Þjóðviljinn - 16.02.1988, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 16. febrúar 1988 37. tölublað 53. árgangur
Hernaðarframkvœmdir
Fimmta radarstöðin
NA TO áformar að reisa 5 nýjar radarstöðvar á íslandi segir
háttsettur flotaforingi
NATO áformar að rejsa 5 nýjar
radarstöðvar á Islandi á
næstu 10 árum sagði háttsettur
flotaforingi í höfuðstöðvum Atl-
antshafsbandalagsins í Bruxelles
á fundi með íslenskum blaða-
mönnum fyrir helgina. Af þessum
fimm radarstöðvum eru þrjár
Landvélar
7 mánaða
fangelsi
Hæstiréttur hefur dæmt stjórn-
arformann og framkvæmda-
• stjóra Landvéla h.f. í 7 mánaða
fangelsi og 1100 þús. kr. sekt fyrir
að hafa falsað söluskattskýrslur
fyrirtækisins og komist hjá því að
greiða um 6 miljónir í söluskatt.
Fjórir aðrir starfsmenn fyrir-
tækisins voru dæmdir í 2ja mán-
aða skilorðsbundið fangelsi en
fyrirtækinu var gert að greiða 8,5
miljónir til ríkissjóðs. Hæstirétt-
ur staðfesti í meginatriðum dóm
undirréttar en tveir af dómurun-
um vildu lengja fangelsisdóminn í
9 mánuði. -lg.
Grímsey
Bátar fóru
í róður
ísinn hefur hopað. Sól og
blíða. Vír enn strengdur
fyrir hafnarmynnið
, JÞað fóru tveir bátar út í gær til
að leggja net og þetta lítur miklu
betur út en það gerði fyrir helgi.
ísinn hefur fjarlægst að mun og ef
ekkert óvænt gerist, verður ekki
langt að bíða að maður fari að
vinna á nýjan leik,“ sagði Val-
gerður Valdimarsdóttir í
Grímsey við Þjóðviljann.
í gær var von á bátunum til
eyjarinnar í gær frá Daivík, en
þangað höfðu þeir stærstu hörfað
undan ísbreiðunni. Þó er enn
strengdur vír fyrir hafnarmynnið
til að varna hugsanlegu ísreki inn
í höfnina, því enn er töluvert um
ís í grenndinni. Spáð er sunnan
átt á næstu dögum og er það von
eyjarskeggja að ísinn láti enn
meira á sjá við það en orðið er.
Að sögn Valgerðar, er það
vani á bolludaginn að krakkarnir
taki daginn snemma og flengi
bolla, bolla, eins og við á, en í gær
þótti ekki annað fært en að þau
færu í fylgd með fullorðnum ef
ske kynni að einhver óboðinn
gestur hefði tekið land í eynni.
En sá ótti var ástæðulaus og hafa
Grímseyingar ekki þurft að taka
fram byssurnar sínar nema til að
dást að þeim.
-grh
Sjá bls. 2
nýjar, en um endurnýjun að ræða
í Keflavík og við Hornafjörð.
Hingað til hefur aðeins verið
rætt um að radarstöðvarnar yrðu
fjórar í framtíðinni, en flotafor-
inginn gat ekki greint frá því hvar
fyrirhugað væri að staðsetja
fimmtu stöðina, sem væri á fram-
kvæmdaáætlun næstu 10 ára.
íslenskir blaðamenn, sem voru
í höfuðstöðvum NATO í síðustu
viku í boði bandalagsins, báru
þessar upplýsingar undir íslensku
fastanefndina hjá NATO, sem
sagðist ekki hafa upplýsingar um
málið eða vilja tjá sig um það að
öðru leyti.
Steingrímur Hermannsson
utanríkisráðherra sagði í gær að
sér væri ekki kunnugt um þessi
áform NATO um fimmtu ratsjár-
stöðina á íslandi.
-ólg.
Hafnarfjörður
Bein
útsending úr
Ráðhúsinu
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarð-
arbæjar verður tekin til lokaaf-
greiðslu á fundi bæjarstjórnar í
dag kl. 14 og verður bein útsend-
ing frá fundinum sem trúlega
stendur fram á kvöld.
Það er Útvarp Hafnarfjörður
sem stendur fyrir útsendingunni
og er sent út á FM 87,7.
Þó höfuðborgarbúar hafi nú loks fengið að sjá snjóinn aftur eftir nokkurt hlé, þá hafa íbúar á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi ekki farið varhluta af
snjókomu síðustu vikur. Sjaldan hefur sést eins mikiil snjór víöa fyrir norðan og austan. Þessi mynd var tekin í Neskaupstað þar sem alit er á kafi í snjó. Það er
hann Andri Reyr Haraldsson sem nánast gengur ofan á snúrustaurunum heima hjá sér. Mynd: -hb/Neskaupstað.
Flugstöðin
Osamhljóða skýrslur
Skýrslu utanríkisráðherra ber ekki saman við skýrslu
ríkisendurskoðunar. Munar rúmum hálfum miljarð króna
Skýrslu utanríkisráðhcrra um
kostnað vegna flugstöðvar-
innar á Keflavíkurflugvelli ber
ekki saman við skýrslu ríkis-
endurskoðunar. Segir ríkisend-
urskoðun að utanríkisráðherra
vanreikni kostnaðinn um rúman
hálfan miljarð króna.
f skýrslu ríkisendurskoðunar
er kostnaður vegna flugstöðvar-
innar sagður tæpir 3 miljarðar
króna, eða 2.992 miljónir króna.
í skýrslu utanríkisráðherra er
kostnaður hinsvegar sagður tæpir
2,5 miljarðar króna, eða 2.432
miljónir króna.
Guðrún Agnarsdóttir fór fram
á að ríkisendurskoðun reyndi að
skýra þennan mismun. í svari
ríkisendurskoðunar kemur fram
að embættið stendur föstum fót-
um á fyrri niðurstöðu sinni um
kostnaðinn.
í svarinu kemur fram að áætlun
byggingarnefndar um bygging-
arkostnaðinn í skýrslu utanríkis-
ráðherra sé ekkert annað en sam-
lagning á fjárveitingarbeiðnum
byggingarnefndar frá ári til árs og
því ekki eiginleg kostnaðaráætl-
un, enda sé ríkisendurskoðun
ekki kunnugt um neina heilstæða
kostnaðaráætlun sem byggingar-
nefnd hafi gert. Eina áætlunin
sem vitað er um sé sú áætlun sem
lögð var fyrir Alþingi þegar flug-
stöðin var samþykkt á sínum
tíma, en framreiknuð er hún að
fjárhæð 2.121 miljón krónur.
Kostnaður 1. september sl. var
því tæpum miljarð fram úr áætl-
un.
Þá gagnrýnir ríkisendur-
skoðun að í skýrslu utanrfkisráð-
herra skuli bókfærður kostnaður
borinn saman við fjárveitinga-
beiðnir byggingarnefndar og
komist að þeirri niðurstöðu að
um svipaðar fjárhæðir sé að
ræða. Kemst ríkisendurskoðun
að þeirri niðurstöðu að megin-
skýring viðbótarkostnaðar séu
viðbætur og magnaukning en
ekki verðhækkanir á byggingar-
tíma einsog niðurstaðan er í
skýrslu utanríkisráðherra.
-Sáf
Sjá bls. 5
Orðanotkun
m r
Framhjáhlaup
Atvinnubílstjóri hafði sam-
band við blaðið vegna greinar um
nýyrðin afrein og aSrein. Sagði
hann að í daglegu máli töluðu bfl-
stjórar um þessar tengingar milli
gatna sem framhjáhlaup. Skýrði
hann þessa orðnotkun með því að
menn slyppu við að beygja á um-
ferðarljósum, þ.e. tækju sveig
framhjá þeim.
Taldi hann nýju orðin vera fár-
ánleg og engar líkur á því að þau
festust í málinu. Einnig sagði
hann að í sínum hópi væri alltaf
talað um akgreinar en ekki ak-
reinar. -mj.