Þjóðviljinn - 19.02.1988, Page 2

Þjóðviljinn - 19.02.1988, Page 2
Davíð Hálfdánarson, þingvörður: Nei ég geri ekki ráð fyrir því. Ég bara nenni ekki að standa í bið- röð, þetta eru allt of fáir miðar, miðað við fjöldann sem er í fé- lögunum. — SPURNINGIN- Ætlar þú að notfæra þér samningana við Lion Air um ferðir til Luxemborgar nú í sumar??? Sóley Tómasdóttir, starfsm. pósth. Ármúla: Já, ég hef áhuga og gæti því vel hugsað mér það. Gunnlaugur Halldórsson, starfsm. pósth. Ármúla: Já, þar sem ég á kost á því gæti vel farið svo að ég nýtti tækifærið og skellti mér. Sigríður Þorvaldsdóttir: starfsm. pósth. Ármúla: Ég er nú bara búin að ráðstafa sumarfríinu mínu í annað svo úr verður ekki í ár en ég gæti alveg hugsað mér það. Einar Halldórsson: starfsm. pósth. Ármúla: Ég er búinn að fara út í ár svo ég kem ekki til með að nota þetta núna, því þó svo ferðirnar séu ódýrar leyfir fjárhagurinn það ekki að ég fari oft út á ári. Það er nú svo. FRETTIR Iðnnemar Launin snarlega lækkuð Pálmar Halldórsson, Iðnnemasambandinu: Desembersamningarnirþýddu íraun kjaralœkkun fyrir iðnnema. Slœm reynsla iðnnema af krónutölusamningum. Laun iðnnema eru í dag miklu lægri en þau hefðu verið ef launaviðmiðun fyrri samninga hefði verið látin standa, en þá voru laun iðnnema ákveðinn hundraðshluti af launum sveina í stað þess að í desembersamningunum var sam- ið um fasta krónutölu. Við feng- um Kjararannsóknanefnd til að gera samanburð á launum iðn- nema og niðurstöðurnar eru væg- ast sagt sláandi, sagði Pálmar Halldórsson, formaður Iðnnemasambandsins. Samkvæmt útreikningum Kjararannsóknanefndar lækk- uðu laun iðnnema í öllum iðnum með desembersamningunum, hvort heldur er miðað við nem- endur sem eru á jafnaðarlaunum allt árið eða nemendur sem njóta aðeins launa fyrir unninn tíma og eru ekki á launum meðan þeir sitja á skólabekk. Svo dæmi sé tekið af mánaðar- launum nema í málmiðnaði þá íækkuðu þeir nemar sem nutu launa allt árið frá 13% á fyrsta ári í 24,7% á fjórða ári. Svipaða sögu er að segja af nemum sem fengu laun fyrir unninn tíma, en laun þeirra lækkuðu frá 20% á fyrsta ári í 24,2% á öðru ári. — Laun fyrir unninn tíma hafa fram að síðustu samningum fylgt að lágmarki lágmarkslaunum verkamanna, en núna ná iðn- nemar ekki þeirri viðmiðun fyrr en á fjórða ári í námi, sagði Pálm- ar. -rk Framkvæmdir við nýbyggingu á Bergstaðastræti 15 var stöðvuð sl. sumar og nú hefur Borgardómur ógilt byggingarleyfið frá byggingarnefnd borgarinnar. Bergstaðastrœti 15 Ólögmæti byggingarleyfis Byggingarnefndfór útfyrir valdsvið sitt. „Dómurinn sýnir að borgaryfirvöld geta ekki gengið á eignarréttfólks, “ segir Kári Halldór Jónsson Framhaldsskólar Smásögu og Ijóða- samkeppni Verðlaunaverkflutt í út- varpinu, skilafrestur til 1. mars Útgáfufélag framhaldsskól- anna, ÚFF og Ríkisútvarpið, efna til smásögu og ljóðasamkeppni framhaldsskólanema. Skilyrði fyrir þátttöku er að hafa stundað nám í framhaldsskóla hvar sem er á íslandi veturinn 1987-88. Tilgangur keppninnar er að draga fram í dagsljósið, efla og auka veg skáldskapar framhalds- skólanema á íslandi. Skilafrestur er til 1. mars, og skal allt efni sent inn undir dulnefni, en rétt nafn, sími, heimilisfang og skóli, fylgja í lokuðu umslagi. Verðlaun fyrir Ijóð eru, kr. 12.000, 3.500 og 2.800, og fyrir sögur kr. 25.000, 15.000 og 3.100. Úrslit verða kunngerð í þættin- um Ekkert mál á Rás tvö, og verða verðlaunaverkin flutt í út- varpinu; Heimilisfang keppninn- ar er: ÚFF, pósthólf 5058, 125 Reykjavík. LG Búnaðarþing Settá manudaginn Búnaðarþing, hið 71. í röðinni, verður sett í Súlnasal Hótels Sögu mánudaginn 22. febrúar n.k. kl. 10.00 árdegis. Gera má ráð fyrir að þingið standi fast að hálfum mánuði. Búnaðarþing sitja 25 fulltrúar auk þriggja manna stjórnar fé- lagsins og búnaðarmálastjóra. Búnaðarþing 1987 afgreiddi 50 mál. Jónas Jónsson búnaðar- málastjóri bjóst við að leiðbein- ingaþjónusta landbúnaðarins, skipulag hennar og fjármál, myndu skioa mikið rúm á þing- inu. - mhg Urskurður félagsmálaráðherra frá því í júlí 1986, um að bygg- ingarleyfi fyrir lóðina Bergstað- astræti 15 væri ólöglegt, hefur verið staðfestur af borgardómi. Kári Halldór Jónsson, sem á sín- um tíma kærði leyfisveitinguna, segir dóminn sigur fyrir hús- eigendur og sýna að borgaryfir- völd geti ekki gengið á eignarrétt fólks að vild. „Dómurinn sýnir að það getur borgað sig fyrir almenning að leggja eitthvað á sig, þegar kerfis- karlar túlka lög og reglugerðir sér í vil,“ sagði Kári við Þjóðviljann. Hann segir að hér sé um að ræða áfellisdóm yfir slælegum vinnubrögðum byggingarnefndar Reykjavíkur, sem farið hafi út fyrir valdsvið sitt. „Ef hún hefði farið eftir sínum reglum, hefði aldrei komið til þessa máls.“ Að sögn Kára bar byggingarnefndin því við að skipulagsnefnd Reykjavíkur hafi samþykkt bygg- inguna, en hún væri aðeins ráð- gefandi nefnd og gæti því ekki borið ábyrgð. Annmarkar á leyfi byggingar- nefndar, til að reisa þriggja hæða íbúðarhús á lóðinni voru margir. Lóðin er aðeins 230 fermetrar og því hefði þurft heimild frá Skipu- lagsstjórn til byggingar íbúðar- Töluverð eftirspurn hefur verið hjá félögum og einstaklingum að komast að með þætti í Útvarpi Rót að sögn starfsmanna stöðvar- innar og því hefur verið ákveðið að endurskoða dagskrána á næst- unni og hleypa nýjum dagskrár- aðilum að. Frestur til að sækja um nýja þætti, eða breytingar á þeim sem fyrir eru, rennur út 29. febrúar húss. Miðað við samþykkt aðal- skipulags Reykjavíkurborgar var fyrirhugað nýtingarhlutfall lóðar- innar allt of hátt. Auk þess var byggingin of há og vegna stað- setningar á hornlóð, hefði þurft hornsneiðingu á húsið. n.k. og ný dagskrá mun taka gildi um miðjan næsta mánuð. Frekari dagskrárbreytingar eru síðan ekki fyrirhugaðar fyrr en í maí í vor. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Rótar, Brautarholti 3 og í síma 91- 623610, en skriflegum umsókn- um ber að skila til skrifstofunnar í Brautarholti. _i„ mj Útvarp Rót Dagskráin endurskoðuð 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 19. febrúar 1988

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.