-
arður, þar af eiga 750 miljónir að
koma úr borgarsjóði og 250 milj-
ónir úr stöðumælasjóði í bfla-
geymslur. Heimildarmenn Þjóð-
viljans segja hins vegar að kostn-
aður verði trúlega ekki undir 1,5
miljarði þegar öll kurl eru komin
til grafar.
-Jg./-HS.
Hrafn
Sveinbjarnarson
, 3. GK
Ovissa
um
björgun
Spáð norðanáhlaupi.
Hœtta talin að skipið
brotni í spón
Ekki rcyndist unnt að draga
Hrafn Sveinbjarnarson 3. GK 11
af strandstað við Hópsnes við
Grindavík á hádegisflóðinu í gær.
Björgunarmenn unnu allan dag-
inn við það að koma vír á milli
skipsins og varðskipsins Óðins og
koma dæluni um borð. Ætlunin
var að reyna á flóðinu rétt eftir
miðnætti í nótt að draga Hrafn af
strandstað. Spáð er norðan-
áhlaupi og því er talin hætta á að
skipið brotni í spón í fjörunni, ef
sú tilraun mistekst.
Fjórir björgunarsveitarmenn
úr björgunarsveitinni Þorbirni í
Grindavík, ásamt vélstjóra skips-
ins, voru fluttir um borð í skipið
um hádegisbilið í gær með þyrlu
hersins á Keflavíkurflugvelli.
Þyrla Landhelgisgæslunnar að-
stoðaði björgunarsveitarmenn
við að koma vír og dælu um borð,
en gat er komið á skipið þar sem
það liggur í grýttri fjörunni.
Hrafn Sveinbjarnarson 3.
strandaði við Hópsnesið um tvö-
leytið í fyrrinótt þegar skipið var
á leið til Grindavíkur úr róðri
með 20 tonn af ufsa. Skipið var á
netum. Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar var komin á strandstað um
klukkutíma seinna og bjargaði
hún áhöfninni, 11 manns, í þrem
ferðum milli skips og lands.
Ekki er vitað hvað olli strand-
inu, en haft hefur verið eftir
skipstjóranum, sem var sofandi
þegar skipið fór upp í grýtta
fjöruna, að þarna hafi verið um
mannleg mistök að ræða.
Skipið er 170 lesta stálskip,
smíðað í Noregi 1963. Það var
endurbyggt og lengt 1982.
Eigandi þess er Þorbjörn hf. í
Grindavík.
-grh
Frá strandstað í gærdag. Þyrla Landhelgisgæslunnar kemur björgunarsveitarmönnum um borð í Hrafn Sveinbjarnarson.
Mynd: E.ÓI.
VMSÍ - VSÍ
Lítil
hrifning í
Garðastræti
Viðrœður hefjast í dag
Atvinnurekendur taka fálega í
kröfugerð Verkamannasam-
bandsins og telja hæpið að leggja
hana til grundvallar sanininga-
viðræðum.
Kröfugerðin var kynnt at-
vinnurekendum í gær og fyrsti
samningafundur í annarri lotu
viðræðna um nýja kjarasamninga
hefst kl. 14 í dag. - rk
Skák
Eins og á
framboðs-
fundi
Campoman.es
skákleiðtogi í viðtali við
Helga Ólafsson í Sunnu-
dagsblaðinu
„Campó er æði skaprikur mað-
ur,“ segir Helgi Ólafsson í aðfara-
orðum að viðtali sínu í Sunnu-
dagsblaðinu við hinn umdeilda
Florencio Campomanes FIDE-
forseta: „Hvað eftir annað rauk
hann uppúr sætinu og þrumaði
yfir mig einsog hann væri á fram-
boðsfundi.“
í viðtalinu fara þeir Helgi og
Campomanes vítt og breitt um
skáksögu seinni ára, ræða um
tengsl skákforsetans við Marcos
einræðisherra, um samskipti
forsetans við Fischer, um mara-
þoneinvígi Karpovs og Kaspar-
ovs, afskipti Campomanesar af
því og samband hans við heims-
meistarann, um framboðið gegn
Friðriki Ólafssyni á sínum tíma
og ýmislegt fleira.
Að lokum biður Campomanes
fyrir kveðjur til vina og kunn-
ingja hérlendis og þakkar fyrir að
fá tækifæri til að „leiðrétta mis-
skilning sem gæti hafa skapast á
íslandi vegna starfa minna. fs-
land er mikið skákland...“
-m
Sjá síður 14-15
í Sunnudagsblaði