Þjóðviljinn - 17.02.1988, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 17. febrúcx 19ðð 36. töiubkað 53. árgangur
Ríkisstjórnin
Steingrímur og Þorsteinn
takast á um Moskvuferð
Embœttiforseta íslands blandast í deilur innan ríkisstjórnarinnar. Sovétmenn hafa boðið
forsetanum íopinbera heimsókn í lok mánaðarins enforsœtisráðherra afþakkar boðið.
Steingrímur villþiggja boðið og lét bóka það á ríkisstjórnarfundi ígœr. Kratar fylgja Por-
steini að málum
Eg get ekki neitað því að þetta
boð kom frá Sovétmönnum,
um að forseti íslands færi í opin-
bera heimsókn til Sovétríkjanna í
lok mánaðarins og að því var
hafnað, sagði Steingrímur Her-
mannsson, utanríkisráðherra við
Þjóðviljann í gær.
Steingrímur vildi ekki tjá sig
nánar um málið, þar sem þetta
mál snerti embætti forseta ís-
lands, en viðurkenndi þó að for-
sætisráðherra hefði verið andvíg-
ur heimsókninni. Steingrímur lét
bóka í fundargerð ríkisstjórnar-
fundar í gær að hann væri ósáttur
við afgreiðslu málsins.
Það var sendiherra Sovétríkj-
anna sem kom boðinu til Stein-
gríms sl. fimmtudag og var forset-
anum boðið í opinbera heimsókn
sem hæfist 29. febrúar og myndi
standa í fimm daga. Fyrsta dag
heimsóknarinnar átti hún að hitta
Gorbatsjov leiðtoga Sovétríkj-
anna.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum Þjóðviljans ntun Þor-
steinn Pálsson hafa verið fylgj-
andi því að forsetinn þæði boðið,
þegar það barst sl. fimmtudag. Á
ríkisstjórnarfundi í gær kom hins-
vegar í ljós að forsætisráðherra
hafði skipt um skoðun.
„Ég lagði strax til að boðið yrði
þegið en það yrði óskað eftir ann-
arri hentugri dagsetningu," sagði
Þorsteinn Pálsson í gær. Hann
sagði að ástæðan væri of
skammur fyrirvari auk þess sem
utanríkisráðherra hefði bara get-
að dvalið einn dag í Sovétríkjun-
um vegna leiðtogafundar Nató
sem hefst 2. mars.
Jón Sigurðsson, viðskiptaráð-
herra vildi ekkert um málið segja
nema að rætt hefði verið um þetta
á ríkisstjórnarfundi í gær en vís-
aði annars til forsætisráðherra.
Þorsteinn sagði að á ríkis-
stjórnarfundinum í gær hefði ver-
ið ákveðið að halda áfram við-
ræðum við Sovétmenn um hent-
ugri tíma. Þorsteinn sagðist ekki
hafa vitað um bókun Steingríms
fyrren undir kvöldið í gær, og
sagði bókunina lagða fram eftir
fundinn. Þorsteinn sagði Alþýðu-
flokksmenn hafa verið sammála
sinni afstöðu í málinu.
„Þetta er algert einsdæmi í
sögu lýðveldisins, að metnaðar-
ágreiningur ráðherra og pólitísk
togstreita innan ríkisstjórnarinn-
ar sé látin bitna á embætti forseta
íslands,“ sagði Ólafur Ragnar
Grímsson formaður Alþýðu-
bandalagsins við Þjóðviljann í
gær. Hann sagði það einnig mjög
alvarlegt mál þegar ósamkomu-
lagið í ríkisstjórninni væri farið
að stefna markaðshagsmunum
íslendinga í mikilvægum útflutn-
ingsgreinum í hættu.
Sjá bls. 3 -Sáf/m-
Þorsteinn var fylgjandi Moskvutör forseta islands þegar boðið barst en skipti um skoðun. Steingrímur heldur fast við sína skoðun og lét færa hana til bókar á
ríkisstjórnarfundi í gær.
Röskva
Baráttugleði
Á föstudaginn var stofnfundur
Röskvu, samtaka félagshyggju-
fólks í Háskóla íslands. A fundin-
um ríkti jákvæður andi og barátt-
uhugur, að sögn Þórunnar
Sveinbjarnardóttur, formanns
félagsins.
Þórunn sagði að stofnfélagar
hefðu verið um 60, þar af margir
sem ekki hafa áður starfað f stú-
dentapólitíkinni. „Við ætlum
okkur að vinna kosningarnar til
Stúdenta- og Háskólaráðs í næsta
mánuði og ef fólk fer af heilum
hug í baráttuna, mun hún bera
árangur." -mj
VMSÍ - VSÍ
Fiskverkendur órólegir
Lítiðþokastísamningaviðrœðum. Fiskverkendur eru farnir aðhreyfa þvíaðslíta viðrœðum
Pær raddir gerast æ háværari
meðal fiskverkenda að fisk-
vinnslan dragi sig út úr samninga-
viðræðum við Verkamanna-
sambandið, láti stjórnvöld fljót-
lega ekkert uppi hvort og til
hvaða aðgerða þau hyggist grípa
til að rétta hlut flskvinnslunnar. -
Því er ekki að neita að ýmsum
flnnst fiskvinnslan ekki geta stað-
ið í samningum meðan rekstrar-
vandi hennar er óleystur og þeim
fer fjölgandi sem eru á þeirri
skoðun, sagði Arnar Sigmunds-
son, formaður Sambands fisk-
vinnslustöðva í gær.
Samningaviðræðum Verka-
mannasambandsins og atvinnu-
rekenda var framhaldið í Garð-
astræti í gær og stóð fundur enn er
blaðið fór í prentun í gærkvöldi.
Samkvæmt heimildum Þjóðvilj-
ans er ekki enn farið að takast á
við launaliði nýrra samninga í
viðræðunum. Þess í stað hefur
nokkuð miðað áleiðis í málefnum
þungavinnuvélamanna og ræst-
ingafólks.
- Nei við erum ekki að draga
okkur út úr viðræðunum. En það
er fullljóst að við getum ekki lok-
ið samningum nema ríkisvaldið
hafi áður ákveðið aðgerðir. Það
hefur ekkert annað komið út úr
þeim fundum sem við höfum átt
með ráðherrum en að samningi
viðræður verði að komast á ál
veðinn tímapunkt áður en ríki
valdið komi þar við sögu, sag<
Arnar.
Formannafundur Alþýðusan
bands Austurlands samþykkti
gær kröfugerð Verkamannasan
bandsins og féll þar með frá eigi
kröfugerð frá því í haust.