Þjóðviljinn - 23.02.1988, Side 1
Handbolti
Þriðjudagur 23. febrúar 1988 ÞJÓÐViLJINN - SÍÐA 9
Lánið lék við Rússana í gær-
kveldi þegar þeir unnu Víkinga í
hörkuleik í höllinni. Boltinn fór
oft í stöng eða slá þegar íslend-
ingarnir reyndu að koma honum í
markið. Rússarnir voru ekki með
sitt sterkasta lið, meðal annars
vantaði Vasilev, sem með bestu
leikmönnum heims, en líklegt er
þó að hann spili með í seinni leik
liðanna í Moskvu.
Árni Friðleifsson byrjaði að
skora þegar aðeins 20 sekúndur
voru liðnar af leiknum. Rússarnir
jöfnuðu strax en Hilmar sá um að
koma Víkingum yfir aftur 2-1. Þá
gerðu Rússarnir 3 mörk í röð,
Kristján Sigmundsson varði úr
hraðaupphlaupi og Guðmundur
Guðmundsson skaut í stöngina úr
góðu færi, 2-4. Síðan var leikur-
inn frekar jafn, liðin skiptust á að
skora og Víkingarnir áttu stang-
arskot úr hraðaupphlaupi, bolt-
inn hrökk út en þá var skotið í
slána. Á 26. mínútu gerði Guð-
mundur síðan tvö mörk í röð sem
nægði til að jafna, 10-10, og Árni
tók enn eitt af sínum fallegu lang-
skotum, sem kom Vfkingum yfir
11-10. Á síðustu sekúndu hálf-
leiksins fiskaði Guðmundur síð-
an víti en Sigurður Gunnarsson
skaut boltanum í stöngina og
útaf.
Síðari hálfleikur byrjaði frekar
rólega og Víkingur komst í
tveggja marka forskot 13-11. En
á 6. mínútu kom vendipunktur-
inn í leiknum. Rússarnir gerðu 5
mörk í röð og komust í 13-16 á
meðan Víkingar skutu enn í
stöngina og dæmdur var ruðning-
ur á Sigurð Gunnarsson, sem var
ansi tæpur dómur. Víkingarnir
gáfust þó ekki upp og létu gestina
ekki stinga sig af. A 19. mínútu
gerðu Rússarnir þó tvö mörk sem
kom þeim í 15-19, en Siggeir
Magnússon og Bjarki Sigurðsson
Laugardalhöll 21. febrúar
Víkingu-ZSKA Moskva 19-24
(11-10)
Mörk Vfkings: Árni Friðleifsson 5,
Bjarki Sigurðsson 4, Guðmundur Guð-
mundsson 3, Sigurður Gunnarsson 3
(1 v), Siggeir Magnússon 2 og Hilmar
Sigurgíslasson 1.
Varin skot: Kristján Sigmundsson
14.,
Útaf: Einar Jóhannesson, Sigurður
Gunnarsson og Sigurður Ragnarsson
2 mínutur hver.
Spjöld: Hilmar Sigurgíslasson gult.
Mörk Moskva: Igor Zubjúk 6, Júríj
Zhitnikov 5 (2v), Vladimír Manuilenko
4, Alexander Rymanov 4, Vadim
Múrzakov 3, Igor Kashkan 1 og Igor
Sazankov 1.
Varin skot: Pavel Sukosjan 13.
Útaf: Zhitnoikov 2 mln, Sazankov 2
mín og Alexander Sokol 4 mín og rautt
spjald
Spjöld: Rymanov og Múrzakov
gult en Sokol rautt.
Dómarar: Per Elbrönd og Vilhelm
G. Jensen voru góðir.
-ste
Rymanov hinn rússneski fiskar boltann úr hendi Karls Þráinssonar. Mynd - E. Ol.
gerðu þá sitt markið hvor, 17-19.
Pá var einn Rússinn, Alexander
Sokol, rekinn af velli með rautt
spjald eftir brotog kjafthátt. Vík-
ingar náðu ekki að nýta sér þessa
brotvikningu að ráði en mótherj-
arnir tóku upp á því að hnoðast
og þvæla til að tefja tíman og
tókst það bærilega. Víkingarnir
fóru líka að þreytast og kraftur-
inn, sem einkenndi þá í byrjun
ieiksins, smáfjaraði út. Á 27.
mínútu þegar staðan var 18-20
gerðu svo Rússarnir 3 mörk í röð
á mjög skömmum tíma, 18-23.
Þar með var vonin um jafntefli
eða sigur úti. Árni náði þó að
skora úr langskoti en þegar
leiktíminn var úti áttu Rússarnir
aukakast og skoruðu úr því og 5
marka sigur var staðreynd 19-24.
Víkingarnir voru ágætir í
leiknum en í lok leiksins var út-
haldið búið eftir að þeir höfðu
verið ívið frískari en mótherjarn-
ir allan leikinn. Rússarnir virk-
uðu mjög þungir en léku af krafti
allan tímann. Það vakti athygli að
Víkingarnir gerðu 8 af sínum
mörkum með langskotum á með-
an hinir gerðu aðeins 4 en línu-
menn Rússanna voru duglegir viö
að fá línusendingar og horna-
mennirnir voru skæðir þótt Vas-
Arni Indri&asson þjálfari
Víkings:
„Þetta lamaðist alveg í restina.
Rússarnir létu ekki boltann nema
í dauðafærum og gerðu þá yfirleitt
mörk. Við nýttum ekki færin sem
skyldi og þá er ekki hægt að vinna
ef ekki eru skoruð mörk. Það
verður tæpt að vinna þetta úti
með 5 mörk í mínus.“
elev vantaði. Kristján varði vel í
markinu þó hann hafi verið betri
áður. Hann tók nokkur af sínum
frægu úthlaupum og náði að
stöðva Rússana nokkrum sinn-
um. Einar og Hilmar voru harðir
eins og venjulega í vörninni þó
þeir hafi farið merkilega lítið
útaf. Siggeir kom inná í síöari
hálfleik og tók ágætis rispur. Karl
var ágætur og Guðmundur einnig
þó hann væri tekinn föstum
tökum. Sigurðurstjórnaði spilinu
og var mjög góður, Bjarki átti
Árni Fri&leifsson Víkingi:
„Þeir voru of sterkir. Við mis-
stum af þeim í lokin enda gekk
okkur mjög illa þá. Það verður
erfitt í Moskvu en ég held að það
sé enn smá von.“
allgóðan leik og gaf ekkert eftir í
horninu og Árni gerði 5 glæsileg
mörk úr langskotum. Áhorfend-
ur voru mjög margir þó ekki hafi
næðist að fylla höllina alveg.
Dómararnir voru frá Danmörku
þeir Per Elbrönd og Vilhelm G.
Jensen og dæmdu nokkuð vel.
Vjatsjeslav Kolotov þjálf-
ari og framkvæmdastjóri
ZSKA Moskva:
„Ég bjóst ekki við að sigra
svona mikið. Við höfðum heyrt
um landslið í handknattleik og
vissum að við máttum ekki van-
meta liðið. Við vorum að vísu
ekki með okkar sterkasta lið en ég
var sæmilega ánægður með það.
Ég vil ekki spá um úrslitin í Mos-
kvu en allt getur gerst."
Sterkir Rússar
lánlausir Víkingar
ZSKA Moskva vann Víking
með 5 marka mun. Víkingarnir vœgast sagt óheppnir
Umsjón: Ingibjörg Hinriksdóttir/Stefán Stefánsson