Þjóðviljinn - 19.02.1988, Qupperneq 18

Þjóðviljinn - 19.02.1988, Qupperneq 18
Viltu komast á spjöld sögunnar? Alþýðuleikhúsið vantar tilfinnanlega stóran sal eða skemmu fyrir starfsemi sína, á leigu eða til kaups. Mætti vera fyrrverandi iðnaðar- húsnæði og þarfnast lagfæringa. Allt sem nær 3-400 m2 stærð og 4 m lofthæð kemur til greina. Þarf að vera í Reykjavík. Upplýsingar í síma 15185 kl. 14-16 virka daga. Alþýðuleikhúsið Styrkir til náms á Spáni Spænsk stjórnvöld bjóða fram eftirtalda styrki handa islendingum til náms á Spáni á námsárinu 1988-89. 1. Einn styrk til háskólanáms í 9 mánuði. Ætlast er til að styrkþegi sé kominn nokkuð áleiðis í háskólanámi og hafi mjög gott vald á spænskri tungu. Umsækjendur skulu ekki vera eldri en 30 ára. 2. Tvo styrki til að sækja spænskunámskeið í „Escuela de Verona Espanola" í Madrid í júlí sumarið 1988. Umsækjendur skulu hafa lokið a.m.k. 3 ára námi í spænskri tungu í íslenskum framhalds- skóla. Umsóknir um styrki þessa, ásamt staðfestum afritum prófskírt- einum og meðmælum, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir 1. apríl n.k. - Sérstök umsóknar- eyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 16. febrúar 1988 ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið Hafnarfirði Bæjarmálaráð/afmælisblað Fundur laugardaginn 20. febrúar kl. 10.00 í Skálanum, Strandgötu 41. Staðan í bæjarmálum. Starfið framundan. Ath.: Síðustu skil á efni í afmælisblað félagsins. Fólagar fjölmennið. Alþýðubandalagið Hafnarfirði 30 ára afmælishátíð 30 ára afmælishátíð Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði verður haldin í Fé- lagsheimilinu Garðaholti, laugardaginn 5. mars nk. (á afmælisdaginn að sjálfsögðu) og hefst með borðhaldi kl. 20.00. Dagskráin auglýst síðar, svo og miðasala en félagar eru beðnir að taka frá tíma fyrir hátíðina. - Stjórnln. Alþýðubandalagið á Norðurlandi eystra boðar til almennra stjórnmálafunda í Norður-Þingeyjarsýslu Raufarhöfn föstudaginn 19. febrúar kl. 20.30 í félagsheimilinu. Kópaskeri laugardaginn 20. febrúar kl. 14.00 í barnaskólanum. Alþingismennirnir Steingrímur J. Sigfússon og Svavar Gestsson koma á fundina og ræða þjóðmálin. Alllr velkomnir. Alþýðubandalagið Kóþavogi Spilakvöld í Kópavogi Efnt verður til þriggja kvölda spilakeppni ( Þinghóli, Hamraborg 11. Spilað verður annan hvern mánudag, 8. og 22. febrúar og 7. mars. Byrjað verður að spila öll kvöldin kl. 20.30. Góð kvöld- og heildarverðlaun í boði. Mætið tímanlega. Allir velkomnir. Stjórn ABK Spilakvöld Nú hefjum við þriggja kvölda keppni að Hverfisgötu 105. Við spilum annan hvern þriðjudag, 23. febrúar, 8. mars og 22. mars. Byrjað verður að spila kl. 20.30 stundvíslega. Verðlaun fyrir hvert kvöld og góð heildarverðlaun. Allir velkomnir. Alþýðubandafagið í Reykjavík Alþýðubandalagið Hafnarfirði Stjórnmálaviðhorfin Steingrímur J. Sigfússon, formaður þingflokks Al- þýðubandalagsins, ræðir um stjórnmálaviðhorfin á félagsfundi hjá Alþýðubandalaginu í Hafnarfirði þriðjudaginn 23. febrúar. Fundurinn verður í Skálanum, Strandgötu 41 og hefst kl. 20.30. , Stjórnin Steingrímur Alþýðubandalagið í Skagafirði Félagsfundur á Sauðárkróki Alþýðubandalagið í Skagafirði heldur félagsfund næstkomandi sunnu- dagsmorgun 21. febrúar klukkan 11.00 í Villa Nova á Sauðárkróki. Ragnar Arnalds mætir á fundinn. ÍÞRÓTTIR VFRAR- lympíuleíkamTr í CALGARY Skíðastökk ,Öminn“ er trúður en Witt er engill Bretinn Eddie Edwards, sem kallar sig „Örninn“ er orðinn eitt mesta vandamái Ólympíuleikana að sögna austur-þýska blaðsins Junge Welt en jafnframt lofa þeir skautaballerínuna Katarina Witt í hástert. Veðmálin Matti Nykaenen langefstur Veðmálaskrifstofurnar eru með það á hreinu að Finninn fljúgandi vinni skíðastökkið bæði af 70 metra og 90 metra palli. Lík- urnar á því að hann vinni hvort tveggja eru taldar þrefaldar enda komið á daginn að hann er yfir- burðarmaður í stökkinu. ítalanum Albert Tomba er einnig spáð sigri í svigi og stór- svigi þó það hafi ekki orðið raun- in og Pirmin Zurbriggen er spáð sigri í risa-stórsvigi. Sleðakeppni Hirtu öll verðlaunin Austur-Pjóðverjar komu sáu og sigruðu í sleðakeppninni í gær- kvöldi. Steffi Walter, sem var að byrja keppni á ný eftir barnsburð vann á mettíma 45.969 sekúnd- um. Þjóðverjarnir hirtu líka silfur og brons og voru það Evrópu- meistarinn Ute Oberhoffner og heimsmeistarinn Oberstin Schmidt sem það gerðu. Það er aðallega tekið eftir tveimur skíðastökkvurum, Matti Nykaenen sem stekkur allra lengst, og Eddie fyrrnefndum sem stekkur allra styst. Eddie hefur fengið áhorfendur á sitt band með skemmtilegri fram- komu og jafnframt því að vera lægstur. „Með hverju stökkinu stekkur hann lengra inn í trúðshlutverk- ið. Skemmtun og keppni eiga leið saman en það eru takmörk þegar kemur að Ólympíuleikum,“ sögðu Þjóðverjarnir og var mikið mðn fyrir. „Hvar myndi þetta enda ef allir færu að hegða sér eins og Edwards? Það eru tak- mörk fyrir öllu og þegar svona einkasýningar eru farnar að ná of mikilli athygli áhorfenda, þá á að segja stopp!“ Hins vegar eru allir austan- tjaldsfréttamennirnir ákaflega hrifnir af framkomu ballerínun- ar, sem „hefur heillað alla með geðugri framkomu sinni“. Blöðin birta öll greinar um dömuna ásamt mynd af henni með sigur- bros og ljósmyndaskaranum sem flykkist að henni. íshokký Sovét hefndu Sovétmönnum tókst að leggja Bandaríkin að velli í viðureign þeirra á íshokkývellinum. Þar með tókst þeim að hefna ófarana frá Lake Placid þar sem Banda- ríkin unnu mjög óvænt fyrir átta árum. Fyrirliði sovéska liðsins Fetiss- ov gerði tvö mörk og lagði upp þrjú snemma í leiknum. I öðrum hálfleik var staðan 6-2 Rússum í vil þegar Bandaríkin tóku sig verulega á og náðu að skora 3 mörk á skömmum tíma. Það dugði þó ekki til því aftur var fyrirliðinn á ferðinni og innsiglaði sigur Sovét þegar 2 mínútur voru til leiksloka. Þar með urðu möguleikar Bandaríkjanna til að ná sigursæt- inu nærri að engu því þeir þurfa að vinna alla sína leiki sem eftir eru með miklum mun og þeir sem eru fyrir ofan þá á töflunni verða að tapa öllu með enn meiri mun. Þeir hafa þó möguleika á bronsi ef heppnin er með þeim. Staðan í B-riðli: Sovétríkin........3 3 0 0 20-6 6 V-Þjóðverjar......3 3 0 0 12-5 6 Tékkóslóvakía .... 3 2 0 1 10-0 4 Bandaríkin........3 1 0 2 20-20 2 Noregur...........3 0 0 3 4-22 0 Austurríki........3 0 0 3 0-21 0 Þetta er ekki geimvera heldur sleðakeppandi í fullum skrúða á fullri ferð í keppni. 18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 19. febrúar 1988

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.