Þjóðviljinn - 16.02.1988, Side 1

Þjóðviljinn - 16.02.1988, Side 1
Karfa Gífurleg spenna Besti leikurinn í úrvalsdeildinni. Jafnt þegar 1 sekúnda var til leiksloka Einn besti úrvalsdeildarleikur- inn í vetur var háður í Hlíðarenda á sunnudagskvöldið. Mikil bar- átta var í hávegum höfð og ekkert gefið eftir. Leikurinn byrjaði frekar ró- lega og var jafnt á öllum tölum þar til staðan var 12-12 en þá tóku Haukar sig til og gerðu 10 stig án þess að Val tækist að skora nokk- urt. Þeir voru síðan yfir þar til á 18. mínútu, þá komust Valsmenn yfir og var staðan í leikhléi 37-33. Síðari hálfleikur var frábær á að horfa. Heimamenn héldu for- ystunni þó gestunum tækist nærri að jafna en þá kom að þætti Pálmars, hann gerði hverja 3 stiga körfuna á fætur annarri og tókst að lokum að jafna 60-60. Þá misstu Haukar Valsmenn aftur fram úr sér með 5 stiga forskot en náðu að jafna aftur 65-65. Spenn- Ólympíuleikarnir Einar Ólafsson í 65.sæti Einar Ólafsson lenti í 65. sæti í 30 kflómetra göngu karla á Ólympíuieikunum í Calgary í gær. Einar gekk vegalengdina á tímanum 1:39,56. Sovétmaðurinn Alexei Prok- urorov var fyrstur í mark en hann gekk vegalengdina á 1:24,35. í öðru sæti var annar Sovétmaður, Vladimir Smirnov og í þriðja sæti var Norðmaðurinn Vegard Ul- vang en hann gekk vegalengdina á tímanum 1:25,31. Árangur Einars er mjög góður ef litið er til þess að í gönguna var 91 keppandi skráður til leiks. Einn keppandanna hóf ekki gönguna og þrír kappar luku henni ekki. í blaðinu á morgun verður nán- ar fjallað um Ólympíuleikana. -ih an var orðinn gífurleg þegar Pálmar skoraði aftur 3ja stiga körfur og kom Haukum í 69-72 en Tómas kom Valsmönnum enn á ný yfir 75-74. Haukar fengu vít- askot en Pálmar hitti ekki nema úr öðru skotinu 75-75. Það var síðan á lokasekúndu leiksins að dæmt var vítaskot á Hauka og Tómas hitti úr því 76-75. Það var virkilega gaman að sjá almennilegan körfuboltaleik eftir lognmolluna sem ríkt hefur und- anfarið. Þessi leikur hafði bók- staflega uppá allt að bjóða. Flest allir leikmennirnir áttu mjög góð- an dag og er erfitt að taka einn úr. í Valsliðinu voru þeir mjög jafnir og mjög góðir en í Haukaliðinu var það eins og venjulega Pálmar sem dreif liðið áfram en Henning og ívar voru mjög duglegir. Pálmar gerði 23 stig í síðari hálf- leik og þaraf 4 þriggja stiga körf- Hlf&arendi 14. febrúar Valur-Haukar 76-75 (37-33) Stig Vals: Leifur Gústafsson 16, Tómas Holton 15, Einar Ólafsson 15, Torfi Magnússon 12, Þorvaldur Geirs- son 9, Svali Björgvinsson 7, Björn Zo- ega 2. Stig Hauka: Pálmar Sigurðsson 29, Henning Henningsson 14, (var Ás- grímsson 13, Tryggvi Jónsson 6, Ing- imar Jónsson 6, Olafur Rafnsson 4, Sveinn Steinsson 3. Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Gunnar Valgeirsson voru flautuglaðir en daamdu saemilega í þessum erfiða leik. Þeir gerðu þó mistök reglulega sem fóru mikið i skap leikmanna. Maöur leiksins: Pálmar Sigurðs- son Haukum -ste Ivar Ásgrímsson átti góðan leik gegn Völsurum. Karfa Leikir um helgina Urvalsdeild UMFG-lBK................69-73 UMFN-Þór................91-69 (R-UBK..................95-63 Valur-Haukar.................76-75 Sta&an UMFN.......... 12 11 1 1060-855 22 Karfa (BK. Valur.. KR..... Haukar. Dregið í Bikarkeppninni Njarðvík og Breiðablik leika saman UMFG..........12 IR............11 Þór..........12 UBK..........12 2 4 5 5 6 7 1 11 1 11 856-696 18 951-810 16 865-808 12 799-748 12 868-861 12 750-834 8 889-1129 2 669-966 2 1. deild karla Dregið var í bikarkeppni körfuknattleiksambandsins í beinni útsendingu hjá Bjarna Felixsyni á laugardaginn. Það var Björn Björgvinsson sem dró úr forláta pípuhatti eftirtalin lið. Liðin leika saman heima og heiman. Fyrri leikir í karlaflokki: KR-Valur í Hagaskóla 1. mars kl.20.00 IR-UMFG i Grindavík 3. mars kl.20.00 UMFN b-Haukar í Njarövík 3. mars kl.21.30 UMFN a-UBK í Njarðvík 3. mars kl.20.00 Seinni leikir i karlaflokki: Valur-KR í Hlíðarenda 6. mars kl.20.00 UMFG-lR í Seljaskóla 7.mars kl.20.00 Haukar-UMFN b í Strandgötu 6. mars kl.20.00 UBK-UMFN a i Digranesi 8. mars kl.21.30 Kvennaflokkur: IBK-IS og Haukar-UMFN en ekki hafa ver- ið ákveðnir leikdagar nákvæmlega en það verður þó í þyrjun apríl. -ste HSK-UMFT.. Reynir-(A.. (S-UMFT.... UMFT... U(A..... IS...... Léttir.. lA...... HSK..... Reynir... UMFS... Staðan . 10 . 10 ...9 . 10 ...9 ...9 . 10 ...9 ..74-101 ....49-56 ....84-70 1 838-657 18 1 669-555 18 2 605-523 14 6 634-684 5 554-625 6 582-613 8 551-679 9 582-675 1. deild kvenna ÍBK-ÍR......................62-58 UMFN-Haukar.................42-43 -ste Karfa Kristiim Albertsson með alþjóðleg dómararéttlndi Nú er Kristinn Albertsson orð- inn alþjóðlegur dómari f körfu- knattleik. Er hann fjórði ís- lendingurinn sem hlýtur þessa vegsemd og hefur alþjóðakörfu- knattleikssambandið skipað Kristin sem einn af dómurunum á Evrópumeistaramót unglinga í apríl. Þjóðviljinn óskar Kristni til hamingju með þessa vegsemd. -ost/sóm/ste/gói/ih/E.Ól Kristinn Albertsson körfuknattleiks- dómari, sem hér sést sinna einu af þeim störfum sem körfuknattleiks- dómarar þurfa að sinna, hefur nú hlotið alþjóðleg dómararéttindi. (mynd: E.ÓI.) Umsjón: Ingibjörg Hinriksdóttir/Stefán Stefánsson

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.