Þjóðviljinn - 19.02.1988, Blaðsíða 20
Aðaisímt
681333
Kvöldsími
681348
Heigarsími
681663
Föstudagur 19. fabrúar 19M 40. töiublað 53. örgangur
Sparisjóösvextír
á téKKardKnir^i
meö
hávaxtaKjörum
SAMVfNNUBANKI
ÍSLAMDSHF
' 1 ' 1 *
Aflinn
Nýtt
aflamet
Heildaraflinn í janúar
255.786þúsund tonn.
Var aðeins 165.820þús-
und tonn á sama tíma
1987
Aldrei áður hefur veiðst jafn
mikið af fiski í janúar og í ár.
Heildarafli landsmanna sl. mán-
uð var 255.786 þúsund tonn sem
er nýtt aflamet. Næst þessu afla-
magni komst aflinn í janúarmán-
uði 1986 sem þá reyndist vera
206.605 þúsund tonn. í janúar í
fyrra var heildaraflinn aðeins
165.820 þúsund tonn. Alls
veiddust 23.403 tonn af þorski í
janúar í ár á móti 22.192 tonnum
á sama tíma 1987. Þetta kemur
fram í nýútkomnu bráðabirgða-
yflrliti um afla í janúar sl. frá
Fiskifélagi íslands.
Samkvæmt yfirlitinu veiddu
togarar 14.533 tonn af þorski í
janúar sem er rúmum þúsund
tonnum meira en á sama tíma í
fyrra. Heildarafli þeirra reyndist
vera rúm 22 þúsund tonn, sem er
rétt tæpum 2 þúsund tonnum
meiri afli en fyrir ári.
Bátar veiddu rúm 8 þúsund
tonn af þorski sl. mánuð, sem er
rúmum þúsund tonnum meira en
fyrir ári. Heildarafli þeirra í mán-
uðinum var 232.737 þúsund tonn,
enífyrra var hann aðeins 146.110
tonn. í ár munar mestu um loðn-
uaflann sem var tæp 214 þúsund
tonn á móti tæpum 132 þúsund í
sama mánuði í fyrra. Þá veiddi
bátaflotinn um þúsund tonnum
meira nú en í fyrra af ufsa og þá
var enginn síldarafli í janúar 1987
en í ár veiddust rúm 4 þúsund
tonn.
Heildarafli smábáta jókst lítið
eitt í janúar í ár miðað við sama
tíma í fyrra, en þá var hann 996
tonn en í ár 1.014 tonn. Þorskafl-
inn í janúar var 724 tonn en var
832 tonn í fyrra. Mesta aukningin
var í ýsu hjá smábátum í ár, en
þeir veiddu 208 tonn á móti 67
tonnum í janúarmánuði í fyrra.
-grh
Grindavík
Stýrimaður-
inn svaf
Hrafn3. kominn
á hliðina
Hrafn Sveinbjarnarson 3. GK
11 strandaði aðfaranótt sl. föstu-
dags við Hópsnes, vegna þess að
stýrimaðurinn í brúnni svaf, en
hann var á vaktinni ásamt véla-
verðinum sem hafði skroppið
niður í vél í eftirlitsferð. Þetta
kom fram í nýafstöðnum sjópróf-
um.
Þá var hún heldur skammvinn
gleði félaga í björgunarsveitinni
Þorbirni, sem höfðu fengið
Hrafninn gefins og ætluðu sér að
bjarga úr honum tækjum og tól-
um og selja í fjáröflunarskyni.
Báturinn lagðist á hliðina nýverið
og ljóst þykir að engu verði bjarg-
að úr honum og hann mun að
öllum líkindum verða briminu
auðveld bráð. -grh